Dagur - 29.02.2000, Blaðsíða 12
12- PRIUJUDAGUK 29. FEBRÚAR 2000
D*gur
ERLENDAR FRÉTTIR
ÍÞRÓTTIR
Kviðdómendur
verja úrskurðiim
Mótmælendur héldu veskjum sínum á lofti, en sams konar athöfn varð
Amadou Diallo aö bana.
Sýknudómur fjög
urra lögreglumauna í
New York liefnr vakið
hörð viölirögð.
Kviðdómendurnir í New York,
sem sýknuðu fjóra hvíta lög-
reglumenn af morði fyrir helg-
ina, sögðu sumir í gœr að ekki
hefði verið nokkur möguleiki að
komast að annarri niðurstöðu.
Dómarinn hefði ítrekað sagt
þeim að ef þeir teldu lögreglu-
mennina hafa „skynsamlega
ástæðu til að halda“ að Amadou
Diallo hafi verið vopnaður og
hættulegur þá yrðu þeir að
sýkna þá.
Sýknudómurinn, sem felldur
var á föstudag, hefur vakið hörð
viðbrögð í Bandaríkjunum og
fjölmenn mótmæli hafa verið
haldin f New York daglega frá
því dómurinn féll. Um þúsund
manns mættu til dæmis til mót-
mælaaðgerða á sunnudaginn
utan við höfuðstöðvar Samein-
uðu þjóðanna í New York og
meðal annars tóku nokkrir
bandarískir þingmenn þátt í
þcim.
Lögreglumennirnir fjórir,
Sean Carroll, Edward Mc-
Mellon, Kenneth Boss og Ric-
hard Murphy, skutu 41 skoti að
Diallo, og hittu hann 19 sinn-
um. Tilefnið var að hann varð
ekki við skipunum þeirra um að
nema staðar. Lögreglumennirn-
ir töldu hann hafa dregið upp
skammbyssu, en síðar kom í
ljós að hann hélt á veski sínu.
Diallo var frá Gíneu í Vestur-
Afríku, svartur á hörund, en
Iögreglumennirnir allir hvítir.
Meirihluti kviðdómaranna var
sömuleiðis hvítur á hörund. Ur-
skurður kviðdómsins hefur þótt
bera sterkan keim af kynþátta-
fordómum.
Kviðdómararnir reyndu þó í
gær að réttlæta niðurstöðu
sína, og sögðust alls ekki vera
ánægðir með hana sjálfir. „Eg
veit að lögreglumennirnir eru
ánægðir," var haft eftir einum
kviðdómaranna í gær, 71 árs
gamalli konu. „Enginn kvið-
dómaranna er mjög ánægður,"
bætti hún við.
Arlene Taylor, formaður kvið-
dómsins, sagði niðurstöðuna
ekki hafa neitt með kynþátta-
stefnu að gera.
Móðir Diallos sagði kviðdóm-
arana þó hafa gjörsamlega
gleymt því að málið snerist um
son hennar. „Dómarinn sagði
þeim að setja sig í spor lög-
reglumannanna," sagði hún.
Vörn lögreglumannanna fólst í
því að þeir töldu sjálfa sig vera í
lífshættu, þar sem þeir héldu
veskið sem Diallo hélt á vera
byssu.
Mótmælin í New York á
sunnudag fóru friðsamiega
fram, en á laugardaginn voru
um 100 manns handteknir í
tengslum við mótmælaaðgerðir
gegn sýknudómnum. Fjölmarg-
ir mótmælendur héldu veski
sínu á loft til þess að minna á
kringumstæðurnar þegar Diallo
lést.
Himdruð manna drukkna
SUÐUR-AFRÍKA - Vitað var í gær um hátt á fjórða hundrað
manns, sem drukknað hefur í flóðunum í suðurhluta Afríku. Flóð-
in hafa komið einna harðast niður á Mósambík, sem er eitt fátæk-
asta ríki heims, en Suður-Afríku, Simbabve og Botsvana hafa
einnig orðið illa úti. Hundruð þúsunda hafa misst heimili sín og
fólk hefur þurft að hafast við á vörubílspöllum, uppi á húsþökum
eða uppi í trjám. I Mósambík voru þúsundir manna enn einangr-
aðar í gær. I gær var svo von á annarri djúpri lægð með hvassviðri
og úrhelli.
Orðrómur um afsögn Haiders
AUSTURRÍKI - Miklar vangaveltur voru í austurrískum fjölmiðl-
um um það í gær að Jörg Haider, formaður Frelsisflokksins í Aust-
urríki, hygðist segja af sér embætti flokksformanns. Beðið var yfir-
Iýsingar frá Haider, sem hann ætlaði að gefa í gærkvöldi á fundi
flokksforystunnar. I laider hefur verið formaður flokksins og ríkis-
stjóri í sambandslandinu Kárnten, en tók ekki sæti í nýrri ríkis-
stjóm með Þjóðarflokknum.
Uppljóstrari sér ekki eftir neinu
ISRAEL - Mordechai Vanunu ljóstraði fyrir 14 árum upp um kjarn-
orkuleyndarmál ísraels og hlaut þungan fangclsisdóm fyrir vikið.
Israelskur þingmaður hefur nú farið fram á það að Vanunu verði
náðaður. Vanunu er hins vegar ekki á því að ganga að neinum skil-
yrðum um náðun, og vill heldur afplána allan fangelsisdóminn.
Hann hyggst alls ekki biðja um náðun.
Forstjóri SeUafield segir af sér
BRETLAND - Forstjóri kjarnorkuendurvinnslustöðvarinnar í
Sellafield, Taylor, hefur sagt af sér vegna ólesturs sem er á öryggis-
málum stöðvarinnar, eins og fram hefur komið í fréttum. Endur-
vinnslustöðin hefur sent frá sér eldsneyti, sem er endurunnið úr
kjarnorkuúrgangi, og látið fölsuð gæðavottorð fylgja þeim.
CDU segir
tapið
„hvedandi“
Kristilegi demókrataflokkur-
inn (CDU) í Þýskalandi tapaði
nokkru fylgi í þingkosningum í
þýska sambandslandinu Slés-
vík-Holtsetalandi um helgina,
en þó ekki jafn miklu og flest-
ir virðast hafa búist við í kjöl-
far fjármálahneykslisins sem
mikið hefur verið Ijallað um í
fjölmiðlum undanfarnar vikur.
Ráðamenn CDU sögðu tapið
vera „hvetjandi" fyrir starf
flokksins.
Baráttan um arftaka Wolf-
gangs Schasubles í formanns-
stól flokksins fer nú væntan-
lcga fyrir alvöru af stað, en lík-
Iegust í embættið þykja enn
sem fyrr þau Angela Merkel og
Volker Ráhe. Volker Ráhe var
forsætisráðherraefni flokksins
í Slésvík-Holtsetalandi, en
sagðist eftir 'tapið ætla að af-
sala sér þingmennsku í sam-
bandslandinu og helga sig
sambandsmálefnum.
Sósfaldemókratar (SPD)
voru ótvíræðir sigurvegarar
kosninganna, og þykir sá sigur
langþráður eftir að flokkurinn
hefur tapað fimm fylkiskosn-
ingum í röð í Þýskalandi. Aðr-
ir sigurvegarar kosninganna
voru Frjálsir demókratar og
flokkur danska minnihlutans.
Líklegast er að mynduð verði
samsteypustjórn SPD og
Græningja í Slésvík-Holtseta-
landi.
Matt Elliott skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri gegn fyrstu deildar liðinu Tran-
mere Rovers í úrslitaleik, sem fram fór á Wembley á sunnudaginn.
Elliott hetja
Leicester City
Leicester vaim um
helgina enska deildar-
bikariim eftir 2-1 sig-
ur á Tranmere Rovers
í úrslitaleik á
Wembley. Arnar
Giumlaugsson ekki í
leikmaimahópi
Leicester.
Matt Elliott, íyrirliði Leicester
City, tryggði Iiði sínu enska
deildarbikarmeistaratitilinn í
knattspyrnu, þegar hann skoraði
bæði mörkin í 2-1 sigri gcgn
fyrstu deildar liðinu Tranmere
Rovers í úrslitaleik, sem fram fór
á Wembley á sunnudaginn.
Elliott náði forystunni fyrir
Leicester á 29. mínútu leiksins,
en David Kelly jafnaði fyrir
Rovers 13 mínútum íyrir leiks-
lok, fjórum mínútum áður en
Elliott skoraði sigurmarkið og
tryggði liði sínu þar með þátt-
tökuréttinn í UEFA-bikarnum á
næstu leiktíð. Þetta er þriðji
deildarbikartitill Leicester, en
síðast vannst hann árið 1997 og
þar áður árið 1964.
Rovers, sem var að leika sinn
fyrsta úrslitaleik í 1 16 ára sögu
félagsins, byrjaði leikinn mun
betur og gegn gangi hans skoraði
Elliott fyrra markið eftir horn-
spyrnu Steve Guppys. Eftir að
Rovers hafði síðan misst leik-
mann útaf á 63. mínútu, tókst
þeim ioks að jafna, áður en
Elliott skoraði sigurmarkið og nú
aftur eftir hornspyrnu Guppys.
Arnar Gunnlaugsson var ekki í
leikmannahópi Leicester.
Úrslit leikja í ensku úrvals-
deildinni um helgina:
Arsenal - Southampt. 3-1
Ljungberg (22. og 68.), Berg-
kamp (36.) - Richards (61.)
Bradford - Aston Villa 1 - 1
Windass (76.) - Merson (38.)
Chelsea - Watford 2-1
Desailly (2.), Harley (65.) -
Smart (39.)
Coventry - Tottenham 0-1
Armstrong (82.)
Middlesbr. - Leeds 0-0
Sheff. Wed. - Newcastle 0-2
Gallacher (11.), Shearer (86.)
Sunderland - Derby 1-1
Rae (62.) - Christie (60.)
West Ham - Everton 0-4
Barmby (8., 64. og 67.), Moore
(71.)
Wimbled. - Man. United 2-2
Euell (1.), Cort (62.) - Cruyff
(30.), Cole (80.)
Hreinn lírslitaleikur
FH og VíMngur, efstu
lið úrvalsdeildar
kvenua í handknatt-
leik, mætast í íþrótta-
húsinu í Kaplakrika í
kvöld, í síðstu umferð
deildarinnar.
Leikurinn er hreinn úrslitaleikur
um það hvort iiðið hreppir deild-
armeistaratitilinn, en Víkingur
er nú í efsta sætinu með 29 stig,
eftir 25-17 sigur á Haukum um
helgina og FH í öðru sætinu með
27 stig, eftir 30-25 tap gegn
Fram í Safamýrinni. FH-ingum
dugar því ekkert annað en sigur
til að hrcppa titilinn, en vegna
hagstæðara markahlutfalls, verð-
ur titillinn örugglega þeirra, nái
þær að sigra í kvöld. Þegar liðin
mættust f fyrri leik liðanna í Vík-
inni, þann 4. desember varð
jafntefli 21-21, en áður höfðu
liðin mæst í fyrstu umferð bik-
arsins, þar sem FH vann ellefu
marka stórsigur, 24-13 í
Kaplakrika. Það má því búast við
hörkuleik í Krikanum í kvöld,
þar sem þessi ungu og efnilegu
lið munu örugglega gera allt til
að vinna sinn fyrsta stórtitil í
mörg ár.
I neðri hluta deildarinnar er
þegar ljóst hvaða lið verma
botnsætin þrjú, en það eru Aft-
urelding, KA og IR og einnig er
ljóst hvaða lið komast í 8-liða úr-
slitin, sem eru auk FH og Vík-
ings, Grótta/KR, IBV, Stjarnan,
Valur, Fram og Haukar.
Síðasta umferð í kvöld:
Kl. 20:00 FH - Víkingur
KI. 20:00 Grótta KR - Fram
KI. 20:00 Haukar - ÍR
KI. 20:00 ÍBV - Valur
Föstud. 3. mars
Kl. 20.00 UMFA - KA
uOIlí
ij/ij-J c/Ij i i
*4 * L