Dagur - 11.03.2000, Blaðsíða 18

Dagur - 11.03.2000, Blaðsíða 18
34 - LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 UNGLINGALÍFIÐ í LANL Foreldrar standandi bit Leikfélag Menntaskólans á ísafirði setti upp Draum á Jónsmessunótt I tilefni af Sólrisuhátíðinni. Mikið húllumhæ hefur veríð á ísafirði í þessarí viku en þar hefur staðið yfir Sólrísuhátíð. Fyrsta Sólrísuhátíðin var haldin fyrir 27 árum í Mennta- skólanum á ísafirði síðan hefur dagskráin undið upp á sig. Hátíðin var sett síðasliðinn sunnudag en henni lýkur á morgun. „Unglingar á ísafirði eru önnum kafnir. Það er svo gaman að vera hérna. Ef þú býrð á Isafirði og langar til þess að hafa mikið að gera þá gerirðu það. Þú þarft ekk- ert annað en að rétta upp litla fingurinn. Það er algjör óþarfi að sitja heima, horfa á sápuóperum- ar og kvarta yfir því, að það sé ekkert að gera,“ segir Greipur Gíslason, einn skipuleggjenda Sólrisuhátíðar á Isafirði. Dagskrá Sólrisudaga er íjöl- breytt, það eru myndlistarsýning- ar, tónleikar og fleiri uppákomur. I gærkvöldi var Sólrisudansleikur- inn þar sem hljómsveitin Miðnes spilaði. I dag verða sýndar heim- ildarmyndir í Menntaskólanum. í kvöld verða síðan tónleikar, þá kemur hljómsveitin Fálkar úr Keflavík og síðan verður einhver óvæntur glaðningur. A morgun verður svo trúbadúrinn Hörður Torfa með tónleika. I tengslum við Sólrisuhátxðina setti svo leik- félag Menntaskólans upp leikritið Draum á Jónsmessunótt. Greipur segir að sýningar hafi gengið vel. „Það verður sýnt á morgun og verður það að öllum líkindum næst síðasta sýningin. Eg leik þarna lítið hlutverk, það er hlut- verk Páls Kvists. Það er leikstjór- inn í leikhópnum í Iðnaðar- mannaleikhúsinu. Hann er svolít- ,11 nörd. Það er mjög gaman að standa í þessu. Það er alveg ótrú- legt hvernig leikstjóranum hefur tekist að ná því fram sem hann vildi úr þessum efnivið. Ég veit að margir foreldrar hafa verið alveg standandi bit á því hvað krakkarn- ir þeirra gátu. Sigrún Sól Olafs- dóttir á heiður skilinn fyrir þetta starf. Það hefur verið mjög gaman að vinna með henni.“ Megnið utan skólatfma Sólrisuhátfð stendur venjulega frá sunnudegi til sunnudags en Greipur segir að núna hafi vprið reynt að að teygja þetta yfir tvær helgar. Á föstudeginum fyrir viku hafi verið opnað kaffihús sem tengist hátíðinni og þá hafi út- varpstöð Menntaskólans farið í loftið. Á sfðasta laugardag var svo söngvakeppni Menntaskólans. Þar voru átta atriði en það voru þau Gylfi Ólafsson og Róslaug Agnarsdóttir sem sungu dúett, sem sigruðu með Iagið „Orginal". Viðburðir Sólrisuhátíðar eru opnir öllum bæjarbúum. A skólatíma í Menntaskólanum er dagskrá ætl- uð nemendum, en Greipur segir að öðru fólki sé ekki hent út. „Til dæmis var Islenski dansflokkur- inn með sýningu hjá okkur á mið- vikudaginn klukkan þrjú og það komu allmargir sem ekki eru í Menntaskólanum á þá sýningu og voru mjög velkomnir. Megnið af dagskránni er utan skólatíma. Dagskrárliðir hafa verið vel sóttir af fólki utan úr bæ.“ Greipur segir að það sé gott að eiga heima á ísafirði. „Eg hef aldrei búið annars staðar, nema í York og Kaupmannahöfn. Það var reyndar ekki mjög lengi og ég var lítill. Ég veit af því að mörgum krökkum, sem fara héðan og eru á „Ég veit afþvi að mörgum krökkum sem fara héðan og eru á mínum aldri og fara suður í framhaldsskóla þeim grútleiðist I borginni. Ég held að þeir sem vilji vera ánægðir með að búa hérna séu það, “ segir Greipur Gíslas- son, einn forsvarsmanna Sólrisuhátíðar á ísaf irði. mínum aldri og fara suður í fram- haldsskóla þeim grútleiðist í borg- inni. Ég held að þeir sem vilji vera ánægðir með að húa hérna séu það.“ Þurftu ekki að borga lista- mönnum laun Sólrisuhátíð er styrkt af Isa- Ijarðarbæ og Landsbankanum en Greipur segir fjármuni sem varið er í hátíðina skila sér í ánægjunni. „Það kostar inn á flesta þessa við- burði og þannig fáum við pening í kassann. Það fara allir á Sólrisu- ballið, skólinn borgar leikstjórann, þannig að við þurfum bara að borga leikmyndina. Þannig má al- veg ímynda sér að það sem kemur inn af leiksýningunni dugi til að borga aðra dagskrárliði. Gárung- arnir voru að hlæja að því að við værum með mjög metnaðarfulla dagskrá núna af því dagskráin var svo ódýr í fyrra - en þá var ekkert flogið. Við þurftum því ekki að borga neinum listamönnum laun, en það var ofsalega fi'n dagskrá. Við erum mjög stolt af þessari há- tíð og ég veit að skólayfirvöld eru mjög ánægð. Við höfum haft gott samstarf við tónlistarfélagið og myndlistar- félagið hér á staðnum. Ég tel að svona listahátíðir eigi ekki endi- Iega að sækja svo mikið út fyrir þetta svæði, heldur á líka að nota það sem er fyrir. Bróðir minn er framkvæmdastjóri skíðavikunnar sem verður héma um páskana og við höfum oft verið að ræða þetta. Listahátíðir eru ekki bara til þess að bæta við heldur verður líka að styðja við bakið á því sem er á staðnum." -PJESTA Röddin er hljóðfæri og notar Jónsi hana sem slíka, syngur texta á íslensku og sínu eigin tungumáli til skiptis. geðþekka útvarpsmann á Rás 2, segja frá því að hann hafi verið á ferðalagi í danskri járnbrautarlest og verið með Ágætis byrjun diskinn í ferðaspilarnum sínum. I klefanum hjá honum hafi ver- ið danskur útvarpsmaður og Ieyfði Óli honum að hlusta á Sigur Rós og mun sá danski hafa hrósað tónlistinni en spurt til hvers hægt sé að nota svona tónlist. Tónlist er að sjálfsögðu vita gagnslaus en gerir þó mesta gagn í heimi. Tónlist er heilafóður og nærir skilningarvitin og gerir lífið á jörðinni mun bærilegra. Sig- ur Rós er á góðri leið með að Ieggja undir sig heiminn með íslenskuna að vopni. Textar hljómsveitarinnar eru á ís- lensku ásamt því að vera á tungumáli sem er þeirra eigin. Tungumál tónlistar- innar er alþjóðlegt. Þvílíkur gullmoli. -PJESTA Tónleikar hljóm- sveitarinnar Sigur Rósar i Sjallanum síðast liðinn fimmtudag voru upplifun fyrir skynfærin. „Vá!“ Var það eina sem kom uppí hug- ann að loknum tónleikum Sigur Rósar sem voru í Sjallanum síðastliðinn fimmtudag. Þegar gengið var inn stund- víslega klukkan níu voru kertaljós í salnum, reykelsisilmur í Iofti, og slæð- ingur af fólki og margir með farsímann á lofti og sendu SMS. Fólk var að tínast inn. Það var eftirvænting í Ioftinu en úr hátölurunum hljómaði tónlist Hilmars Arnar Hilmarssonar úr Englum Al- heimsins. Sjallinn er ágætis staður til þess að hlusta á plötur og tónlist Englanna ágætis ujiphitun fyrir tónleik- ana og hvað er betra til þess að magna upp spennu en að láta fólk bfða. Fólk var enn að tínast inn í húsið og þegar tónléikarnir byrjuðu skyldu- bundnum hálftíma of seint. Skömmu seinna var salurinn þétt setinn. Hljóm- sveitin spilaði lögin sín tvö úr „Englun- um“, í bland við Iögin af Agætis byrjun og ný lög sem væntanleg eru á geisla- diski frá Fat Cat-útgáfunni bresku. Þar var vögguvísan góðkunna eftir þá bræð- ur Jón Múla og Jónas Arnasyni, „Bíum, bíum bambalá," hljómaði skemmtilega í búningi Sigur Rósar. Lögin af plötunni Hljómsveitin Sigur Rós hefur vakið athygli fyrir frumlega og frjóa tónsköpun, en þeir drengir setja mark- ið hátt og segjast ætla sér að breyta tónlistinni og því hvernig fólk lítur á tónlistina. myndir brink. Ágætis byrjun hljómuðu hrárri en á út- gáfutónleikunum í fyrra þegar þeir not- uðu strengjakvartett, náttúruhljóð og skyggnur til þess að auka áhrifamáttinn. Tónlistin er tómlegri án þessara upp- fyllimeðala. Sjallinn er ágætis tónleikastaður, en maður sem sat við hliðina á mér sagðist gjarnan vilja sá hljómsveitina spila í leikhúsinu. Ég er ekki frá því að það hafi farið vel um hljómsveitina á sviði Samkomuhússins. Hljómar lagsins Dán- arfregnir og jarðarfarir hljóma vel og Jónsi mundar fiðlubogann á gítarinn sinn og tekst með þvf að skapa þvílíkt flæði hljóða að það er alveg dásamlegt. Röddin er hljóðfæri og notar Jónsi hana sem slíka. Húsið nötrar f þyngstu köfl- unum. Trommarinn slær djúpar pákurn- ar og bassinn drunar. Þessir lágu undir- tónar sem eyrað fær ekki numið verða til þess að húsið nötrar. Það er gott að vera alsgáður á tónleikum hjá Sigur Rós. Þannig fær maður notið tónlistar- innar til fulls. Þvílíkur hljómur. Ég heyrði einu sinni Ola Palla, hinn

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.