Dagur - 11.03.2000, Blaðsíða 8

Dagur - 11.03.2000, Blaðsíða 8
 L ÍF/Ð í LANDINU ^ - LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 „Þetta er alvarlegur sjúkdómur og þótt það sé kannski ekki til eftirbreytni hefég kosið að fara þá leið að afneita honum með því að líta svo á að mér eigi ekki eftir að fara aftur, og það er alls ekki úti- lokað að það gerist þó líkurnar séu meiri á þvi að mér hraki." Mér leyfist ekki að hugsa í kjörtímabilum Garðar Sverrisson, formaður Öryrkja- bandalags- ins, hefur verið áber- andi í fréttum undan- farið vegna hatrammra deilna við Davíð Odds- son þar sem hvorugur hefur gefið eftir í kjarn- yrtum yfirlýsingum. í viðtali ræðir Garðar um deilurnar, pólitíkina, skáldskapinn og MS sjúkdóminn sem hann er haldinn. - Finnst þér að þú hafir gengið of langt í ummælum um Davtð Oddsson? „Síður en svo. Davíð Odds- son er búinn að mála sig út í horn, ekki bara úti í þjóðfélag- inu heldur í sínum eigin flokki, með einstaklega lítilmótlegum ummælum sem hæfa engan veginn manni í hans stöðu. I stað þess að rökræða efnislega spyrðir hann saman sjúkdóma og óreiðu og kallar fátækt fólk smælingja. Ef ég bregst ekki við slíkum ummælum við hverju á ég þá að bregðast? Síðan ber hann Oryrkjabanda- laginu á brýn að hafa misfarið með fé við auglýsingagerð sem hafi verið í samkrulli við ákveð- inn stjórnmálaflokk. Ef í sæti forsætisráðherra væri maður sem fólk tæki mark á hefðu þessi ummæli kallað á tafar- lausa opinbera rannsókn og lögsókn. Einn stjórnmálaforingja kaus Davíð að taka auglýsingar Ör- yrkjabandalagsins sem per- sónulega árás á sig og störf sín. Hann hefur ítrekað gert okkur þann óleik að setja málefni okkar í flokkspólitískan farveg. Davíð er orðinn fulltrúi sjónar- miða sem eru í rauninni horfin með öllum þorra þjóðarinnar. Kannanir hafa sýnt að yfir- gnæfandi meirihluti þjóðarinn- ar vill bæta kjör öyrkja. Það eru breyttir tímar og breyttur hugs- „Ég starfaði um tíma sem blaðamaður og veit af reynslu að ef Davíð mislíkar á hann til að leggja fjölmiðla og jafnvel tiltekna menn á ís og tekur ekki frá þeim símtöl. Menn vilja ekki kosta þvf til, enda er vont fýr- ir fjölmiðlamann að vera í þeirri stöðu að ná ekki sambandi við forsætisráðherra." unarháttur og Davíð myndi vaxa í áliti ef hann skynjaði þetta og breytti um kúrs. Davíð tengir persónu mína ákveðnum stjórnmálaflokki og það ræðst af því að sem korn- ungur maður var ég í Alþýðu- flokknum og fylgdi Vilmundi Gylfasyni í Bandalag jafnaðar- manna. Síðan er liðinn hálfur annar áratugur og ég hef sinnt flestu öðru en pólitísku vafstri. I örvæntingu sinni bregður Davíð á það ráð að gera þetta mál að persónulegu einvígi milli sín og mín. Hann reynir að grafa undan trúverðugleika mínum meðal annars með því að segja að ég hafi kallað hann fasista og nasista og sagt hann vera vanheilan á geði. Hann veit mætavel sjálfur að það sem ég sagði var að ummæli hans og framkoma í þinginu endur- spegluðu ójafnvægi og vanlíð- an. Það sér hver maður að það er óravegur frá vanlíðan yfir f það að vera vanheill á geði. I starfi mínu sem formaður Ör- yrkjabandalagsins umgengst ég marga einstaklinga sem eru vanheilir á geði og það myndi aldrei í lífinu hvarfla að mér að leggja manni andlega vanheilsu til lasts á einn eða annan hátt. Þá er óravegur frá nasisma og því að líkja lítilsvirðingu for- sætisráðherra í garð öryrkja við lítilsvirðingu flokks Heiders í garð innflytjenda. Þetta veit Davíð en hann skákar í því skjóli að menn muni ekki ná- kvæmlega hvað ég sagði. Davíð Oddson er forsætisráðherra og einhverjir hafa, sem betur fer kannski, tilhneigingu til að trúa því að forsætisráðherra sé heiðarlegur maður sem segi satt og rétt frá, þó að við, því miður, eigum því ekki að fagna nú um stundir. Svo bætir hann því við að ég hafi sagt að hann mætti ekki fara í kirkju. Eg hefði nú þvert á móti talið að fáir ættu brýnna erindi í kirkju en einmitt hann, maður sem sér fjandmenn í hverju horni og telur að öll gagnrýni hljóti að vera af illum hvötum sprott- in. I þessu sambandi má rifja upp að hann hefur ráðist á for- vera mfna hjá Öryrkjabandalag- inu og sakað þá um nákvæm- lega það sama og hann sakar mig nú um, að misbeita sam- tökum okkar f flokkspólitískum tilgangi. A þessu byrjaði hann strax sem borgarstjóri. Það er umhugsunarvert að Davíð er aldrei látinn standa fyrir máli sínu í fjölmiðlum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.