Dagur - 11.03.2000, Blaðsíða 3

Dagur - 11.03.2000, Blaðsíða 3
Á síðustu mánuðum hafa sffellt fleiri gengið fram fyrir skjöldu til að minna stjórnmálamenn á afdrifaríkasta siðferðisvanda einnar rfkustu þjóðar veraldar Karl Sigurhjörnsson biskup íslands Ellert B. Schram forseti ÍSÍ Ólafur Ólafsson fyrrv. landlæknir Bengt Lindquist umboðsmaður fatlaðra hjá Sameinuðu þjóðunum „Á þriðja þúsund einstaklingar þurftu að þiggja aðstoð Hjálpar- starfs kirkjunnar fyrir nýliðin jól, og það í mesta góðæri (slands- sögunnar. Þetta fólk er flest öryrkjar sem ættu samkvæmt viðurkenndum grundvallarsið- gildum okkar þjóðar að njóta velferðar og stuðnings samfél- agsins. Eitthvað er nú að." Úr nýárspredikun, janúar 1999. „Verstur er þó hlutur öryrkj- anna, sem aldrei hafa beðið um sína örorku en eru háðir þeim smánarskammti sem hrekkur af borðum allsnægt- arinnar." Október 1998. „Upplýsingar um örorku- greiðslur hér á landi eru ekki til að fara með í aðra hreppa, þær eru svo lágar, þrátt fyrir að við höfum verið ein tekju- hæsta þjóð í heimi í áratugi." „Hafa menn gleymttilgangi almannatrygginga?" Desember 1998. „Þó að íslenska ríkisstjórnin hafi verið ein sú fyrsta sem lét þýða Grundvallarreglur Sameinuðu jjóðanna um málefni fatlaðra, Dá er ekki nóg að þýða þær. Það aarf líka að framfylgja þeim." Desember 1997. Úr fréttabréfi Biskupsstofu: Úr forystugrein Dags: „Helmingur skjólstæðinga Hjálparstarfsins eru öryrkjar. Eru þetta sæmandi „Aðeins lítið brot af öllum þeim milljörðum sem ríkissjóður hefur kjör í velferðarsamfélagi á tímum hagvaxtar og afgangs á fjárlögum? bætt við sig í skatttekjum á þessu ári og því næsta myndi duga Vissir þú að öryrkjar á íslandi eru aðeins 7.776 talsins? til að gera hér nauðsynlegar úrbætur." Getur verið að það sé hagkerfinu ofviða að bæta kjör þessa hóps?" Desember 1998. Janúar 1999. Úr yfiriýsingu Rauða kross íslands: „Við (slendingar erum meðal auðugustu þjóða heims og getum tryggt að þeir sem standa höllum fæti vegna sjúkdóma, atvinnumissis, örorku, aldurs eða annarra aðstæðna njóti ekki síður en aðrir mannsæmandi lífskjara." Desember 1998. Úr forystugrein Morgunblaðsins: „í Ijósi réttsýni og sanngirni ertímabært, að ekki sé fastar að orði kveðið, að endurskoða stöðu öryrkja, sérstaklega þeirra sem urðu öryrkjar ungir." Desember 1998. Úr fréttatilkynningu Hjálparstofnunar kirkjunnar: „Hjálparstofnun kirkjunnar hvetur ráðamenn til þess að bæta svo net almannatrygginga að þeir sem þurfa á því að halda geti skapað sér mannsæmandi líf." Október 1998. Oryrkjabandolag Islands tisámim.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.