Dagur - 08.01.2000, Síða 11
Xfc^HT'
LAVGARDAGUR 8. JANÚAR 2000 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Kohl er úti í
kuldamim
Angela Merkel, framkvæmdastjóri CDU, deifir athyglinni frá fjármála-
hneykslinu meö dreifiblöðum þar sem hækkun bensínskatta er gagnrýnd.
Helmut Kohl er í vondum málum.
Helmut Kohl, heiðurs-
formaður CDU og fyrr-
verandi kanslari
Þýskalands, lætur ekki
sjá sig á mikilvægum
áramótafundi Hokks-
ins.
Wollgang Schauble, flokksfor-
maður Kristilegra demókrata
(CDU) í Þýskalandi, sagði í gær
að tímabili Helmuts Kohls hefði
endanlega lokið með kosningaó-
sigrinum í september 1998. Jafn-
framt sagði Scháuble að skilyrðis-
laust verði að upplýsa allt sem
varðar greiðslur til flokksins sem
Kohl tók við en Iét ekki bókfæra
með eðlilegum hætti. Því fyrr sem
botn fæst í þau mál öll því betra -
bæði iyrir flokkinn og reyndar líka
fyrir Kohl, segir Schauble.
Schauble sagði í viðtalinu í gær
að ábyrgðin á þessum reiknings-
færslum utan við bókhald flokks-
ins liggi alfarið hjá Kohl sjálfum.
„Hver formaður ber sjálfur ábyrgð
á verkum sínum,“ sagði Scháuble.
„Það er augljóst að við getum ekki
tekið á okkur ábyrgð á hlutum
sem við vissum ekkert um.“
Þetta er í fyrsta sinn sem
Scháuble hefur opinberlega tekið
með jafn afdráttarlausum hætti
undir kröfur um að upplýsa verði
málið til fulls og Kohl verði að
taka afleiðingum þess. Mikil vin-
átta hefur jafnan verið milli
þeirra, og jókst um allan helming
eftir að Scháuble varð fyrir morð-
tilræði árið 1990. Hann hefur síð-
an verið lamaður fyrir neðan mitti
og farið allra sinna ferða í hjóla-
stól. Kohl hefur haldið verndar-
hendi sinni yfir Scháuble, sem
fyrir sitt leyti hefur jafnan sýnt
Kohl óskoraðan stuðning. Þangað
til núna.
Það er til marks um veika stöðu
Kohls innan flokksins að hann
lætur ekki sjá sig á tveggja daga
áramótafund flokksins, sem hófst
í gær og Iýkur í dag. Á þessum
fundi er meiningin að vinna að
stefnumótun og málefnavinnu, en
Ijóst er að málefni kanslarans fyrr-
verandi og heiðursformanns
flokksins verða ekki langt undan.
Angela Merkel, framkvæmda-
stjóri flokksins, hefur gengið hvað
harðast fram í því af flokksfélög-
unum að gagnrýna Kohl. Með yf-
irlýsingum sínum hefur Scháuble
nú tekið undir með henni að
mörgu leyti, jafnvel þótt flokksfor-
ustan hafi samþykkt í upphafi
fundarins í gær að ekki skyldi gera
þá kröfu að Kohl hætti virkum af-
skiptum af stjórnmálum, en radd-
ir þar um hafa heyrst æ oftar und-
anfarna daga. Forustunni er
greinilega mikið í mun að forðast
klofning í flokknum vegna máls-
ins, því nóg er nú samt.
„Kosningabaráttan verðux
erfiðari“
Það er ekki síst í ljósi kosninga,
sem brátt eiga að fara fram í
tveimur þýskum samhandslönd-
um, Slésvík-Holtsetalandi og Nor-
drhein-Westfalen, sem flokks-
hræður og -systur Kohls eru nú að
Ieggja áherslu á að gagnrýna Kohl
opinberlega og skapa meiri fjar-
lægð milli hans og flokksins. Fjár-
málahneyksli hefur tvímælalaust
töluverð áhrif á kjósendur.
„Kosningabaráttan verður erfið-
ari,“ sagði Scháuble í viðtalinu við
Die Welt.
Opinber rannsókn á greiðslum
til flokks Kristilegra demókrata,
sem Kohl tók við á árunum 1993-
98 hófst síðastliðinn mánudag, en
þann 16. desember síðastliðinn
viðurkenndi Kohl að hafa tekið á
móti 1,5 til 2 milljónum marka á
þessu tímabili, eða jafnvirði um
það bil 60 til 75 milljóna króna.
Trúnaðarbrot
Rannsóknin snýst um það hvort
Kohl hafi brotið gegn lögum um
starfsemi stjórnmálaflokka með
því að gera forseta þingsins ekki
fulla grein fyrir fjárframlögum til
flokksins og þar með sekur um
trúnaðabrot gagnvart flokknum
samkvæmt 266. grein þýsku hegn-
ingarlöggjafarinnar. Til þess að
teljast brotlegur í skilningi lag-
anna skiptir engu máli hvort Kohl
hafi sjálfur hagnast á fénu, sem
hann tók við en færði ekki rétt til
bókar. Hins vegar telst hann ekki
brotlegur nema hann hafi jafn-
framt valdið flokknum Ijárhags-
Iegu tjóni með gerðum sínum.
Lög um starfsemi stjórnmála-
flokka leggja þá skyldu á herðar
forystu flokkanna að gera ár hvert
forseta þýska sambandsþingsins
grein fyrir fjárframlögum til flokk-
anna. Kohl hefur játað að hafa
ekki gert það að fullu, og það kost-
ar flokkinn sektir til ríkisins og að
auki verður hann að hluta til af
Ijárframlögum frá ríkinu.
Vill peningana til baka
Á fimmtudaginn gerðist svo það,
að Karlheinz Schreiber, 65 ára
gamall þýskur vopnasali sem er
búsettur í Kanada, sagðist vilja fá
til baka peningaupphæð, sem
nemur rúmlega 1,1 milljón
marka, eða um 40 milljónum ís-
Ienskra króna. Schreiber lét þessa
upphæð af hendi árið 1991 í Sviss
og Ienti hún í höndum trúnaðar-
manna Kohls en komst aldrei inn
í opinbert bókhald flokksins, eins
og Schreiber segir nú að hann
hafi ætlast til, enda væri þetta
hugsað sem stuðningur við flokk-
inn.
Það var rannsókn á skattsvikum
Schreibers og hugsanlegri vopna-
sölu sem leiddi til þess að upp
komst um leynireikninga Kohls í
byrjun nóvember.
Söfnirn til aö draga úx
skaðanum
Eftir sem áður á Kohl sér þó
dygga stuðningsmenn innan
flokksins. Félagar hans í Neðra-
Saxlandi hafa t.d. hafið söfnun til
stuðnings Kohl og hvetja alla
flokksmenn til þess að Ieggja tíu
mörk inn á „samstöðureikning".
Ef allir skráðir flokksmenn, alls
630.000 talsins, leggja sitt af
mörkum telja forsvarsmenn söfn-
unarinnar að nægilega há upphæð
fáist til þess að bæta flokknum
upp þann Ijárhagslega skaða sem
Kohl hefur valdið honum.
Kohl var formaður flokksins í
25 ár og kanslari Þýskalands í 16
ár, eða frá 1. október 1982 til 26.
október 1998, lengur en nokkur
annar kanslari Þýskalands frá
stríðslokum.
ílffiílTT- i
LnuuU HEIMURINN
Hóta heilögu stríði
INDÓNESÍA - Tugþúsundir múslima á Indónesíu hóta kristnum
mönnum á Mólúkkaeyjum hcilögu stríði. Múslimar líta svo á að kristn-
ir íbúar á Mólúkkaeyjum beri alfarið ábyrgðina á óeirðunum þar, sem
brutust út fyrir u.þ.b. ári, en meira en þúsund manns hafa látist í átök-
unum sem eru á milli múslima og kristinna manna. í Jakarta, höfuð-
borg Indónesíu, hótuðu múslimar því að senda þúsundir manna í heil-
agt stríð til Mólúkkaeyja ef stjórnvöldum á Indónesíu tekst ekki að
koma í veg fyrir ofbeldið á eyjunum innan eins mánaðar.
Trúarleiðtogi flúinn frá Tíbet
INDLAND - Fimmtán ára trúarleiðtogi Tí-
betbúa er flúinn til Indlands, en hann telst
vera þriðji æðsti trúarlegi Ieiðtogi lands-
manna í Tíbet og ber titilinn Karmapa og er
sá 17. í röðinni. Orgyen Trinley Dorje er leið-
togi einnar af stærstu trúardeildum tíbetsku
búddatrúarinnar. Hinn 15 ára leiðtogi fór fót-
gangandi yfir Himalajaljöllin til Indlands líkt
og Dalaí Lama gerði á sínum tíma, og er nú
kominn til Dharamsala þar sem hann hitti
Dalaí Lama að máli. Utlagastjóm Tíbets hef-
ur aðsetur í Dharamsala.
Rússar berjast í suðrinu
RUSSLAND - Hernaður Rússa í Grosní, höfuðborg Téténíu, hefur
ekki gengið jafn vel og rússneskir ráðamenn töldu sjálfum sér og al-
menningi trú um, og hefur manntjón rússneska hersins aukist jafnt og
þétt síðustu daga. Rússneski herinn hefur því gripið til þess ráðs að
draga úr áherslunni á að ná Grosní og herða þess í stað árásir á skæru-
Iiðana í suðurhluta Téténíu. íslömsku skæruliðarnir hafa suðurhluta
Iandsins enn á valdi sínu, en þar er fjalllendi og erfitt um vik fyrir rúss-
neska herinn að athafna sig.
Orgyen Trinley Dorje,
trúarleiðtogi Tíbeta sem
flúinn er til Indlands.
ELD
sðtn
Vandaðar, fallegar.
Ótrúlega hagstætt verð.
-MDflÐÚRVAL-
Clintpn kemur til bjargar
BANDARÍKIN - Friðarviðræður Israelsmanna og Sýrlendinga, sem
fram fara í Bandaríkjunum þessa dagana, voru í gær komnar í sjálf-
heldu eina ferðina enn og sá Bill Clinton Bandaríkjaforseti sig til-
neyddan til þess að blanda sér í viðræðurnar og freista þess að miðla
málum til þess að koma þeim af stað aftur. Hvernig sú tilraun tókst var
ekki ljóst seinni partinn í gær. Ehud Barak, forsætisráðherra ísraels, og
Farouk al-Sharaa, utanríkisráðherra Sýrlands, hafa átt ákaflega erfitt
með að koma sér saman um í
hvaða röð deilumál ríkjanna eigi
að koma til umræðu. Sýrlending-
ar vilja aðallega ræða um Gólan-
hæðir en Israelsmenn vilja láta
öryggismálin vera í forgangi í við-
ræðunum.
Jeltsín hélt upp á
jólin í Betlehem
ISRAEL - Boris Jeltsíns, fráfar-
andi förseti Rússlands, hefur ver-
ið í heimsókn í Israel undanfarið
og meðal annars rætt þar við
rússneska Gyðinga, sem eru fjöl-
mennir í Israel. I gær brá Jeltsín
sér svo á jólaguðsþjónustu í Bet-
lehem, en rússneska rétttrúnað-
arkirkjan fylgir enn gamla stíl,
þ.e. júlíanska tímatalinu sem not-
að var áður en gregorska tíma-
talið var tekið upp í kaþólskum og
lúterskum löndum fyrir 3-400
árum. Samkvæmt gamla stíl var
25. desember í gær, og hittist svo
á að í gær var einnig síðasti dag-
ur föstumánaðar múslima, rama-
dan.
Alvarlegur vatns-
skortur í vændum
Sérfræðingar alþjóðlegrar vatns-
nefndar telja að alvarlegur vatns-
skortur muni verða um heim all-
an eftir aldarfjórðung, en talið er
að þá verði vatnsþörf jarðarbúa
um það bil 40% meiri en hún var
um miðjan áratuginn. Sérfræð-
ingarnir telja að Iífssldlyrði á jörð-
inni versni gífurlega vegna vatns-
skorts ef mannkynið bætir ekki
ráð sitt og fer að umgangast
þessa mikilvægu náttúruauðlind
með öðrum hætti en hingað til.
Skýrsla nefndarinnar verður lögð
fram á alþjóðlegri ráðstefnu um
vatn, sem haldin verður í Haag í
Hollandi um miðjan mars.
Verð frá
69.900.
PFAFF
f HeimilisUvkjm 'erslmt
Grensásvegur 13-108 Reykjavík - Sími 533 2222