Dagur - 23.05.2000, Page 12
'I
12 -I'RIOJUDAGUR 23. MAÍ 2000
SAMANTEKT
rDnptr
Dansað á stjön
Björk vax stjama kvik-
inyiidaliátí ð ariimar í
Cannes. Líkleg til Ósk-
arsverðlauna. Jákvæð
áhrif á íslenskan kvik-
myndaiðnað.
Það hefur ekki farið framhjá
neinum að Björk Guðmundsdótt-
ir vann til verðlauna á kvik-
myndahátíðinni í Cannes um
helgina sem besta Ieikkonan, fyr-
ir aðalhlutverk sitt í kvikmynd-
inni Dancer in the Dark, eða
Dansað í myrkrinu. Kvikmyndin
sjálf, í leikstjórn hins danska Lars
von Triers, hlaut Gullpálmann
sem besta myndin á hátíðinni.
Þótt kvikmyndin teljist formlega
koma frá Danmörku þá er óhætt
fyrir okkur Islendinga að fagna
vel og lengi yfir velgengni hennar
því það er ekki aðeins Björk sem
kom að henni sem leikkona og
Iagahöfundur. Fleiri íslendingar
komu þarna að máli. Islenska
kvikmyndasamsteypan hans Frið-
riks Þórs Friðrikssonar er með-
framleiðandi ásamt Dönum og
Svíum og naut við það 10 millj-
óna styrks frá Kvikmyndasjóði Is-
lands, rithöfundurinn Sjón samdi
söngtexta ásamt Lars Von Trier,
Karl Júlíusson gerði leikmyndina,
Valgeir Sigurðsson vann að tón-
Iistarupptökum og vinnslu og
Björk naut aðstoðar tveggja vin-
kvenna sinna, þeirra Andreu
Helgadóttur og Jóku Jóhanns-
dóttur. Björk er reyndar ekki
fyrsti Islendingurinn sem vinnur
Gullpálmann á Cannes því fyrir
10 árum var kvikmynd verðlaun-
uð sem Sigurjón Sighvatsson
framleiddi ásamt fleirum, Wild at
Heart. En að framansögðu má sjá
að Dansarinn er langtum íslensk-
ari en sú framleiðsla.
Ólýsanleg stund
Erlendir fjölmiðlar hafa flestir
farið fögrum orðum um kvik-
myndina og ekki síst þátt Bjarkar.
Hún hefur fengið afar lofsamlega
dóma fyrir sinn leik. Hún hefði í
raun gengið lengra en að leika
hlutverkið heldur upplifað það
með eftirminnilegum hætti. Tón-
list hennar hefur einnig fengið
góðar viðtökur. Óhætt er að full-
yrða að stjarna hennar hafi sjald-
an skinið skærar og í raun hefur
kvikmyndin og Lars Von Trier lít-
illega fallið í skuggann af henni.
Þar dansar Björk á stjörnuhimni
frekar en í einhverju myrkri líkt
og í myndinni. Þetta skynjaði
Þorfinnur Ómarsson, fram-
kvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs,
sem var viðstaddur alla hátíðina í
Cannes. Staddur í Frakklandi í
gær, á leið til Islands, sagði hann
við Dag að tilfinningin hefði ver-
ið ólýsanleg þegar sú stund rann
upp á sunnudaginn að kvikmynd-
in og Björk fengu aðalverðlaunin.
„Þetta var áhrifamikil stund og
eitthvað sem maður upplifir ekki
oft á ævinni, sérstaldega vegna
þess hversu Björk var vel tekið,“
sagði Þorfinnur, „allir voru greirii-
lega á hennar bandi og vildu að
hún sigraði." Hann sagði að
franskir fjölmiðlar hefðu verið
uppfullir af því í gær að Björk
hefði unnið sigur, frekar en
myndin. Hátíðin hefði meira að
segja komist á forsíðu Financial
Times með fyrirsögninni „Björk
vinnur"
Tók Cannes í nefið!
Þorfinnur sagði að Björk og kvik-
myndin hefðu fengið mikla at-
hygli í Cannes. Björk hefði verið
stjarna hátíðarinnar þrátt fyrir að
hafa stoppað þar aðeins í tvo daga
og ekki veitt nein viðtöl. Hann
sagði íslendinga, og sig þar með,
kannski ekki hafa gert sér grein
fyrir hvað Björk væri orðin fræg.
Eftir hátíðina í Cannes væri nafn
hennar enn kunnara heimsbyggð-
inni en áður.
Hápunktur hátíðarinnar var við
sýningu Dansarans. Aðspurður
hvort kvikmyndin verðskuldaði
verðlaunin og alla þessa athygli
sagði Þorfinnur engan vafa leika
þar á. Þetta væri góð kvikmynd,
unnin upp úr hefðbundinni sögu
en frásagnaraðferðin væri óhefð-
bundin, sérstaldega er varðaði
tónlistaratriðin. Þar ætti Björk
stóran þátt í og því enn skemmti-
legra fyrir vikið að myndin hefði
staðið upp úr með pálmann í
höndunum.
„Þetta er kvikmynd sem nær
áreiðanlega til stórs hóps. Þetta
er þriggja vasaklúta mynd. Sagan
snertir alla,“ sagði Þorfinnur.
Umfjöllun og viðbrögð fjöl-
miðla í Evrópu, einkum á megin-
landinu, hefur almennt verið afar
jákvæð. Breskir fjölmiðlar hafa
verið jákvæðir en kannski ekki
eins hástemmdir í lýsingum sín-
um og t.d. fjölmiðlar í Frakklandi
og á Norðurlöndunum. Neikvæð-
asti dómurinn hefur birst í
bandaríska tímaritinu Variety.
Þorfinnur sagði of snemmt að
segja til um viðbrögð markaðarins
í Bandaríkjunum almennt, það
ætti eftir að koma í Ijós þegar
myndin færi í dreifingu í haust og
umsagnir birtust í fleiri fjölmiðl-
um þar vestra, sem og víðar um
heim. Kvikmyndin verður að
sjálfsögðu sýnd á íslandi í haust.
Síðasta kvikmynd Bjarkar?
En hvaða þýðingu skyldu þessi
verðlaun hafa fyrir Björk? Hún
hefur lýst því yfir að þetta verði
hennar fyrsta og eina kvikmynd.
Þannig Iýsti hún því klárlega yfir
á blaðamannafundi í Cannes að
verðlaunaafhendingu lokinni að
hún ætlaði ekld að leika í fleiri
kvikmyndum. Þorfinnur sagði
þetta snilldarleg ummæli, að taka
við svona stórum verðlaunum fyr-
ir sína fyrstu mynd. Þetta gæti
hver sem er ekki gert. „Hvort hún
stendur við þetta á eftir að koma
í ljós. Tímarnir geta breyst. Mér
finnst mjög líklegt að margir
reyni að fá hana til liðs við sig.
Þetta eykur auðvitað veg hennar
sem tónlistarmanns. Þegar tón-
Iistin kemur út þá munu aðdá-
endur hennar fjölmenna á mynd-
ina,“ sagði Þorfinnur.
Dancer in the Dark er fyrsta er-
lenda kvikmyndin scm hlýtur
styrk úr Kvikmyndasjóði, 10
milljónir eins og áður sagði, og
rann sú fjárhæð til íslensku kvik-
BJÖRN
JÓHAJVN
BJÖRNSSON
SKRIFAR
Björk GuömundsdóUir þykir fara á kostum í kvikmyndinni Dancer in the Dark. Hún er búin aö heilla dómnefndina í Can.
inn verður afhentur.
myndasamteypunnar, eins með-
framleiðanda myndinnar. Þetta
er að vísu lítið brot af heildar-
myndinni sem kostnaður við
Dansarann er í kringum I millj-
arð króna! Þorfinnur sagði þenn-
an styrk engu að síður hafa verið
vel metinn og mikilvægt væri fyr-
ir íslenskan kvikmyndaiðnað að
halda þessum tengslum. Þessir
framleiðendur væru stöðugt að
styrkja íslenskar kvikmyndir
„Við fengum gagnrýni á okkur
fyrir þennan stuðning á sínum
tíma. Athyglin sem myndin fær
núna sýnir að þetta hafi verið
sjálfsögð ráðstöfun. Þetta kemur
til með að skila íslenskri kvik-
myndagerð miklu. Fólk var að
koma til mín og óska mér til ham-
ingju með sigur Islendinga. Við
getum að sjálfsögðu ekki eignað
okkur verðlaunin með einhverri
þjóðrembu en við getum heldur
ekki afneitað myndinni og litið
framhjá henni," sagði Þorfinnur.
Kvikmyndahátíðin í Cannes er
án efa sú stærsta f heiminum og
er ásamt Óskarsverðlaunahátíð-
inni helsti viðburður hvers árs í
kvikmyndaheiminum. Nú er ein-
mitt farið að horfa til næstu Ósk-
arsverðlauna varðandi Dansar-
ann og hún sögð líkleg til verð-
launa þar, ekki sfst vegna þess að
myndin er með enskum texta.
Slfkar myndir, er hlotið hafa
Gullpálmann, hafa oftast fengið
Óskarstilnefningar og margar
þeirra fengið verðlaunin. Friðrik
Þór hefur spáð því opinberlega að
bæði Björk og kvikmyndin eigi
góða möguleika á Óskarsverð-
launum. Aðspurður um þau um-
mæli sagðist Þorfinnur vera sam-
mála þeim. Myndin hlyti að fá til-
nefningar og þá Björk frekar en
myndin sjálf. „Hollywood er hrif-
in af leikkonum sem geta líka
sungið. Erfitt er að segja um
þetta lyrirfram en ég tel Björk
eiga góðá möguleika. Kannski er
ævintýrið bara rétt að byrja,“
sagði Þorfinnur Ómarsson.
Treystir samböndin
Friðrik Þór Friðriksson, einn
meðframleiðenda, sagðist vera í
sjöunda himni yfir velgengni
myndarinnar í Cannes þegar
Dagur sló á þráðinn til hans f
gær. Hann sagði verðlaunin hafa
gríðarlega þýðingu fyrir fram-
haldið, Björk yrði án efa tilnefnd
til Óskarsverðlauna og gott ef
hún hreppti ekki hnossið á end-
anum. Þetta hefði einnig mikla
þýðingu fyrir norræna kvik-
myndagerð og þá íslensku um
leið.
„Þetta eru stórkostlegar fréttir.
Eg geri ráð fyrir góðri aðsókn á
myndina hér á íslandi. Við hjá ís-
lensku kvikmyndasamsteypunni
höfum átt gott samstarf við aðal-
framleiðendurna í Danmörku.
Þetta eru jafngömul fyrirtæki og
vinskapurinn mikill þarna á milli.
Þeir hafa styrkt margar af okkar
myndum og velgengni Dansarans
treystir grunninn. Við komum til
með að hagnast á þessari mynd
og þeir hafa stundum hagnast á
myndum okkar. Þetta er því við-
skiptasamband sem er að borga
sig,“ sagði Friðrik Þór.
Aðspurður um fleiri verkefni
sem þessir framleiðendur væru að
vinna að sagði Friðrik Þór mörg
verkefni vera stöðugt í pípunum.
Meðal annars væri tökum að ljúka
á myndinni Iking Gout, í leik-
stjórn Gísla Snæs Erlingssonar.
Björk og Lars Von Trier fagna verðlaununum í Cannes.
Frlðrik Þór Friðriksson: „Þetta er
svolítið „grand" hjá Björk að koma
og hirða þessi verðlaun fyrir einu
myndina. Hún er góð í því sem hún
gerir mest, músíkinni, og kemur þar
sífellt á óvart."