Dagur - 22.01.2000, Qupperneq 10

Dagur - 22.01.2000, Qupperneq 10
^LÍfJí) IUhJDJiJU / 26 LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000 Frændsystkinin Thelma Maria Guðmundsdóttir og Darri Már Magnússon þjást bæði afsama sjaldgæfa kvillanum, eru bæði með fjölfæðuofnæmi, astma og exem. „Erum ekki þekktar fyrir að gefast upp þó á móti blási og höfum reyntýmsar leiðir til að berj- ast fyrir okkar rétti - og barnanna okkar, “ segir Bergþóra Stefáns- dóttir, móðir Darra Más, hér i viðtalinu. mynd: brink. Systurnar Bergþóra og María Stefánsdóttir á Akureyri hafa staðið í erfiðri baráttu vegna barna sinna sem eru bæði með fjölfæðuofnæmi, asma og exem. Baráttan er þyrnum stráð - en börnin standa sig einsog hetjur. „Börnin höndla veikindi sín vel, máski vegna þess að þau þekkja ekki annað. Vissulega hafa þessi veikindi reynt mikið á fjölskyldurnar, bæði andlega og einnig eru fjárútlát mikil. Hinsvegar er þetta orðið meðfærilegra núna þegar börnin sjálf þekkja sín takmörk og vita hvað þau mega og hvað ekki. Þau segja nei takk þegar þeim eru boðin brauð eða köku- sneið og það gerðu þau í Hagkaup fyrir jólin þegar þar voru kynningar á hvers- konar góðgæt,“ segir María Stefánsdóttir á Akureyri. Fjölfæðuofnæmi, astmi og exem Systurnar María og Bergþóra Stefánsdæt- ur á Akureyri segjast langt því frá sam- rýmdar, en aðstæður síðustu ára hafa þó þjappað þeim vel saman. I maí 1996 ól María Thelmu Maríu, dóttur sína og Guðmundar Garðarssonar. Sjö vikum síð- ar kom í heiminn Darri Már, sonur Berg- þóru og Magnúsar Þórs Eggertssonar. Börn þeirra systra voru örfárra mánaða þegar kom í Ijós að þau þjást bæði af slæmu fjölfæðuofmæmi, astma og exemi. Því verður að gæta sérstaklega að matar- æði barnanna - sem og margra annarra þátta í lífi þcirra - þannig að það sé þeim og aðstandendum sem bærilegast. „Það er kannski fljótlegra að telja upp þann mat sem börnin mega borða,“ segir Berþóra og kímir. „En fjölfæðuofnæmi þeirra er þannig að börnin eru með of- næmi fyrir til dæmis öllum mjólkurvör- um, hveiti, höfrum, bygg, eggjum, fiski, flestum tegundum ávaxta og grænmetis, svínakjöti, lauk, hnetum og möndlum sem og öllum reyktum eða unnum kjöt- vörum. Hinsvegar mega þau borða nauta- hakk, lambakjöt, kjúklinga, kartöflur og hrísgrjón, epli og perur, vínber, kartöflu- strá-og -sIfkan-mat-eruTn-vrð-oft með á borðum. Astmaköst fá börnin oft án nokkurra skýringa, svo sem ef þau finna ilmvatnslykt og þegar fiskur er á borðum. Ef þau eru með kvefpest versnar astminn til muna. Exemið lýsir sér þannig að húð barnanna verður oft mjög slæm og margt sem öðrum þykir eðlilegt að gera er þeim meinað. Þau fara til dæmis ekki í bað nema tvisvar til þrisvar í viku og þarf þá að blanda baðvatnið með salti og natroni og sundlaugarferðir eru nánast bannorð. Þá er mótstöðuafl þeirra gegn um- gangspestum Iítið.“ Barnadeildin snilldardæmi Börn sem þjást af sjúkdómum eins og börn þeirra systra ná oft einhverjum bata lyrstu þrjú árin. Það hefur hinsvegar ekki gerst í þeirra tilvikum. „Og ég vona bara að sá tími komi að börnunum fari að líða betur," segir María, sem lofar þá þjón- ustu sem veitt er á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri. „Barnadeildin þar er snilldardæmi, starfsfólkið er fráhært og umhverfið heimilislegt og notalegt. Hver og einn sjúklingur er meðhöndlaður sem manneskja, en ekki til- felli.“ Orsakir þessara veik- inda í fjölskyldunni eru læknum eldd með öllu ljósar. Bergþóra þjáist reyndar af dýra-, gróður- og rykofnæmi rétt einsog Magnús, maður hennar, sem einnig er með fæðu- ofnæmi fyrir til dæmis- svínakjöti, unnum kjötvörum, kryddi, lauk, og rúg. María er með öllu frí við of- næmi, astma og exem en Guðmundur maður hennar hefur gróður- og rykof- næmi. Þá er astmi nokkuð algengur í föð- urætt þeirra systra. En erfitt er þó að finna út af hverju nákvæmlega sami kvilli Ieggst á bæði börn þeirra systra. Dýrt og erfítt Sem gefur að skilja hafa veikindi Darra Más og Thelmu Maríu raskað mjög öllu daglegu lífi fjölskyldna þeirra. „Yngra barnið fær alltaf athyglina," segir Berg- þóra, og Marfa tekur í sama streng. „Þetta hefur reynt mikið á son minn, Hilmi Freyr, sem er sjö ára, enda fær ■ systir hans miklu meiri athygli,“ segir „Börn þeirra systra voru örfárra mánaða þegar kom í Ijós að þau þjást bæði af slæmu fjölfæðuofmæmi, astma og exemi. Því verður að gæta sérstaklega að mataræði barnanna“... María. „Engu að síður þykir honum afar vænt um systur sína og gætir hennar vel. Hinsvegar á hann góða daga núna þegar hann liggur í rúminu með hlaupabólu og fær athyglina." Þá nefnir Bergþóra að fjölskyldan geti ekki farið í heimsóknir þar sem teppi eru á gólfum eða gæludýr í húsi. Þar með er útilokað að fjölskyldurn- ar geti búið í blokk. Ekki sé farið á veit- ingahús nema það megi taka með sér nesti og starfsfólk veitingahúsa taki slíku misjafnlega. Þá hafa þessi veikindi barnanna reynt á fjárhaginn. Allt sérfæði er dýrt má nefna að þriggja lítra skammtur af ofnæmisfríu mjólkurdufti sem blandað er út í vatn og börnin drekka í stað mjólkur kostar 2.180 kr. Tryggingastofnun ríkisins greiðir nú niður mjólkur- og mjölkostnað, 90% upp að vissri upphæð í hverjum mánuði. Þá geta börnin ekki borðað venjulegt brauð heldur verður að sérbaka það úr gerviefn- um sem koma í stað hveitis. Einn og sami rétturinn er sjaldan á borðum fyrir alla fjöl- skylduna og það eykur kostnað. „Eg hef ekki þorað að taka matar- reikninginn saman - og þetta er dýrara og tíma- frekara en nokkur ímynd- ar sér,“ segir Bergþóra. Vegna rykofnæmis þeirra fer drjúgur tími í þrif. Systurnar bæta því við að vegna veikinda barnanna hafa þær mikið verið frá vinnu og það er misjafn- lega séð. Lenti Bergþóra raunar í því á dögunum að missa starf sem hún var í, þar sem atvinnurekanda þótti hún vera orðin of rhikið frá vinnu vegna veikinda barns síns; talsvert um- fram þá sjö daga sem starfsmenn hafa á ári vegna slíks. „Eg vildi geta verið heima til að sinna veiku barni á meðan ástandið er eins og það er, í stað þess að vinna úti til að eiga fyrir næsta reikningi," segir María. Baráttan er þyrnum stráð Barátta Maríu og Bergþóru Stefánsdætra við Tryggingastofnun og fleiri stofnanir fyrir rétti sínum hefur verið þyrnum stráð, að þeirra sögn. Systurnar segja bótakerfi Tryggingastofnunar ekki ná til ofnæmisveikra barna nema að takmörk- uðu leyti og bótagreiðslur sem fengust vegna veikinda barnanna voru felldar nið- ur á síðasta ári. Undanþága fæst í ein- staka tilfellum og flokkuðust börnin þar inn og fá þær rúmar 16 þúsund kr. á mánuði. Kerfið gerir hinsvegar ekki ráð fyrir ofnæmisveikum börnum nema að takmörkuðu leyti. Attatíu þúsund króna greiðsla vegna Thelmu sem fékkst frá Tryggingastofnun í hitteðfyrra var endur- heimt skömmu síðar og borið við að hún hefði verið greidd út vegna mistaka! Þá ætluðu systurnar að koma börnum sínum í gæslu hjá dagmæðrum á Akureyri fýrir tæpum þremur árum, en fengu þau vör frá Dagmæðrafélagi Akureyrar, sem starfar í skjóli bæjaryfirvalda, að við veik- um börnum væri ekki tekið. Bjargaði það þeim systrum að þær eiga góða frænku sem tók börnin í gæslu á meðan þær sóttu skóla. Hinsvegar hrósa þær María og Bergþóra sérstaklega Gunnhildi Birn- isdóttur leikskólastjóra á Kiðagili, en þar eru börn þeirra hálfan daginn. Þær segja hana hafa lagt sig sérstaklega fram um að gæta réttar þeirra og reynt að mæta þörf- unum. „Við systurnar erum ekki þekktar fyrir að gefast upp þó á móti blási og höfum reynt ýmsar leiðir til að berjast fyrir okkar rétti - og barnanna okkar. María gekk raunar svo Iangt að hún fór á fund forsetans okkar, Olafs Ragnars Gríms- sonar, og ræddi málið við hann. Hann tók okkur vinsamlega en ekkert hafðist upp úr þeirri ferð. Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra sá ekki ástæðu til þess að ræða málið við okkur og það kom ekkert út úr því að tala við Kristján Þór Júlísson, bæjarstjórann okkar hér á Akureyri, um þá aðstoð sem bærinn gæti veitt okkur ef vilji væri fyrir hendi," segir Bergþóra. Hundrað hetjur Á haustdögum stóðu þær María og Berg- þóra, ásamt fleirum, að stofnun Hetj- anna, sem er félag aðstandenda lang- veikra barna á Eyjafjarðarsvæðinu. Talið er aðlangveik börn á svæðinu séu um hundrað talsins og nú þegar eru aðstand- endum þrjátíu þeirra orðnir félagsmenn. Markið er sett hátt, bæði í því að félags- menn verði enn fleiri og eins að því leyti að staða þeirra sem Iangveik börn eiga batni og verði sanngjörn, einsog þær syst- ur komast-að örði. »SBS;

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.