Dagur


Dagur - 23.05.2000, Qupperneq 19

Dagur - 23.05.2000, Qupperneq 19
 ÞRIDJUDAGVR 23. MAÍ 2 0 0 0-19 AKUREYRI - NORDURLAND W' - * • >4 if W ii:i3N Frá árshátíð Subbufélagsins á Subway á Akureyri á föstudagskvöldið. Á myndinni eru Björn Þórleifsson, Kristín Sigursveinsdóttir, Hjörleifur Hjálmarsson og „daðlan" hans Margrét Björgvinsdóttir, Hólmkell Hreinsson og Júlíana Lárusdóttir. - mynd: brink Subbiifélagið á Akureyri Því hefur verið haldið fram að nánast engin takmörk séu fyrir fjölbreytileika félaga og samtaka sem starfa á íslandi. Eitt óvenju- legasta félag landsins er Subbu- félagið sem starfar á Akureyri og felst starfsemi þess í fundum á Subway skyndibitastaðnum, gerð hcimasíðu og árshátíðar einu sinni á ári þegar félagsmenn bjóða eiginkonum eða sérstökum „döðlum“ (e. date) á Subway, dúka þar borð og kvcikja á kerti. Á heimasíðu félagsins er félagið kynnt á eftirfarandi hátt: „ The lcelandic Subway Soci- ey er félagsskapur nokkurra spekinga á Ákureyri sem hittast einu sinni í mánuði og fá sér samloku á Subway. Venjan er að hittast einn dag á þrigga vikna fresti og þá kl. 12.00. Þarna er auðvitað margt skrafað og sumt slúðrið merkilegra en annað.“ Meðlimir í Subbufélaginu eða „The Subway Society“ eru: Björn Þórleifsson.skólastjóri og hagyrðingur oft kallaður öryrk- inn vegna þess hvcrsu ört hann yrkir; Hólmkell Hreinsson, amtsbókavörður stundum nefndur bótaþeginn, en hann Iét nýlega bródera ( kviðinn á sér vegna kviðslits; og Hjörleif- ur Hjálmarsson, kennari og um- sjónarmaður með tölvum hjá grunnskólum Akureyrarbæjar, sem þekkist líka undir nafninu meinvillingurinn,og er það komið til af áhuga hans á jóla- lögum. Að sögn Hólmkels Heinsson- ar var félagið stofnað á Subway í Gimli í Kanada þegar Kirkjukór Akureyrar var þar í söngferðalagi í júní 1996, en þá borðuðu þeir félagar sinn „mar- íubát" eins og Hólmkell orðar það. Á heimasíðu félagsins er að finna ýmsan fróðleik og þar er að sjálfsögðu að linna vísur eftir hagyrðinginn í hópnum. Hér á eftir kemur eitt slíkt ljóð sem heitir Oður til bræðingsins, en bræðingur mun vera ákveðin tegund subway samloku. Óður Er dagamir lengjast, í dimm- unni vakita draugar ogfleira afslæðingi. Þd eru margir sumars að saluui með sólskin og minna af næðingi. Veðurfar spillist, bdlviðri og bylur eru boðuð af veðiirfræðingi. Afréttarlöndin og heiðarmir hylur hríðin með skafrennings- læðingi, og hæfa vel slígvél, stöm undir fæti d stíg eða glerhdlum þræðingi. Koma þd saman t Kaupangs- stræti lutppar og setjast að snæðingi. Langar þd gjaman lostæti að smakka, lagað af matargæðingi. Lygna svo augum, lofa og þaklut þann langa og grófa - með bræðingi. B.Th. Von er á um 20.000 gestum með skemmtiferðaskipum til Akureyrar i sumar. 3 3 heimsóknir 33 skemmtiferðaskip hafa boðað komu sína til Akureyrar í sumar sem er sex skipum fleira en komu í fyrra. Farþegafjöldi verð- ur þó svipaður eða um 20.000 manns. Til samanburðar má nefna að fýrir tíu árum komu 15 skemmtiferðarskip til Akureyrar og er aukningin á þessu tíu ára tímabili því 120%. Skipin eru líka stærri og eru skipin sem koma í sumar til dæmis mun stærri en þau sem komu í fyrra og eykst heildar brúttótonna- stærðin urn 40%. „Svipaður fjöldi skipa fer að bryggju þrátt fyrir aukna meðal- stærð. T.d. eru tvö stór skip sem eru nýrri en þau rista minna og því komast þau að bryggju, t.d. Seaborn Sun sem hét Royal Vik- ing Sun þegar það kom hingað fyrir nokkrum árum. Fyrsta skip- ið sem kemur í ár kemur 12. júní. 1 sumar kemur ný Evrópa i stað gömlu Evrópu sem hefur verið seld, en nýja skipið er svip- að að stærð en ristir grynnra, svo það fer upp að bryggju," segir Gunnar Arason, yfirhafnarvörð- ur á Akureyri. GG Hlutaveltukrakkar Þessir knáu krakkar á Akureyri héldu á dögunum hlutaveltu til styrktar Rauða krossi íslands með ósk um að ágóðinn af henni gengi til bág- staddra og hungraða barna úti í heimi. Alls söfnuðu krakkarnir 12.995 kr. „ ... og við erum alveg hissa á því hve miklu okkur tókst að safna, “ sögðu krakkarnir. Þau eru í fremri röð, frá vinstri talið; Berglind Eva Hauksdóttir, Andrea B. Hauksdóttir, Ásgeir Jóhannesson og Helgi Freyr Guðnason. I efri röð er, frá vinstri; Darri Rafn Hólmarsson, Óðinn Guðmannsson, íris Harpa Hilmarsdóttir, Darri Arnarson, Jóhanna Hildur Ágústsdóttir og Martas Antia Arnarsdóttir. mynd: brink. Ámesingar úrReykj avík W1’ I IÍAIJKUK % AGUSTSSON SKRIFAR Föstudaginn 19. maí kom Árnes- ingkórinn í Reykjavík í heimsókn til Akureyrar og efndi til tónleika í Glerárkirkju. Stjórnandi kórsins er Sigurður Bragason og undir- leikari á flygil, Richard Simm. Einsöngvarar úr röðum kórfélaga voru Árni Sighvatsson og Þor- stcinn Þorsteinsson. Samkvæmt söngskrá skipa Ár- nesingakórinn fimmtíu og sjö söngmenn. Konur eru þrjátíu og sjö, en karlar sautján. Ekki voru allir kórfélagar með í för til Akur- eyrar og rnunaði þar mest um karlana, sem forfallast höfðu. Þessa gætti nokkuð á tónleikun- um í Glerárkirkju. Karlar voru nokkuð atkvæðalitlir og tókst iðulega ekki að mynda þann botn, sem æskilegur hefði verið. Þó voru undantekningar og má þar helst til nefna negrasálminn „Gwine to Ride up in the Chariot", þar sem grunnur kar- laradda var góður og kórinn allur komst verulega nærri andblæ þeirrar torfluttu tónlistar, sem negrasálmar eru. Annar negrasálmur, „Deep River" náði ekki alveg sömu hrif- um, en nálgaðisl þau þó. Sópran- og altraddir Árnes- ingakórsins eru prýðilega skipað- ar. Tónn bcggja er vel fullur og breiður. Sópraninn er sjaldan í vandræðum með háa tóna, þó að það rétt korni fyrir, svo sem til dæmis í „My Curly-Headed Babby“ eftir G. H. Clutsam, en í heild tekið söng röddin opnum, frjálsum tóni. Góð fylling altsins skilaði sér mjög vel í hljóminn og var styrkur hans jafnan sá, að auðvelt var að njóta raddarinnar. Söngskrá Árnesingakórsins á tónleikunum í Glerárkirkju skipt- ist í tvo hluta. Fvrir hlé voru flutt lög af Iéttra taginu. Þau fóru i' heild tekið vel og á stundum furðu svo. Til má nefna hið tor- velda lag „Raindrops Keep Fallin’ on my Head" eftir Burt Bacharach við ljóð Hals Davids, sem reyndar var ekld gailalaust í flutningi kórsins, en góð tilraun. I fyrri hluta söngskrárinnar komu fram einsöngvararnir tvcir. Árni Sighvatsson söng „1 Got Plenty o’ Nuttin’" úr Porgy og Bess eftir George Gershwin og lra Gershwin, en Þorsteinn Þor- steinsson „lt Ain’t Necessarily So“ úr sama verki. Báðir stóðu snyrtilega fyrir sínu. Eftir hlé var efni kórsins nær því, sem kallast getur hefðhund- ið. 1 þessum hluta stóð kórinn sig víða fallega, svo sem í „Hver fet- ar svo létt“ eftir Sigfús Einarsson við Ijóð Hallgríms Jónssonar og „Hjá lygnri móðu", „Vorvísu" og „Maístjörnunni“, sem öll eru cft- ir Jón Ásgeirsson við Ijóð Hall- dórs Laxness. Undirleikur Richards Simms var fagurlega af hendi leystur. I raun má segja, að hann hefði mátt vera viðameiri frá höfunda og útsetjara hendi, svo að unnt hefði verið að njóta meira af þekktri snilli undirleikarans á hljóðfæri sitt. Daginn eftir tónleikana í Glcr- árkirkju fór Árnesingakórinn út í Grímsey til þess að syngja fýrir eyjaskeggja. Það er gott framtak og ekki vafi á því, að þar hefur þessum mjög svo frambærilega kór verið ekki sfður vel tekið en á Akureyri.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.