Dagur - 23.05.2000, Page 2

Dagur - 23.05.2000, Page 2
» ’ i I' V rt' r, *l 2 - ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000 FRETTIR Hota aðgerðiim til vamar neytendum Haröort bréf til um- hverfisrádherra. Kampylohactermeng- un í kjúMingum. Sláturhús Reykja- garðs á HeHu. Vanefndir. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur skrifað umhverfisráðherra harðort bréf í framhaldi af því að verulegir ágallar hafa verið á sýnatöku og eftirliti með kampylobactermengun í slátur- húsi Reykjagarðs á Hellu, sem er stærsta kjúklingasláturhús landsins. Þar kemur fram að ef fer fram sem horfir að helmingur alifugla frá sláturhúsinu sé mengaður af kampylobacter, tel- ur eftirlitið óhjákvæmilegt að grípa verði til aðgerða til að vern- da neytendur fyrir smiti í fersk- um kjúklingum frá því. Þá Iítur heilbrigðiseftirlitið það mjög al- varlegum augum að ekki hefur verið hrint í framkvæmd tillög- Enn hafa sýktir kjúklingar valdið landsmönnum óhug. um til úrbóta sem ráðuneytið boðaði í ársbyrjun. Snýst um fólk Hrannar B. Arnarsson formaður heilbrigðisnefndar segir að rót- tækasta leiðin sé að takmarka sölu á kjúklingum í verslunum í borginni. Málið verður tekið fyr- ir á fundi nefndarinnar n.k. fimmtudag en þá búast menn við að fá svar frá stjórnvöldum sem segjast vera búin að taka á þess- um vanda. Ef menn sætta sig ekki við þau svör þá sé alveg við- búið að gripið verði til aðgerða ef ekki tekst að laga ástandið með öðrum hætti. Hann segir það al- veg ljóst að það sé ekki hægt að varpa þessari ábyrgð framleiðsl- unnar yfir á neytendur, enda verða framleiðendur og heil- brigðisyfirvöld að axla þá ábyrgð sem þeim er falin í lögum. For- maður heilbrigðisnefndar Reykjavfkur segir að heilbrigðis- eftirlitið hafi ákveðið að heíja eigin sýnatöku til að kanna ástandið á markaðnum í stað þess að stóla einungis á Holl- ustuvernd. Mjög alvarlegt I bréfi eftirlitsins til ráðuneytis- ins, en afrit af því var einnig sent til landbúnaðaráðherra, heil- brigðisráðherra og Hollustu- verndar ríkisins kemur fram að f mörgum tilfellum vantar sýni eða þau séu ónothæf til rann- sóknar. Bent er á að hvorki Holl- ustuvernd ríkisins né heilbrigðis- eftirliti sveitarfélaga hefði verið tilkynnt um frávik frá sýnatöku eða um kampylobactermengun í sláturhópum fyrr en mánuður var liðinn frá því hætt var að fyl- gja þar að lútandi reglum. Þetta sé mjög alvarlegt og m.a. með til- liti til þeirra þjáninga og kostn- aðar sem kampylobacterfaraldur hafði í för með sér á sínum tíma. Vanefndir Þá er umhverfisráðuneytið gagn- rýnt fyrir vanefndir í áður boðuð- um aðgerðum fyrir neytendur. Bent er á að ekki sé enn komin út sérstakur fræðslubæklingur og sömuleiðis hefur ekki enn verið hrint af stað fræðsluátaki. Þá hefur landbúnaðarráðherra ekki enn bundið í reglugerð kerfi sem á að gera mögulegt að rekja afurðir til eldishópa. Ennfremur hlaut breyting á lögum um mat- væli ekki afgreiðslu frá alþingi sem átti að taka gildi í næsta mánuði. - GRH Árni Steinar Jóhannsson mun ásamt Þuríði Backman gera víðreist um Austurland. VGfimdar á Austurlandi Árni Steinar Jóhannsson og Þuríður Backman, þingmenn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, munu í þessari viku halda fundi vítt og breitt um Austurland - en þetta er liður í því sem þingmenn þurfa að gera nú; að starfa samkvæmt hinni nýju kjördæm'askipan sem senn tekur gildi. Fyrsti fundur þeirra Þuríðar og Arna verður í Mikla- garði á Vopnafirði í dag kl.20.oo og síðan er fundur í Félagslundi á Reyðarfirði á morgun, einnig kl.20.oo. Fundað verður vítt og breitt og fólk teldð talið og end- að undir næstu helgi á Þórshöfn og Raufarhöfn. - SBS. Bitið, kýlt og sparkað í íogguna Sex lögregliuneim í hættu þegar hópur ungmenna veittist að þeim eftir að sam- kvæmi fór úr höndun- um í Garðahæ. Lög- gæsla lamaðist í hluta höfuðhorgarsvæðisins þegar aukamannskap- ur var kaUaður til. Fáheyrðar óeirðir áttu sér stað í Garðabæ aðfaranótt sunnudags- ins eftir að samkvæmi fór úr böndunum og Iögreglan var köll- : uð til að skakka leikinn. Hópur ungmenna Iagði hendur á þá lög- reglumenn sem fyrst komu á vettvang og mættu þeir kýlingum og spörkum af hrottalegu tagi auk þess sem sumir notuðu tennurnar og bitu lögreglumenn- ina. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem til uppþota af þessu tagi kemur í Garðabæ og sagði ónefndur Iögreglumaður í sam- tali við Dag í gær að menn átt- > uðu sig ekki á því af hverju hluti f ungmenna hegðaði sér með þess- I um hætti. Margeir Sveinsson, rannsókn- arlögreglumaður hjá lögreglunni [ í Hafnarfirði, segir að rannsókn l standi enn yfir. „Þarna safnaðist saman unglingahópur, hátt í 70 manns og var óskað eftir aðstoð lögreglu. Sex frá okkur fóru á [ staðinn og veittist þá hópurinn að þeim þannig að þeir þurftu að r verja sig þangað til aðstoð barst Samskipti lögreglu og ungmenna urðu með dramatískum hætti i Garðabæ um helgina. Myndin tengist ekki þeim atburðum. frá Lögreglunni í Reykjavík. Þeir mættu kýlingum, spörkum og biti og máttu þola það þangað til liðsaukinn leysti upp hópinn," segir Margeir. 15 handteknir Heildarfjöldi Iögreglumanna var á fimmta tug á svæðinu þegar mest var og voru 15 manns handteknir. Fjölmargar ákærur verða væntanlega lagðar fram. Auk líkamsárásanna var stungið á sex dekk lögreglubifreiða og unnar skemmdir á húsmunum. Lítur Margeir svo á að lögreglu- mennirnir sem fyrst komu á vett- vang hafi verið í raunverulegri hættu? „Já, ástæðan fyrir því að þeir kalla á aukaliðsafla er sú að þeir mátu það sem svo,“ segir Margeir. Lögreglan þarf iðulega að hafa afskipti af samkvæmum sem fara úr böndunum og þá einkum ef foreldrarnir eru að heiman. Svo virðist sem það hafi spurst út í þessu tilviki að húsráðandi, ung stúlka, hafi verið ein heima og hún ekki ráðið neitt við atburða- rásina. Flestir hlutaðeigandi eru Iögráða eða frá 18 ára aldri og rétt fram yfir tvítugt en þó ekki allir. Félagsmálayfirvöld í Garða- bæ líta atburðinn alvarlegum augum. Með því grófara Einnig er Ijóst að þegar svona stór hópur Iögreglumanna er kallaður til á sama staðinn, hlýt- ur það að bitna á gæslu annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Eftirlit lamast að miklu leyti í stórum hverfum en það mun hafa sloppið til þessa nótt. „Svona hlutir geta alltaf gerst og eru kannski að segja má að ger- ast út um allt. Þetta er hins vcg- ar með því grófara sem við höf- um séð, hver sem ástæðan er,“ segir Margeir. - BÞ 30 milljóna tjón Innlendir og erlendir sérfræðingar hafa að und- anfömu unnið að því að meta tjónið sem varð í eldsvoðanum um borð í frystitogara DFFU, Hannover sunnudaginn 14. maí s.l. DFFU er dótturfélag Samherja á Akureyri. Ljóst er að skipið er mikið skemmt, bæði af eldinum sjálfum en einnig af sóti og reyk sem fór um allt skipið. Hanover var tryggt fyrir því eignatjóni sem varð hjá Tryggingamiðstöðinni. Það tjón sem fellur á DFFU og þannig á Samherja ér vegna þess aflat- aps sem verður á meðan á viðgerð stendur en tryggingar fyrir slíku tjóni tíðkast ekki í útgerð. Leitað hefur verið til færustu og öflugustu að- ila um viðgerð á skipinu til þess að hún taki sem stystan tíma. Niðurstaðan er sú að gert verður við skipið í Noregi en ekki er víst hvað vðgerðin tekur langan tíma. Þó er áætlað að skipið verði frá veiðum í 60 daga. Miðað við það mun töpuð framlegð DFFU og Samherja geta numið um 30 millj. lcróna. Dráttarbátur er nú á Ieiðinni til Islands og verður Hannover dregið til Noregs í lok vikunnar. A meðan er unnið að því að rífa út ónýtar og skemmdar innréttingar og búnað. - gg Nota bene gerir stórsanming Nota bene hf. hefur, að undangengnu útboði, gert fimm ára samning um framleiðslu allra umferðarskilta fyrir Reykjavíkurborg. Við fram- leiðsluna er stuðst við staðla sem Vegagerðin hefur sett og notuð eru bestu fáanlegu hráefni s.s. seltuvarið ál, endurskinsdúkur og prent- litir frá 3M auk hágæða límdúks. Helstu notendur umferðaskilta eru baejar- og sveitarfélög auk stærri verktaka. 1 tilefni verðlækkunarinnar hefur Nota bene einnig ákveðið að bjóða þeim bæjar- og sveitarfélögum sem panta skilti í maí mánuði fría heimsendingu. Siglfirdmgar vilja RARIK til Akureyrax Bæjar stjórn Siglufjarðar herur samþyklít ályktun þar sem lýst er ein- dregnum stuðningi við hugmyndir ríkisstjórnarinnar við það að flyt- ja höfuðstöðvar Rafmagnsveitna ríkisins frá Reykjavík til Akureyrar. Bæjarstjórnin styður eindregið flutning stofnana ríkisins út á land ásamt því að nýjum stofnunum verði valinn staður á landsbyggðinni. í ályktun bæjarstjórnar Siglufjarðar segir m.a. að ákvarðanir í þessa veru séu skýr merki þess að ríkisstjórnin hyggist fylgja eftir stefnu- miðum sínum í byggðamálum. Uppbygging sem þessi á landsbyggð- inni stuðli að öflugu mótvægi við þá byggðaröskun sem átt hafi sér stað og allir séu sammála um að taka þurfi á sem fyrst. - gg Þorsteinn Már Baldvinsson og fé- lagar í Samherja urðu fyrir búsifjum þegar Hannover brann.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.