Dagur - 19.08.2000, Qupperneq 8
24 - LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000
Guðjón og Katrín ásamt þriggja mánaða dóttur sinni, Mattheu Láru. „Það væri frábært að búa á Islandi ef fólk hefði
efni á þvi að kaupa mat, “ segir Guðjón. mynd: einar j.
Rleiku
Þau dönsuðu saman í Gæjum og
píum og eftir þó nokkra fyrirhöfn
tókst Guðjóni að ná ástum Katrínar.
Bæði héldu þau sínu striki á lista-
brautinni og fórnuðu ekki sínum
hugðarefnum. Spennandi ferðalög á
milli landa urðu erfið til lengdar og
eftir átta ára fjarvistir var komið nóg.
Heimkoman til íslands var viðbrigði
og segjast þau fljótt hafa sogast inn í
stressandi lífsmunstrið.
Guðjón Pedersen, leikhússtjóri Borgarleikhússins,
og Katrín Hall, lístrænn stjórnandi Islenska dans-
Flokksins, felldu hugi saman fyrir 16 árum.
Guðjón: „Við kynntumst þegar við tókum bæði
þátt í söngleiknum Gæjar og píur, lentum óvart
saman í einu dansatriði."
Katrín: „Síðan var Gæjar og píur sýnt svo lengi
að við komumst ekki hjá því að vera alltaf að
dansa hvort við annað. Þannig þróaðist þetta
áfram.“
Guðjón: „Eg þurfti samt að hafa heilmikið fyrir
því að ná ástum Kötu. Kom í partý til hennar f
bleikum jakkafötum."
Katrín: „Eg man mjög vel eftir bleiku jakkaföt-
unum, ætli ég hafi ekki fallið fyrir þeim.“
Til í alls konar vitleysu
- Hvcið var það sem heillaði ykkur hvort við annað?
Guðjón: „Við vorum bæði mjög virk og fram-
takssöm og Kata var til í að taka þátt í mörgu með
mér. Eg var á þessum tíma í leikhópnum Svart og
sykurlaust og hún dansaði á ýmsum uppákomum.
Kata var til í alls konar vitleysu og það heillaði
mig.“
Katrín: „Gíó var mikil andstæða við mig þrátt
fyrir að við ættum ýmislegt sameiginlegt. Hann
hafði líka sterka útgeislun, var sjarmerandi og mér
fannst hann spennandi persónuleiki."
Aðpurð segjast þau ekki vera gift. „Eftir alla
þessa fyrirhöfn þá vill hann ekki giftast mér,“ segir
Katrín og hlær.
Guðjón: „Það er bara gamli hippinn í mér, þetta
er fínt eins og það er.“
Katrín bjó lengi í Köln í Þýskalandi þar sem hún
var dansari og bjuggu hún og Guðjón í sitt hvoru
landinu í átta ár. „Gíó kom þegar hann gat til
Þýskalands og ég kom til Islands á sumrin en það
var samt ákveðinn aðskilnaður," segir Katrín og
Guðjón bætir við: „Þetta er allt í Iagi í tvö til þrjú
ár og oft mjög spennandi. Flugvélamatur og alltaf
á ferðalögum en síðan varð þetta erfitt og í lokin
vorum við komin með upp í kok. Það var alltaf ver-
ið að slíta úr sér hjartað þegar maður fór heim.“
Guðjón gefur Katrínu kökubita eftir frumsýningu. „Gíó
var mikil andstæða við mig þrátt fyrir að við ættum ýmis-
legt sameiginlegt. Hann hafði líka sterka útgeislun, var
sjarmerandi og mér fannst hann spennandi persónuleiki, “
segir Katrín.
Komin á kaf í stressið
Katrín: „Þrátt fyrir að þetta hafi verið erfitt þá
hafði það samt sína kosti. Aðskilnaðurinn gerði
það að verkum að samband okkar styrktist. Eg
held að það sé mjög hollt fý'rir fólk að sjá hlutina
aðeins í fjarlægð og í öðru Ijósi. Það var ekki um
neina fórn að ræða, ég fórnaði ekki mínu fyrir Gfó
og hann ekki sínu fyrir mig. Bæði héldum við okk-
ar striki og sinntum okkar verkefnum," segir Katín
en viðurkennir þó að hún hafi mikið reynt að toga
hann til sín til Þýskalands.
Þau hafa á orði að það hafi verið mikil viðbrigði
að flytjast heim. „Hér er mun meira stress og við
ætluðum okkur alls ekki að sogast inn í lífs-
munstrið á Islandi en ég held að við séum komin á
kaf í það. Fólk vinnur mjög mikið og þjóðfélagið er
ekki fjölskylduvænt," segir Katín og Guðjón bætir
við: „Það væri frábært að búa á Islandi ef fólk
hefði efni á því að kaupa mat.“
Meira en bara vaninn
- Hvað þarf að vera lil staðar ígóðu ástarsambandi?
Guðjón: „Fyrir utan sameiginlega sýn á lífið þá
þarf löngun til að vilja lifa og takast á við hlut-
ina.“
Katrín: „Traust og virðing skiptir einnig máli,
að fólk beri virðingu fyrir hvort öðru og því sem
það er að fást við.“
Guðjón: „Sambönd komast upp í vana. Það er
vani að vakna upp á morgnana, fara með strák-
inn í skólann, kaupa í matinn og rökræða hvort
kaupa eigi þctta eóa hitt. Síðan koma augnablik
í lífinu þar sem mikilvægar spurningar koma
upp. Þá er gaman að finna fyrir því að það er
eitthvað annað en vaninn sem heldur fólki sam-
an. Manni er ekki sama um hver liggur á kodd-
anum við hliðina. Svo þegar börn koma inn í
spilið þá stækkar einhvern veginn Iífið og verður
margfalt meira virði," segir Guðjón en þau
Katrín eiga tvö börn, Frank tíu ára og Mattheu
Láru þriggja mánaða. - elj
Þau sáust fyrst á
Stokkseyri þegar Kristín
gaf Karli langt nef.
Núna hafa þau verið gift
í 30 ár og segja það
mikið lán og gæfu að
hafa hist. Vináttuna
segja þau afar mikil-
væga í farsælu hjóna-
bandi, einnig sé nauð-
synlegt að hafa húmor
og geta hlegið saman.
Biskup Islands, Karl Sigur-
björnsson, og kona hans Kristín
Guðjónsdóttir hittust fyrst þegar
þau voru níu og tíu ára gömul.
„Eg var í sveit á Stokkseyri og
hún bjó þar í plássinu. Eg var
sendur einhverja erinda heim til
hennar og á rneðan ég beið þá
hékk hún í hurðarhúninum,
sveiflaði sér á hurðinni og gaf
mér langt nef,“ segir Karl og
Kristín bætir við: „Mér fannst
alltaf svolítið spennandi að sjá
þennan strák.“
Ætluð hvort öðru
Þau segjast seinna hafa rekist
hvort á annað í Reykjavik, flækst
lengi hvort fyrir öðru hér og
hvar í bænum. „Síðan fór maður
að reyna að vera á þeim stöðum
þar sem maður hélt að hún
væri, eins og til dæmis að skipta
við ákveðinn banka þar sem ég
hélt að hún ynni en svo komst
ég löngu seinna að því að hún
vann ekkert þar! Einnig sótti ég
messur í Fríkirkjuna því hún
söng þar í kórnum. Svona leitaði
ég hana uppi,“ segir Karl en þau
Kristín giftu sig 3. janúar 1970
og áttu því 30 ára hrúðkaupsaf-
mæli í vetur.
Aðspurð hvað hafi heillað þau
hvort við annað, segir Karl:
„Konan mín er afskaplega falleg
og skemmtileg. Ætli þetta haf’i
ekki verið svona „made in hea-
ven“ eins og í bíómyndunum,"
og Kristín bætir við: „Eg held að
við höfum verið ætluð hvort
öðru."
- Hefur samband ylikar breyst á
þessum 30 árum?
Kristín: „Já, ég er ennþá
skotnari í honum núna en ég var
þá.“
Karl: „Lífið þroskar mann,
maður gengur í gegnum súrt og
sætt og þá slípast og dýpkar ást-
in, væntumþykjan, virðingin og
ekki síst vináttan. Það er gríðar-
lega mikilvægt að Iífsförunaut-
urinn sé nánasti vinur þinn.“
Kristín: „Svo eigum við þrjú
yndisleg börn, tengdason og
dótturson. Sú gæfa hefur líka
styrkt sambandið og auðgað."
Tvíkvænishjónaband
- Ilver er undirstaða farsæls
hjónabands að ykkar mati?
Karl: „Gagnkvænt virðing sem
kemur fram í tillitssemi, nær-
gætni og unrhyggju. Trúin er
afar mikilvæg, hún nærir um-
hyggjuna og tryggðina. Einnig
skiptir húmorinn máli, að geta
hlegið saman og taka sjálfan sig
ekki of hátíðlega. Kristín er til
dæmis óskaplega stríðin".
Kristín: „Eg held líka að mað-
ur verði að vera svolítið stríðin,
sérstaklega þar sem hann er í
þessu starfi. Þá er ágætt að slá á
létta strengi þegar álagið er mik-
ið.“
Karl: „Maður er nánast kvænt-
ur starfinu h'ka. Það má segja að
þetta sé tvíkvænishjónaband."
Kristín: „Ef mér þætti ekki
svona vænt um starfið hans
Karls þá gengi þetta ekki svona
vel. Prestar eru í rauninni allan
sólarhringinn á vakt og það
reynir mikið á þegar maður er
ungur og mcð börn.“
Karl: „Þeir tímar þar sem Ijöl-
skyldan getur verið saman, um
hclgar og hátíðir, þá er mest að
gera hjá prestinum. Þá reynir á
fundvísi, að finna tíma og nota
Árný og Össur árið 1974. „Hún var ballerína og aðalskvísan og það tók mig
langan tíma að herða upp hugann og gera atlögur, “ segir Ússur.