Dagur - 19.08.2000, Síða 2
18
LAUGARDAGUR 19.ÁGÚST 2000
HELGARPOTTURIN N
Leiksýningin Stjörnur á morgunhimni eftir Al-
exander Galin sem Leikfélag íslands sýndi í
Iðnó í fyrravetur verður fljótlega eftir mánaða-
mótin tekin til sýninga hjá Leikfélagi Akureyr-
ar, en þessi tvö leikfélög hafa með sér sam-
starf á ýmsa lund. Sem kunnugt er hlaut þessi
leiksýning góðar viðtökur syðra, bæði hjá
áhorfendum og gagnrýnendum og þótti leik-
stjóranum Magnúsi Geir Þórðarsyni
takast vel upp en í liði sínu hafði hann ágæta
leikara; þau Sigrúnu Eddu Björnsdóttur,
Margréti Ákadóttur, Bryndísi Petri
Bragadóttir, Eddu Björg Eyjólfsdóttur, Nönnu Kristínu Magn-
úsdóttur, Gunnar Hansson og Stefán Jónsson. Stjörnur á morg-
unhimni verða sýndar á Akureyri þrjár fyrstu helgarnar í september, alls
sex sýningar.
Magnús Geir
Þórðarson.
Rithöfundurinn Mikael Torfason er ekki
bara hættur á Fókusi, fylgiblaði DV, heldur hef-
ur hann flúið land og er nú sestur að í Dan-
mörku þar sem hann mun allavega dvelja
næsta árið. Heyrst hefur að Mikael hafi fengið
styrktil að skrifa nýtt kvikmyndahandrit. Ekkert
bólar hins vegar ennþá á Gemsunum, kvik-
myndinni sem átti að frumsýna í vor. En hún
mun víst vera enn í vinnslu. Mikael Torfason.
Nýir eigendur eru nú komnir að jörðinni Saur-
bær á Rauðasandi. Einhverjir arkitektar lands-
ins, þau Steve Christer og Margrét Harðar-
dóttir hjá Studio Granda, hafa verið fengnir til
þess að teikna hallir á þessum stað, og að
undarförnu hefur verið unnið að því að rífa
niður gömul útihús sem eru þarna á staðnum.
Það er nokkur hópur manna sem stendur að
þessu Saurbæjarævintýri en sá sem þar fer
einna fremstur í flokki heitir Kjartan Gunn-
arsson, sem í frístundum frá þessu stórverk-
efni er framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins.
Aðstandendur vindhátíðarinnar sem vera í
Reykjavík á 3. - 9. september liggja nú á
bænog biðja þess aó gefi nú góðan byr þá
daga sem hátíðin stendur því fljúga skal flug-
drekinn, hátt upp í himininn. Allt mun miðast
við að nýta vindinn á jákvæðan hátt og gera
hann að vini sínum en verjast honum líka ef
þörf krefur. Tilkomumikið verður að sjá vind-
hörpuna sem kemur frá frændum okkar Fær-
eyingum og fylgjast með dansverkinu sem
Lára Stefánsdóttir hefur samið við tónlist
Guðna Franzsonar og flutt verður á þaki
Faxaskála. Meðal þeirra sem hingað koma frá útlöndum til að tigna ís-
lenska rokið er Erna Ómarsdóttir sem fyrir skemmstu sló í gegn í
Avignon.
Lára Stefánsdóttir.
Kjartan Gunnarsson.
Ljóst er að Leikfélag Reykjavíkur mun reyna að bæta ímynd sína veru-
lega á næstu misserum og tjalda ýmsum sprækum kröftum á leikárinu
sem í hönd fer. Meðal nýjunga sem á döfinni eru hjá LR. er opnun nýs
salar sem byggður var um leið og nýja Kringlan og heyrst hefur aó þann
sal eigi að reka sem sérstaka einingu. Ekki er fyllilega komið á hreint
hver muni stýra þeim rekstri en nafn Magnúsar Þórs Þorbergsson-
ar sem síðasta ár starfaði sem dramaturg hjá LR. heyrist nefnt í því sam-
bandi.
Margar af stórsjörnum Þjóðleikhússins leggja
brátt land undir fót og flykkjast til Hannover
með hina rómuðu leikgerð Kjartans Ragn-
arssonar og Sigríðar Margrétar Guð-
mundsdóttur á Sjálfstæðu fólki. Það verður
glæsilegt framlag Þjóðleikhússins til þjóðar-
dagsins á EXPO 2000 og ekki dugir minna en
Borgarleikhúsið sjálft í Hannover undir hina
viðamiklu sýningu á hokri íslenska bóndans
Bjarts. Eflaust mun Ingvar E. Sigurðsson
taka sig vel út á sviði Borgarleikhússins í
Hannover sem mun vera afburða glæsilegt.
Heyrst hefur að útlit sé fyrir fullu húsi.
Mikið verður um dýrðir hjá vestlenskum hesta-
mönnum um aðra helgi, þar eftir verður til
brennureiðar og töðugjalda á Kaldármelum á
Snæfellsnesi. f fyrra tóku um 300 manns þátt í
glæsilegri hópreiðinni og er þess vænst að
þessi færri mæti nú. Hátíð þessi hefst annars
með máiþingi sem verður haldið næsta föstu-
dag, þar sem fjallað verður um hrossarækt og
hestaíþróttir og ýmislegt fleira. Sérfræðingar á
sínum sviðum munu þar leggja orð í belg, en
fundarstjóri verður Gísli S. Einarsson, þing-
maður Samfylkingarinnar á Vesturiandi.
Gísli S. Einarsson
„Sennilega hefur enginn annar málari dregiö upp eins margar myndir af Reykjavík og hann. Þetta eru mjög gjarnan vatnslitamyndir sem
lýsa götulífinu og sérstaklega var gamli bærinn honum kær, “ segir Halldór Björn Runólfsson um listmálarann Sigfús Halldórsson.
Listmálarinn Sigfús Halldórsson er yfirskrift sýningar sem opnuð var í Gerðarsafni í
gær, föstudag. Sýningin er haldin í tilefni þess að 7. september næstkomandi eru
80 ár liðin frá fæðingu Sigfúsar Halldórssonar listmálara og tónskálds en hann lést
í desember 1996. Dagur sló á þráðinn til Halldórs Björns Runólfssonar listfræðings
og sem þekkir vel til Sigfúsar og verka hans.
„Myndirnar á sýningunni spanna
allan listamannsferil Sigfúsar en
töluvert af myndunum eru götulífs-
myndir frá Oxford og öðrum stöð-
um í Englandi þar sem hann var við
nám f Ieiktjaldamálun. Þarna eru
myndir frá því fyrir stríð, bæði
teikningar, málverk og leiktjalda-
myndir en sonur Sigfúsar, Gunn-
laugur Sigfússon, fann möppu með
áður óbirtum vatnslitamyndum og
teikningum frá námsárum hans,“
segir Halldór. Að hans sögn eru
einnig á sýningunni myndir sem
Sigfús gerði sérstaklega fyrir Kópa-
vogsbæ en hann hjó lengst af í
Kópavogi og var gerður að heiðurs-
borgara bæjarins árið 1994. Hall-
dór segir að Sigfúsar sé þó fyrst og
fremst minnst sem Reykjavíkurmál-
ara. „Sennilega hefur enginn annar
málari dregið upp eins margar
myndir af Reykjavík og hann. Þetta
eru mjög gjarnan vatnslitamyndir
sem lýsa götulífinu og sérstaklega
var gamli bærinn honum kær. Sig-
lús málaði oft húsamyndir og var
fljótur að mæta á staðinn og mála
hús sem átti að rífa,“ segir Halldór.
Skósverta og tannkrem
Að sögn Halldórs átti Sigfús það til
að beita óvenjulegum og sjálf-
sprottnum vinnubrögðum f mynd-
listinni. „Eitt sinn var ráðist á Sig-
fús og hann barinn í andlitið. Hann
fékk óstöðvandi blóðnasir og lengi
var honum ekki hugað líf. Til þess
að jafna sig eftir þetta áfall fór
hann f vist á Reykhólum á Barða-
strönd. Sigfúsi langaði mjög mikið
til að mála en hafði ekki tekiö hefð-
bundinn efnivið með sér og notaði
því það sem hendi var næst; skó-
svertu, tannkrem og naglalakk.
Þarna gerði hann mjög failegar
Iandslagsmyndir. Nokkrar þeirra
hafa varðveist og að minnsta kosti
tvær þessara mynda eru á sýning-
unni í Gerðarsafni," segir Halldór
og bætir við að á Reykhóium hafi
Sigfús einnig samið tónlist, perlu
eins og Litlu fluguna.
Litla flugan til
á fimm mínútum
„Það kom þannig til að hann sá Ijóð
sem Sigurður Elíasson jarðfræðing-
ur, sem rak tilraunabú á staðnum,
MENN VIKUNNAR SPARKA BOLTA
Fótboltastrákarnir okkar tóku sig til og sigruðu
sænska landsliðið í fyrsta sinn síðan Ríkarður Jóns-
son var upp á sitt besta fyrir tæplega hálfri öld. Þeir
unnu sanngjarnan sigur á knattspyrnumönnum
Svíþjóðar sem eru enn furðu losnir yfir því hvað
fámenn þjóð geti eignast gott landslið í þessari
vinsælu íþrótt. Fyrir góðan og verðskuldaðan sigur á
bestu fótboltamönnum fjölmennustu þjóðar
Norðurlanda hlýtur knattspyrnulandsliðið okkar
heiðurstitilinn Menn vikunnar!
hafði samið og bað hann um Ijóðið
því hann langaði að semja lag við
það. Sigurður var ekki að flíka sín-
um kveðskap og vildi ekki Iáta hann
fá Ijóðið en Sigfús gafst ekki upp og
fékk að lokum ljóðið með því skil-
yrði að hann semdi lagið á fimm
mínútum sem hann og gerði. Þetta
lýsir Sigf’úsi mjög vel, hann var mik-
ill stemningsmaður, Iljótur að átta
sig og opinn fyrir stund og stað,"
segir Halldór.
Að sögn Halldórs var Sigfús mjög
félagslyndur maður. „Sigfús var
hrókur alls fagnaðar, glettinn og
skemmtilegur. Hann fylgdist vel
með ýmsum Ieikhópum, bæði í
Reykjavík og úti á landi og var
gjarnan maðurinn á bak við tónlist-
ina í leiksýningum. Það gerði það
að verkum að hann var tengdari fé-
lagslífinu heldur en gerðist og gekk
með aðra listmálara sem vildu helst
vera í einrúmi og fjarri glaumnum,“
segir Halldór.
- ELJ