Dagur - 23.05.2000, Blaðsíða 6

Dagur - 23.05.2000, Blaðsíða 6
€ - ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000 ÞJÓDMÁL Útgáfufélag: dagsprent Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson Ritstjóri: elías snæland jónsson Adstoðarritstjóri: birgir guðmundsson Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson Skrifstofur: strandgötu 3i, akureyri, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK Símar: 460 6ioo OG boo 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk.: i.goo kr. Á mánuði Lausasöluverð: 150 kr. og 200 kr. helgarblað Grænt númer: 800 7080 Netföng auglýsingadeildar: karen@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@ff.is Simar auglýsingadeildar: (REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason (REYKJAVÍK)563-1642 Gestur Páli Reyniss. (AKUREYRI)460-6192 Karen Grétarsdóttir Simbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Símbréf ritstjórnar: 460 6171(akureyrí) 551 6270 (REYkjavík) Boðskapur biskupsins í fyrsta lagi Aðvörunarorð biskups íslands, herra Karls Sigurbjörnssonar, í opnuviðtali Dags um helgina virðast hafa hitt beint í mark. Þar réðist hann gegn þeim trúarbrögðum græðginnar sem svo margir aðhyllast nú um stundir: „Við höfum lifað mikla veislu á Islandi og ekki má vanþakka það. En stundum finnst manni sem fólk áliti lífið eitt allsheijar íjárhættuspil. Spilafíkn er eins og önnur fíkn, lokkar og laðar en festir síðan í snöru sinni. Erum við kannski sem þjóð á kafi í neyslu, alls konar neyslu, í viðjum vímufíknar? Þyrftum við ekki bara að fara í meðferð?“ í öðru lagi Davíð Oddsson, forsætisráðherra, tók þessi ummæli óstinnt upp þegar hann var spurður um þau í sjónvarpsþætti um helg- ina og taldi þau röng og einkennast af klisjum. Slík viðbrögð ættu ekki að koma á óvart. Forsætisráðherra hefur lengi haft mjög takmarkaða sjón. Hann hefur ekki séð neyð öryrkja og annarra sem lifa eingöngu á bótum sem eru langt fyrir neðan umsamin lágmarkslaun í landinu. Hann sér ekki fátækt á Is- landi. Hann sér ekki hættuna af stórfelldum viðskiptahalla ár eftir ár eftir ár né heldur af verulega meiri verðbólgu en gerist meðal nágrannaþjóðanna. 1 þriöja lagi Það var mjög tímabært hjá biskupi Islands, leiðtoga íslensku þjóðkirkjunnar, að vara svo rækilega við þeirri alvarlegu mis- skiptingu lífskjara sem einkennir samtímann. Vonandi heldur hann áfram að tala í jafn hnitmiðuðum „klisjum11 um nauðsyn þess að bæta hag þeirra sem verst eru settir og auka félagslegt réttlæti. Vonandi heldur hann áfram að vara við þeirri tak- markalausu mammonsdýrkun sem einkennir gróðahyggju og græðgi hins óhefta markaðar þar sem enginn hugsar um þá sem verða undir. Ef biskup Islands og aðrir þeir sem bera hag hinna verst settu fyrir brjósti endurtaka þessar „klisjur“ nógu oft, gæti það jafnvel haft þau ótrúlegu áhrif í Stjórnarráðshús- inu við Lækjargötu að blindir fái loksins sýn. Elias Snæland Jónsson Klisjiir eða konunúnismi? Karl Sigurbjörnsson biskup hef- ur verið óþreytandi við að minna þjóð sín á þau verðmæti sem mölur og ryð fá ei grandað og vara hana við hinni tilgangs- lausu eftirsókn eftir vindi. Garri hefur æfinlega verið svona heldur hallur undir þennan málflutning biskups enda til- heyrir Garri þeim stóra hluta þjóðarinnar sem ekki er í að- stöðu til að hafa áhyggjur af pelli og purpura eða hvort hlutabréfin hans hækki um 5 eða 10 milljónir í næstu viku. Og séra Karl er enn við sama heygarðshomið í viðtali í Degi í fyrri viku. Þar talar hann með tveim hrútshomum um hina óhelgu þrenningu, græðgina, fysnina og valdið. Og hann seg- ir: „Við horfum upp á það að auður hinna auðugu vex geigvænlega en ör- birgð hinna snauðu eykst þeim mun meir“. Og biskup segir og: „Við lok- um augunum fyrir því að það græðir enginn nema annar tapi.“ Tap og gróði Flestir geta ugglaust tekið und- ir þessa hagfræði hins andlega leiðtoga þjóðarinnar. En ekki allir, að minnsta kosti ekki hinn veraldlegi leiðtogi þjóðarinnar, herra forsætisráðherra Davíð Oddsson. Aðspurður kvaðst Davíð í sjónvarpþætti hafa lesiö viðtalið við biskup í Degi og væri ekki sammála honum um græðgina í íslensku samfélagi. Eða er það græðgi að vilja búa sér og sínum fallegt heimili og tryggja börnunum örugga og bjarta framtíð?, spurði Davíð efnislega. Og bætti við að því miður væri þessi málflutningur hiskups bara klisja. Það er örugglega rétt hjá for- V sætisráðherra að allir íslending- ar vilja eignast fagurt heimili og enn frekar tryggja börnum sín- um bjarta framtíð. En eins og biskup hefur bent á, þá eru sumir í jafnari aðstöðu en aðrir til að ná þessum markmiðum. Á meðan láglaunamenn berjast urn á hæl og hnakka við að koma sér upp húsnæði og eiga fyrir salti í grautinn, vita aðrir ekki aura sinna tal. Og lögmál- ið er að þeir ríku vilja meira og meira, meira í dag en í gær. Og eins og biskup segir: Það græð- ir enginn nema annar tapi. Vanheilagir ólátabelgir Sú var tíðin að Sjálfstæðisflokk- urinn taldi sig helsta merkis- bera guðs kristni á Islandi og varði kirkjuna með oddi og egg gegn stöðugum árásum kommúnista, jafn- aðarmanna og ann- arra vanheilagra ólátabelgja, sem sökuðu kirkjuna stundum um að vera handbendi íhaldsafla og gróða- punga. En nú er öldin önnur. Mammon hefur stóraukið fylgi sitt á Islandi og biskup og klerkar eru eðlilega farnir að úthúða sívaxandi græðgi í samfélaginu. Þeir tala í raun eins og kommúnistar, eða í það minnsta jafnaðarmenn gerðu áður og gera sumir enn. Af einhverjum ástæðum taka sjálfstæðismenn þessa græðis- gagnrýni til sín. Og oddviti þeir- ra Oddsson snýst til varnar og fer að tala um Idisjur, án þess þó bcinlínis að ásaka biskup um kommúnisma. En það er auðvitað það sem hann vildi sagt hafa. GARRI Við erum hæfileikaríkastir, mestir og bestir. Allt það sem fram kom í magnaðri ræðu, sem flottasti Is- lendingurinn hélt f\TÍr nokkru í Los Angeles er alveg dagsatt. Þar voru rakin stórfengleg afrek þjóðar- innar frá öndverðu, mikilleika nátt- úru landsins gerð verðug skil og menningarástandi nútímans lýst sem veraldrarundri, sem æskilcgt væri að aðrir geti tekið sér til fyrir- myndar. Bandaríkjamenn féllu í stafi að frétta af þessum býsnum öllum og sönnuðu fáfræði sína og útúrboruhátt þegar eitt höfuðmál- gagn þeirra hélt að þarna haf'i Finnlandsforseti verið á ferð. Það sannaðist s.l. sunnudag hve hátt Islendingar eru metnir í al- heimskeppninni um athygli. Björk, sem þegar var búin að gera garðinn eins frægan og frekast var unnt, bætti enn um betur og var valin besta leikkona ársins á kvikmynda- hátíðinni í Cannes. Það er vel af sér vikið af söngkonu og tónskáldi, sem aldrei hefur áður verið við Þjóðremban og sviðsljósið leiklist kennd og kærir sig síst um leikaratitilinn, ef marka má milli- liðina, scm eru að burðast við að koma skoðunum og áætlunum listakonunnar á framfæri. Danskurinn er líka inunfinii Björk hefur ávallt staðið fyrir sínu. Hún hefur þroskað og nýtt hæfileika sína og komið sér á framfæri af eigin rammleik og sjálfsagt notið stuðn- ings vina sinna, sem einnig geta uppskorið eitthvað í tengslum við frægð hennar og frama. Miklar upphrópanir glymja nú um að ísland hafi unnið stórsigur í vinsældakeppninni við aðar þjóðir. Rétt er það, Björk er íslcnsk en deila má um þjóðerni tónlistar hennar. Sjón samdi söngtexta og eitthvað smáræði lögðu íslenskir fjárfestar í bíómyndina, sem Danskurinn stjórnaði, og fékk gullpálma í Cannes. Samt er allt eins víst að smáþjóðin viö Eyrar- sund telji leikstjóra verðlauna- myndarinnar og bíóið í heild eins danskt og Olsen- bræður í kaupfélags- fötunum sínum. Smáþjóðametingur- inn er Dönum í blóð borinn, eins og við heimsborgararnir í fyrrum hjálendu þeirra þekkjum svo vel. Þeir þykjast jafn- vel vera betri í hand- bolta en strákarnir okkar. Hvar erkarliim? Það voru hvorki Danir né íslend- ingar sem hlutu gullpálmann í Cannes. Það voru þau Björk og Lars og aðrir þeir sem sömdu Myrkradansarann. Við megum gjarnan vera stolt af því að vera samlandar Bjarkar. En hún er ekki Björk „okkar“. Hún á sig sjálf í fé- lagi við fjölda aðdáenda vítt um veröld, sem eignast ofurlítinn hluta af verkum hennar meðan þeir njóta. Það baðar sig enginn í frægðar- ljóma listakonunnar nema hún sjálf og jiað er öldungis óþarfi að belgja sjálfan sig upp af þjóðrembu vegna þeirar athygli sem hún vekur f útlandinu. Björk selur hvorki freðfisk né loðnumjöl og tæpast bókmenntaarfinn heldur. En hún er dugleg að selja tónlist og von- andi verður framlag hennar til leik- listar einhveijum ábatasamt. Ef athyglissýkin og þjóðarstoltið ætlar að ganga af göflunum vegna leiksigurs Bjarkar er hollt að Ieggja upp spurningu sem ekki var búið að svara um hádegisbil i gær: Hverrar þjóðar er gaurinn sem val- inn var besti karlleikarinn í Cann- es? Eða varðar okkur ekki um neitt annað en eigin upphafningu? spuifki svaifað Ætlarþú að sjá ein- hverja afafburðum Listahátíðar í Reyhja- víh? Steinunn Þórorinsdóttir, myndhöggvari. „Um helgina voru opnaðar tvær myndlistarsýningar sem ég ætla að sjá. í Listasafni ASÍ sýna fimm valin- kunnir myndlista- menn verk sín, sem allir vinna verk sín með svipuðum tökum, og í Listasafni Islands eru Stafrænar sýnir, sem er nýstárleg og spenn- andi blanda. Þá var vinur minn Tryggvi Olafsson að opna sýningu í Gallerí Fold, en það er alltaf hressandi að fá Tryggva til lands- ins. Þá sýna Ijórir breskir mynd- listamenn í Nýlistasafninu, en sjálf er ég menntuð í Bretlandi og þykir því alltaf spennandi að sjá stefnur og strauma sem þaðan koma. Ég veit reyndar ekki hvort allir þessir viðburðir tilhcyra Listahátíð, en breytir nokkru hvaðan gott keinur?" Birgir Sigurisson, rithöfundur. „Vissulega, ég er sjálfur í stjórn Reykjavíkur menningarborgar 2000, sem aftur stendur sameigin- lega með Listahá- tíð að mörgum atburðum á dag- skrá hennar. Og ég er lukkulegur með þessa hótíð og margir atburð- ir hennar eru spennandi. Mér finnst mestum tíðindum sæta að fá hingað hinn heimsfræga San Fransisco ballett undir stjórn Helga Tómassonar, en einnig eru margir áhugaverðir tónleikar, leik- rit og sýningar einnig á dagskrá." Timui Gunnlaugsdóttir, leikari. „Já, ég ætla meðal annars að sjá San Fransisco ballett- inn, og einnig stór- söngvaraveisluna, leikbrúðu uppsetn- ingu á Dongio Vanni og einnig áhugaverða sýn- ingu á byggingalist sem er í Lista- safni íslands. Hátíðin er bæði fjöl- breytt og glæsileg og ég tel að hún gefi okkur Islendingum svo sann- arlega tækifæri til þess að víkka sjóndeildarhringinn." Hróðmarlngi Sigurbjömsson, tónskáld. „Það eru nokkrir tónleikar á vegum Tónskáldafclags ís- lands sem eru á dagskrá Listahátíð- ar, sem ég mun koma ti! með að sækja. Þetta eru tónleikar Cauput, Harmrahlíðarkórsins og Kammersveitar Reykjavíkur - en einnig eru á dagskrá klarinettu- og strengjatónleikar. Einnig væri gaman að fara á sýningu leikbrúð- Ieikhússins í Prag sem ætlar að sýna okkur Dongio Vanni. Um helgina fór ég á opnunarhátíðina, sem var skemmtileg og fjölbreytt."

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.