Dagur - 22.01.2000, Side 5

Dagur - 22.01.2000, Side 5
X^íit LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000 - 21 Jón Viðar Jónsson segir það ánægjulegt að Þjóðleikhúsið skuli vera farið að sinna gömlum íslenskum leikritum og vonast til að það verði framhald á því. Siðferðislega þenkjandi höfundur í byrjun aldarinnar fóru nokkrir ungir menn til Danmerkur til þess að gerast atvinnurithöf- undar geta lifað af því að skrifa. Einn þeirra var Guðmundur Kamban sem lifði af leiklistinni en hlaut heldur snaut- leg örlög. Guðmundur Kamban kom fram í kjölfar þeirra Jóhanns Sigur- jónssonar sem sló í gegn með leikriti sínu um Fjalla Eyvind sem sýnt var í Kaupmannahöfn árið 1912 og Gunnars Gunnars- son sem gaf út Sögu Borgarætt- arinnar. Fyrsta verk Kambans, lladda Padda, var sýnt í Kon- unglegaleikhúsinu í Kaup- mannahöfn árið 1914 og fékk góðar undirtektir. Jón Viðar Jónsson, leikhúsfræðingur, segir það vera ljóðrænt verk sem minni dálítið á Fjalla Eyvind Jó- hanns. „Þetta eru náttúrlega mjög ólíkir höfundar en Guð- mundur Kamban skrifaði í svip- uðum anda og Jóhann til þess að byrja með. Það er greinilegur Islandsáhugi í Danmörku á þessum tíma. Isleningar eru að brjótast undan dönsku stjórn- inni. Þessi áhugi er frekar af rómantískum toga og menn hafa dálítið klisjukenndar hugmyndir um frumstæða Islendinga. Eg skal ekkert segja um hvort sú mynd sé sannverðug en þessir Islandshöfundar héldu henni að Dönum. Jóhann, Gunnar og Kamban og ekki síst Jónas Guð- laugsson sem var sá fjórði í þess- um hópi.“ Jón Viðar segir að danskir bókmenntamenn hafi skilið að- stæður íslendinganna en nú séu þeir gleymdir í Danmörku. „Manni finnst það svolítið sér- kennilegt að höfundar eins og Jóhann Sigurjónsson og Gunnar Gunnarsson sem náðu talsverðri frægð og voru þýddir á mörg tungumál séu gleymdir en skýr- ingin er sú að Danir litu fyrst og fremst á þá sem íslenska höf- unda og voru þessvegna ekkert að taka þá með í danska bók- menntasögu.'1 Velgerða leikritið Guðmundur Kamban fór til Am- eríku árið 1915 og dvaldi þar í tvö ár og markar þessi ferð ákveðin tímamót á hans feril að mati Jóns Viðars. „Hún sýnir metnað hans og kraft. Hann finnur að þetta dansk-íslenska umhverfi setur honum ákveðin takmörk sem skáldi og tekst á við það. Áhrifin af Ameríkuför- inni koma fram í næstu verkum hans, skáldsögunni Ragnari Finnsyni og leikritunum Marm- ara og Vér morðingjar. Kamban er siðferðislega þenkjandi höf- undur sem hafði mikinn áhuga á refsingum. Hann tók þær til mcðferðar í verkum sínum. Hann var sannfærður um að refsingar, fangavist og slíkt gerði engan mann betri, þær væru miklu fremur til þess fallnar að steypa mönnum í glötun. Leikritið Vér morðingjar sem oft er talið höfuðverk Kambans Guðmundur Kamban, rithöfundur var sennilega fyrsti Islendingurinn sem hafði leikstjórn að aðalstarfi. Kamba hafði mikinn áhuga á refsingum. Hann var sannfærður um að refsingar, fanga- vist og slíkt gerði engan mann betri, þær væru miklu fremur til þess fallnar að steypa mönn- um í glötun. tengist þessari umræðu að vissu leyti. Það var frumsýnt árið 1920 í Kaupmannahöfn. Þetta er hjónabandsleikrit með hefð- bundnu sniði sem íjallar um óhamingjusamt hjónaband. Þar sem karlinn og konan elskast mikiö, en eru þó það ólík að þau ná ekki saman. Þegar leikritið hefst hefur karlinn tekið þá ákvörðun að slíta hjónabandinu, en konan er ekki tilbúin til þess og af þessu verða mikil átök um samband þeirra. Það sem gerir þetta leikrit að lifandi skáldskap er hversu vel honum tekst að sýna hlutina frá hliðum þeirra beggja, hvorugt þeirra ber alla sökina. Þau bera bæði sinn hluta af ábyrgðinni af því hvern- ig komið er. Þetta verður mikil barátta og kannski ekki rétt að skemma spennuna fyrir þeim sem ekki þekkir verkið með því að segja hvernig hún endar. Þetta leikrit er skrifað útfrá þeim hugmyndum sem voru f gangi á þessum tíma um vel gerða leikritið og Kamban vinn- ur mjög ákveðið eftir þeim. Þær gerðu ráð fyrir að leikrit gerðust á einum stað á helst ekld lengri tíma en sólarhring. Svo eru átökin alltaf að stigmagnast og hver þáttur endar á ákveðnum hápunkti, þangað til að hámark- inu er náð í lok verksins. Áhugi á kvikmyndagerð Guðmundur Kamban skapaði sér nafn sem leikhúsmaður og starfaði um tíma sem leikstjóri, bæði á Folketeatret og líka við Konunglega leikhúsið þar sem hann var fastráðin í tvö eða þrjú ár í upphafi fjórða áratugarins. Hann var mildll áhugamaður um kvikmyndagerð og segir Jón Viðar það hafa verið meira en daður, vegna þess að hann leik- stýrði tveimur kvikmyndum. Hann endaði líf sitt á fremur dapurlegan hátt, var myrtur í Danmörku í lok seinna stríðs af því hann var talinn hafa tengst nasistum á stríðsárunum. Jón Viðar bendir á ágæta bók sem heitir Berlínarblús eftir Ásgeir Guðmundsson sem fjalli um þá hluti. Vér morðingjar var sett upp síðast í Þjóðleikhúsinu árið 1968. Jón Viðar segir að hann hafi ekki séð verkið þá en hann ætli að fara að sjá sýningu Þjóð- leikhússins á verkinu núna. „Mér finnst ánægjulegt að Þjóð- Ieikhúsið skuli vera farið að sinna okkar gömlu leikritum. Við íslendingar eigum nú ekld mikla klassík í Ieikrituninni. Það eru nokkur Ieikrit sem ástæða er til að líta á með vissu millibili, nú hcfur Þjóðleikhúsið tekið til sýninga bæði Gullna hliðið og Vér morðingjar. Það finnst mér ánægjulegt framtak og vonandi að það verði framhald á því.“ -PJESTA ^^LEIKFÉLAG^S^ ©^REYKJAVÍKURJ® BORGARLEIKHÚSIÐ ATHUGIÐ BREYTTAN SÝNINGARTÍMA UM HELGAR Stóra svið: Djöflarnir eftir Fjodor Dostojevskí, leikgerð í 2 þáttum. Þýðing: Ingibjörg Haraldsdóttir Leikstjóri: Alexei Borodín Leikmynd og búningar: Stanislav Benediktov Hljóð: Baldur Már Arngrímsson Ljós: Lárus Björnsson Danshöfundur: Þórhildur Þorleifsdóttir Túlkar: Staníslav Smirnov, Alevtína Druzina, Natalía Halldórsdóttir Helstu hlutverk: Baldur Trausti Hreinsson, Friðrik Friðriksson, Ellert A. Ingimundarson, Halldóra Geirharðsdóttir og Margrét Helga Jóhannsdóttir. 2 sýn sun 23/1 kl. 19:00 Grá kort, örfá sæti laus 3 sýn fös 28/1 kl. 19:00 Rauð kort örfá sæti laus Leikmynda og búninga- hönnuðurinn Stanislav Benediktov Heldur sýningu á verkum sínum. Sunnudaginn 23/01 frákl. 14:00 til 16:00 Aðeins þessi eina sýning Bláa herbergið eftir David Hare, byggt á verki Arthurs Schnitzler, Reigen (La Ronde) Sun 30/01 kl. 19:00 Litla hryllingsbúðin eftir Howard Ashman tónlist eftir Alan Menken Lau 22/01 kl. 19:00 örfá sæti laus Fim 27/01 kl. 20:00 Sex í sveit eftir Marc Camoletti Mið 26/01 kl. 20:00 Litla svið Afaspil Höf. og leikstj.: Örn Árnason 7 sýn sun 23/01 kl. 14:00 nokkur sæti iaus sun 30/01 kl. 14:00 nokkur sæti laus sun 30/01 kl. 17:00 aukasýning Fegurðadrottningin frá Línakri eftir Martin McDonagh fim 27/01 kl. 20:00 örfá sæti laus, lau 29/01 kl. 19:00 aukasýning SÝNINGUM FER FÆKKANDI. Leitin að vísbendingu um vitsmunalíf í alheiminum Eftir Jane Wagner Lau 22/01 kl. 19:00 uppselt Fös 28/01 kl. 19:00 nokkur sæti laus Miðasalan er opin virka daga frá kl. 12-18, frá kl. 13 laugardaga og sunnudaga og fram að sýningu sýningardaga Símapantanir virka daga frá kl. 10 Greiðslukortaþjónusta Sími 568 8000 Fax 568 0383 S i iit,..,.. J IjnlnyiiilJ EHúiiiÍlhinLÍll f: E) EloS'. HBdS ileikfelagakureyrarI Miðasala: 462-1400 ^LESSJJ „Blessuð jólin“, - eftir Arnmund Backman. Leikarar: Aðalsteinn Bergdal, Arndís Hrönn Egilsdóttir, Árni Tryggvason, Anna Gunndís Guðmundsdóttir, María Þálsdóttir, Saga Jónsdóttir, Sunna Borg, Sigurður Karlsson, Snæbjörn Bergmann Bragason, Vilhjálmur Bergmann Bragason, Þórhallur Guðmundsson, Þráinn Karlsson. Leikmynd og búningar: Hlín Gunnarsdóttir Ljósahönnun: Ingvar Björnsson Hljóðstjórn: Kristján Edelstein Leikstjóri: Hlín Agnarsdóttir NÆSTU SÝNINGAR laugard. 22. janúar kl. 20.00 föstud. 28. janúar kl. 20.00 laugard. 29. janúar kl. 20.00 GJAFAKORT ■ GJAFAKORT Einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir. Munið gjafakortin okkar - frábær tækifærisgjöf! |Lil ill JÍxiBtilfSiiALIitil7.IT! [ jgMnl líilij ll.FIKFFI.Af, AKIIRtVKAB Miðasalan opin alla virka daga frá kl. 13:00-17:00 og fram að sýningu, sýningardaqa. Sími 462 1400. www.leikfelag.is

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.