Dagur - 23.05.2000, Blaðsíða 11

Dagur - 23.05.2000, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2 000 - 11 Tkyur Fjölmargir íbúar í Líbanon eru að snúa aftur til heimkynna sinna í suðurhluta iandsins eftir tuttugu ára hersetu ísraels þar. Byrjað að saxast á nemámssvæðið Hisbolla-skæmliðar ná hverju þorpinu í Suð- ur-Líbanon á fætur öðru eftir að hersveitir hliðhollar ísrael hörf- uðu. Líbanskar hersveitir, sem starfað hafa með ísraelska hernámsliðinu í suðurhluta Líbanons, hafa síð- ustu tvo daga verið að hörfa frá bækistöðvum sínum á hernáms- svæðinu og flýja ýmist til Israels eða gefa sig fram í Líbanon. Auk- in átök á svæðinu verða líklega til þess að brottför ísraelska herliðs- ins verður hraðað, en Ehud Barak, forsætisráðherra ísraels, hefur sagt að herinn verði farinn í síðasta Iagi þann 7. júlí næstkom- andi. Fyrír rúmri viku afhenti ísraels- her ábyrgðina á hluta hernáms- svæðisins til hins svonefnda Suð- urlíbanska hers, sem eru vopnað- ar sveitir Líbana sem hafa verið hliðhollar ísraelsmönnum þarna á hernámssvæðinu. Þessar líbönsku hersveitir yfirgáfu síðan bæki- stöðvar sínar á sunnudag og í kjöl- farið streymdu skæruliðar Hisbolla-sveitanna inn á svæðið ásamt Líbönum sem bjuggu þar fyrir tuttugu og tveimur árum, og eru nú að kanna hvernig umhorfs er á heimaslóðunum og hvort heimili þeirra standi enn. Nokkurt mannfall varð í röðum almennra borgara þegar ísraelski herinn hóf árásir á þessi svæði í gær. Hisbolla-skæruliðarnir, sem barist hafa hatrammlega gegn ísraelska hernámsliðinu, hafa hót- að liðsmönnum líbönsku sveit- anna öllu illu, enda séu þeir land- ráðamenn sem hafi unnið lyrir hernámsliðið. Þó verði þeim þyrmt ef þeir gefa sig fram í Lí- banon og afhenda vopn sín. Isra- els stjórnvöld hafa á hinn bóginn lofað að tryggja öryggi hinna lí- bönsku aðstoðarmanna sinna. AIls eru þeir um 2.500 talsins. Hvert þorpið á fætur öðru hefur fallið í hendur skæruliðanna. Þeir eru þar með komnir óþægilega nálægt ísraelska hemum og svo gæti farið að brottför Israels- manna verði ekki jafn skipulögð og áætlað var fyrir vikið. Israelsmenn hertóku Suður-Lí- banon fyrir 22 árum til þess að vera með svonefnt „öryggissvæði“ á milli ísraelsku landamæranna og skæruliða HisboIIa, sem óspart gerðu árásir yfir landamærin á þessum árum. A síðustu árum hafa nánast stöðugar skærur verið á þessu svæði milli Hisbolla-samtakanna annars vegar og ísraelska herliðs- ins eða líbönsku sveitanna hins vegar. Vaxandi þrýstingur hefur verið á ísraelsk stjórnvöld að koma í veg fyrir það mannfall, sem af þessum átökum hefur hlotist, og nýlega sagðist Ehud Barak ætla að leysa málið með því að draga ísra- elska herliðið alveg á brott frá svæðinu. Upphaflega var talið að brott- flutningurinn yrði í tengslum við friðarsamninga Israels og Sýr- lands, sem fer að mestu leyti með völd í Líbanon, en þegar slitnaði upp úr Jjeim viðræðum í janúar ákváðu Israelsmenn að brottflutn- ingurinn yrði einhliða. Barak hefur þó ítrekað hótað því að ef skærulaðirnir nota tæki- færið og gera árásir inn yfir landa- mæri Israels, þá verði svarað í sömu mynt með hörðum árásum á Líbanon. Og þær árásir verði ekki bundnar við landamæra- svæðin. — GB Forsætisráðherrann enn í gíslingu FIDJI-EYJAR - Forsætisráðherra Fidjí-eyja er enn í haldi uppreisnar- manna ásamt 20 þingmönnum í þinghúsinu. Uppreisnarmennirnir, undir forustu George Speight, sögðust í gær ætla að gefast upp ef þeir fá ekki stuðning höfðingja á eyjunum. Skömmu síðar sýndu þeir hins vegar vald sitt með því að fara með forsætisráðherrann út fyrir þinghúsið og beindu að honum vopnum sínum á meðan. Svonefnt höfðingjaráð, sem hefur mikil áhrif á eyjunum, kemur saman í dag til þess að taka afstöðu til ástands mála. Kjamorkuveldin lofa afvopnxm Kjarnorkuveldin fimm, Bandaríkin, Bretland, Rússland, Frakkland og Kína, samþykktu um helgina yfirlýsingu þar sem þau heita því að losa sig við öll kjarnorkuvopn sín. Ekkert er þó sagt um hvenær mein- ingin sé að efna það loforð, en yfirlýsingin þykir engu að síður mik- ilvægur áfangi í áttina að afvopnun. Yfirmeimimir segjast saklausir HOLLAND - Yfirmenn flugeldaverksmiðjunnar í Enschede afneita allri ábyrgð á sprengingunum sem ollu gífurlegum hörmungum og tjóni f bænum fyrir tíu dögum. Við yfirheyrslur hafa þeir lagt áherslu á að þeir hafi rekið verksmiðjuna í fullu samræmi við reglur sem gilda um slfkan rekstur. Sögum um geymslu ólöglegra efna og sprengja vísuðu þeir alfarið á bug. A.m.k. 18 manns fórust og um 950 slösuðust þegar sprengingin varð, og enn er fjögurra manna saknað. Óbreytt kosningalög á Italíu ÍTALÍA - Ahugaleysi Itala fefidi tillögu um breytt kosningafyrirkomu- lag, en aðeins 31 % kjörsókn var í þjóðaratkvæðagreiðslu um breyting- arnar sem fram fór á sunnudag. Þessi lélega þátttaka er túlkuð sem ósigur stjórnarinnar, þar sem Silvio Berlusconi, leiðtogi stjórnarand- stöðunnar, hvatti kjósendur til þess að sitja heima. Þetta er í annað sinn sem reynt er að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um breytingar á kosningafyrirkomuiagi Ítalíu, og fyrir ári gerðist nákvæmlega það sama, að kosningaþátttakan var ekki nægilega mikil. Breytingarnar áttu að koma á hreini meirihlutakosningu á Italíu. Frákkar sýua enga miskunn FRAKKLAND - Frönsk stjórnvöld eru ekki tilbúin til þess að slaka á refsiaðgerðun Evrópusambandsríkjanna gegn Austurríki, en þann I. júlí nk. taka Frakkar við formennsku í framkvæmdastjórn ESB. Aust- urrísk stjórnvöld hafa verið höfð í einangrun innan Evrópusam- bandsins frá því hægriflokkur þjóðernissinna komst þar í stjórn. Undanfarnar vikur hefur þó fjölgað þeim ESB-ríkjum sem vilja slaka á þessum aðgerðum. Óttast hungursneyð í Eritreu ERÍTREA - Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna óttast nýja hungursneyð í Erítreu, sem undanfarin tvö ár hefur átt í landamærastríði við Eþfópíu. Hálf milljón manna er nú á flótta, sem þýðir m.a. að búskap er ekki sinnt og uppskera fellur niður, sem gerir ástandið enn verra. Eþíópfuher hefur þegar náð stórum hluta Vestur-Erítreu á sitt vald. ■ FRÁ DEGI ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 144. dagur ársins, 222 dagar eftir. Sólris kl. 3.47, sólarlag kl. 23.05. Þau fæddust 23. maí • 1707 fæddist danski grasafræðingurinn Carl von Linne. • 1908 fæddist Jón Engilberts listmálari • 1920 fæddist Oliver Steinn Jóhannes- son bóksali. • 1923 fæddist danski píanóleikarinn Alicia de Larrocha. • 1928 fæddist bandaríska söngkonan og Ieikkonan Rosemary Clooney. • 1933 fæddist enska leikkonan Joan Collins. • 1946 fæddist Þórhallur Sigurðsson leik- stjóri. Þetta gerðist 23. mai • 1430 var Jóhanna af Örk handtekin f Frakklandi og síðar framseld til Eng- lands. 11.'. ■ .. -» —-------L: TIL DflGS • 1900 hlaut bandaríski liðsforinginn William H. Carney heiðursmerki, fyrst- ur bandarískra blökkumanna, þrjátíu og sjö árum eftir sögufræga orrustu í horg- arastríðinu. • 1934 sátu bandarískir lögreglumenn lyr- ir glæpaparinu Bonnie Parker og Clyde Barrow og létust þau þar af óteljandi skotsárum. • 1945 framdi þýski nasistinn Heinrich Flimmler sjálfsmorð í fangelsi í Þýska- landi. • 1949 var Þýska samandslýðveldið (þá Vestur-Þýskaland) stofnað. • 1965 samþykkti danska þingið að af- henda Islendingum handritin. • 1987 varð Hannes Hlífar Stefánsson heimsmeistari sveina í skák. Vísa dagsins Sd er flesttilttið lið sem lifir til að hika - mér er yndi að ýta við öllu og sja það kvika. Stcphan G. Stcphansson Afmælisbam dagsius Fyrir um það bil hálfri öld varldarinettu- leikarinn Artie Shaw á toppnum og naut gífurlegra vinsælda með eigin stórsveit. Hann er níræður í dag, fæddur 23. maí 1910, en hefur ekki snert klarinettið sitt opinberlega frá því 1954. Þó hefur hann stöku sinnum látið sig hafa það að koma fram með stórsveit sinni, en þá sem stjórnandi og látið aðra sjá um klar- inettuleikinn. Hins vegar hefur hann stundað kennslu, farið í fyrirlestraferðir og skrifað nokkar bækur. Og átta konum hefur hann kvænst um ævina. í lýðræði er andóf trúarleg athöfn. Gildi þess, eins og meðala, ræðst ekki af bragðinu, heldur áhrifunum. J. W. Fulbright Heilabrot Lögrcgluþjónn átti Ieið framhjá kaffihúsi þegar hann heyrir allt i einu hrópað: „Nei, Jói, ekki skjóta!" Og síðan heyrist skothvell- ur. Lögregluþjónninn snarar sér inn og sér dauðan mann á gólfinu. Auk þess eru þarna inni eigandi veitingahússins, sem er náfölur, þjónn, sem starir í forundran á líkið, og stöðumælavörður sem kemur þarna daglega við til að fá sér kaffi. Lögregluþjónninn þekkti engan þeirra með nafni, en gekk engu að síður rakleiðis að þjóninum og handtckur hann án þess að spyrja neins. Hvernig vissi hann að þjónninn var sekur? Lausn á síðustu gátu: Nærbuxur hljóta að kosta 4.000 krónur, þar sem kaupmaður- inn sérvitri verðleggur vörur sínar á 500 krónur fyrir hvern bókstaf í heiti þeirra. Veffang dagsins Flökkusögur í nútímanum eru ákaflega ljöl- breytilegar og forvitnileg hlið á mannlífinu. Til þess að fræðast um þær er vænlegt að Ijyrp^i ,s.qr www.snopes.com LÍ&

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.