Dagur - 08.01.2000, Qupperneq 12
12- LAVGARDAGUR 8. JANÚAR 2000
Úrvalslið „eldri“ landsliðsmanna gegn KA
„Atli verður tekinn úr umferð,“ sagði Ami Stef-
ánsson, liðsstjóri KA-manna í handbolta um
stjörnuleik sem verður í KA-heimilinu í dag á
milli úrvalsliðs „eldri“ landsliðsmanna og KA.
Sannkallaður afmælisleikur því Atli Hilmarsson
heldur upp á nýlegt fertugsafmæli sitt, alveg óvart
á afmælisdegi KA!
Atli riíjar væntanlega upp gömul „flug“ fyrir
utan punktalínu, ásamt kjarnanum úr stjörnulið-
inu frá HM í Sviss 1986 og má þar nefna „gaml-
ingja“ eins og Sigga Sveins, Kristján Arason, Sig-
urð Gunnarsson, Pál Ólafsson, Gunnar Bein-
teinsson og mögulega verður Guðmundur Guð-
mundsson einnig með. Þorgils Óttar Mathiesen
verður líka með en er slæmur í hné þannig að
væntanlega stjórnar hann liðinu. Einnig verða
með gamlir félagar Atla úr Fram, þeir Egill Jóhannesson, Jón Árni Rún-
arsson og Hermann Björnsson. Þá verður „gamlinginn" úr KA lánaður til
stjörnuliðsins en „hann verður ungur í þessu liði“ sagði Atli um Erling
Kristjánsson.
Stefán Arnaldsson mun væntanlega dæma leikinn, sem verður í KA-
heimilinu klukkan 17 í dag og er aðgangseyrir 300 krónur fyrir fullorðna
en ókeypis er fyrir börn. Það eina sem gæti sett strik í reikninginn er ef
ekki verður flugfært norður en þá er bara að vona það besta. - Hl
Atli Hilmarsson þjálfari
KA og afmlæisbarn -
verður tekinn úr um-
ferð!
Nýársmót fatlaðra í dag
Nýársmót fatlaðra bama og unglinga í sundi, fer fram í Sundhöll Reykja-
vfkur í dag og hefst kl. 15:00. Þátttakendur á mótinu eru börn og ung-
lingar 17 ára og yngri frá félögum fatlaðra í Reykjavík, Hafnarfirði, Akra-
nesi, Selfossi og Borgarnesi. Heiðursgestur mótsins verður Björn Bjarna-
son, menntamálaráðherra, en hann afhendir í lok mótsins viðurkenning-
ar til allra keppenda og sérstök verðlaun til þeirra sem verða stigahæstir.
Magalending Mandiester United
DavidBeckham, leikmaður Manchester United
og Sir Alex Ferguson, framkvæmdastjóri liðsins,
fengu báðir að líta rauða spjaldið, þegar United
náði 1-1 jafntefli gegn mexíkanska liðinu Necaxa
í íyrsta leik B-riðiIs heimsmeistamóts félagsliða í
Rio de Janeiro í Brasilíu í fyrrakvöld.
Eins og svo oft áður lét David Beckham ýmis-
legt fara í taugarnar á sér í leiknum, sem endaði
með því að uppsafnaður pirringur braust svo út í
fólskulegu broti á Mexíkananum Milian rétt fyrir
leikhlé. Beckham, sem var að missa Milian fram
hjá sér, gerði sér lítið fyrir og sparkaði í læri hans
og Iá hann eftir á vellinum.
I kjölfarið var Alex Ferguson, sem undanfarna daga hefur látið allt og
flest alla fara í taugarnar á sér, síðan vikið af varamannabekknum, eftir
að hafa kvartað og kveinað í starfsmönnum vallarins og síðan eftirlits-
dómara leiksins. Að hans mati var það leikmönnum mexíkanska liðsins
að kenna að Beckham var vikið af velli, en ekki dekurdregnum sjálfum.
„Þeir voru að beijast um boltann og Mexíkaninn lenti undir. Það er því
honum að kenna að Beckham var rekinn af velli,“ sagði Ferguson, scm
gerir allt til að verja Beckham, minnugur leiðindanna sem fylgdu í kjöl-
far atviksins þegar strákur fékk að líta rauða spjaldið í leiknum gegn
Argentínu á HM í Frakklandi. Sá draugur fylgir Beckham ennþá og á
eflaust eftir að magnast töluvert eftir þetta atvik í Rio.
Mexíkanarnir mun betri
United mátti þakka fyrir jafnteflið í leiknum, en Iítill heimsmeistarabrag-
ur var á leik liðsins á meðan mexíkönsku Ieikmennirnir léku mun betur.
Necaxa náði verðskuldaðri forystu á 15. mínútu Ieiksins, þegar
Montecinos vippaði boltanum yfir Mark Bosnich í markinu bcint úr
aukaspyrnu af 20 metra færi.
Eftir að staðan var 1 -0 í hálfleik fékk Necaxa tækifæri til að bæta við
marki á 57. mínútu þegar Alex Aguinaga lét Bosnich verja frá sér illa
tekna vítaspyrnu. Það sama gerðist hjá Dwight Yorke þegar hann lét
gamla brýnið Hugo Pineda, markvörð Necaxa verja frá sér víti á 80. mín-
útu. Yorke borgaði þó fyrir mistökin tveimur mínútum seinna, þegar
hann skoraði jöfnunarmark United eftir undirbúning Ole Gunnars Sol-
skjærs.
Góð byrjim bjá Vasco da Gama
Það var ölfu léttara yfirleik Vasco da Gama gegn ástralska liðsinu South
Melbourne, þar sem Vascko vann 2-0 sigur með mörkum Felipe og snill-
ingsins Edmundos, sem bæði voru skoruð í seinni hálfleik. Felipe skor-
aði með þrumuskoti af 30 metra færi og ekki var mark Edmundos síðra,
en hann tók boltann Jaglega á bringuna áður en hann sendi hann í net-
ið fram hjá ástralska markverðinum.
Margir biðu spenntir eftir að sjá samvinnu þeirra Romarios og Ed-
mundos hjá Vasco da Gama, sem að undanförnu hafa varla talast við eft-
ir leiðindi sem upp komu með brasilíska landsliðinu. Þeir virðast þó hafa
tekið gleði sína aftur því þeir sáust faðmast eftir að Romario hafði klúðr-
að dauðafæri frá Edmundo.
Antonio Lopes, þjálfari Vasco sagði eftir leildnn að hann hefði verið
erfiður. „Astralimir spiluðu mjög vel. Þeir em ekki tekniskir en spila
skipulagðan bolta,“ sagði Lopes.
Vasco mætir Manchester United í dag og þá tekur David Beckham út
eins Ieiks bann sem hann hefur þegar verið dæmdur í, auk smá sektar.
Sir Ferguson, verður heldur ekki á bekknum, en hann fékk Iíka eins leiks
bann fyrir fýlukastið í fyrrakvöld.
David Beckham.
ÍÞROTTIR Á SKJÁNUM
Laugard. 8. jan.
íþróttir
Kl. 14:00 íþróttaanáll 1999
Handbolti
Kl. 16:1 5 Leikur dagsins
1. deild kvenna
Stjarnan - Víkingur
Körfubolti
Kl. 12:00 NBA-tiIþrif
Fótbolti
Kl. 14:45 Enski bikarinn
Fulham - Wimbledon
Fótbolti
KI. 20:05 HM félagsliða
Man. United - Vasco da Gama
Sunnud. 9. jan.
Skíði
Kl. 11:00 Heimsbikarinn
Frá heimsbikarmótinu í Cham-
onix. Svig karla fyrri umferð.
Seinni umferð kl. 12:00.
Körfubolti
Kl. 12:20 NBA-leikur vikunnar
Fótbolti
Kl. 13:45 Enski bikarinn
Man. City - Leeds
KI. 15:55 Enski bikarinn
Arsenal - Leicester
Kl. 19:25 ítalski boltinn
AC Milan - Roma
Ameríski fótboltinn
Kl. 21:25 Ameríski fótboltinn
Farið yfir helstu atriði og
leikreglur.
KI. 21:55 NFL-deiIdin
Seattle - Miami
ÍÞRÓTTIR UM HELGINA
Laugard. 8. jan.
■ handbolti
Urvalsdeild kvenna
KI. 16:15 Stjarnan - Víkingur
Kl. 16:30 Grótta/KR - ÍR
KI. 16:30 UMFA - Valur
2. deild karla
Kl. 14:00 Breiðablik - Fjölnir
■ KÖRFUBOLTI
1 ■ deild karla
Kl. 16:00 Breiðablik - Stafholtst.
Kl. 16:00 Þór, Þorl. - Höttur
Renaultbikar karla
Kl. 16:00 Haukar - Selfoss
Renaultbikar kvenna
Kl. 16:00 Grindavík - ÍS
■ blak
1 ■ deild kvenna
IG. 14:00 Þróttur N. - Þróttur R.
Sunnud. 9. jan.
■ HANDBOLTI
Urvalsdeild kvenna
Kl. 20:00 Haukar - Valur
■ körfubolti
1. deild karla
Kl. 15:00 Stjarnan - ÍV
Kl. 14:00 Selfoss - Höttur
Renaultbikar karla
Kl. 20:00 Hamar - KR
Kl. 20:00 KFÍ - Njarðvík
Kl. 20:00 Tindastóll - Grindavík
Renaultbikar kvenna
Kl. 18:00 Tindastóll - KR
■ blak
1. deild kvenna
Kl. 14:00 Þróttur N. - Þróttur R.
-ÐMjur
HWA RllN £ 0
Laugard. kl. 15 og 18.40.
Sunnud. kl. 15 og 18.40.
Mánud. kl. 18.40.
Laugard. kl. 21.
Sunnud. kl. 21.
Mánud. kl. 21.
RÁÐHÚSTORGl
VRm SÍMl 461 4666 I HX
Laugard. kl. 23.15.
Sunnud. kl. 23.15.
Mánud. kl. 23.15.
The 13th Warrior
Laugard. kl. 16.50,18.50,
21 og 23.15.
Sunnud. kl. 16.50,18.50,
21 og 23.15.
Mánud. kl. 16.50,18.50,
21 og 23.15.
Sími 462 3500 • Hólabraut 12 • www.nett.is/borgarbio
Laugard. kl. 17,19,21 & 23
Sunnud. ki. 17,19,21 & 23
Mánud. kl. 17,19, 21 & 23
Laugard. kl. 15
Sunnud. kl. 15
KE
Laugard. kl. 15 og17
Sunnud. kl. 15 og 17
Mánud. kl. 17 53E
augard. kl. 19, 21 og 23
uiinud. kl. 19, 21 og 23
íánud. kl. 19, 21 og 23
nnfooLBYj
nniooLBYi
D 1 G I T A L