Dagur - 19.08.2000, Page 23

Dagur - 19.08.2000, Page 23
X^MT SKAKMOLAR Frekar rólegt er á alþjóðlegum vettvangi um þessar mundir en ís- lenskt skáklíf er óðum að vakna úr sumardvala. Eg hef tekið þá ákvörðun að fjalla eingöngu um íslenskt skáklíf hér í vetur. Fámennt en góðmennt var á helg- armóti T.R. um síðustu helgi en einungis sextán keppendur tóku þátt í því. Athygli vakti að fimm norðan- menn voru meðal keppenda en mótið fór fram í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12. Þrjár fyrstu skákirnar sem voru atskákir voru tefldar.á föstu- dagskvöld og eftir þær var Guðjón H. Valgarðsson efstur með fullt hús vinninga. Eitthvað hefur nú gerst aðfaranótt Iaugardags því að Guðjón tapaði öllum fjórum kapp- skákunum! Fyrir síðustu umferð- ina var Ijóst að tveir menn gætu sigrað. Kristján Eðvarðsson úr Helli var efstur með 5.5 vinninga af sex mögulegum og hinn bráð- efnilegi Sigurður Páll Steindórs- son úr T.R. var með fimm vinn- inga. Sigurður Páll átti að mæta Davíð Kjártanssyni en Davíð mætti ekki til leiks og setti það Ijótan svip á mótið. Aðspurður sagðist Davíð hafa sofnað 20 min- útum fyrir umferð! Kristján mætti hins vegar Þór Valtýssyni frá Akur- eyri og reyndi eins og hanh gat að vinna, en allt kom fyrir ekki og Þór náði jafntefli. Þar með voru þeir Kristján og Sigúrðui' jafnir að vinningum en Sigurður vann á stigum. Guðni Stefán Pétursson stóð sig vel og hafnaði í þriðja sæti og eins og þessi skák úr sjöttu umferð sannar þá var það engin tilviljun að hann varð svo ofarlega. Hvítt: Guðjón Heiðar Valgarðsson Svart: Guðni Stefán Pétursson 1 ,e4 c5 2.Rf3 Rf6 3.Rxe5 d6 nú er kominn upp svökolluð Petroffs- vörn sem er talin mjög traust á svart en Guðjón teflir glæfralegt aflrrigði sem er þó ekki svo ljóst en svo óheppilega fyrir hann er Guðni sérfræðingur í afbrigðinu. 4,Rxf7!? K\f7 5.d4 c5! 6.dxc5 Re6 7.e5?! hér var betra að skáka fyrst á c4. 7_Re8 8.Df3+ Kg8 9.Dxb7?! Rd7 10Bg5?? Hvítur vinnur skiptamun en fær í staðinn gjörtapaða stöðu. 10_Dxg5 ll.Dxa8 Dcl+ 12.Ke2 Bc4+ 13.Kf3 Rxe5+ 14.Ke4 Rf6 15.Kd4. Ekki mátti KÍ5 vegna g6+ Kxf6 Df4 mát. 15_Df4+ 16.Kc3 Rd5+ 17.Dxc5 Bxc5 og hvítur gaf. Af helstu mótúm ber Landsliðs- flokkur skákþings íslands hæst en þar er att kappi um Islandsmeist- aratitilinn. Teflt er með útsláttar- fyrirkomulagi en fyrirfram verða stórmeistararnir Helgi Áss Grét- arsson og Þröstur Þórhallsson að teljast sigurstranglegastir. Mólið hefst í Kópavogi nk. miðvikudag og skora ég á alla að koma og fylgjast með en aðgangur er ókeypis. Teflt verður í félagsheim- ili Kópavogs að Fannaborg 2. Skákfélag Akureyrar heldur ágúst- hraðskákmót annað kvöld og verð- ur það líklega síðasta skákmótið sem haldið verður í núverandi húsnæði félagssins að Skipagötu 18. Allir eru því hvattir til að mæta og kveðja húsnæðið! LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2000 - 30 . FINA OG FRÆGA FOLKIÐ Óhamingjusöm ástkona Sögur herma að ástkona Bruce Willis, Maria Bravo, hafi nýlega gert tilraun til að fyrirfara sér. Þetta á að hafa gerst eftir að hún missti fóstur. Farið var með hana á spítala eftir að hún hafði tekið inn um fimmtíu róandi töflur. „Maria upplifði mikla hamingju með Bruce en síðan djúpa sorg,“ segir vinkona Mariu. „Flún hélt að þau myndu giftast og stofna fjölskyldu en segist nú hafa misst fóstur og er sannfærð um að þau muni aldrei giftast." Maria og Bruce hittust fyrir ári en hún er sögð óttast mjög að hann taki að nýju saman við fyrrum eiginkonu sína Demi Moore. Bruce Willis og María Bravo. Maria gerði nýlega tilraun til ad fyrirfara sér. BARNAHORNIÐ Finndu 5 breytingar I fljótu bragði virðast myndirnar af þessari hafmeyju vera eins. Þegar betur er að gáð þá eru þær það hins vegar ckki. Getur þú fundið fimm atriði sem cru frábrugðin á milli myndanna? & ’yú -Cf * G? * ° o °nn «••p n O + 11 O > 13’W ^ O *8 /HO 45 46 j\ % O 54 *4S * 58* 50 ? %o SÍ /S3 5?.^ *CI o^o Sw • « 3* .-5 O .« •SS*T40\*° . ,C3 \ O . | f • Teiknaðu eftir númerum Ef þú dregur línu milli tölustafanna í réttri röð, þá kem- ur út mynd sem þú getur svo litað. Bamdarar „Eg fór til læknis um daginn og sagði honum frá því að ég þjáðist af langvarandi svefnleysi" „Og hvað sagði hann?“ „Hann sagði að það væri ekki alvarlegt mál og að ég ætti ekki að láta það halda vöku fyrir mér!“ Pabbinn: „Og hvernig var svo í afmælinu hjá Gunnari, Siggi minn?“ Siggi: „Ágætt fram eftir kvöldi en þá hættu taugapillurnar sem manna hans tók að virka". Vatnsberinn Flest áform vatns- bera fara út um þúfur í dag. Frest- aðu öllu til morg- uns. Fiskarnir Fiskarnir ættu helst ekki að fara á fætur í dag. Nema náttúrlega þeir séu illa haldn- ir í uggunum. k Hrútinn Það gerist ýmis- legt jákvætt í lífi hrúta um þessar mundir, sérstak- lega ef þeir láta lambakjötið vera um helgina. Nautið Hjá nautum gildir það gamal- kveðna: heima er best. Þau bjóða hættunni heim með því að flytja til Spánar. Tvíburarnir Það er sitthvað tvíburi og tvíbaka. Láttu framhliðina snúa upp sem oftast. % /1 Krabbinn Krabbar ættu að hugsa vel sinn gang. Þeir kom- ast það líka sem skriða eins og skjaldbökur. Ljónið Það eru blikur á lofti í Ijónsmerk- inu. Komdu út úr skápnum áður en en þú yfirgefur skóginn. Meyjan Meyjar ættu að láta heyskapinn eiga sig um helg- ina. Sjaldan hvílir hreinræktuð mey í morknu heyi. Vogin Það er útlit fyrr uppstyttu hjá vogum. Og á Vatnsleysuströnd í heild. Sporðdrekinn Sporðdreka- merksisspáin er samhljóða spánni fyrir köngulóar- merkið, ef einhver skyldi vita hvar það er niður kom- ið. Bogamaðurinn Bogmaðurinn mun brjóta odd af oflæti sínu, festa hann á örina og skjóta hval fyrir Konna. Steingeitin Steingeitin stend- ur, aldrei þessu vant, við orð sín. Aðeins málleysið getur komið í veg fyrir það.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.