Dagur - 29.02.2000, Page 1
Hreiiiniingar
í Heklugosi
Sja blx. 2,4,8,9 ojí 23
Fjalladrottningin Hekla er að gjósa, en gos hófst í fjallinu á laugardag. Hér má sjá Erling Gíslason, snjóbílstjóra viröa fyrir sér glóandi hraunkantinn í gær. mynd teitur
Lokatömin að hefjast?
HaHdór Björnsson
segir lokatöm kjara-
samninga Flóabanda-
lagsins að hefjast.
Samkomulag í sjón-
máli mn tryggingar-
ákvæði og starfs-
menntasjóð. fíiniinn
og haf á miUi í launa-
liðnum.
„Það voru mjög gagnleg funda-
liöld í kjaraviðræðunum um
helgina og ákveðið að hittast aft-
ur á miðvikudag (á morgun.) Þá
gæti ég trúað að hæfist það sem
menn kalla lokatörn í þessum
kjarasamningum okkar,“ sagði
Halldór Björnsson, formaður
Eflingar stéttarfélags, í samtali
við Dag um ganginn í kjarasamn-
ingum Flóabandalagsins og
vinnuveitenda.
Það sem fyrst og fremst
strandar nú á er sjálfur launalið-
urinn. Verið er að ræða um
kjarasamninga til þriggja ára.
Flóabandalagið gerir kröfu um
að laun sem eru 99 þúsund
krónur á mánuði eða hærri
hækki um 5% á ári í þrjú ár.
Laun sem eru lægri hækki í 91
þúsund krónur á þremur árum.
Það má meta til allt að 30%
hækkunar á lægstu launaflokk-
unum. Þessu hafna atvinnurek-
endur algerlega og eru að tala
um launahækkanir á bilinu 2-
4%. Flóabandalagsmenn segja
enga möguleika á samkomulagi á
þeirri launaforsendu sem
atvinnurekendur eru með.
Tryggingaákvæði
I þessum kjara-
viðræðum hafa
menn rætt um
ákveðið trygg-
ingaákvæði ef
aðrar stéttir fá
meiri Iauna-
hækkanir en
Flóabandalagið
Eins ef verð- og
vísitöluhækk-
Halldór Björns-
son, formaöur
Eflingar
anir eiga ser
stað í landinu. Með öðrunt orð-
um að þessi kjarasamningur
verðí stefnumarkandi fyrir aðra
kjarasamninga sem eru í farvatn-
ínu hvað launaliðinn varðar.
Halldór segir að samkomulag
geti auðveldlega tekist um trygg-
ingaákvæði varðandi það ef aðrir
semja um meiri launahækkanir
en Flóabandalagið. Hins vegar
sé erfiðara að ná saman varðandi
verð- og vísitöluhækkun á samn-
ingstímabilinu. Það mál sé ófrá-
gengið.
Rætt hefur verið um að skipuð
verði nefnd sem komi saman og
meti þessa stöðu 1. febrúar 2001
og 2002. Þetta virðist fljótt á lit-
ið vera svipað og gert var fyrir
nokkrum árum þegar hin svo
kölluðu rauðu strik voru í gangi í
kjarasamningunum.
Þá hefur verið rætt um sérstakt
gjald sem renni í starfsmenntun-
arsjóð og allar Iíkur á að sam-
komulag náist um það atriði.
Styrkur og veikleiM
Halldór Björnsson segir það ekki
trufla þá Flóabandalagsmenn að
Verkamannasambandið er uppi
með verkfallshótanir og miklu
hærri launakröfur en þeir. Aðrir
sem Dagur hefur rætt við segja
það ef til vill vera styrk Flóa-
bandalagsins að vinnuveitendur
eru með verkfallshótanir VMSI
yfir sér, en veikleika að verða að
ríða á vaðið í samningagerð með
lægri kröfur en Verkamanna-
samabndið er með.
„Við vorum aldrei inni á þessu
ferli og þeim kröfum sem Verka-
mannasambandið er með og
þess vegna höldum við okkar
striki," segir Halldór Björnsson.
- S.DÓR
Matra Nortel símstöðvar
Mikið úrval ISDN símstöðva
Fjölbreyttir möguleikar
t.d. beint innval, talhólf,
sjálfvirk svörun, tölvutengingar,
þráðlausar lausnir o.fl.
Lcitið nánari upplýsirisa hicí sölumönnum okkar
B R Æ Ð U R N I R
mmmmm
Lágmúla 8 • Sími: 530 2800 • Fax: 530 2810
www.ormsson.is
■HHHHHBMMMi
HATRA N&RTEL
COMMUNICATIONS
-samskiptaleið komandi kynslóða