Dagur - 23.05.2000, Síða 1
„Asnaspark lír
stj ómarrádinu“
Ólga vegna ununæla
Davíðs um biskupinn.
Verðux ekki afgreidd-
ur með einu asna-
sparki úr stjómaxráð-
inu, segir formaður
Öryrkj abandalagsins.
Mikillar óánægju gætir vegna
þeirra ummæla Davíðs Oddsson-
ar forsætisráðherra að „blessað-
ur biskupinn", Karl Sigurbjörns-
son, hefði viðhaft „hálfgerðar
klisjur" í Dags-viðtali um helg-
ina. Biskupinn lýsti vaxandi
græðgi í þjóðfélaginu, og aukinni
misskiptingu milli ríkra og fá-
tækra.
„Þetta eru ummæli manns
sem býr í fílabeinsturni og þekk-
ir ekki lífið í sínu eigin landi. Við
sjáum allt í kringum okkur það
sem hefur verið að gerast, að bil-
ið milli ríkra og fátækra breikkar,
samhjálp er á undanhaldi og
græðgin tekur völdin. Þetta er
bara kórrétt lýsing hjá biskupn-
um,“ segir Jóhanna
Sigurðardóttir al-
þingismaður um
ummæli Davíðs.
Klisjukóngur í
glerhnsi
Garðar Sverrisson,
formaður Oryrkja-
bandalags, er
ómyrkur í máli í
garð Davíðs. „Er
þetta ekki bara
þessi sami kristilegi
kærleikshugur og
hann ber til sam-
borgara sinna al-
mennt, hvort heldur þeir eru ör-
yrkjar, fjölmiðlafólk, smásagna-
höfundar eða forsetar lýðveldis-
ins? Verðum við ekki samt að
trúa því og treysta að sálma-
skáldið fari nú bráðum að kom-
ast í hátíðarskap?“ spyr Garðar
og bætir við: „Annars er Herra
Karl Sigurbjörnsson sér alltof vel
meðvitaður um stöðu okkar fólks
og siðferðilega ábyrgð kristinnar
kirkju til að hann verði afgreidd-
ur með einu asnasparki úr
stjórnarráðinu. Til
þess nýtur hann
einfaldlega of mik-
illar virðingar og
trausts meðal þjóð-
arinnar," segir
Garðar.
Sr. Örn Bárður
Jónsson segist
treysta betur sýn
kirkjunnar á þjóð-
lífið „en manns
sem er í stöðugri
afneitun andspæn-
is staðreyndum og
þolir ekki öðrum að
hafa skoðanir. Að
heyra klisjukóng væna aðra um
klisjukennt tal hljómar eins og
steinn úr glerhúsi. Það er góðæri
í landinu en það kostar sínar
fórnir. Ummælin lýsa ekki djúpri
skynjun á hinstu rökum og til-
gangi lífsins eða raunverulegum
kjörum vissra hópa í landinu,"
segir Örn.
Þjóðfélagið fjárhættuspil
Asgerður Flosadóttir, formaður
Mæðrastyrksnefndar Rvk, segist
sammála lýsingu biskupsins í
viðtalinu. „Eg sem sjálfboðaliði
nefndarinnar sl. 4 ár er þessu
hjartanlega sammála. Ég lít á ís-
lenskt þjóðfélag núna, sérstak-
lega peningalegu hliðina, sem al-
gjört íjárhættuspil. Við sjáum að
bilið á milli þeirra ríku og fátæku
á Islandi er sífellt að aukast og
það er sérstaklega áberandi núna
á síðustu misserum. Ég þarf ekki
annað en að vitna til desember-
mánaðar á síðasta ári, þegar
þessi litla hjálparstofnun,
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur,
tók á móti um 1.100 umsóknum
og má margfalda það með 3-4 og
sést þá sá fjöldi sem leitar til
okkar um hjálp. Orðabókin segir
um klisjur, að þá sé átt við end-
urtekningar eða útslitin orð eða
orðasambönd eða gamlar tuggur.
Það má segja að minn ágæti for-
sætisráðherra og formaður í
mínum flokki, sem ég tel annars
að sé mesti stjórnmálaskörungur
nú á tímum, sé þarna að tala um
að biskupinn tali eins og rispuð
plata. Ég er því algjörlega ósam-
rnála," segir Asgerður. - FÞG
Davíð Oddsson: Kallaði um-
mæli biskups „hálfgerðar
klisjur".
Nýr meist-
aiií dag
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra kynnir í dag ákvörðun
sína um nýjan skólameistara Iðn-
skólans í Reykjavík, en í gær fékk
hann tillögu skólanefndar skól-
ans um hver umsækjenda þætti
hæfastur til starfans.
Umsækjendur um stöðuna
voru Ágúst Karlsson, aðstoðar-
skólameistari skólans, Baldur
Gíslason, kennari, Helga Björns-
dóttir, kennari, Ingi Bogi Boga-
son, starfsmaður Samtaka iðnað-
arins, Ingibergur Elíasson, kenn-
ari, Jón Hjartarson, skólameist-
ari, Ólafur Grétar Kristjánsson,
deildarstjóri í menntamálaráðu-
neytinu og Sigurður Örn Krist-
jánsson, kennari.
Kennarar Iðnskólans voru
mjög óánægðir með að áheyrnar-
fulltrúar þeirra voru ekki boðaðir
á skólanefndarfundi þar sem
skólameistarastaðan var til um-
fjöllunar. - FÞG
EHn Málfríður Magnúsdóttir var um helgina kjörin fegursta stúlka íslands. Elín er bóndadóttir af Vesturlandi en
með henni eru Unnur Eir Arnardóttir ig Anna Lilja Björnsdóttir sem höfnuðu í 2. og 3. sæti
■■■■■■■■
i
Enn rís sól Bjarkar
Guðmundsdóttur.
Óskariim
næst?
Fagmenn telja raunhæfan
möguleika á að Björk Guð-
mundsdóttir muni vinna til
Óskarverðlauna fyrir leik sinn í
Dancer in the Dark. Björk vann
Gullpálmann á kvikmyndahátíð-
inni í Cannes um helgina sem
besta leikkonan og myndin í
leikstjórn hins danska Lars von
Triers, hlaut Gullpálmann sem
besta myndin á hátíðinni. Björk
sagði hins vegar á blaðamanna-
fundi í gær að myndin skipti
hana litlu máli. Öðru máli gegn-
di um tónlistina hennar.
Friðrik Þór Friðriksson, einn
meðframleiðenda að Dancer in
the Dark, er í sjöunda himni yfir
velgengni myndarinnar í Cann-
es. Hann segir verðlaunin hafa
grfðarlega þýðingu fyrir fram-
haldið,^ Björk verði án efa til-
nefnd til Óskarsverðlauna og
gott ef hún hreppi ekki hnossið
á endanum. Atburðir helgarinn-
ar hafi einnig mikla þýðingu fyr-
ir norræna kvikmyndagerð og þá
íslensku um leið.
íslensk ítök
Þótt kvikmyndin teljist formlega
koma frá Danmörku þá er óhætt
fyrir okkur íslendinga að fagna
vel og lengi yfir velgengni henn-
ar því það er ekki aðeins Björk
sem kom að henni sem leikkona
og lagahöfundur. Fleiri íslend-
ingar komu þarna að máli. ís-
lenska kvikmyndasamsteypan
hans Friðriks Þórs Friðrikssonar
er meðframleiðandi ásamt Dön-
um og Svíum og naut við það 10
milljóna styrks firá Kvikmynda-
sjóði íslands, rithöfundurinn
Sjón samdi söngtexta ásamt
Lars Von Trier, Karl Júlíusson
gerði Ieikmyndina, Valgeir Sig-
urðsson vann að tónlistarupp-
tökum og vinnslu og Björk naut
aðstoðar tveggja vinkvenna
sinna, þeirra Andreu Helgadótt-
ur og Jóku Jóhannsdóttur.
Sjd ítarumfjöllun bls. 12-13
Kynning á nýjustu línunni í innréttingum frá HTH
auk 20% afsláttar af öllum raftækjum sem keypt eru
með innréttingunni
Verið velkomin í glæsilegan sýningarsal okkar á 3.hæð í Lágmúlanum
<OUIkJs«4l«iS s
Geislagötu 14 • Sími 462 1300
Sími 530 2800
www.ormsson.is
Aðeins
6 vikna
afhendinga
frestur