Dagur - 08.01.2000, Page 10
10 - LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2000
X^HT-
FRÉTTIR
Kristján til ÚA
Gengið hefur verið frá ráðningu
Kristjáns Aðalsteinssonar sem
sölu- og markaðsstjóra hjá UA,
sem cr nýtt starf hjá félaginu. I til-
kynningu frá UA, sem barst Verð-
bréfaþingi í gær, segir að unnið
hafi verið markvisst að því undan-
farin misseri að byggja upp mark-
aðs- og þróunarsvið félagsins.
Ráðning Kristjáns er liður í því
uppbyggingarstarfi og hefur hann
störf hjá UA í lok febrúar nk. Með-
al fyrri starfa Kristjáns má nefna
að hann var eitt sinn framkvæmda-
stjóri Sæplasts á Dalvík. Síðast var
hann framkvæmdastjóri frysti-
geymslunnar Kuldabola í Þorláks-
höfn. — BJB
Nýr Iðnskóli í Hafnarfirði
Nýtt skólahúsnæði Iðnskólans í Hafnarfirði verður vígt í dag; laug-
ardag, að Flatahrauni 12. Þetta er fyrsta skólahúsnæðið á lslandi
sem byggt er í einkaframkvæmd að undangengnu útboði. Til þessa
hefur skólinn starfað á tveimur stöðum, að Reykjavíkurvegi 74 og í
verknámshúsi við Flatahraun, sem nú verður rifið. Nýja húsið er
tæplega 4.500 fermetrar að stærð. Verktaki var ístak en arkitektar
eru Hilmar Þór Björnsson og Finnur Björgvinsson. Kennsla hefst í
skólanum næsta mánudag.
Jakob yfir
Orkusjóði
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráð-
herra hefur ákveðið að flytja Orku-
sjóð til Akureyrar og hefur Jakob
Björnsson bæjarfulltrúi á Akureyri
verið ráðinn framkvæmdastjóri.
Hlutverk Orkusjóðs er að stuðla að
hagkvæmri nýtingu orkulinda ís-
lands með fjármögnun grunnrann-
sókna á sviði orkumála annars vegar
og fjárhagslegum stuðningi við ýms-
ar framkvæmdir hins vegar. — HI
Nýr spjaUvefur á Vísi.is
Nýr spjallvefur, Fókusspjall, var opnaður á Vísi.is í gær. Þar verður
boðið upp á umræður um kynlíf, tónlist, kvikmyndir og íþróttir. Fók-
usspjallið er þannig byggt upp að netverjar koma fyrst inn í „anddyri"
spjallsins þar sem þeir geta valið sér fjögur „herbergi" þar sem þeir
geta látið ljós sitt skína eða notið birtu annarra! Vísismenn fengu val-
inkunnt fólk til að opna vefinn í gær; leikarana í Englum alheimsins,
Geir Sveinsson handboltakappa, Möggu Stínu og Pál Oskar.
Geiríálverið
Hæfi hf., undirbúningsfélag um
byggingu álvers í Reyðarfirði, hef-
ur ráðið Geir A. Gunnlaugsson
sem framkvæmdastjóra félagsins.
Geir er doktor í vélaverkfræði frá
Brown University í Bandaríkjun-
um. Hann starfaði áður sem fram-
kvæmdastjóri Marel hf. en lét af
störfum þar í lok síðasta árs. Full-
trúar eigenda Hæfis hafa undan-
farna mánuði unnið að nánari
greiningu verkefnisins og i frétta-
tilkynningu segir að Geir hafi verið
ráðinn til að efla það ferli. „Stefnt
er að því að endanleg ákvörðun um
hvort farið verði út í byggingu ál-
vers í Reyðarfirði liggi fyrir síðla
vors eða snemma sumars. Það er
markmið íslensku aðilanna sem að undirbúningnum standa að bjóða
langtíma fagfjárfestum þátttöku í verkefninu þegar að undirbúningi
er lokið, verði niðurstaðan sú að byggja álverið," segja þeir, Hæfis-
menn.
Borgarbúar nærri 110 Jnxsiuid
Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar voru íbúar Reykjavíkur
109.795 hinn 1. desember sl., en voru 108.362 á sama tíma árið
áður. íbúum hefur því fjölgað um 1.433 á einu ári. Arið 1989 voru
fbúar í Reykjavík 96.727. Síðastliðinn áratug hefur íbúum borgarinn-
ar fjölgað um 13.068 manns, eða 13,5%. Breiðholt er enn stærsta
hverfi borgarinnar með um fimmtung borgarbúa, en 1989 bjuggu þar
um 25% íbúanna. I Reykjavík er nú búið við 694 götur, við 692 árið
1998 og 634 árið 1989. Hraunbær er fjölmennasta gata borgarinnar
eins oa mör« undanl’arin ár. Þar búa 2.351 manns, um 30 færri en
árið 1989.
Miklar deilur hafa að undanförnu staðið á Húsavík vegna sameiningar Fiskiðjusamlags Húsavlkur og Ljósafells og
er kæra vegna bæjarstjórnarfundar angi afþví máli.
S veitarstj ómarlog
brotin á Húsavík?
Sj álfstæðisflokkur-
iiin á Husavík hefur
sent erindi til Félags-
málaráöuneytis og fer
fram á úrskurð um
hvort fundur sem
haldinn var í bæjar-
stjóm Húsavikur 21.
desember sl. hafi ver-
ið löglegur
Málið snýst um fjarveru Gríms
Kárasonar, eins af aðalbæjarfull-
trúum meirihluta H-listans, á
þessum fundi. A fundinum var
tekist á um sameiningu Fiskiðju-
samlags Húsavíkur og Ljósavík-
ur í Þorlákshöfn sem meirihlut-
inn hefur barist fyrir. Stefnt er
að hluthafafundi sem tekur
ákvörðun um sameininguna í
kringum 20. janúar næstkom-
andi, en minnihluti bæjarstjórn-
ar hefur viljað láta skoða málið
betur fyrir hluthafafundinn.
Ljóst var fyrir bæjarstjórnar-
fundinn 21. desember að Grím-
ur væri ekki samstíga félögum
sínum í meirihlutanum í þessu
máli og talið líldegt að hann
myndi styðja tillögur minnihlut-
ans, sem fjölluðu meðal annars
um að nýta forkaupsrétt bæjar-
ins á hlutabréfum í FH og einnig
um að láta gera faglega og óháða
úttekt á stöðu FH og Ljósavíkur
og samrunaferli fyrirtækjanna.
Grímur mætti hinsvegar ekki á
fundinn og varabæjarfulltrúi í
hans stað og allar tillögur minni-
hlutans voru því felldar af sam-
stíga meirihluta. Sjálfstæðis-
menn telja að ef Grímur hefði
mætt á fundinn eins og honum
bar skylda til og fylgt sannfær-
ingu sinni, þá hefðu tillögur
þeirra náð fram að ganga. Hon-
um hefði því einfaldlega verið
meinað að mæta á fundinn
vegna skoðana sinna.
Akvörðun Gríms
Kristján Asgeirsson, oddviti H-
listans, segir í samtali við Dag að
það hafi verið ákvörðun Gríms
að mæta ekki á fundinn, enda að
sjálfsögðu ekki hægt að meina
honum það frekar en öðrum
réttkjörnum aðalfulltrúum. I
upphafi samstarfs Alþýðuflokks
og Alþýðubandalags og óháðra í
H-listanum, hefði verið gert
samkomulag sem miðaði að því
að viðhalda einingu listans í
ákvarðanatöku í stórmálum sem
snertu heildarhagsmuni bæjar-
búa. Þannig að ef einn af fimm
fulltrúum meirihlutans hefði
aðra skoðun í slíkum málum en
félagar hans fjórir, þá myndi við-
komandi einstaklingur ekki taka
þátt í afgreiðslu á málinu, til að
riðla ekld samstöðu meirihlut-
ans. „Lýðræðið ræður sem sé
innan meirihlutans," segir Krist-
ján.
Lög brotin
Dagbjört Þyri Þorvarðardóttir,
oddviti sjálfstæðismanna í bæj-
arstjórn, segir að menn vilji ein-
faldlega fá úr því skorið hvort
sveitarstjórnarlög hafi verið brot-
in á þessum fundi, þegar einn
bæjarfulltrúi mætti ekki án þess
að geta borið við Iögboðnum for-
föllum eins og þau eru skilgreind
í lögunum. „Umræddur bæjar-
fulltrúi var í vinnu á fundartím-
anum og það höfum við fengið
vottað. Hann var því ekki löglega
forfallaður.“
Dagbjört segist ennfremur
telja að landslög hljóti að vera
æðri og vega þyngra en einhverj-
ar innbyrðist samþykktir mciri-
hluta H-listans sem hafi ekkert
lagalegt gildí. „Við viljum fá það
á hreint hvort sveitarstjórnarlög
hafa verið brotin í þessu tilviki
og ef það kemur á daginn, þá er
fundurinn ólöglegur og allt það
sem tekið var fyrir á fundinum
ólöglegt," sagði Dagbjört.
Stonnur í vatnsglasi?
Kristján Asgeirsson telur málið
storm í vatnsglasi. „Allan þann
tíma sem ég hef verið í bæjar-
stjóm á Húsavík, hefur aldrei
tíðkast að gera þyrfti grein fyrir
forföllum bæjarfulltrúa. Vara-
bæjarfulltrúar hafa einfaldlega
mætt og engir gert athugasemd-
ir við það fyrr en nú.“ Og Krist-
ján kveðst ekki sjá að það komi
félagsmálaráðuneytinu nokkurn
skapaðan hlut við hvernig menn
kjósa að standa að ákvarðana-
töku í bæjarstjórn Húsavíkur eða
hvaða ástæður liggi að baki
ákvörðunum einstakra bæjarfull-
trúa um að mæta ekki á fundi í
bæjarstjórn. — JS
Iðnaður á uppleið
Nær fjórðungs aukning útfluttra
iðnaðarvara á árinu (jan./nóv.)
hressir heldur upp á bágborinn
vöruskiptajöfnuð, sem síst veitir
af, þar sem útflutningur sjávar-
afurða er nú 2 milljörðum (2%)
minni. Yfir helminginn af 11
milljarða auknu útflutningsverð-
mæti fengum við samt fyrir flug-
vélar og skip sem seld hafa verið
úr landi.
Útflutningsverðmæti iðnaðar-
vara var 34 milljarðar í nóvem-
berlok, 6,3 milljörðum meira en
fyrir ári. Aukningin er mest
(28%) í álinu, sem hefur skilað
21 milljarði í ár og er 13,6% alls
útflutnings. En menn hafa líka
„spítt í Iófana“ í almennum iðn-
aði, sem vaxið hefur meira en
fimmtung milli ára, í 10,4 millj-
arða.
Þjóðin var heldur hófsöm í
innflutningi í nóvember, sem var
ekkert meiri en ári áður, svo
vöruskiptajöfnuður var m.a.s.
réttu megin við strikið í mánuð-
inum. Frá áramótum vantar þó
22 milljarða á að útflutnings-
tekjurnar nægi fyrir innflutn-
ingnum, sem var kominn í 155
milljarða í nóvemberlok, 4%
meiri en í fyrra. — HEl