Dagur - 12.09.2000, Qupperneq 1
Þriðjudagur 12. september 2000
83. og 84. árgangur- 172. tölublað
Aldrei meira gert
upptækt af dópi
Aðgerðir lögreglu og
tollgæslu í fyrra höfðu
áhrif á fíkniefnaverð,
sem hækkaði um tíma.
Mikið um smygl í ár
eiuuig.
I fyrra var lagt hald á meira magn
fíkniefha en nokkru sinni í Is-
landssögunni. Fíkniefnastofa rík-
islögreglustjórans hefur tekið
saman tölfræðiupplýsingar um
fíkniefnamál á árinu 1999 og
koma þar einnig fram upplýsingar
um haldlögð fíkniefni hjá öllum
Iögregluembættum landsins.
Stærsta fíkniefnamálið utan höf-
uðborgarsvæðisins og Keflavíkur-
flugvallar á árinu 1999 var smygl
á rúmlega 5 kg af hassi í Vest-
mannaeyjum.
Utan höfuðborgarinnar hefur
langmest aukning orðið á hald-
lagningu kannabisefna, en einnig
á amfetamíni og LSD. Aðgerðir
lögreglu og tollgæslu á síðasta ári
höfðu áhrif á fíkniefnaverð, sem
hækkaði um tíma. Götuverð hef-
ur þó haldist
nokkuð óbreytt,
til lengri tíma lit-
ið, og það bendir
a.m.k. til að tölu-
vert af fíkniefn-
um sé í umferð.
Það mikla magn
sem haldlagt var
á síðasta ári
rennur einnig
stoðum undir að
svo sé, að sögn
talsmanna lög-
reglunnar.
Meira amfetamin
Nokkur atriði eru sérlega sláandi í
samantekt fíkniefnastofu. Þannig
var lagt hald á 7.402 E-töflur í
fyrra í Reykjavík í stað 2.031 árið
1998. Gríðarleg aukning varð í
amfetamíni. í Reykjavík fannst
4.781 gramm í fýrra miðað við
1.713 árið 1998. Hlutfallslega er
aukningin á landsbyggðinni var
líka veruleg eða 297 grömm mið-
að við 162 árið 1998. Stórfelldur
innflutningur á
hassi vekur ein-
nig athygli. Tæp
42 kíló voru gerð
upptæk á land-
inu öllu í fyrra en
árið 1998 voru
þau tæp 13.
Töluvert meira
var um LSD-
skammta eða
338 í fyrra á móti
268 árið 1998.
Svipað magn af
kókaíni fannst
milli ára eða
1077 grömm á landinu öllu árið
1998 miðað við 955 grömm í
fyrra.
Samantekt fíkniefnastofu á
haldlögðum fíkniefnum ársins
1999 er umfangsmeiri en áður og
því ekki hægt að gera nema tak-
markaðan samanburð við fyrra ár.
Þá skal hafa í huga að innflutn-
ingur fíkniefna um Keflavíkur-
flugvöll er skráður undir Reykja-
vík, vegna rannsóknarlegs forræð-
is málanna.
17.000 E-töflur
Þess skal getið að í nágrannalönd-
unum hefur lögreglan haft þá
þumalputtareglu að upptaka
fíkniefna nemi 5-10% af heildar-
magni. Aðstæður á íslandi eru
hins vegar um margt sérstakar og
því telur lögreglan að hærra hlut-
fall náist hér, a.m.k. hafi svo verið
upp á síðkastið. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Guðmundi Guðjóns-
syni, yfírlögregluþjóni hjá Ríkis-
lögreglustjóra, er búið að taka
saman upplýsingar um upptæk
efni fram til 24. ágúst sl. Mikið
magn amfetamíns vekur athygli
eða 9.858 grömm. A sautjánda
þúsund E-taflna hefur verið gerð
upptækt, 10 kíló af kannabisefn-
um og 416 grömm af kókaíni.
Stöðug aukning er því í haldlagn-
ingu ólöglegra fíkniefna. - BÞ
Gríðarlegt magn afhassi var gert
upptækt í fyrra.
Nýir rekstraraðilar líklegir.
Samskip fá
Herjolf
Líklegt er að Samskip taki við
rekstri Herjólfs og sigli milli lands
og Eyja í nálægri framtíð. Utboð í
feijuflutninga voru opnuð í gær í
samgönguráðuneytinu. Tvö tilboð
bárust í rekstur Heijólfs, annað
frá núverandi rekstraraðilum en
það reyndist 46% yfir kostnaðará-
ætlun. Boð Samskipa var hins
vegar aðeins 86% af kostnaðará-
ætlun eða 192 milljónir á móti
325 milljónum.
Einnig bárust tilboð í rekstur
Breiðaljarðarferju. Þar buðu Sæ-
ferðir í Stykkishólmi lægst. Gild-
istími útboðanna er út árið 2003.
Nýr þýskur bryndreki er kominn í þjónustu fslenskra hjálparsveita. Björgunarsveit Landsbjargar í Öræfum fékk í
gær tryllitækið afhent að gjöffrá þýsku þjóðinni. Drekinn vegur 10 tonn og mun einkum nýtast þegar ofhvasst er
til að venjuleg farartæki komist leiðar sinnar. Árni Magnússon aðstoðarmaður utanrfkisráðherra er í forgrunni
ásamt þýska ræðismanninum. - mynd: e.ól.
m
Jóhannes Nordal: Býst við sam-
komulagi.
TUlagaiun
auðlindagjald
Auðlindanefndin, sem svo er
nefnd, og hefur starfað í tæp tvö ár
er nú komin á lokasprettinn. Talið
er að nefndin geti skilað af sér áður
en þing kemur saman um næstu
mánaðarmót. Sumir segja að það
geti orðið enn fyrr. Farið er með
vinnu nefndarinnar eins og ríkis-
Ieyndarmál og afar erfítt að fá stað-
festar fréttir af störfum nefndar-
innar.
Jóhannes Nordal er formaður
nefndarinnar og sagði hann í við-
tali við Dag fyrir nokkru að hann
vonaðist eftir því að samkomulag
yrði innan nefndarinnar um öll
þau atriði sem nefndin hefur fjall-
að um. Samkvæmt heimildum
Dags virðist nú sem þetta ætli að
takast.
Samkvæmt sömu heimildum
mun nefndin hafa komist að þeirri
niðurstöðu að eðlilegt sé að auð-
lindagjald verði tekið upp í sjávar-
útvegi. Þetta eru án nokkurs vafa
merkilegustu tíðindin úr starfi
nefhdarinnar. Hversu hátt þetta
gjald verður mun ekki tekið fram
en eðlilegt talið að auðlindagjald
komi til.
Fjarskipfarásirnar
Nefndin hefur fjallað um allar aðr-
ar auðlindir landsins. Það nýjasta í
þeim efnum eru fjarskiptarásirnar.
Deilur eru upp um hvort bjóða eigi
út hér á landi Ijarskiptarásir fyrir
þriðju kynslóð GSM símakerfísins.
Vinstri-grænir eru eini stjómmála-
flokkurinn sem hefur hafnað því
að fjarskiptarásirnar verði boðnar
út.
Sennilega á það eftir að valda
mestum deilum hér á landi ef
nefndin ákveður að mæla með
auðlindagjaldi í sjávarútvegi eins
og heimildir Dags herma. Vitað er
að Sjálfstæðiasflokkurinn og VG
eru því andvígir, Samfylkingin er
hlynnt auðlindagjaldi í sjávarútveg-
inum og Halldór Ásgrímsson, for-
maður Framsóknarflokksins hefur
upp á síðkastið opnað fyrir umræð-
ur um einhvers konar auðlinda-
gjald f sjávarútveginum. - S.DÓR
wmmmmmmmmmmmmmmammm
Lavamat W 1030
• Taumagn: 5 kg • Vindingarhraði: 1000/600 sn/mín. með hægum byrjunarhraða. Afgangsraki 59%
• Hitastlilir: Sór rofi, kalt - 95° • Fuzzy- Logic: Sjálfvirkt magnskynjunarkerfi, notar aldrei meira vatn en þörf er á
• Orkunotkun: 1,10 kwst. á 60°
• Vatnsnotkun: 59 litrar
• öll þvottakerfi ásamt --------*■ ■*--------
sérstöku blettakerfi Pil
• Ullarvagga
Qelslagötu 14 • Simi 462 1300
^ggl®
• Sími 530 2800
www.ormsson.is