Dagur - 19.08.2000, Blaðsíða 10

Dagur - 19.08.2000, Blaðsíða 10
26 - LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000 ^LÍfJÐ í LAjJDJjJU j Þennan glæsilega fornbil flutti Andre inn frá Belígu í fyrra. Hann er nú til sölu og segjast þau sjá eftir bílnum. Saman eiga þau Andre og Ásta Ruben, 8 ára, og Aron, 10 ára. Myndin er tekin í sumarfríi í Belgíu. Andre stoitur aö pakka fyrstu sendingar af .iramleiðslu Purity Herbs. Rík af íslenskri náttúru Hjónin Ásta Sýmsdóttir og Andre Raes reka fyrirtækið Purity Herbs. Náttúrulegar snyrtivörur þeirra hafa nú þegar slegið rækilega í gegn hér heima og nú er svo komið að þau anna ekki eftirspurn enda komin með samning við erlent dreifingarfyrirtæki. Þau hafa því ákveðið að flytja til Belgíu og er ætlunin að reka fýrirtækið bæði í Belgíu og á Akureyri. Það eru afslöppuð og brosmild hjón sem blaðamaður hittir fyrir á kaffistofu fyrir- tækis þeirra. Búslóðin er farin af stað til Belgíu og sjálf fara þau út 24. ágúst. Allt er tif reiðu og þau eru bjartsýn á að Evrópu- búar falli fyrir vörum þeirra. „Þessi samn- ingur við Omega Pharma er árangur þrot- lausrar vinnu frá okkar hendi og nú er komið að því að fylgja henni eftir. Hingað til höfum við handunnið alla okkar vöru en eftir að hafa fengið þetta stóra pöntun er það ekki lengur arðbært. Við höfum því stofnað dótturfyrirtæki Purity Herbs í Belg- íu og við ætlum að fylgja því úr hlaði þar. Starfsemin hér heima mun vera óbreytt en Anna Guðmundsdóttir, rekstrarstjóri, og Rannveig Hrafnskelsdóttir, ffamleiðslu- stjóri, munu sjá um fyrirtækið hér heirna," segir Ásta. „Það að geta flutt úr landi og skilið fyrirtæki sitt eftir í höndum vanda- lausra er að ég held eitthvað sem lýsir ís- lendingum. Uti hefði þetta ekki verið hægt svo það er með blendnum tiifinningum sem við förum héðan,“ bætir Andre við. Vildu ekki vera böm í dag Ásta er fædd og uppalin í Kópavogi. „Eg held að ég hafí verið lífsglaður krakki sem naut þess að alast upp í öruggri nálægð við foreldra mína. Eg hlaut gott uppeldi og umhverfíð sem ég ólst upp í var mjög heil- brigt. Eg er ekki viss um að ég vildi vera krakki í Kópavogi í dag.“ Andre er aftur á móti frá Belgíu en hann var öllu órólegri krakki en Ásta. „Ég er al- inn upp í flæmska hluta Belgíu. Eg átti yndislega foreldra og eins og Ásta var ég al- inn upp við gott og heilbrigt fjölskyldulíf. Ef ég ætti að lýsa sjálfum mér sem persónu þá held ég að ég hafí verið óþekkur og upp- reisnargjarn sem strákur serr var á kafi í íþróttum og jurtum.“ Leiðir Ástu og Andre lágu saman þegar Ásta fór til Belgíu ásamt fyrri eignmanni sínum sem var Iíkt og Andre atvinnumaður í knattspyrnu. „Ég veit að þegar maður seg- ir þetta svona þá fer fólk að hugsa sitt en það var ekki neitt svoleiðis við okkar kynni,“ segir Andre og heldur áffam: „Við vorum lengi vel bara vinir í gegn um mann- inn hennar. Svo liðu nokkur ár Ásta var flutt í burtu frá Belgíu og hún og maðurinn skildu. Það var svo þegar hún kom í heim- sókn til Belgíu og við hittumst að með okk- ur kviknuðu ástir.“ Andre og Ásta hafa ver- ið saman í 14 ár og eiga tvo syni. Fyrir átti Ásta 1 son og Andre þrjú. Til samans eiga þau því sex börn og eitt bamabarn. Ung og atvinnulaus Á þessum tíma var atvinnuástand f Belgíu ekki gott og unga parið ákvað að koma til Islands. „Við héldum að með þann bak- grunn sem Andre hafði sem fyrrverandi at- vinnumaður í knattspymu ætti hann ekki erfitt með að fá vinnu hér heima. Það reyndist hins vegar ekki vera og hann fékk ekkert að gera,“ segir Ásta og Andre tekur við. „Það að vinna eftir stimpilklukku er eitthvað sem aldrei hefur hentað mér svo ég sótti um stöðu þjálfara á Fáskrúðsfirði og í aukavinnu var ég með æskulýðsstarf á staðnum og var ég þar með sérstakan jurta- hóp þar sem ég kenndi krökkunum að búa til krem og olíur úrjurtum." Þegar Andre og Ásta höfðu búið um tíma fyrir austan stóð til að hann fengi þjálfara- stöðu á Akureyri. Þau fluttu því norður en þegar þangað kom var engin staða fyrir hendi og þau stóðu uppi atvinnulaus. „Ég fór að vinna á leikskóla en á minni deild þar var barn sem þjáðist af húðexemi. Ég fékk leyfi til að bera kremin hans Andre á barnið og þau báru góðan árangur. I fram- haldi af þvf kom afi barnsins, Böðvar Jóns- son apótekari í Akureyrarapóteki, að máli við okkur og bauð okkur að hafa aðstöðu hjá sér til að búa til og selja svona krem,“ segir Ásta. Vinsæl krem Eftir að Purity Herbs fór af stað árið 1994 fór boltinn að rúlla hratt. Ekki leið á löngu þar til húsnæðið í Akureyrarapóteki var orðið of lítið og því fóru þau í samráði við Elínu Antonsdóttir, hjá Iðnþróunarfélagi Akureyrar, af stað að Ieita sér að húsnæði. „Elín hefur hjálpað okkur alveg ótrúiega mikið. Þegar við fórum af stað vissum við ekki mikið um hvernig átti að reka fyrirtæki og þegar ég lít til baka sé ég hversu mikill byijendabragur hefur verið á þessu öllu hjá okkur. Ég tók knattspyrnuna á sínum tíma fram yfir skólann og er það hlutur sem ég hef alltaf séð eftir. Eg hef lært heilmikið á þessum fímm árum sem við höfum átt fyr- irtækið og hefur það í raun verið minn skóli," segir Andre. „Hann kann orðið meira í sínu fagi en hann hefði nokkurn tíma getað lært í skóla. Hann hefur verið fenginn til að tala á ráðstefnum snyrtivöru- framleiðenda bæði í Lúxemborg og Frakk- landi og það er heilmikil viðurkenning lyrir Iítið fyrirtæki eins og okkar," segir Ásta sem greinilega er stolt af sínum manni Saman allan sólarhringinn Hvað með önnur áhugamáI?“Þau eru öll sameiginleg. Við gerum allt saman og okk- ar áhugamál utan vinnunar snúast í kring um börnin, náttúruna og trúna. Andre er reyndar mikið fyrir íþróttir og ef hann gæfi sér tfma þá gæti hann setið yfír íþróttum allan daginn. Og þá meina ég öllum íþrótt- um alveg sama hvað þær heita,“ segir Ásta um Ieið og hún lítur stríðnislega á eigin- mann sinn.Er aldrei erfitt að vera saman öllum stundum eins og þið gerið?“Það var það í fýrstu. Eða á meðan við vorum að íæra hvort inn á annað. Nú er það hins vegar þannig að ég er eins og leir í höndun- um á Ástu og við kunnum því fyrirkomu- lagi bæði mjög vel.“ Mikill áhugi á kynlífi Ástareldur og unaðsolía eru með vinsæl- ustu ffamleiðsluvörum Purity Herbs en framleiðsla á þeirri línu tafðist um tvö ár vegna ósamkomulags um hana. „Ég stóð Iengi vel í vegi fyrir því að varan færi í sölu og var það aðallega vegna þess að ég treysti mér ekki til að standa og kynna hana úti í bæ. Andre gaf sig ekki og fór að útdeila henni milli vina okkar. Þeir voru svo hrifnir af vörunni að þeir voru farnir að koma og biðja um meira Það varð til þess að ég gaf mig og unaðsolían fór á markað. Hún hef- ur verið gífurlega vinsæl og fólk er að biðja um hana í lítra tali. I mig hringdi sjó- mannskona um daginn og pantaði olíu og hún sagði mér að maðurinn sinn hringdi alltaf í hana þegar skipið nálgaðist land til að athuga hvort hún væri búin að kaupa olíuna," segir Ásta. Ástareldur kom á mark- að nokkru síðar og er hann ekki síður vin- sæl vara. En hvað kom til Andre fór að prófa sig áffam með vöruna?“Einlægur áhugi minn á kynlífi," segir Andre og skellir uppúr. „Ég hafði lesið um jurtir sem væru kynörvandi og mig hreinlega langaði til þess að vita hvort að þær virkuðu." - GJ Ásta og Andre em á leið tii Belgíu og ætla þau að kynna Puríty Herbs fyrir Evrópu. Þau segjast kveðja Akureyri með söknuði.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.