Dagur - 23.05.2000, Blaðsíða 5

Dagur - 23.05.2000, Blaðsíða 5
 ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2 000 - S FRÉTTIR L Fj ármálaeftírlití ð stoppaði Framsýn Úrvalsvísitalan fellur. 15-20% afföll á húsbréfum. Góð fjárfesting Ekkert varð úr því í gær að Verð- bréfamiðlun Framsýnar byrjaði viðskiptavakt með húsbréf eins og að var stefnt vegna athugasemda Fjármálaeftirlitsins. Þá voru aff- föll húsbréfa áfram um 15-20%. Rólegt var á hlutabréfamarkaðn- um í gær og um miðjan dag hafði úrvalsvísitalan fallið um 1,3%. A fjármálamarkaði var þetta túlkað sem hluti af þeim afleiðingum sem ástandið á skuldabréfamark- aðnum hefur valdið. Hjá Seðla- bankanum var hins vegar bent á að lítil viðskipti hafa verið með hlutabréf um nokkurt skeið og því mikil einföldun að tengja það beint við skuldabréfamarkaðinn. Sem dæmi hefur gengi hlutabréfa í Eimskip fallið um 11-12% frá því um miðja síðustu viku, eða úr genginu 11,20 í 9,90. Þreifingar I gær héldu áfram þreifingar banka og stjórnvalda vegna ástandsins sem skapast hefur á skuldabréfamarkaðnum og upp- sögn sumra þeirra á viðskiptavakt með ríkisskuldabréf. Meðal m.a. ræddu saman fulltrúar Lands- banka og Lánasýslu ríkisins og eins mun félagsmálaráðherra hafa rætt málið við forsætisráðherra. Þingflokkur Vinstrihreyfingarinn- ar - græns framboðs fundaði ein- nig um málið í gær og þann vanda sem upp er kominn í húsnæðis- og efnahagsmálunum. 1 ályktun fundarins er varað við þessum af- Ieiðingum og að hundruð Ijöl- skyldna skuli verða fyrir stórfelld- um áföllum vegna affalla á mark- aðsvæddum húsnæðislánum. Þess f stað mun hreyfíngin beijast fyrir nýju félagslegu húsnæðis- lánakerfi, fjölga úrræðum al- mennings í húsnæðismálum og ekki síst að auka framboð á tryggu leiguhúsnæði á góðum kjörum. Góð fjárfesting Bjami Brynjólfsson forstöðumað- ur hjá Verðbréfamiðlun Framsýn- ar sagði að fyrirtækið hefði þurft að senda frá sér tilkynningu í gær- morgun þess efnis að það gæti ekki haft milligöngu um viðskipta- Avakt með húsbréf vegna athuga- semda Fjármálaeftirlitsins. Þar kemur fram að Verðbréfamiðlunin ekld haft þessa starfsemi með höndum vegna reglna um eiginfé. Hins vegar séu menn ennþá að skoða þennan möguleika, bæði miðlunin og Fjármálaeftirlitið. Þá sé fullur vilji hjá lífeyrissjóðunum sem eiga Verðbréfamiðlun Fram- sýnar að koma inná þennan mark- að. Hann segir að menn hefðu talið sig mega helja viðskiptavakt með húsbréf og því hefði ákvörð- un um það verið tilkynnt sl. föstu- dag. Hann vísar þvi á bug að menn hefðu verið beittir einhveij- um þrýstingi til að auglýsa við- skiptavaktina á sama tíma og Landsbankinn, íslandsbanki - FBA og Spron voru að hætta því með mánaðar fyrirvara. Stað- reyndin sé hins vegar sú að hús- bréf séu góð fjárfesting, enda séu mjög góð skilyrði til að kaupa rík- istryggð skuldabréf með 15-20% affföllum. Sú staða þekkist trú- lega hvergi um þessar mundir. -GRH Þórir Einarsson mun spjalla við sjómenn meðal annarra. Sjómanna- deiían til sátta Samtök atvinnulífsins vísuðu í gær, fjrír hönd Landssambands ís- lenskra útvegsmanna, kjaradeilu sjómanna og útvegsmanna til sáttasemjara ríkisins til umljöllun- ar og verkstjómar. Að sögn Friðriks J. Arngrímssonar, framkvæmda- stjóra LIU, er þetta gert vegna þess að samtök útvegsmanna eigi að viðsemjendum aðallega þijá aðila, þ.e. Sjómannasamband íslands, Farmanna- og fiskimannasam- band Islands og Vélstjórafélag Is- lands. Flest atriði varði alla í áhöfn skips sem byggjast í aðalatriðum á hlutaskiptum. Því verði ekki samið við þijá aðila um sama efni nema það sé sambærilegt. Þeir þrír íyrr- nefrídu aðilar hafi ekki fengist til viðræðna sameiginlega, heldur hver í sínu lagi. Sáttasemjari geti hins vegar boðað þessa aðila til fundar samtímis. Forseti Islands og menntamálaráðherra voru meðal þeirra sem fögnuðu gagngerum endurbótum sem nýlokið er á Dómkirkjunni í Reykjavík. Kirkjan hefur verið opnuð aftur. Umdeilt álit Tölvunefndar Reikuistofa bankaima skilur ekki Tölvu- nefnd. Menn eru ekki á einu máli um þá ákvörðun Tölvunefndar að net- þjónustufyrirtækjum beri að tak- marka skráningu upplýsinga um nethegðun viðskiptavina. „Eg skil ekki hvað Tölvunefnd er að fara, ég sé ekki betur en hún sé að banna sjálfgefna skráningu sem hefur verið viðhöfð á hverri ein- ustu Internetþjónustu alls staðar í heiminum," segir Elías H. Agústs- son, tölvufræðingur hjá Reikni- stofnun Háskólans. Hann segir að mun minna sé um persónugrein- andi upplýsingar en almennt sé talið. „Það er ekki fýrr en þú ferð að púsla saman upplýsingum úr mörgum áttum að þær fara að skipta máli,“ segir Elías og bætir við að hætta sé á því að netþjón- ustufyrirtæki missi álit út á við vegna þessa. Friðrik Skúlason tölvufræðingur hjá Friðriki Skúla- syni ehf. bendir aftur á móti á að um hagsmunaárekstra sé að ræða. „Það verður að halda nægjanlega nákvæmar upplýsingar um tölvu- notkun manna til að hægt sé að hafa upp á tölvuþrjótum. Það verður að vera hægt að rekja að- gerðir sem geta valdið öðrum skaða, t.d. nafnlaus hótunarbréf. Á sama tíma má ekki skrá niður upplýsingar um netferðir manna vegna persónuverndarákvæða," segir Friðrik og bendir á að óldeift sé að samrýma hagsmuni not- enda, auglýsenda og þjóðfélags- ins. Friðrik segir að skráning upp- lýsinga hjá netþjónustufyrirtækj- um sé mismunandi en í raun sé hægt að fylgjast nákvæmlega með öllum aðgerðum viðkomandi. „Það er hægt að skrá nákvæmlega hvað viðkomandi sækir og sendir. Þú getur skráð hvað notandi fær á skjáinn hjá sér og jafnvel afritað myndir sem hann sækir,“ segir Friðrik. Hann segir jafnframt að vel sé hægt að reka netþjónustu án þess að skrá aðrar upplýsingar en þær hvenær notandinn tengir sig og hvenær hann hættir. Verður að vita hvað má Bjöm Davíðsson, netstjóri hjá tölvu- og netþjónustufýrírtækinu, Snerpu, segist vera sammála áliti Tölvunefndar, það hamli ekki þeirra starfssemi og sé í samræmi við vinnubrögð Snerpu. „Við höld- um skrár um hvemig Internetið er notað en skráningamar eru ekki persónugreindar, þ.e. netvefur og notendanafn er ekki rakið saman og viðkvæmustu skránum er eytt á fárra daga fresti," segir Björn. Hann fagnar áliti tölvunefndar um takmörkun skráningar á nethegðun en segist þó vilja sjá skýrari stefnu. „Við hjá Snerpu myndunt fremur vilja sjá lagasetn- ingu þannig að það verði á hreinu hvað má skrá og hvað ekki. Við teljum brýna nauðsyn á að skrá niður það sem fram fer í tölvukerfi að því marki sem það er hægt til að villuleita kerfín þegar bilun kemur upp,“ segir Bjöm. Niðurstaða Tölvunefndar er að lögin um skráningu og meðferð persónuupplýsinga „heimili net- þjónustuaðilum einungis að skrá upplýsingar um netferðir að því marki sem brýna nauðsyn ber til vegna reikningsgerðar og uppgjörs fyrir kostnað vegna aðgangs að tölvupóstkerfi og/eða neti, og fýrir aðra veitta þjónustu, s.s. síun markaðspósts, skönnun pósts vegna vírusvarna o.þ.h.“ Forsetinn sjálfkjörmn Olafur Ragnar Grímsson, forseti Islands, er sjálfkjörinn næsta kjör- tímabil, en framboðsfrestur rann út fyrir helgina. Tilraunir Astþórs Magnússonar til að bjóða sig fram mistókust þar sem hann lagði ekki fram nægilegan fjölda meðmælenda með framboði sínu. 9,5% hækkim byggingarvísitölu Hækkun byggingarvísitölu síðastliðna prjá mánuði samsvarar 9,5% hækkun á ári. Vísitala byggingarkostnaðar fyrir júnímánuð er 244,4 stig (júní 1987=100) og hefur hækkað um 0,1% frá fyrra mánuði samkvæmt Hagstofu Islands. Síðastliðna tólf mánuði hækkaði bygg- ingarvísitalan um 3,6%. Launavísitala aprílmánaðar er 191,1 stig og hækkar um 0,8% frá fyrra mánuði. Samsvarandi launavísitala sem gildir við útreikning greiðslumarks fasteignaveðlána er 4181 stig í júní 2000. Vextir hækka Þann 1. júní n.k. hækka vextir á öllum verðtryggðum inn- og út- lánum hjá Islandsbanka-FBA um 0,7%. Þessi hækkun er í samræmi við þá þróun sem ver- ið hefur á markaðinum að undanförnu. Eftir hækkunina verða til dæmis innlánsvextir á Sparileið 60 6,00% en þeir eru nú 5,30% og kjörvextir verðtryggðra skuldabréfa hækka úr 6,45% í 7,15%. Alþjóðleg almannavamaræfing Almannavarnaræfingin Samvörður 2000 verður haldin á Islandi dag- ana 7.-12. júní næstkomandi. Æfingin er hluti af alþjóðlegu öryggis- og varnarmálasamstarfi Atlantshafsbandalagsins Samstarfi í þágu friðar, (Partnership for Peace 8.) Samvörður 2000 er önnur al- mannavarnaræfing sinnar tegundar sem haldin er á íslandi. Fyrsta æfingin var haldin á Islandi árið 1997. Tilurð almannavarnaræfinga af þessu tagi má rekja til þeirrar stefnu íslenskra stjórnvalda að auka hlut Islands í alþjóðlegu öryggis-og varnarmálasamstarfi. Auk landhelgisgæslunnar og almannavarna ríkisins munu rúmlega 400 íslenskir sjálfboðaliðar taka þátt í æfingunni, ásamt lögreglu, slökkviliði og björgunarsveitarmönnum. Atburðarás Samvarðar 2000 snýst um björgun skemmtiferðaskips í hafsnauð. Æfingin er tvfskipt. Fyrri hluti hennar felst í fyrirlestrum og málstofu, en síðari hlutinn er vettvangsæfing. Vettvangsæfingin felst í því að bjarga 150 farþeg- um frá borði brennandi skemmtiferðaskips með áherslu á slökkvi- störf, reykköfun, varúðarráðstafanir vegna eiturefna, aðhlynningu slasaðra, flutning slasaðra og óslasaðra frá borði í land og móttöku og umönnun í landi. Samtals taka fulltrúar frá fimmtán aðildarríkjum og samstarfsríkjum Atlantshafsbandalagsins þátt í æfingunni.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.