Dagur - 28.03.2000, Blaðsíða 4
4 - ÞRIBJVDAGVR 28. MARS 2000
FRÉTTIR
Þaðerubara
í skyrinu
Skyrið búið til hjá mjólkursamlagi KEA á Akureyri.
fitu. „Já, það mæti segja að þetta sé nú er verið að gera samning við þær
„megrunarskyr."
um frekari kynningu."
allir
Fitusnautt, fljótlegt og
ódýrt. Vöðvabyggingar-
menn og fitubrennarar
hafa nú alit í einu upp-
gðtvað kosti skyrsins sem
landsmenn lifðu á í 1000
ár.
Það er svo gaman að sjá fólk allsstaðar
alla með skyrdollur - það eru bara allir
í skyri, sagði Jónína Benediktsdóttir
líkamsræktarfrömuður í morgunút-
varpi Rásar 2 á mánudagí sl. viku. Viku
áður mælti næringarráðgjafi eindregið
með því að fólk byijaði daginn með
skyri og meira skyri í hvert sinn sem
sultur syrfi að. Það væri meira að segja
þjóðráð, fyrir þá sem vakna á nóttinni
til að pissa og Iangar í eitthvað, að hafa
það hálfa dós af skyri. „Þetta er al-
mennilegur maður," sagði Júlíus Krist-
jánsson hjá Mjólkursamlagi KEA á Ak-
ureyri, sem státað getur af meira en
200% söluaukningu á skyri síðustu sex
mánuðina.
99,5% fitulatist
Heildarsölutölur yfir landið staðfesta
að skyr er komið í tísku og það gerðist
allt í einu í fyrrasumar. Síðustu þrjá
mánuði seldist 30% meira en sömu
mánuði í fyrra og núna í febrúar um
37% meira, svo ekkert lát virðist á
aukningunni. Og fjörmjólkin virðist út-
álátið, því söluaukning hennar fylgir í
humátt eftir skyrinu og er 18%.
- En hvernig stendur á þvt að skyr,
setn þjóðin lifði meira og minna á i
1000 ár, kemst allt í einu í tísku?
„Það er heilsubylgja í gangi og áróð-
ur á móti fitu. Og í líkamsræktarstöðv-
unum og fitubrennslunni er mælt með
því að fólk borði þetta fitusnauða skyr,“
sagði Júlíus. Hann segir segir allt KEA-
skyrið fitusnautt, þ.e. með aðeins 0,5%
Yflr 200% aukning á hálfu ári
- íslendingar hafa alla sína ævi vitað að
skyrið erfitusnautt svo það skýrir tæpast
þessa sölusprengju?
„Við höfum líka gert heilmikið sölu-
átak í þessu, sérstaklega í Reykjavík, og
komum með miklu breiðari línu á
markaðinn. Og síðan hefur þetta bara
sprungið svona út. Síðasta hálfa árið
hefur salan hjá okkur meira en þre-
faldast," sagði Júlíus. Það allra vin-
sælasta sé nýja vaniluskyrið og skyr
með með blábeijum og jarðarbeijum.
KEA samdi svo nýlega við Eskimo
módel. „Þær hafa að vísu verið svolítið
í kynningum á skyrinu fyrir sunnan,
sem okkur fannst gefa góða raun. Svo
Nýtt sölumet í ár?
Kannski var ekki seinna vænna en að
Islendingar uppgötvuðu hollustu
skyrsins á ný. Skyr var framleitt í stór-
um stíl á hveijum bæ fram yfir miðja
20. öld. I mjólkurbúunum varð fram-
leiðslan mest um 1.800 tonn árið 1960
(yfir 10 kíló á íbúa) og enn 1970, en
byrjaði upp úr því að dragast saman
hægt og rólega (um 1% á ári) allar göt-
ur til 1998, þegar framleiðslan komst í
Iágmark 1.330 tonn (tæp 5 kg á íbúa).
En skyrsala hefur nú þotið upp í 150
tonn á mánuði og haldi „skyrtískan"
áfram verður fyrra sölumet selgið strax
á þessu ári. - HEI
Á Vef-Þjóðviljanum um
helgina mátti sjá umfjöll-
un um Reykajvíkurbréf
Morgtmblaðsins og segir
þar að Reykjavíkurbréfið
hafi verið á trúarlegu
nótunum - eiginlega
„auðtrúnalegu nótun-
um!“ Þar var verið að
fjalla um vísindalegt
álitaefni, sem er hlýnun
á jörðinni og er m.a. vitnað mikið í bókina The
Coming Global Superstorm eftir Whitley
Strieber og Art Bell. Samkvæmt þvi sem Vefþjóð-
viljinn upplýsir sér Bell um útvarpsþátt um yf-
irskilvitleg málefni, fljúgandi furðuhluti og
fleira og hefur trú á „quickening" þegar útskýra
þarf atburði á borð við flugslys. Stxieber hefur
unnið sér það til frægðar að geimverur hafa, að
hans sögn, numið hann brott og komið íyrir hlut
í höfði hans. Um þetta segir Veiþjóðviljinn:
„Þegar viðfangsefni þessara tveggja manna eru
skoðuð kemur skemmti- og furðuþátturinn X-
Files helst upp í hugann, svo ijarstæðukennd eru
viðfangsefnin og umfjöllunin. Það verður að
teljast sérstakt, svo ekki sé meira sagt, að Morg-
unblaðið skuli gera slíka menn að heimildar-
mönnum um vísindaleg málefni." í pottinum
tala menn nú inikið um manninn sem var num-
inn brott af geimverum en birtist síðan í Reykja-
víkurbréfi MorgunblaðsinsL.
Karlakórinn Heimir söng á Broa-
dway um helgina og komu þing-
menn fram með þeim sem eins
konar „stand up“ grínistar. Þetta
voru þeir Hjálmar Jónsson,
Guðni Ágústsson og Jón Krist-
jánsson. Það féll í góðan jarðveg
þegar Jón Kristjánsson gerði að
umtalsefni fréttir um að Kolbrún Halldórsdótth
þingkona hafi eitt sinn setið fyrir á listrænni
nektarmynd í gömlu timburhúsi í Reykjavík.
Undir áhrifum frá Steini Steinar orti Jón:
1 tjörguðu timburhúsi
titrandi og Vinstri-græn,
norpaði Kolbrún nakin
nett og umhverfisvæn.
Jón
Kristjánsson.
FR É T TA VIÐTALIÐ
Magnús
Asgeirsson
framkvæmdastjóri Félags
framháldsskólanema
Félagframhaldsskólatiema
hélt landsþing sitt um helg-
ina þarsemýmis hagsmuna-
mál voru rædd, m.a.fjárhag-
urnemendafélaga, aðskilmð-
ur heimavista og skóla og ný
aðalnámskrá.
Nemendafélög skortir aðhald
- Hvað hrennur helst á framhaldsskólanem-
um í dag?
,A þinginu var mikið rætt um heimavistar-
mál. Það er verið að reka fólk úr skóla vegna
umgengnisreglna í heimavistum, sem okkur
þykir ósanngjamt. Við viljum hafa þetta aðskil-
ið, þannig að skólinn og heimavistin sé sitt hvor
hluturinn. Þetta býður upp á drottnun kennara
yfir nemendum, sérstaklega þar sem kennarar
eru einnig gangaverðir á heimavistunum. Sum-
ir vilja taka svo djúpt f árinni að verið sé að
skrifa frá sér stjórnarskrárréttinn með því að
ganga í heimavist. Þar má m.a. leita í skápum
að eigum nemenda. Við viljum finna ástættan-
Iega lausn og erum að vinna að því í samstarfs-
nefnd með menntamálaráðuneytinu.
Annað mál sem brennur á okkur er Ijárhagur
og rekstur nemendaféiaganna. Þar vantar allt
aðhald. Félögin starfa á ársgrundvelli en oft
verða mannaskipti í stjórnum þeirra á vorin
þegar fólk Iýkur prófum eða skiptir um skóla.
Oft eru málin skilin eftir ókláruð og næsta
stjórn tekur við vandamálum, skuldum og öðru
eftir síðustu stjóm. Finna þarf Iausn á þessu
því víða er í óeffii komið.“
- Eru mörg nemendafélög skuldum vafin
ogjafnvel gjaldþrota?
„Já, sums staðar nema skuldirnar allt að 2
milljónum króna, sem er mjög slæmt því þetta
eru lítil félög. Við viljum meira aðhald og ætl-
um m.a. að koma því svo fyrir að Félag fram-
haldsskólanema geti sinnt þessu aðhaldi. Öfl-
ugra aðhald þarf einnig að koma til. Lög kveða
á um að bókhald félaganna eigi að fara til Rík-
isendurskoðunar, en það hefur ekki verið gert.
Síðan er ósamræmi í lögunum. Það er skylda
að vera með nemendafélag en enginn er skyld-
ugur til að vera í félaginu, aðildin er fijáls."
- Hvaða lausn sjáið þið á þessu?
„Næsta skref er að leggja þetta fyrir þing
skólameistarafélagsins og reyna að búa til sam-
eiginlegar vinnureglur þar sem skólameistarar
vinna að aðhaldi við nemendafélögin. Við vilj-
um vissulega ekki að þeir fái algjört vald yfir fé-
lögunum en við viljum finna ásættanlega Iausn,
t.d. þá að félögín fái aðgang að fjármálastjórum
skóla. na þar sem þeir eru til staðar. Einhver
þarf að tryggja það að reynslan flytjist milli ára,
ársskýrslur og bókhald, og sjái einnig um
ógreidda reikninga á sumrin o.s.frv."
- Nú ávarpaði menntamálaráðherra þingið,
en hann hefur verið á hringferð í shólunum að
kynna nýja aðalnámskrá. Heyrist þér fram-
haldsskólanemar hafa almennt verið sáttir við
það sem ráðherra hefur haflfram aðfæra?
„Upp hafa komið margar spurningar. Þessi
námskrá er þó mun betur skilgreind heldur en
áður hefur verið. Betur er tekið á ýmsum mál-
um og þau komin á hreint. Mörg mál eru þan-
nig að hetra er að hafa þau á hreinu og að ein-
hver sé þeim ósammála heldur en að þau liggi
í lausu Iofti. Eins og ráðherra segir sjálfur þá
verður tekið á mörgum málum sem komið hafa
upp í hans hringferð. Námskráin verður vænt-
anlega tekin til endurskoðunar í kjölfar þess,
sérstaklega með tilliti til einstakra skóla. Ráð-
herra ætlar að birta allar spurningar á vefsíðu
Alþingis, og vonandi niðurstöður einnig. Fyrr
ætlum við ekki að aðhafast en vilji stjórnvalda
og námsmanna kemur fram svart á hvítu.“
- Nú var samþykkt á þinginu aðfélagið sjái
um Morfís og einnig sér það um söngheppn-
ina, semframundan er. Hvað með spuminga-
keppnina Gettu betur?
„Hún hefur ekki verið í umsjá félagsins en ef
samstarfið gengur vel með Morfi's þá er það
næsta mál að fara með samskipti vegna Gettu
betur í gegnum Félag framhaldsskólanema."
- RJB