Dagur - 28.03.2000, Qupperneq 1
1/erð ílausasölu 150 kr.
83. og 84. árgangur -61. tölublad
Harkan sex í
Lottótekjuslag
Það hrikti í stoðiun
ÍSÍ á íþróttaþingi um
helgina þegar tekist
var á uin hvemig ætti
að skipta upp sífellt
minnkaudi tekjum af
Lottóinu. Umskeið
leit út fyrir að fulltrú-
ar myiidu ganga út og
þar með í raun kljúfa
ÍSÍ, en því var afstýrt.
Fyrir íþróttaþingi lá tillaga frá
Iþróttabandalagi Reykjavíkur,
Iþróttabandalagi Hafnarfjarðar
og Iþróttabandalagi Akureyrar um
breytingar á skiptingu Lottóhagn-
aðar. Breytingin átti að leiðrétta
misræmi sem þessi aðildarfélög
telja að sé á úthlutuninni milli
þeirra félaga sem eru bæði í ISÍ
og UMFÍ annars vegar og þeirra
sem eru einungis í ÍSÍ.
Hefði tillagan fengið samþykki
hefði hlutur héraðssambandanna
sem fluttu tillöguna hækkað sam-
tals úr 35,3 millj-
ónum króna upp í
41,7 milljónir
króna. A hinn bóg-
inn hefðu t.d. tekj-
ur UMSK, sem
m.a. er með Breiða-
blik í Kópavogi inn-
an sinna vébanda,
Iækkað úr 15,1
milljón króna niður
í liðlega 10 milljón-
ir króna. Mikið
fjaðrafok varð við
framlagninu tillög-
l/aldimar Leó Friðriksson.
sættanlegt. Eftir nokkurt orða-
skak í ræðustóli, sem og úti í sal,
Iagði Valdimar til að tillögunni
yrði vísað frá. Þá
gerði þingforseti,
Kristján Þór Júlíus-
son, fundarhlé,
meðan Ieitað var
sátta um framhald-
ið, og má segja að
loft hafi verið mjög
rafmagnað. Ekki
síst vegna þess að
hvisast hafði að ef
tillagan yrði sam-
þykkt myndu full-
trúar þeirra héraðs-
sambanda sem
Riðlai allri starfsemi
Valdimar Leó Friðriksson, for-
maður UMSK, sagði samþykkt
þessarar tillögu ekki koma til
greina, tekjutap UMSK yrði um 4
milljónir króna hennar vegna, það
riðlaði allri starfsemi sambands-
ins, og það væri einfaldlega óá-
einnig eru innan
vébanda UMFl, yfirgefa íþrótta-
þing, og þannig í raun kljúfa ÍSÍ,
aðeins tveimur árum eftir að það
sameinaðist Olympíusambandi
Islands.
Tillagan Itemtir aftur
Málamiðlun fannst eftir að tillög-
unum hafði verið vísað til fjár-
hagsnefndar, sem lagði til að
kannað yrði hvort hagkvæmt væri
að sameina UMFI og ISÍ, en í
málamiðluninni felst í raun frest-
un á ágreiningsefninu f tvö ár.
Þann tíma hyggjast menn nota til
að vinna úr því. Valdimar Leó
Friðriksson, formaður UMSK,
sagði Degi að samþykkt tillögunn-
ar hefði þýtt röskun á allri starf-
semi aðildarfélaga UMSK. „Það
er ekki hægt að koma á íþrótta-
þing með tillögu sem kippir fót-
unum undir starfsemi UMSK og
félaga innan þess. Þetta hefði
orðið um 25% tekjuskerðing fyrir
aðalstjórn Breiðabliks. Lóttó til-
lagan mun þó koma aftur fram
verði ekkert gert í málinu, því þeir
eru ósáttir sem eiga hlut í lottóinu
aðeins á öðrum staðnum. Erfið-
ara rekstrarumhverfi krefst þess
einnig að þetta sé skoðað, ekki
síst vegna þess að starfsemi félaga
breytist sem og félagatalan," sagði
Valdimar Leó Friðriksson.
Sjd ítarlega umfjöltun um ÍSÍ
þingið á bls. 8-9.
Slaguriim
á fima ferð
Nú hefur verið ákveðið að
fundaferð þeirra Ossurar Skarp-
héðinssonar og Tryggva Harðar-
sonar, formannsefna Samfylk-
ingarinnar, hefjist á Fosshótel
KEA á Akureyri 4. apríl. Síðan
verður haidið áfram og farið til
Sauðárkróks og fundað þar í
Ólafshúsi 5. apríl og daginn eftir
þann 6. apríl verður fundur í
Keflavík í Víkinni, húsnæði
Verkalýðs- og sjómannafélagins.
A Isafirði verður síðan fundur 8.
apríl á Hótel ísafirði. Þar næst
verður fundað á Reyðarfirði 11.
apríl í Félagslundi. A Selfossi
verður svo fundur þann 12. apríl
á Hótel Selfoss og í Venusi í
Borgarnesi þann 13. Laugardag-
inn 15. apríl lýkur fundaferðinni
með fundi í Reykjavík. Ekki hef-
ur enn verið ákveðið hvar hann
verður haldinn.
Þess má geta að Tryggvi kynn-
ir í dag pólitíska stefnuskrá sína
vegna framboðsins. — S.DÓR
Úlafur Ragnar Grímsson nýtti tímann vel á Akureyri um helgina og brá sér meðal annars á skíði í Hlíðarfjalli. Ekki
var annað að sjá en þarna færi vanur íþróttamaður. Fjallað er um Vetraríþróttahátíð ÍSÍ á Akureyri f innblaðinu
Akureyri-Norðurland. - mynd: brink
Ingþór Bjarnason nær ekki á
pólinn í þetta sinn.
Ingþór sóttur
Ákveðið var síðdegis í gær að
senda Twin Otter vél flugfélags-
ins First Air til að sækja Ingþór
Bjarnason, annan pólfaranna.
Ingþór er það slæmur af kali á
fingrum að hann treystir sér ekki
til að halda lengra en félagi hans,
Haraldur Örn Ólafsson, mun
hins vegar halda áfram einn síns
liðs. Þeir tóku sjálfir ákvörðun
um þetta í gær. Þeir höfðu þá
gengið 86,6 kílómetra frá því
gönguferð þeirra hófst. Haraldur
Örn þarf nú að endurskipuleggja
þá vegalengd sem eftir er vand-
lega því að mörgu er að huga er
menn leggja einir á slík hættu-
svæði. Upphafleg áætlun göngu-
garpanna var að ná pólnum í
byrjun maí.
Leiðangrar á Norðurpólinn
þurfa að glíma við einhverjar erf-
iðustu aðstæður sem þekkjast á
jörðinni og hafa margir þurft frá
að hverfa sökum ofþreytu, kals
og ýmissa áfalla. I gær var 35
gráðu frost en með vindkælingu
samsvaraði kuldinn um 50 gráðu
frosti. — HI
Keikó lærir
Umsjónar-
menn Keikós
eru mjög
ánægðir með
hversu vel
hann hefur
aölagast
Klettsvíkinni Keikó.
og eru núna
að kenna honum að skipta sér
ekkert af bátum sem sigla fram-
hjá. Þegar það hefur tekist verð-
ur Keikó kennt að nálgast aðeins
einn bát. Sá heitir Draupnir, en
ætlunin er að hann fylgi Keikó út
úr Klettsvíkinni ef og þegar hon-
um verður sleppt á haf út. Þetta
kemur fram á vefsíðu Keikós.
Skipverjar á Draupni munu
hafa samband við Keikó með því
að kalla til hans í gegnum neðan-
sjávarhátalara og mótttakara sem
verður festur við bakborðshlið
bátsins.