Dagur - 19.08.2000, Blaðsíða 14

Dagur - 19.08.2000, Blaðsíða 14
30 LAUGARDAGUR 19.ÁGÚST2000 Sveppir elska raka Það á eftir að verða mörgum sjúklingnum erfitt að greiða fýrir lyfjameðferð við sveppasýkingum. Of seint að vera með fyr- irbyggjandi aðgerðir fyrir sjúka einstak- linga. Nýleg reglugerð frá heilbrigð- isráðuneytinu segir til um að ávísanaskyld sveppalyf skuli ekki lengur vera niðurgreidd af Tryggingastofnun ríkisins. Astæðan er sögð vera sú að minnka þurfi kostnað ríkisins vegna þessara lyfja og jafn- framt notkun þeirra sem sé margfalt meiri hér á Iandi en í nágrannalöndunum. I umræð- unni undanfarið hefur verið bent á nauðsyn þess að fræða fólk um það hvernig best sé að forðast sýkingar. Reynir Valdi- marsson, húðsjúkdómafræð- ingur telur að það eigi eftir að verða mörgum sjúklingnum erfitt að greiða fyrir lyfjameð- ferð við sveppasýkingum. Of seint sé að vera með fyrirbyggj- andi aðgerðir hjá þeim sjúk- Iingum sem nú þegar eru mjög illa farnir af völdum sveppa- sýkinga. Upphaf meðferða „kritísk" Talið er að um 10% Islendinga þjáist af sveppasjúkri húð eða nöglum. Húð allra manna er nieira eða minna í snertingu við örverur (microorganisma) alls konar, frá degi til dags, sýkla, gerla, vírusa og sveppi, þar með talda fótsveppi. Or- verur eru allsstaðar í umhverf- inu og er nokkuð líldegt að ef tekið væri strok af „heilbrigðri húð“, þá væri hægt að greina þar sveppi, en þeir þurfa ekki að vera hættulegir einstak- „Heilsugæslulæknar eiga að þekkja sín takmörk, en Jón og Gunna hafa líka val um að sækja beint til sérfræðinga með sín mál“. amanum sem Reynir Valdimarsson, húðsjúkdómafræðingur ráðleggur fólki að leita læknis áður en íóefni stöðugt eru í raka, ____________________ er komið._____________________ svo sem ems 0g f lingnum. Fólk getur verið með sveppi árum og jafnvel áratug- um saman án þess að taka eft- ir því, þar til einn góðan veður- dag að það er komið með sveppabreytingar sem geta valdið miklum óþægindum og sársauka. Langalgengastir eru svokallaðir naglasveppir sem myndast undir og í nöglum að- allega á tám. Verða þá neglurn- ar gulgráar og ljótar með til- heyrandi óþægindum. Við þessu er engin Iækning nema lyfjagjöf og er þá ekki um ann- að að ræða en hið umtalað, rándýra sveppalyf. I flestum tilfellum er sjúklingurinn með margar ólæknandi neglur og oftar en ekki er um að ræða ellilífeyrisþega eða öryrkja, sem skyndilega standa frammi íyrir þeirri staðreynd að geta ekki keypt þau lyf sem til þarf, eftir að núverandi reglugerð tók gildi. Þessir sömu einstak- lingar þurfa að reyða fram tutt- ugu til tuttuguogfimmþúsund krónur fyrstu tvo mánuðina til að öðlast rétt á lyfjaskírteini til sex mánaða meðferðar, sem það greinilega hefur engin efni á. „Maður stendur alveg ráða- laus gagnvart varanlegri hjálp við þetta fólk“, segir Reynir og bætir við að ekkert þýði að ætla að lækna fólk með ein- hverjum forvörnum, það sé orðið of seint, því það verði aldrei alheilt aftur. Reynir telur umræðuna um ofnotkun sveppalyfja alveg sjálfsagða og segir að það hefði mátt taka á þessu máli miklu fyrr. Allt of algengt hafi verið að læknar ávísuðu sveppalyfj- um til sjúklinga án þess að senda inn sýni til ræktunar. Upphaf meðferðar hafi ekki verið nógu „krítísk" og sjúk- lingar loks sendir til sérfræð- ings eftir langan meðferðar- tfma, sem engann árangur hafi borið. Þá hafi jafnvel komið í ljós að ekki hafi verið um nein- ar sveppasýkingar að ræða og má nefna í því dæmi gamalt mar undir nögl eða psoríasis- neglur, sem geta verið sláandi líkar sveppavandamáli. handakrikum, í nafla eða undir stórum brjóstum og er áhættuhópur- inn aðallega holdmikið fólk. Einnig geta sveppir tekið sér bólfestu á milli tánna - gengur slíkt undir nafninu támeyra. Veldur það kláða og óþef þegar sjúklingurinn klórar sér. Við þá sem hafa ennþá ekki sýkst af alvarlegum sveppa- sjúkdómum vill Reynir segja eftirfarandi: „Hreinlæti er fyrir öllu. Þurrkið ykkur alltaf vel eftir böð og þvoið ykkur og þurrkið vel eftir sundböð. Gott er að nota sundtöflur á sund- laugarbakkanum. Passið upp á að láta lofta vel um þá líkams- hluta, sem eru gjarnir á að svitna og halda þeim þurrum til dæmis með púðri. Þeir sem eru í Iokuðum skóm allann daginn ættu að fara úr þeim öðru hverju og viðra tærnar og eða ef aðstæður leyfa ganga í opnum skóm eða sandölum. Leitið til læknis áður en í óefni er komið". -w Sveppir elska raka Sveppir þrífast í raka og þess vegna er það staðreynd að á sund- og baðstöðum er meira af sveppa- gróðri en annars staðar. Þar sem bleytan er mest er hættan mest. Margir af krónískum sveppasjúkdómum myndast einmitt á þeim stöðum á lík- ------------------- Heilsumolar Flasa og flösuexem Flasa og flösuexem í hársverði eru tvö heiti á sama sjúkdómi. Segja má að flasa sé vægari mynd af flösuexemi. Dæmigerð einkenni eru kláði og flösumyndun. Sumir einstaklingar hafa þrálát einkenni í áraraðir, en hjá öðrum blossa óþægind- in upp af og til. Flasa og flösuexem eiga ekkert skylt við óþrifnað. Ástæðan Ekkert eitt svar er til við því hvers vegna fólk fær flösu eða flösuexem. Helsta ástæða flösu í hársverði er sveppur sem kallast Pityrosporum ovale. Þetta er sveppur sem er hluti af eðlilegri flóru húðarinnar. Hann sést ekki með berum augum og að öllu jöfnu er hann skaðlaus. I hársverði einstaklinga með flösu er óeðlilega mikið af Pityrosporum sveppn- um. Ekki er vitað með vissu hvers vegna sveppurinn nær sér á strik hjá sumum einstaklingum en ekki öðrum. Ymsir þættir, til dæmis erfðir, loftslag og streita, geta aukið vöxt sveppsins eða gert fólk viðkvæmara fyrir honum. Þetta eru þættir sem erfitt er að hafa áhrif á. Hins vegar er hægt að meðhöndla flösu og losna við einkennin sem eru kláði og flösumyndun. Hvað er til ráða Til er á markaðnum hársápa sem inni- heldur lyf (Fungoral) sem verkar vel á Pityrosporum sveppinn og fæst án lyfseð- ils í lyfjaverslunum. Lyfinu hefur verið blandað í milt sjampó og gerir meðferð- ina bæði auðvelda og þægilega. Við notk- un hársápunnar tvisvar í viku í mánaðar- tfma dregur úr vexti Pityrosporum sveppsins og einkennin hverfa. Stundum ráðleggur læknir þó endurtekna eða áframhaldandi meðferð til að koma í veg fyrir að sveppurinn nái sér á strik og fari að valda óþægindum á nýjan leik. Fylgstu með fyrirmælum læknisins til að tryggja að sem bestur árangur náist. Heimild: Flasa ogflösuexem í hársverði. Pharmaco. í löndum þar sem risa- stór hættuleg og blóð- þyrst dýr eru i skógum eru konur varaðar við því að fara I útilegu ef þær eru á túr. Þær gætu vaknað upp með grábjörn I klofinu Tíðir kvenna hafa óralengi verið uppspretta alls konar einkenni- legra pælinga mannanna. Við þekkjum ótal kreddufullar hug- myndir um þær og jafnvel hræðs- lu sem vitaskuld er sprottin af fá- fræði. Hippókrates var með það á hreinu að konur hefðu á klæðum vegna skorts á hæfileikanum til að svitna almennilega og hreinsa með því blóðið, þetta gátu karlar hins veg- ar! Blóð kvennanna gerjaðist og eina leiðin til hreinsunar var að veita þvf út um Ieggöngin. Hippókrates hafði líka mjög sér- stakar hugmyndir um Iegið sjálft, hann sagði það vera sjöhólfa, stöðugt fiakkandi um líkamann og rótin að alls konar líkamlegum og andlegum kvillum t.d. sefasýki eða hystenu sem dregur einmitt nafh sitt af gríska orðinu yfir Ieg. Eina ráðið til að róa legið var að gefa því sæði að borða mjög reglulega. Honum var að vísu sniðinnn þröngur læknisstakkur þvf lögin bönnuðu honum að skera dautt fólk í sundur til að athuga hvernig það liti út að innan. Annar grískur læknisfræðifaðir, Galen, taldi tíðablóðið koma beint úr fæðunni. Litlar og grannar kon- ur höfðu ekki líkamlega burði til að melta allt blóðið sem kom úr fæðunni og urðu því að losa lík- amann við það gegnum leggöngin. Á endurreisnartímanum mátti skera sundur fólk og þá fór Leon- ardo da Vinci að teikna það sem sást inni í dauðu fólki og gjör- breytti með því alls konar hug- myndum sem höfðu verið við lýði fram að þeim tfma. Hann fattaði að legið var ekki sjöhólfa heldur einhólfa og hann fattaði líka þetta með naflastrenginn og fylgjuna. Að vísu var hann alveg viss um að milli Iegs og bijósta lægi mjólkur- æð sem breytti tíðablóði í mjólk! auðvitað eru mjólkandi konur ekki á túr svo að þetta lá allt Ijóst fyrir. Við fyrirgefum honum nú svona smávillur því hann var svo helvíti duglegur að teikna. Allt fram á nítjándu öld héldu menn að heilínn og iegið væru í stöðugri baráttu um blóðið og að konur sem notuðu heilann sinn eitthvað að ráði væru með því að eyðileggja frjósemi sína. Þetta var ágætis konukúgunartæki og for- vörn í menntun og framgangi kvenna. Kreddur og vitleysa Sums staðar í heiminum eru kon- ur á túr lokaðar inni í litlum túr- kofum á meðan ófögnuðurinn stendur yfir. Sums staðar í heimin- um súrnar vín, úldnar kjöt, fellur gcrdeig og hnífar missa bit ef kona á túr gengur framhjá. I gyðing- dómi er túrblóð álitið álíka eitrað og kjarnorkuúrgangur og strang- trúaðir gyðingakarlar fara helst ekki til kvenkyns lækna af ótta við að smitast af einhverju enn hræði- legra en rekur þá á fund læknisins. I löndum þar sem risastór hættu- leg og blóðþyrst dýr eru í skógum eru konur varaðar við því að fara í útilegu ef þær eru á túr. Þær gætu vaknað upp með grábjörn í klof- inu. Reyndar hefur þetta verið af- sannað með bjarnartilraun sem gerð var ekki alls fyrir löngu f NorðurKaróIínu. Það kom í ljós að blóðþyrstu bangsarnir höfðu eng- an áhuga á túrblóði sem þeim var boðið. Andfemíníski femínistinn Camille Paglia kom með sannar- lega skrýtna sýn á tíðir f bók sinni Sexual personae þar sem hún seg- ir tíðirnar vera skammarlegt merki um erfðasyndina sem verði að má burtu. Já það er margt skrýtið í mörgum hausum. Næst íjalla ég um hvort það er gott eða vont, rétt eða rangt, kyn- þokkafullt eða ekki að stunda kyn- líf á túr. Ragnheiður Eiríksdóttir er hjúkrunarfræðingur Kynlifspistill@hotmail.com KYNLIF Ragnheiður Eiríksdóttir skrifar

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.