Dagur - 28.03.2000, Page 7
Oagur.
ÞJÓÐMÁL
ÞRIÐJVDAGVR 28. MARS 2000 - 7
Fhitningiir verkefna frá
ríMsstomunum út á land
Stefán Jón Hafstein er einn þeirra sem mætt hafa á hádegisfund AFE, en tilgangurinn með fundaröð þeirri er að fá almenna umræðu um búsetumál og
hvað það er sem telur hjá fólki þegar það velur sér búsetu.
BENEDIKT
GUÐMUNDS-
SON,
FORSTÖÐUMAÐUR
ÞRÖUNARSVIÐS
ATVINNUÞRÓUNAR-
FÉLAGS EYJAFJARÐAR,
SKRIFAR
Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar
hefur gengist fyrir fundum um at-
vinnu- og byggðamál á undan-
fömum mánuðum og fengið ýmsa
mæta menn til að fjalla um þessi
mál. Tilgangurinn með fundaröð
þessari er að fá almenna umræðu
um búsetumál og hvað það er sem
telur hjá fólki þegar það velur sér
búsetu. Oftar en ekki hefur hefur
flutningur ríkisstofnana eða hluta
þeirra borið á góma og mönnum
hefur verið tíðrætt um Hagstof-
una enda mikið í umræðunni
vegna tíðra frétta af atvinnuá-
standinu í Ólafsfírði.
Samskipti Hagstofunnar
og Atvmnuþróunarfélags
Ejrjafjarðar
Undirrituðum, sem stendur fyrir
þessum lunduni, fannst því tíma-
bært að óska eftir því við embætt-
ismann stofnunar, sem mikið hef-
ur verið í umræðunni, að mæta á
einn fund hjá okkur og útskýra
fyrir heimamönnum hversvegna
ekki væri hægt að flytja eitt né
neitt frá hans stofnun. Sendi ég
því svohljóðandi tölvupóst til Hall-
gríms Snorrasonar 14. mars s.l.
Ágæti HaUgrúnur
Eg starfa hjá Atvinnuþróunarfé-
lagi Eyjafjarðar og sinni búsetu-
málum að hluta. Liður í því að
fjalla um búsetu eru hádegisverð-
arfundir sem við höldum reglu-
lega á hálfsmánaðar fresti þar sem
umræðan eru þeir þættir sem telja
hjá fólki þegar það velur sér bú-
setu. Umræðan hefur einkennst
mjög mikið af flutningi ríkisstofn-
ana, eða hluta þeirra, og oftar en
ekki hefur nafn þinnar stofhunar
borið á góma og ekki alltaf í já-
kvæðri merkingu. Mönnum, jafnt
sveitarstjómar sem alþingismönn-
um, hefur verið tíðrætt um tregðu
embættismanna til að kanna með
hvaða hætti stofnanir þeirra gætu
flutt verkefhi út á land og hafa
sérstaklega beint augum að þinni
stofnun. Því finnst mér bæði
sanngjamt og eðlilegt að þú fáir
tækifæri til að gera grein fyrir þín-
um sjónarmiðum á þessum fund-
um. Því óska ég eftir því að þú
mætir á fund hjá okkur n.k. mið-
vikudag 22. mars í hádeginu.
Fundimir standa frá ld: 12:00 til
13:00 og síðan hefur „lókal“ sjón-
varpsstöðin okkar tekið upp ca 20
mínútna þátt með frummælenda
og einum gesti þar sem þeir skipt-
ast á skoðunum um efni þáttarins.
Vinsamlegast Iáttu mig vita sem
fyrst hvort af þessu getur orðið.
Kveðja, Benedikt Guðmundsson,
Forstöðumaður Þróunarsviðs
AFE, Strandgötu 29, 600 Akur-
eyri
Kúnstugt
Þetta fannst Hagstofustjóra svo
kúnstugt að hann fór á kostum í
viðtali í Degi 23. mars s.l og rakti
tölvupóstinn frá undirrituðum,
eftir sínu besta minni, og klykkti
út með eftirfarandi: „Því afþakk-
aði ég boðið enda fer Hagstofan
ekki með þennan málaflokk held-
ur viðskiptaráðuneytið." Um hvað
er maðurinn að tala?? Hvaða
málaflokk er hann að ræða um og
hvernig tengist viðskiptaráðuneyt-
ið samskiptum okkar um hvort
hann gæti mætt á fund hjá AFE?
Ekki ætla ég að elta ólar við um-
mæli Hagstofustjóra í greininni
en allir sem til þekkja geta séð að
þar talar embættismaður af guðs
náð og í anda þess sem almennt er
sagt út í þjóðfélagi um tregðulög-
málið sem í gangi er þegar kemur
að umræðunni um flutning starfa
frá ríkisstofnunum á höfðuborgar-
svæðinu út á land. A sama tíma
og Hagstofustjóri segir „enginn
verkefni hjá mér“ er mikið í um-
ræðunni skýrsla, sem unnin var
fyrir Byggðastofnun og forsætis-
ráðuneytið um „Nýsköpun í
gagna- og fjarvinnslu á lands-
byggðinni“ I henni er upptalning á
fjölda verkefna sem hægt væri að
flytja frá ríkisstofnunum á höfuð-
borgarsvæðinu út á landsbyggð-
ina. Þar er a.m.k. þrisvar eða fjór-
um sinnum minnst á verkefni hjá
Hagstofunni sem hægt væri að
framkvæma hvar sem er á land-
inu.
ílutningiir verkefua
snýst um hagkvæmni
Yfirskrift greinarinnar í Degi er
„Flutningur verkefna snýst um
hagkvæmni" Það má vissulega til
sannsvegar færa en spurningin er
sú hvað er átt við með þessari full-
yrðingu. Er það hagkvæmt að láta
opinber mannvirki, s.s. eins og
skóla standa hálftóma vegna
brottflutning fólks frá minni stöð-
um á landsbyggðinni þegar hægt
er að flytja verkefni af höfuðborg-
arsvæðinu þar sem vinnuaflsþörf
atvinnulífsins er umfram eftir-
spurn? Er hagkvæmt að þurfa
byggja upp almenn samgöngu-
mannvirki fyrir tugi milljarða,
leikskóla, skóla, heilsugæslu ofl.
vegna stöðugs flutnings fólks af
landsbyggðinni á meðan sambæri-
leg mannvirki grotna niður á þeim
stöðum þar sem fólksflóttinn er
hvað mestur? Eða er það sem
Hagstofustjóri á við með þessari
fullyrðingu að hagkvæmni hans
stofnunar minnki ef flutt eru störf
frá henni?
Enn og aftur vil ég vitna í við-
talið við Hagstofustjóra í Degi þar
sem hann segir eftir að hafa vitn-
„Ekld ætla ég að elta
ólar viö lunmæli Hag-
stofustjóra í greininni
en allir sem til þekkja
geta séð að þar talar
embættismaður af
guðs uáð og í auda
þess sem almenut er
sagt út í þjóðfélagi um
tregðulögmálið sem í
gangi er þegar kemur
að umræðimni um
flutning starfa frá rík-
isstofnunum á hötðu-
borgarsvæðinu út á
land.“
að í orð forsætisráðherra á Alþingi
í íyrirspumartíma: „Um Hagstof-
una segir að ekki þyki ráðlegt að
flytja félagaskrá til Olafsljarðar af
ástæðum sem eru raktar þar frek-
ar.“ Og hveijar voru ástæðurnar
sem þeir Hagstofumenn voru
búnir að gefa ráðherra upp? Jú að
ekki mætti slíta hana úr samhengi
sínu og hafa þyrfti í huga að
skammt væri liðið síðan núver-
andi kerfí miðlægra skráninga fé-
laga var komið á fót í Hagstofu ís-
lands af hagkvæmisástæðum fyrir
atvinnulífið og skráningarstarf-
semina.
Hvaða starfsemi
fer fram í Hagstofu íslands
I stuttu máli má segja að eftirfar-
andi starfsemi fari fram á Hag-
stofunni. Hagskýrslusvið fæst við
gagnasöfnun, úrvinnslu og
skýrslugerð um efnahags-, at-
vinnu- og samfélagsmál, starf-
rækslu fyrirtækjaskrár og miðlun
upplýsinga til almennings, fyrir-
tækja, stofnana og stjórnsýslu.
Þjóðskrá vinnur að söfnun og
skráningu gagna um fæðingar og
andlát, nafngjafir, hjónavígslur,
skilnaði, heimilisföng o.fl., útgáfu
íbúaskráa, gerð kjörskrárstofna
o.fl. Þjóðskráin gefur út vottorð og
miðlar upplýsingum til almenn-
ings, fyrirtækja, stofnana og
stjórnsýslu. I Lögum um þjóðskrá
og almannaskráningu frá 1962 nr.
54 27. apríl og getið er um á
heimasíðu Hagstofunnar segir:
„Sérstök stofnun, þjóðskráin, ann-
ast almannaskráningu samkvæmt
lögum þessum og annað það, er
þau mæla fyrir um. Hagstofan fer
með stjóm þjóðskrárinnar, og skal
hún rekin sem deild í Hagstof-
unni. Fjárreiður þjóðskrárinnar
skulu vera algerlega greindar frá
(járreiðum Hagstofunnar11. Ef
þetta er nú raunin hvaða ann-
markar eru þá á því að flytja þenn-
an einstæðing úr Hagstofunni
eitthvað annað? Auðvitað minnk-
ar það urnfang Hagstofunnar og
það er ekki hagkvæmt fyrir Hag-
stofustjóra því þá minnkar vægi
hans í embættismannageiranum.
Það eina sem Hagstofustjóri hefði
geta sagt með fullri reisn var að
samkvæmt opinberri skilgrein-
ingu, telst Hagstofan til ráðuneyt-
anna og því Iögum samkvæmt
ekki heimilt að færa stofnunina út
á land og eflaust myndi einhveij-
um lagarefum takast að túlka lög-
in þannig að úr því stofnunin
mætti ekki flytjast út á land þá
mætti ekki flytja einstaka hluta
hennar.
Niðurstaða
Ummæli Hagstofustjóra f Degi
þann 23. mars er lýsandi fyrir þá
umræðu sem í gangi hefur verið á
fundum okkar hjá Atvinnuþróun-
arfélagi Eyjafjarðar. Ummæli
hans og framgangur allur er ná-
kvæmlega eins og embættismönn-
um ríkisins hefur verið Iýst af
bæði sveitarstjómarmönnum og
þingmönnum. Þeir eru ríkið í rík-
inu og enginn fær við þeim hrófl-
að. I þingsályktunartillögu um
stefnu í byggðamálum fyrir árin
1999 til 2001, sem Alþingi sam-
þykkti á vordögum ársins 1999
segir: „Lögð verði áhersla á að op-
inbemm störfum fjölgi eigi minna
hlutfallslega á landsbyggðinni en
á höfuðborgarsvæðinu" Sambæri-
leg málsgrein, en þó ívið sterkara
til orða tekið, var í þingsályktunar-
tillögu fyrir árin 1994 til 1997.
Þrátt fyrir ásetning Alþingis að
fjölga opinberum störfum á lands-
byggðinni hefur það ekki gengið
eftir til þessa. Nýjar stofríanir eða
fyrirtæki hafa orðið til á þessu
tímabili (1994-1997) án þess að
opinber umræða hafí farið fram
um staðsetningu þeirra. Það væri
því kjörið verkefni fyrir ríkisvaldið
að láta nú kanna hvemig þessi
450 opinbem störf, á höfuðborg-
arsvæðinu á árunum 1994 til
1997, verða til og hversvegna þau
urðu til þar en ekki þar sem Al-
þingi samþykkti að þau ættu að
vera. Eflaust er skýring til á þessu
öllu og er vel ef svo er en þá skulu
menn líka hætta að samþykkja
slíkar þingsályktanir sem eru
dæmdar til að mistakast.