Dagur - 11.04.2000, Blaðsíða 4
é -ÞRIBJUDAGU R 11. APRÍL 2000
FRÉTTIR
Sigurður Svavarsson formaður Félags ísl. bókaútgefenda situr hér í dómarasætinu í dómssal Hegningarhússins.
Benedikt Kristjánsson framkvæmdastjóri bókavikunnar er til vinstri á myndinni.
Glæpasögur í
öndvegi í vikuimi
Vika bókarinnar er nú
haldin öðru sinni og eink-
um helguð glæpasögum.
Su glænýjasta er Leyndar-
dómar Reykjavíkur 2000.
Ástæða þess að við kynnum bókavik-
una í þessu húsi - Hegningarhúsinu
við Skólavörðustíg - er sú, að við
ákváðum hafa glæpa/sakamálasögunar
sem þema bókavikunnar að þessu sinni
og fannst því þessi húsakynni við hæfi,
sagði Sigurður Svavarsson formaður
Félags íslenskra bókaútgefenda. En
félagið, í samvinnu við fleiri aðila held-
ur nú hátíðlega öðru sinni; Viku bók-
arinnar, dagana 11. til 17. apríl. Til-
efnið er raunar Alþjóðadagur bókar-
innar, 23. apríl, sem svo vill til að ber
núna upp á páskadag, svo bókavikunni
var flýtt að þessu sinni.
Bækur koma ekki bara út um jólin
Tilgang bókavikunnar segja útgefendur
þann að draga athygli fólks að bókum
og hvetja til bóklestrar og bókaumfjöll-
unar árið um kring. Gefin hafa verið
út „Bókatíðindi vorsins" þar sem
kynntar eru 70 þeirra bóka sem þegar
hafa komið út frá áramótum ásamt
dagskrá vikunnar þar sem margir koma
við sögu; Bókasamband Islands, bóka-
verslanir, bókasöfn, fræðiritahöfundar,
bókagerðarmenn, bókaútgefendur og
síðast en ekki sfst skáld og rithöfundar.
Nýtt met í morðum
Einn óvæntasti atburður vikunnar er
útkoma æsispennandi glæpasögu;
„Leyndardómar Reykjavíkur 2000“
sem átta rithöfundar sameinuðust um
að semja á rúmum tveim mánuðum.
Fyrsta kaflann samdi Viktor Arnar Ing-
ólfsson og síðan hvern kaflann af öðr-
um þeir; Hrafn Jökulsson, Birgitta
Halldórsdóttir, Arnaldur Indriðason,
Stella Blómkvist, Árni Þórarinsson,
Gunnar Gunnarsson og Kristinn Krist-
jánsson formaður Hins íslenska glæpa-
félags, sem samdi lokakaflann - og lof-
ar því að fleiri séu drepnir á síðum
hókarinnar en í nokkurri annarri síðan
Islendingasögurnar voru skrifaðar.
Bókin er gefin út í 8 þúsund eintökum
og bóksalar (utan tveir þeir stærstu;
Hagkaup og Bónus sem vildu ekki sjá
að vera með) ætla að gefa bókina öll-
um þeim sem kaupa hjá þeim bækur í
vikunni fyrir meira en 1.000 krónur (já
rétt lesið; eitt þúsund krónur), meðan
birgðir endast.
Plastpokaljóð
Utan um bækurnar fá kaupendur síð-
an sérstaka plastpoka með áprentuð-
um aldamótaljóðum þriggja skálda:
Ingibjargar Haraldsdóttur, Sjón og
Þórarins Eldjárns, sem þannig fá ljóð-
um sínum dreift í 40 þúsund eintök-
um.
Fjölbreytt dagskrá fyrir börn og full-
orðna verður út vikuna: Upplestur
skáldverka og ljóða, málþing, umræðu-
fundir um ólíkustu efni, allt frá kristni-
töku til sakamálasagna. Þessar uppá-
komur verða kynntar jafn óðum daginn
áður. „Bókaball aldarinnar" verður
n.k. föstudag í Versölum við Hallveig-
arstíg fyrir alla þá sem vinna við bækur
á einn eða annan hátt og/eða unna
bókum.
Og eins og undanfarin þrjú ár ætlar
Félag ísl. bókaútgefenda og Prent-
smiðjan Oddi að verðlauna alla 10.
bekkinga sem útskrifast úr grunnskól-
unum í vor með bókagjöf. - HEI
bankanna, eða forstjór- Valur Valsson og
ar eíns og þeir heita nú, Bjarni Ármannsson.
þeir Valur Valsson og
Bjami Ármannsson, eru eðlilega orðnir að mikl-
um hetjum, ekki síst meðal uppanna sem livað
mest fylgjast með á verðbréfamarkaði. Uppamir
era raunar líka sá hluti þjóðarinnar sem lærði
að lesa á myndasögubækur og þvi kemur það
e.t.v. ekki á óvart að forstjóramir og bankasam-
einingarhetjumar í Íslandsbanka-FBA em nú
kallaðir Svalur og ValurL.
Formannsslagurhm í Samfylk-
ingunni er nú komiim í fullan
gang og tók nýtt stökk við það
að byrjað var að dreifa at-
kvæðaseðlum. Fundaherferð
formamianna þykir hafa tekist
vel enda þaulskipulögð, en í að-
alhlutverkum við skipulagn-
ingu era þau Einar Már Sigurð-
arson og Elsa Guðmundsdóttir með aðstoð Stef-
áns Jóns Hafstein...
Varaformannsslagurinn í Sam-
fylkingumú er ekki mjög fjör-
ugur enda þykir Margrét Frí-
mannsdóttir nokkuð ömgg.
Hins vegar er varaformanns-
slagurinn í Framsóknarflokkn-
um í fullum gangi og þessa dag-
ana þykir Guðna Ágústssyni
gagna flest í haginn. Það er þó
talið vhma gegn Guðna hvað Össur Skarphéð-
insson talar vel um hann á fundum - en Össur er
ekki mjög vinsæll í flokkskreðsum framsóknar
eftir harða gagnrýni á ýmsa ráðherra flokksins...
V
VR útilokar ekki verkfall
FRÉTTA VIÐTALIÐ
Magnús L.
Sveinsson
fonnaður Verslunarmanmfélags
Reykjavíkur
Mikil vonbrigðimeðSamtök
atvinnulífsins. Ennþá í
gamla tímanum meðgardínur
fyrirgluggum. Hafna þremur
affimmaðálkröfum verslun-
arfólks. Markaðslaunum, styt-
tri vinnutíma ogframlagi í
endurmenntunarsjóð.
- Hvemig standa samningamálin hjá
ykkur?
„Þau eru í hnút eins og er. Við fengum
þau boð frá Samtökum atvinnulífsins fyrir
sl. helgi þar sem þau hafna þremur af fimm
aðalkröfum okkar. Við erum hinsvegar búin
að semja um þetta allt saman við Félag ís-
lenskra stórkaupmanna, þ.e. Samtök versl-
unar en sá samningur nær til tvö þúsund fé-
lagsmanna okkar, eða um 12% félagsmanna
VR. Auk þess erum við búin að gera álíka
samning við flugfélagið Atlanta. Samtök at-
vinnulífsins hafa aftur á móti hafnað kröf-
um okkar um markaðslaun, styttingu vinnu-
tíma og greiðslu í endurmenntunarsjóð.
Þeir hafa hinsvegar gefið grænt ljós á eina
kröfu okkar sem er um framlag í Iífeyrissjóð.
Þá er ennþá á umræðustigi krafan um
hækkun lægstu launa þar sem engin niður-
staða hefur enn fengist í það mál. Þannig að
þetta er ansi rýrt það sem komið er.“
- Hvað á að gera í þessari stöðu?
„Það var fundur í samninganefnd okkar í
hádeginu sl. föstudag. Þar var einróma sam-
þykkt að halda sig áfram við kröfurnar en
skoða aðra útfærslu á einstaka þáttum ef
það mundi Ieysa málið. Þetta yrði þó gert án
þess að við slökum eitthvað á kröfum okkar.
Þarna á í hlut verslunarfólk um land allt en
ekki bara félagsmenn VR.“
- Þessi viðhrögð atvinnurekenda er von-
brigði, eða hvað?
„Þetta veldur mjög miklum vonbrigðum,
enda eru okkar kröfur þess eðlis að þær eiga
ekki að raska stöðugleikanum nema síður
sé. Sannleikurinn er nefnilega sá að við
erum búin að vera í rúmlega tveggja mánaða
viðræðum sem hafa verið á mjög jákvæðum
nótum. Þannig að við vorum í mjög góðri
trú um að þetta væri að þokast á Iokastig. Þá
kemur bara allt í einu tilkynning frá fram-
kvæmdastjórn SA um þessi skilaboð."
- Hefurðu einhverja skýringu á þvt?
„Nei. Þeir virðast vera hræddir við mark-
aðslaunin sem eru þó mjög þekkt í Dan-
mörku. Þarlendis taka um 84% launafólks
laun samkvæmt markaðslaunum og hefur
reynst mjög vel þar. Samtök atvinnulífsins
viljt hinsvegar halda sig við Iaunaleynd og
vilja ráðskast með þetta einhliða eins og þeir
hafa gert. Þeir vilja semja við stéttarfélagið
um lága taxta, eða 67-84 þúsund á mánuði
til að geta sagt Iaunafólki að þetta séu taxt-
arnir sem stéttarfélagið samdi um. Þeir vilja
því nota stéttarfélagið til að benda launa-
fólki á sökudólginn. Þessir menn eru því
miður enn í gamla tímanum, þeir hafa ekki
dregið gardínuna frá glugganum og horfa
ekki til morgundagsins og þeirra breytinga
sem hafa orðið og eru framundan í þessum
efnum.“
- Eru þið þá famir að hugleiða verkfall
til að þrýsta á kröfur ykkar?
„Menn hafa auðvitað velt því upp. Eg vil
þó ekki trúa því fyrr en á reynir að til þess
þurfi að koma. En auðvitað er það inní
myndinni, það segir sig bara sjálft. Aftur á
móti ætlum við að láta reyna á það til þraut-
ar hvort hægt sé að ná samningum. Þess-
vegna Ieggjum við þetta svona upp, þ.e. að
halda sig við kröfurnar en jafnframt að
skoða aðra útfærslu á þeim. Við viljum láta
reyna á þetta áður en við verðum neyddir til
að grípa til aðgerða. Hinsvegar hafa menn
stuttan tíma til þess.“
- Eru metin þá að tala um allsherjar-
verkfall á landsvísu?
„Nei, ég geri alls ekki ráð fyrir því. Við
mundum frekar taka á einhverjum þrýsti-
stöðum sem gætu skilað okkur jafnmiklu.
Við erum hinsvegar ekki farin að skipuleggja
hvaða staðir það gætu orðið.“ - GRH