Dagur - 08.01.2000, Side 6
6 - LAUGAKDAGUR 8. JANÚAK 2000
X^MI-
ÞJÓÐMÁL
Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson
RitStjÓri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Aðstoðarritstjórí: birgir guðmundsson
Framkvæmdastjóri: marteinn JÓNASSON
Skrifstofur: strandgötu 3i, akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Simar: 460 6ioo OG 800 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk.: í.aoo KR. Á MÁnuði
Lausasöiuverö: íso kr. og 200 kr. helgarblað
Grænt númer: 800 7080
Netföng auglýsingadei/dar: greta@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@ff.is
Simar auglýsingadeildar: creykjavíK)563-1615 Ámundi Ámundason
CREYKJAVÍKJ563-1642 Gestur Páll Reyniss.
(AKUREYRI)460-6192 Karen Grétarsdóttir
Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Símbréf ritstjórnar: 460 6171CAKUREYRí) 551 6270 creykjavík)
Heimsendaspár
í fyrsta lagi
Viðbrögð Davíðs Oddssonar forsætissráðherra við kvótadómi
Héraðsdóms Vestfjarða eru ofsafengin. Forsætisráðherra virðist
búinn að ákveða, að verði dómurinn staðfestur í Hæstarétti legg-
ist byggð í landinu af bróðurpart ársins og að hér verði einungis
verstöð sem fólk heimsæki á meðan verið sé að veiða árskvótann
í hafinu í kringum landið. Jafnframt virðist ráðherrann telja að
dómurinn muni opna íslenska fiskveiðilögsögu fyrir erlendum
útgerðum. Það kemur því ekki á óvart að Davíð skuli jafnframt
gagnrýna harðlega kvótadóminn sjálfan og rökstuðning hans,
rétt eins og kvótadóm Hæstaréttar frá 1998.
1 öðru lagi
Þó forsætisráðherra rökstyðji ekki að ráði forspá sína um íslensk
ragnarök er ekki hægt að skilja hann öðru vísi en svo að hann
telji illmögulegt og afar tímafrekt að breyta fiskveiðistjómunar-
kerfinu þannig að það samræmist jafnræðisreglu stjórnarskrár-
innar eins dómstólar túlka hana. Það sé því aðeins ein raunhæf
leið út úr málinu og hún sé sú að Hæstiréttur snúi við dómi
undirréttar. Undirtónninn í þessum málflutningi jaðrar við af-
neitun og veruleikafirringu - afneitun á þeim möguleika því að
Hæstiréttur kunni að staðfesta dóminn.
í Jiriðja lagi
Einstrengingsleg og ofsakennd viðbrögð ar þessu tagi eru ekki til
þess fallin að aulca trú manna á að skynsamlega verði tekið á
þessu mikilvæga máli. Olíklegt er einnig að Hæstiréttur muni
láta svona þrýsting hafa áhrif á afstöðu sína, eins og hefur ver-
ið haldið fram. Þó er það huggun harmi gegn að ýmsir þing-
menn stjórnarliðsins, þar á meðal Kristinn H. Gunnarsson, tals-
maður Framsóknarflokksins í sjávútvegsnefnd nálgast málið
með mun opnari huga en forsætisráðherra virðist gera. Aðalat-
riðið er að stjórnvöld og Alþingi hafa verk að vinna við að undir-
búa að þurfa jafnvel að breyta verulega fiskveiðikerfinu. Til slíks
verks eru dólgslegar heimsendaspár mun óhentugri, en yfirveg-
að og skipulegt mat valkosta og möguleika.
Birgir GuÖmundsson.
Skafiniðahai
og sérálitamál
Það var einhver óhugur í Garra
og lumbra þegar hann vaknaði
skjálfandi í gærmorgun og rím-
aði fullkomlega við samfélagið
sem nötraði í takt við Garra
þennan morgun. Það hafði sem
sé fallíð dómur á Vestfjörðum,
þess efnis að kvótakerfið væri
marklaus skítur á priki og allir
kvótalausir Islendingar sem
ættu minnstu belgbomsur eða
aðrar fleytur til að róa á, gætu
nú átölulaust haldið til hafs og
mokað upp afla. Þetta þóttu
Garra og þjóðinni tíðindi, enda
sagði Davíð að efna-
hagskerfi landsins
myndi hrynja ef dóm-
urinn yrði staðfestur í
Hæstarétti.
Garri getur hinsveg-
ar huggað forsætisráð-
herra með því að vitna
í orð Arthúrs Bogason-
ar trillukallaforingja sem sagði
að „það væri eins og að spila í
skafmiðahappdrætti að leggja
mál fyrir dómstóla.“ Og dóm-
stólarnir eru aukin heldur ekki
ólíkir konfektkassa Forrest
Gumps, menn vita aldrei hvað
kemur upp úr dómstólunum.
Sameign þjóðaxinnar!
Þessvegna er eins vist að
Hæstiréttur muni hrekja dóm
Héraðsdóms Vestfjarða. Annað
eins hefur nú gerst og raunar
oftar en ekki. Garri treystir sér
ekki til að taka efnislega af-
stöðu til lögmætis kvótakerfis-
ins og vægi 7. greinarinnar,
enda hefur Garri Iagt áherslu á
að lesa eldd þessa ógurlegu 7.
grein. Og þó hann hafi að öðru
íeyti fylgst grannt með umræð-
um um kvótakerfið árum sam-
an, þá viðurkennir hann fús-
lega að hann þekkir hvorki
haus né sporð á þessu dýrindis
kerfi, sem aðrar þjóðir ku dá
V
fram úr hófi en íslendingar
meta flestir minna, nema þeir
sem kvótann eiga, löglega eða
ólöglega.
En Garri er hinsvegar tilbú-
inn til að leggja dóm á dómstól-
ana. Og tekur undir með Túra
Boga, þeir eru eins og skaf-
miðahappdrætti.
Sérálitamál
Lögspekingar komast sem sé yf-
irleitt aldrei að samræmdri nið-
urstöðu í nokkru máli. Venju-
lega byrjar þetta í héraðsdómi
sem kemst að ein-
hverri ósamræmdri
niðurstöðu með einu
og einu séráliti í
bland. Málið fer fyrir
Hæstarétt sem sendir
málið til baka vegna
formgalla eða ónógs
sön n u nafærslu fyrir-
tektarleysis. Héraðsdómur end-
urskoðar nú málið og kemst að
svipaðri niðurstöðu og áður og
endursendir til föðurhúsanna í
Hæstarétti. Og eftir ftarlega
umfjöllun, klofnar svo hæsti-
réttur. Þrír dómarar hrinda
dómi undirréttar, einn skilar
séráliti sem styður fyrri dóminn
og sá fimmti skilar sérlunduðu
séráliti sem gengur á skjön við
sérálit félaga hans, niðurstöðu
meirihluta Hæstaréttar og dóm
undirréttar.
Þetta er nú yfirleitt gangur
mála hjá dómstólunum á ís-
landi, eins og allir vita sem
fylgst hafa með brölti þeirra á
undaförnum árum. Og því þarf
Davíð ekkert að óttast. Hann er
farsæll maður og heppinn og
verður ekki skotaskuld úr því að
vinna í þessu nýja skafmiða-
happdrætti allra landsmanna.
- GARRl
BIRGIR
GUÐMUNDS-
SON
SKRIFAR
Það virðist ekki ætla að verða hlut-
skipti Kára Stefánssonar að sigla
Iygnan sjó. Síðan hann kom fram
með hugmyndina að gagnagrunni
á heilbrigðissviði hefur hann stað-
ið í nær látlausum deilum við hina
og þessa, en samhliða hefur hann
orðið hetja fjölda stuðningsmanna
og aðdáenda. Raunar er rétt að
undirstirika að deilurnar í kringum
Kára snúast að minnstu leyti um
persónu hans sjálfs, heldur það
frumkvöðlastarf sem hann er að
vinna og það hvernig hann er að
vinna það. Kannski er það þegar
allt kemur til alls þetta síðast-
nefnda, HVEBNIG frumkvöðla-
starfið er unnið, sem hvað mestum
styrr hefur valdið. Þeir sem eru að
bijóta nýjar lendur, á hvaða sviði
sem er, eru eðli málsins samkvæmt
líklegir til að lenda upp á kant við
samferðamenn sína. Þeir eru að
rjúfa tregðulögmál og halda þá
gjarnan beint af augum frekar en
að velja greiðfarnari krók. En engu
Krókur og kelda
að síður skiptir miklu hvernig
menn bera sig að, upp á það
hversu alvarlegir þessir árekstrar
eru. Hér gildir eins og annars stað-
ar, að betri er krókur en kelda.
Merk gjöf
Á nýársdag var
boðað til blaða-
mannafundar í
Listasafni Island
til að kynna gjöf
Islenskrar erfða-
greiningar og
Friðriks Skúla-
sonar til þjóðar-
innar. Þetta var
ættfræðigrunnur
á Vefnum - Islendingabók - sem
lengi hefur verið unnið að og búið
er að setja tugi mannára í sam-
kvæmt því sem Kári Stefánsson
upplýsti. Þessi vefur á að verða
opinn öllum Islendingum, sem
áhuga hafa á ættfræði og mun ef-
laust verða vel þegin hjá þúsund-
um landsmanna um allt land.
Þetta er vissulega höfðinglegt hjá
þeim Kára og Friðriki, enda verið
að gera að almenningseign veruleg
verðmæti. En eins og svo oft virð-
ist gerast hjá Kára, þá kemur eitt-
hvað uppá þegar
síst skyldi. Eða
svo grið sé til
orða Jóhannesar
úr Kötlum;
„Gömul útslitin
gáta þó úr/ gleð-
inni dró: / Hvað
hér hundur karls
Friðrik Skúlason. sem 1 afdölum
-------- bjó?“
Kæra
Boðuð hefur verið höfundarréttar-
kæra vegna gagna sem slegin voru
inn í ættfræðigrunninn í heimild-
arleysi úr útgáfum frá fyrirtækinu
Genealogia og frá Þorsteini Jóns-
syni ættfræðingi. Oneitanlega set-
ur svona kæra leiðindablett á ann-
ars höfðinglega gjöf og gagnmerkt
framtak. Enn á ný kemur upp
spurningin um það HVERNIG
hlutirnir eru gerðir, hlutir sem í
raun gætu verið hið besta mál.
Einfalt atriði eins og notkun á höf-
undarréttarvörðu efni á ekki að
dúkka upp allt í einu. Augljóst er á
tilkynningu Genealogia Islandor-
um að það er að sækjast eftir pen-
ingagreiðslu. Miðað við umfang
málsins og kostnaðinn við ætt-
fræðigrunninn er ótrúlegt annað
en að höfundarréttargreiðslunar
hefðu verið hlutfallslega lítill við-
bótarkostnaður, ef menn hefðu
sest niður á fyrri stigum og samið
um þær, en engin tilraun er sögð
hafa verið gerð til þess. En nú,
þegar allt er komið í hart, er líklegt
að herkostnaðurinn verði mikill
auk þess sem skugga ber á þessa
merku gjöf. Skyídi Kári aldrei
velta fyrir sér hvort krókurinn sé
ekki, þegar allt kemur til alls,
stundum betri en keldan?
Blasirvið landauðn á
íslandi verói Vatneyrar-
dómurinn staðfestur í
Hæstarétti?
Signý Jóhannesdóttir
formaðurVerkalýðsfélags Vóku í Siglu-
firði.
„Þessari fullyrð-
ingu Davíðs er
ég óssammála að
því leytinu til að
engin landauðn
verður, þó svo
útgerðarmenn
hafi ekki algjör yfirráð yfir fiskin-
um í sjónum. Komi upp nýjar að-
stæður, kemur nýtt kerfi og við
munum læra að búa við leikreglur
þess. Fullyrðingar um landauðn
eru skilaboð til Hæstaréttar um
að dæma „rétt“ í þessu rnáli."
Bjami Hafþór Helgason
framkvæmdastjóri Útvegsmannafél.
Norðurlands.
„Það er alveg
ljóst að ef at-
vinnuréttindi
þeirra sem hafa
veiðiheimildir
yrðu gerð upp-
tæk og öllum
heimilt að veiða fisk, þá hrynur
arðsemin í greininni. Hér yrði
geðveikt kapphlaup í veiðum úr
heildarkvóta og efnahagslegt
hrun kæmi í kjölfarið. Fyrri blóð-
völlurinn yrði landsbyggðin eins-
og hún leggur, og höfuðborgar-
svæðið fylgdi í kjölfarið. Þetta sjá
allir í hendi sér, hvort sem þeir
viðurkenna það eða ekki.“
PéturBolli Jóhannesson
sveitarstjóri íHrísey.
„Satt best að
segja á ég ekki
von á slíku, mál-
ið snýst um það
til hvaða aðgerða
stjórnvöld grípa í
framhaldinu.
Óháð þessum dómi er þó ljóst er
að gera þarf einhverskonar breyt-
ingar á fiskvéiðistjórnarkerfinu í
þá veru að hægt sé að hafa lífsvið-
urværi af fiskveiðum um allt land.
Einsog staðan er í dag eru affa-
heimildnar að færast á sífellt
færri hendur, að minnsta kosti á
meðan kvótinn er bundinn við
skip. Byggðatengja þarf kvóta í
ríkari mæli, þannig að fólkið hafi
trygga atvinnu af því sem sjórinn
gefur.“
Ámi Steinar Jóhanesson
„Ég held að hér
hafi menn full
mikið upp í sig
tekið - og þessi
dómur staðfestir
enn eina ferðina
nauðsyn þess að
taka lög um stjórn fiskveiða til
endurskoðunar og laga þau að
vilja þjóðarinnar. Um ummæli
forsætisráðherra um Iandauðn þá
hefur blasað við íbúum margra
staða auðn vegna núverandi fyrir-
komulags fiskveiðistjórnarmála.
Breytingar á kerfinu eru því sam-
eiginlegt viðfangsefni allra, þann-
ig að um það náist sátt. Vinstri-
hreyfingin - grænt framboð vænt-
ir þess að menn geti náð sátt um
að þróa kerfið til aukinna vist-
vænna strandveiða. Það mun
korna byggðunum til góða og
landinu öllu.“
þingmaður.