Dagur - 23.05.2000, Side 16
16- ÞRIÐJUDAGU R 23. MAÍ 2000
Raímögnuð stemnmg
Sönglög úr íslenskum leikritum : Opnunardagskrá Listahátíðar i Reykjavík, Hvert örstutt spor... verður endurtekin í
Þjóðleikhúsinu í kvöld - án ræðuhalda.
Listahátíd íReykjavík
fórvel afstað á laugar-
daginn þó hátíðardag-
skráin í Þjóðleikhús-
inu hafi byrjað svolítið
þunglamalega. Þá var
óvenjulega rafmögnuð
stemning íListasafni
íslands síðar um dag-
inn á opnun sýningar-
innarNýr heimur -
stafrænar sýnir.
Það var hátíðarbragur yfir öllum
helstu menningarstofnunum
höfuðborgarinnar nú um helg-
ina. Listahátíð í Reykjavík var
sett við hátíðlega athöfn í Þjóð-
leikhúsinu klukkan 13.30 á
laugardaginn, en síðan tók hver
opnunin við af annarri fram á
sunnudag, frá Listasafni íslands
að Þjóðmenningarhúsinu (/s-
land þúsund Ijóð) til Listasafns
ASÍ (/ skuggskjd tíma og rúms),
Nýlistasafnsins (Blú) og Lista-
safns Reykjavíkur, Hafnarhús-
inu (Öndvegishús og merkileg
mannvirki).
Frábær söngrödd
Opnunarhátíðin hófst með
ræðu Björns Bjarnasonar
menntamálaráðherra og for-
manns fulltrúaráðs Listahátíðar
í Reykjavík sem setti hátíðina.
Þá tók við fyrsti hluti dagskrár-
innar Hvert örstutt spor... áður
en röðin kom að Sveini Einars-
syni formanni framkvæmda-
stjórnar Listahátíðar. Það var
ágætlega til fundið að dengja
ekki báðum ræðunum yfir gest-
ina strax heldur brjóta upp
skemmtidagskrána, þar sem
leikarar og söngvarar fluttu
sönglög úr íslenskum leikritum.
Eflaust hefðu margir kosið að
fylla þau fjölmörgu sæti sem
voru auð í Þjóðleikhúsinu á
opnunarhátíðinni hefðu þeir átt
þess kost, og það jafnvel þó
söngdagskráin væri helst til
þung framan af. Hin frábæra
rödd Ólafs Kjartans Sigurðsson-
ar og skemmtileg framkoma
söngvarans náðu helst að bæta
fyrir þungann. Salurinn tók
hins vegar ekki almennilega við
sér fyrr en eftir að Markús Örn
Antonsson útvarpsstjóri hafði
afhent verðlaun í smásagna-
samkeppni Listahátíðar og Rík-
isútvarpsins. Fyrstu verðlaun
hlaut Ulfur Hjörvar, önnur
verðlaun fékk Egill Helgason og
þriðju verðlaun Birgir Sigurðs-
son. Sögur þeirra ásamt sögum
níu annarra höfunda eru komn-
ar út í bókinni Stefnumót sem
Vaka-Helgafell gefur út.
Þá tóku loks við léttustu
sönglögin með fjörugri Laga-
syrpu úr Deleríum búbónis og
skemmtilegri túlkun Steinunn-
ar Ólínu Þorsteinsdóttur og
Eddu Heiðrúnar Backman á
Kór þokkadisanna úr Prjónastof-
unni Sólinni. Hápunkti glens-
ins var náð í tilþrifamikilli túlk-
un þeirrar síðarnefndu á Maður
hefur nú eftir Gunnar Reyni
Sveinsson úr Undir suðvestur-
himni. Örn Arnason og Jóhann
Sigurðarson áttu líka góða
spretti, en greinilegt var að
Marta Guðrún Halldórsdóttir
var ekki eins leiksviðsvön og hin
þó hún syngi ágætlega. Dag-
skráin Hvert örstutt spor... verð-
ur endurtekin í Þjóðleikhúsinu
kvöld klukkan 20.30 og er
óhætt að mæla með henni fyrir
söngáhugafólk.
Meistaraverk og
misskilningur
Það var óvenju fjölmennt á opn-
un sýningarinnar Nýr heimur -
stafrænar sýnir í Listasafni Is-
lands skömmu síðar þennan
sama dag, enda um óvenulega
sýningu að ræða. Gestir voru
ekki síst spenntir fyrir sýndar-
veröld @-sins, sem tæknimenn
Oz.com, Zoom og Gagarín
höfðu skapað með þekktum
íslenskum listamönnum að
frumkvæði sýningarstjórans
Hannesar Sigurðssonar. @ er
líklega fyrsta gagnvirka innset-
ningin gerð af íslenskum lis-
tamönnum og því sögulegur
viðburður líkt og veflis-
tasýningin á efri hæðinni þó
hún sé að vísu önnur í röð slíkra
sýninga á íslensku safni. En
meistaraverkið á Listasafni
Islands þessa dagana er
tvímælalaust hin magnaða
videóinnsetning Myndhvörf eftir
Steinu Vasulku.
Dagskrá helgarinnar lauk með
tónleikum hinnar einstöku
Aziza Mustafa Zadeh frá
Azerbajdzhan í íslensku ópe-
runni á sunnudagskvöld. Aziza
byrjaði á að ávarpa gesti með
hvíslandi röddu til að lýsa yfir
hrifningu sinni á framkomu
salarins, sem skömmu áður
hafði staðið upp fyrir forseta
íslands, Ólafi Ragnari
Grímssyni. Söngkonan hafði
eitthvað misskilið þennan
heiður, en það kom ekki að sök
eftir að hún var sest við píanóið.
Þar umhverfðist þessa fínlega
kona í flinkan og kraftmikinn
píanóleikara og söngvara, sem
flutti mögnuð tónverk eftir sjál-
fa sig og nokkra jassíska slagara
eftir aðra.
MEÓ
mm
Atta smnum a
Bókaðu í síma 570 3030 og 460 7000
V6fð fra 8.J30 kf. meíflu^vallarsköttum
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Fax5703001 • websales@airiceland.is •www.flugfelag.is