Dagur - 23.05.2000, Blaðsíða 4
4 -ÞRIDJUDAGUR 23. MAÍ 2000
FRÉTTIR
Jóhannes Antonsson netagerðarmaður, áreiðanlega sá eini hér á landi sem numið hefur fræðin í gegnum Netið með formlegum hætti.
mynd: brink.
Netagerð á netinu
Blað brotið í fjarkennslu
þegar fyrsti netagerðar-
maðurinn útskrifast með
aðstoð Intemetsins. Hefði
verið illframkvæmanlegt í
hans tilviki án tölvutækn-
innar.
Jóhannes Antonsson, 34 ára Dalvfking-
ur sem búsettur er á Akureyri, útskrif-
aðist sl. laugardag sem fullgildur neta-
gerðarmaður frá Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja. Það er í sjálfu sér ekki frétt-
næmt heldur námsaðferðin sem Jó-
hannes beitti til að öðlast réttindi sín.
Hann er fyrsti íslenski netagerðarmað-
urinn sem útskrifast með aðstoð Inter-
netsins í fjarkennslu og fékk sérstakar
viðurkenningar af því tilefni.
„Þetta er náttúrlega dálítið skondið
að vera í netagerð á netinu," sagði Jó-
hannes þegar Dagur náði tali af hon-
um í gær á vinnustað hans, Icedan á
Akureyri. Hann er fýrrum sjómaður
sem ákvað að fara í land, fyrst og
fremst vegna stöðu sinnar sem íjöl-
skyldumanns og Jóhannes er þess full-
viss að námsaðferðin hafi sparað hon-
um mikla fýrirhöfn og óþægindi. „Svo
er kostnaðurinn náttúrlega miklu
minni. Eg gat verið heima hjá mér og
stundað mína vinnu og sinnt íjölskyld-
unni.“
Lítur hann svo á engin takmörk séu
Jyrir því hvað hægt sé að læra með að-
stoð Netsins eftir þessa reynslu?
„í rauninni ekld, ég hugsa að það sé
hægt að læra nánast allt nema verk-
legu þættina á netinu."
Verðlaun frá stéttarfélaginu
Jóhannes fékk viðurkenningu við út-
skriftina frá stéttarfélagi netagerðar-
manna fýrir að vera sá fýrsti sem út-
skrifast með aðstoð fjarkennslunnar.
Einnig sæmdi Landssamband veiðar-
færagerða hann verðlaunum fyrir
sömu sakir og sjá eflaust margir fyrir
sér aukna aðsókn í þetta nám sem
margvísleg önnur fög með aukinni nýt-
ingu tölvutækninnar. Jóhannes segir
að vissulega hafi stundum komið upp
vandamál hjá honum milli fjar-
kennslustímanna en þá hafi hann ver-
ið svo lánsamur að eiga greiðan aðgang
að kennurunum. Spurningum hafi ver-
ið svarað hratt og örugglega með tölvu-
pósti eða símtali.
Bjart framnndan
Netagerðarnám er yfirleitt aðeins
kennt annað hvert ár og voru þeir fjór-
ir netagerðarmennirnir sem útskrifuð-
ust í ár frá Fjölbrautaskólanum á Suð-
urnesjum. Skólinn í Keflavík er sá eini
á Iandinu sem býður upp á þetta nám
hér á landi og er þörf á að fá fleiri fag-
Iærða til starfa enda ærin verkefni
framundan. „Heimurinn er allur að
verða minni. Sá sem býður best fær
verkin, burtséð frá því hvar menn eru
staddir í heiminum. Það hjálpar okkur
Islendingum líka að við erum með gott
orðspor í veiðarfæragerð. Það er bara
bjart framundan í greininni held ég,“
segir „netverjinn" knái, Jóhannes Ant-
onsson. - Bt>
FRÉTTA VIÐTALIÐ
Þorfinnur
Ómarsson.
Pottveijar höfðu veitt því
athygli að stærstu ljós-
vakamiðlar landsins, RÚV
og Stöð 2, höfðu lítinn sem eng-
an viðbúnað vegna kvikmynda-
hátíðarinnar í Cannes. Stöðv
amar höfðu engan fulltrúa á
staðnum og byggðu fréttaflutn-
ing sinn nær alfarið á frásögnum
Þorfinns Ómarssonar, fram-
kvæmdastjóra Kvikmyndasjóðs
íslands. Hann var í nær flestum fréttatímum og
eftir því sem pottveijar höfðu hlerað mun Þor-
finnur hafa á stundum vera orðinn þreyttur á
þessu. Þannig stoppaðj ekki farsíminn hjá hon-
um á meðan hann var staddur verðlaunaafhend
inguna og svo fór að hann varð að tala í hálfum
hljóðum í heiirni útsendingu í fréttatíma RÚV.
Mmi Þorfinnur að vera að íhuga að senda RÚV
og Stöð 2 reikning fyrir fréttaritarahlutverkið...
Meira um Cannes og afrek ís-
lendinga þar. Svo gæti farið að
dönsku og íslensku framleið-
endur Dansarans í myrkrinu
geti af sér fleiri stórmyndir.
Ýmis verkefni eru í gangi sem
gætu jafnvel átt eftir að skila
okkur fleiri gullpálmum, hver
veit? Síðan eru Friðrik Þór Friðriksson og Sjón,
sem báðir koma að Dansaranum þeirra Lars og
Bjarkar, að vinna í breskri kvikmynd. Sjón skrif-
ar handritið og Friðrik Þór kemur til með að
leikstýra. Sú mynd á að hluta til að gerast í fr am-
tíðinni, nokkuð sem Friðrik Þór hefur ekki feng-
ist svo mikið við til þessa. Pottverjar híða
spenntir eftir útkomunni...
Fríðrik Þór
Friðríksson.
Pottverjar sem fylgjast með útvaxpsstöðvunum
segja að breytingar séu framundan á stöðinni
Klassík FM 100.7 en sú stöð flytur einkum sí-
gilda tónlist. Dagskrárstjóri stöðvarinnar til
nokkurra ára, Halldór Hauksson, hefur sagt upp
og látið af störfum, en nýr stjómandi ekki enn
ráðinn í hans stað. Fullyrt er í pottinum að fram-
tíð stöðvarinnar sé nokkuð á huldu.
Siguiúur Öm
Hansson
aðstoðaryfirdýralæknir
Sýni vantaði í einhverjum til-
féllum. Aukin campylobact-
ermengun í kjúklingum. Ekki
Ijóst hvemig né hvarþað geti-
ist. í rannsókn. Bjartsýni á
sumarið.
Mistök virt sýnatöku
Hefur efirlit embættisins með
campylobactermenguðum kjúklingum al-
gjörlega brugðist í Ijósi aukinnar mengun-
ar íferskum kjúklingum?
“Nei, ég vill ekki segja að það og það er
ekki rétt. Það urðu þarna ákveðin mistök f
sambandi við sýnatöku og ég harma það
mjög. Ég hef upplýsingar um það og veit að
þetta er komið núna í gott horf. Eg mun
einnig leggja mikla áherslu á það að eftirlit
dýralækna í sláturhúsum og alifuglabúum
verði í góðu lagi og mun lylgja því eftir.“
- / hverju voru mistökin fólgin?
“Mistökin voru fólgin í því að það vantaði
sýni í einhverjum tilfellum. I apríl og maí
voru öll sýni sem voru tekin af eldishópum
af kjúklingum neikvæð. Það eru tekin sýni á
þremur stöðum, þ.e. við fjögurra vikna ald-
ur, áður en slátrun hefst og síðan strax eftir
slátrun. Sýni sem voru tekin við fjögurra
vikna aldur voru neikvæð en síðan var nokk-
uð um það að sýni voru menguð sem voru
tekin í upphafi slátursferils og eftir slátrun.
Það virðist sem fuglarnir hafi mengast frá
fjögurra vikna aldri uns jreir komu í slátur-
hús. Það er hins vegar ekki ljóst hvernig
þetta gerðist eða hvar. Það er þvf eitt aðal-
verkefnið að Ieita svara við því.“
- Var þetta hjá einum framleiðenda eða
kannski hjá mörgum?
“Þetta var hjá fleirum en einum framleið-
anda. Það sem er kannski sérstakt við þetta
var það að það var slátrað tveimur stórum
eldishópum sem reyndust mengaðir. Þegar
slátrað er svona stórum eldishópum er þeim
skipt upp í siáturhópa og tekin sýni úr hverj-
um hópi vegna þess að það er ekki hægt að
slátra þeim öllum í einu.“
- Er vitað hversu víðtæk hún er þessi
mengun?
“Eg veit ekki hvað ég á að segja um það.
Það eru allavega þessir hópar sem eru
mengaðir. í framhaldi af þvf kölluðum við
fulltrúa kjúklingabænda á okkar fund þar
sem við ræddum ástandið við þá og hvernig
unnt væri að finna lausn á þessu. Við mun-
um jafnframt brýna fyrir þeim að fara yfir
allar verklagsreglur og vinnubrögð á ali-
fugHbúum til að tryggja að ítrasta hreinlæti
sé gætt og til að tryggja að smit berist ekki
inná búin og nái að dreifast innan þeirra.
Við höfum jafnframt eftirlit með hreinlæti í
sláturshúsunum. Varðandi þessa niðurstöðu
þá bendir flest til þess að fuglarnir mengist
ekki í sláturhúsinu og að þrif og sótthreins-
un þar virðist vera f lagi. Því til sönnunar
má benda á að þótt menguðum hópum hafi
verið slátrað, þá var fyrsti hópur sem slátrað
var næsta dag á eftir ómengaður. Það bend-
ir til þess að hreinlæti í sláturhúsinu sé í
lagi.“
- Er það ásættanlegt að það séu megnað-
ir kjúkltngar i verslunum?
“Nei, það er það sem við stefnum að verði
ekki. Það er jafnframt húið að gera sam-
komulag um að kjúklingar úr megnuðum
eldishópum verði frystir."
- Það læðist að mörgum grunur um að þið
dragið frekar taum framleiðenda en neyt-
enda í þessum rnáli. Er það svo?
“Nei. Eg tel það vera markmið yfirdýra-
læknis að koma þessum málum í eins gott
horf og hægt er og minnka campylobact-
ermengun í kjúklingum eins og kostur er.“
- Það var töluvert mikið um það sl. sum-
ar að fólk veiktist af neyslu mengaðra
kjúklinga. Hvemig heldurðu að þetta verði
í sumar?
“Þótt að við séum með verri niðurstöðu í
aprfl og fyrstu dagana í maí, þá höfum við
náð umtalsverðum árangri í baráttunni gegn
þessari megnun í kjúklingum. Ég leyfi mér
þvf að vera bjartsýnn á að það muni halda
áfram.“ - grh