Dagur - 08.01.2000, Qupperneq 5
LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2000 - S
Tfgptr
FRÉTTTR
Hafa efasemdir
lun vinnubrögð
íslenskir umhverfis-
vemdarsinnar áttu
fundi með fulltrúa
Norsk Hydro í gær.
„Það kom skýrt fram á fundinum
að Norðmenn hafa engan áhuga
á 120 þúsund tonna álveri held-
ur tryggingu fyrir 480 þúsund
tonna álveri. Þetta er enn ein
staðfestingin á því að Fljótdals-
virkjunarævintýri ríkisstjórnar-
innar er bara sjónhverfing. Það
er ekki hægt að halda því að fólki
að þetta sé sjálfstætt fyrirbæri, að
ekki verði haldið áfram yfir í
þetta risaálver," sagði Olafur F.
Magnússon, foringi Umhverfis-
vina, í samtali við Dag eftir að
hann, við annan mann, átti fund
í gær með Peter Johann Schei,
ráðgjafa Hydro Aluminium. Eins
og Dagur hefur greint frá hafa
Peter Johann og Bernt Malme,
yfirmaður umhverfisdeildar
Hydro Aluminium, verið staddir
Ólafur F. Magnússon.
hér á landi til að kynna sér
skýrslu Landsvirkjunar og hitta
aðila sem málið varðar.
Fulltrúar Náttúruverndarsam-
taka íslands áttu einnig fund
með Peter Johann í gær. Arni
Finnsson frá samtökunum sagði
við Dag að það væri alveg ljóst að
Árni Finnsson.
Norsk Hydro hefði miklar efa-
semdir um vinnubrögð íslenskra
stjórnvalda í málinu.
Minnti á Umba í Kristni-
haldinu
„Það var mjög ánægjulegt að
hitta manninn og útskýra fyrir
honum okkar sjónarmið. Hann
var skemmtilegur og virtist vera
hlutlægur. Einnig sögðum við
honum frá þeim milda árangri
sem við höfum náð. Honum þótti
það ákaflega athyglisvert að þetta
fámenn þjóð væri búin að safna
40 þúsund undirskriftum. Að
sjálfsögðu leystum við hann út
með gjöfum og gáfum honum
veggspjaldið okkar og afrit af
fyrsta undirskriftarskjalinu með
nöfnum stofnenda Umhverfis-
vina,“ sagði Olafur.
Hann sagði Peter Johann hafa
minnt sig á Umba í sögu Laxness
um Kristnihaldið. „Það var eins
og að hann hefði komist að sömu
niðurstöðu og Umbi, að kristni-
hald ríkisstjórnarinnar á þessu
sviði væri ekki með felidu. Eg
vona að minnsta kosti að það
verði endanleg niðurstaða hjá
honum,“ sagði Olafur F. Magn-
ússon. - bjb
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra kynnti skýrslu um ástand
£/ Grillo í gær.
Hremsun
„sem fyrst“
Engin bráðahætta er ríkjandi
vegna olíunnar í skipinu E1
Grillo á botni Seyðisijarðar, en
sérfræðingar og yfirvöld eru þó
sammála um að „sem fyrst“
verði að fjarlægja þá 2.400 rúm-
metra af svartolíu sem enn eru í
skipinu.
Stýrihópur um aðgerðir vegna
EI GriIIo hefur komist að þeirri
niðurstöðu að þótt ástand skips-
skrokksins sé nokkuð gott, þá sé
alls ekki tryggt að leki taki sig
ekki upp að nýju næsta sumar,
en Ieki á sér fyrst og fremst stað
í hlýjum sjó. Þegar hefur verið
talað við norskan sérfræðing f
þeim efnum og er reiknað með
að í sumar eða næsta sumar
verði framkvæmdaaðilar valdir
eftir útboði á alþjóðlega vísu.
Umhverfisráðherra segir rfkis-
stjórnina sammála um þessa leið
og mikilvægi málsins. - FÞG
Sjávarútvegsnefndin kom saman í gær. Kristján H. Gunnarsson tekur í hönd Jóhanns Ársælssonar. Við borðsend-
ann situr formaðurinn, Einar K. Guðfinnsson og Hjálmar Árnason og Guðmundur Hallvarðsson lengst til hægri.
mynd: hilmar þór.
„Eðlilegast að bíða
eftir Hæstarétti“
Meirihluti sjávarút-
vegsnefndar hafnaði
þeirri kröfu minni-
hlutans að endurskoð-
un Hskveiðistjómun-
arkerfisins yrði færð
til nefndarinnar.
Sjávarútvegsnefnd Alþingis kom
saman til fundar f gær til að
fjalla um niðurstöðu Héraðs-
dóms Vestfjarða í Vatneyrarmál-
inu margfræga. Að sögn for-
manns nefndarinnar, Einars K.
Guðfinnssonar, var farið yfir
dóminn og reynt að glöggva sig á
niðurstöðum hans.
„Málið er í þeim farvegi að
dómnum verði áfrýjað til Hæsta-
réttar. Enn fremur er heildar-
endurskoðun á fiskveiðilöggjöf-
inni í gangi og að mínu mati eðli-
Iegast að bíða hennar," sagði
Einar en meirihluti sjávarútvegs-
nefndar hafnaði þeirri kröfu
minnihlutans að endurskoðun
Iöggjafarinnar yrði tekin frá ráð-
herranefndinni sem fjallað hefur
um þetta og vinnan færð til sjáv-
arútvegsnefndar. Hann sagði það
einnig eðlilegt að bíða eftir nið-
urstöðu Hæstaréttar. A meðan
gæti sjávarútvegsnefnd ekki að-
hafst mikið.
Möguleikar á margs konar
viðbrögðum
Aðspurður um cigin afstöðu til
málsins sagði Einar það fara eft-
ir viðbrögðum við niðurstöðun-
um. „Ef maður Ies dóminn þá
sýnist mér að hann opni mögu-
leika á margs konar viðbrögðum.
Dómurinn kveður fyrst og fremst
á um það að ekki standist stjórn-
arskránna sú úhlutun sem fram
fer á aflahluta og kvótum. Auð-
vitað er hægt að bregðast við
með ýmsum hætti,“ sagði Einar.
Spurður hvort hann væri sam-
mála þeirri túlkun forsætisráð-
herrans að dómurinn hefði það í
för með sér að erlend skip að-
stoðuðu Islendinga við að þurrka
upp fiskinn úr sjónum, minnti
Einar á löggjöf um eignarhald í
sjávarútvegi sem segði að Islend-
ingar einir gætu veitt innan
landhelginnar. - BJB
BSRB varar við verðhækkuniiin
Bandalag starfsmanna ríkis og bæja sendi í gær frá sér ályktun þar
sem varað er við þeirri þróun verðhækkana sem hefur átt sér stað
undanfarið. Segir að þíbr verðhækkanir dragi verulega úr kaupmætti
launafólks og hafi áhrif á lánskjaravísitölu og skuldastöðu heimila.
BSRB segir að á síðasta ári hafi hver verðhækkunin komið á eftir
annarri og hið sama gerist nú. Fasteignagjöld hækki um 12%, leik-
skólagjöld í Reykjavík um 13% og einnig hafi rafmagn hækkað, stræt-
isvagnafargjöld, rekstrarkostnaður bíla, póstburðargjöld, mjólkurvör-
ur - og jafnframt hafi þátttaka Tryggingastofnunar í lyfjakostnaði
breyst um áramót. Við þessu öllu varar BSRB og bendir á að frá des-
ember til sama mánaðar hafi verðbólga verið 5,6%, árið þar á undan
aðeins 1,3%, 2% árið 1997 og 2,3% 1996. - SBS.
Lottóið á Stöð 2 í kvöld
Islensk getspá hefur flutt Lottóið
og Víkingalottóið frá Sjónvarpinu
til Stöðvar 2. Framvegis verður
dregið í beinni útsendingu í frétta-
þættinum 19>20, á laugardögum
kl. 19.45 í Lottóinu, lýrst í kvöld,
og á sama tíma á miðvikudögum í
Víkingalottóinu. Nær allir lands-
menn ættu að geta fylgst með
dráttunum því þeim verður sjón-
varpað samtímis í opinni dagskrá á
Stöð 2 og Sýn og útvarpað á Bylgj-
unni, Stjörnunni og Mónó 877.
Einnig verður hægt að nálgast
upplýsingar um útdráttinn á textavörpum sjónvarpsstöðvanna, á
Internetinu á slóðinni \w\rw.lotto.is og á upplýsingarás Breiðbandsins.
Auk þess verða tölurnar áfram lesnar upp í símsvara Islenskrar get-
spár. I tilefni flutningsins til Stöðvar 2 verður bryddað upp á ýmsum
nýjungum f útsendingu Lottósins. Tekin verður í notkun sérhönnuð
útdráttarvél sem hefur verið flutt til landsins frá Frakklandi og verð-
ur hún notuð í fyrsta skipti í kvöld. Sú nýbreytni verður í Lottóinu að
nú verður hægt að vinna á tvo rétta auk bónustölu. Vinningshöfum í
Lottói 5/38 á því eftir að Ijölga á nýju ári.
Gerir lítið með gagnrýni
Davíð Oddsson forsætisráðherra sagðist í viðtali á Bylgjunni í gær
ekki taka mikið mark á ásökunum stjórnarandstöðunnar um að hann
beiti ógnunum og rcyni að hafa áhrif á dómara Hæstaréttar vegna
Vatneyrardóms. Hann sagði stjórnarandstöðuna ekki hafa lesið dóm-
inn ef hún héldi því fram að ekki færi alit á hvolf ef Hæstiréttur stað-
festi dóminn. llann sagði að veð í skipum myndi hrynja og þar með
bankakerfið. Forsætisráðherra kvaðst aftur á móti ekki búast við að
dómurinn, sem nú hefur verið áfrýjað, verði staðfestur.
Bergsveinn Sampsted, fram-
kvæmdastjóri íslenskrar getspár.