Dagur - 12.09.2000, Side 16
16- ÞRIÐJVDAGUR 12. SEPTEMRER 2000
Sigurðurhefuralla tíð
frá því verðhólguúlfur-
inn át lömbin hans
reynt að sniðganga öll
viðskipti við banka-
stofnanir. Hann hefur
aldrei átt tékkareikn-
ing eða kreditkort, hef-
urskrifað sögurog Ijóð
en aldrei ávísun og þeg-
arpeningamirí vösun-
um eru búnirþá er
hann bara blankur.
Siguröur Oli Gunnarsson er einn fárra islendinga sem greiðir allt sem hann kaupir með beinhörðum peningum. „Ég er fullkomlega meðvitaður um hvað ég á af
peningum hverju sinni og þegar ekkert er eftir í vösunum þá eru peningarnir bara búnir og ég er orðinn blankur, svo einfalt er það."
Það eru ekki til margir í þessu
landi lengur sem greiða allt sem
þeir kaupa út í hönd og taka
aldrei lán. Sigurður Óli Gunn-
arsson, verkstjóri hjá Orkuveitu
Reykjavíkur er einn þeirra fáu
einstaklinga sem hafa reynt að
sniðganga öll viðskipti við
bankastofnanir. Hann hefur
aldrei á ævinni skrifað ávísun
og hefur alla tíð fengið launin
sín greidd út í hönd. Ilann hefur
keypt íbúð, bíl og báta og fram-
fleytt fjölskyldu sinni með því að
greiða fyrir viðskipti sín með
beinhörðum peningum sem
hann annaðhvort hefur átt í
vösunum eða safnað, utan eitt
skipti.
Öinmur ljúga ekki
Sigurður er fæddur árið 1958
vestur við BreiðaQörð. Hann
segir svo frá að strax þá um
vorið hafi fyrsta lambið hans
fæðst, þó hann muni auðvitað
ekkert eftir því. Það tíðkaðist í
sveitinni í þá daga að börn
fengu lamb á hverju vori og
átti það að vera trygging fyrir
framtíðina, að þegar þau væru
komin á legg þá hefðu þau eitt-
hvað fé á milli handanna. Það
hafi svo verið amma hans sem
hafi séð til þess á hverju hausti
að leggja andvirði hvers lambs
sem slátrað var inn á spari-
sjóðsbók í banka í Stykkis-
hólmi. Hún upplýsti drenginn
um það, þegar hann hafði vit
til, að þegar hann yrði stór
gæti hann keypt sér íbúð eða
bíl fyrir peningana og segist
Sigurður auðvitað hafa trúað
ömmu sinni, „hver gerir það
ekki“.
Mörg ár liðu og alltaf bætt-
ust við á hverju hausti ný ær-
gildi á bankabók Sigurðar sem
amma hans hafði af stakri
samviskusemi séð um að
leggja inn á í öll þessi ár. Það
var svo árið sem hann fékk bíl-
prófið að hann skundaði í
bankann til að taka út alla
peningana af sparisjóðsbókinni
góðu og ætlaði hann að nota
peningana til þess að kaupa
sér bíl. Það urðu heldur betur
vonbrigði hjá unga manninum
þegar hann kom í bankann og
komst að því að lítið sem ekk-
ert var inni á sparisjóðsbók-
inni. Hvað hafði eiginlega að
gerst, „ömmur Ijúga ekki“.
En það gera bankastjórar
ekki heldur og þegar Sigurður
leitaði svara á þeim bæ var
honum tjáð að innstæða hans
væri einungis andvirði tveggja
læra. Hann skildi auðvitað ekki
neitt í neinu og spurði banka-
stjórann að því hvað hefði orð-
ið um öll hin lömbin hans og
fékk þau svör að verðbólguúlf-
urinn hefði étið þau. Sigurður
var nú aldeilis ósáttur við
þessa skýringu og sakaði
bankann um sauðaþjófnað og
fór fram á að þeir rækju lömb-
in heim á fæti, ef þeir gætu
ekki skilað þeim öðruvísi.
Bankastjórinn útskýrði þá fyrir
Sigurði að sparisjóðsbókin
hans hefði ekki verið verð-
tryggð og hvernig verðbólgan
hefði, ekki bara leikið Sigurð
grátt, heldur obbann af lands-
mönnum og túlkaði Sigurður
þannig orð bankastjórans, að
fyrst allir hefðu meira og
minna lent í þessu þá væri
þetta bara allt í lagi. Hann
spurði því bankastjórann á
móti hvort það mætti þá ekki
réttlæta aðra glæpi á sama
hátt, að ef allir fremdu sama
glæpinn þá væri það bara allt í
lagi. Bankastjórinn brást illa
við þessum athugasemdum
Sigurðar, ásakaði hann um
dónaskap og rak hann út.
Þetta varð svo upphafið að því
að Sigurður tók þá ákvörðun
að við þessar stofnanir skildi
hann eiga sem minnst viðskipti
í framtíðinni, þær skildu sko
ekki hafa meira fé af honum.
Skiptir ekki við fasteignasala
Sigurður hætti ungur að árum í
skóla, „það var ekki gott sam-
band milli hans og kennar-
anna“, eins og hann segir sjálf-
ur. Hann er hins vegar alveg
viss um að það hafi bjargað
honum fjárhagslega að fara
svona snemma út á vinnumark-
aðinn. Þá tíðkaðist að taka
skyldusparnað af mánaðarlaun-
um þeirra sem voru undir 26
ára aldri og var hann geymdur
á verðtryggðum reikningum.
Sigurður segist hins vegar hafa
reynt að eyða öllum laununum
sínum jafnóðum, það hafi hon-
um verið ráðlagt af góðum
mönnum, því annars hyrfu þeir
bara í verðbólgunni. Honum
tókst þó ekki að eyða öllum
peningunum jafnóðum, jafnvel
þótt hann legði sig allan fram
við það og því lagt um það bil
tvöhundruð þúsund kall inn á
verðtryggðan reikning í ónefnd-
um banka og gleymt honum þar
í einhver ár og var það í fyrsta
skipti sem hann átti viðskipti við
banka frá því forðum. Þegar
hann svo hafði náð aldri til, tók
hann út skyldusparnaðinn og
keypti sér litla kjallaraíbúð sem
hann greiddi fyrir út í hönd.
Hana keypti hann beint af eig-
anda íbúðarinnar milliliðalaust,
enda segist hann hafa ímugust
á því að skipta við fasteigna-
sala, hann treysti þeim ekki.
Rosalega góð lán
Sigurður átti kjallaraibúðma
skuldlausa og verðbólgan sá um
að þenja út bankabókina sem
hann hafði gleymt. Fjölskyldan
stækkaði og þau voru nú orðin
íjögur í litlu kjallaraibúðinni og
óneitanlega orðið þröngt um þau
þar. Það var því komið að því að
stækka við sig og nú kom sér vel
að eiga fé inni á hinni verð-
tryggðu gleymdu bók og má
segja að verðbólguúlfurinn sem
stal fé Sigurðar forðum hafi skil-
að því spikfeitu til baka og kom
það Sigurði mjög á óvart hversu
féð hafði þrútnað mikið út á bók-
inni. Þó var hann ekki alls kostar
ánægður með þennan háttinn
heldur, frekar en í fyrra skiptið
þegar féð hafði rýrnað og horfið,
því að að hans mati er í báðum
tilfellum verið að hafa fé af öðr-
um, þjófnaður á einum staðnum
og ofvöxtur á hinum og þar með
eitthvað sem ekki sé hægt að
treysta, „þarna er eitthvað rosa-
lega mikið að“.
Sigurður keypti lóð, ákvað að
byggja húsið sjálfur og komast
þannig hjá því að þurfa að skipta
við fasteignasala. Hann ætlaði
sér að greiða allan kostnaðinn
beint úr vasanum eins og hann
hafði gert allar götur fram til
þessa. En góðir menn ráðlögðu
honum að taka þau lán hjá hús-
næðisstofnun sem hann hefði rétt
á, „þetta væru svo rosalega góð
lán“, hann hefði rétt á þriggja
miUjón króna láni og það væri
bara ekki hægt að fá betri lán.
Sigurður lét sannfærast og taldi
að ráðleggingar þessara góðu
mann hlytu að hafa við einhver
rök að styðjast og ákvað að taka
helminginn af láninu, „betri er
hálfur skaði en algjör".
Núna er Sigurður búinn að
borga af láninu í bráðum tíu ár,
„það hefur engin verðbólga verið
og allt svo roscilega gott í þjóðfé-
laginu. Ég er búinn að greiða
þetta rosalega góða lán niður um
eina milljón en ég skulda samt
tvær milljónir, ég skil ekki alveg
hvernig þeir ftnna þetta út, en
þetta hlýtur samt að vera alveg
rétt, því að bankastjórar ljúga
ekki frekar en ömmur.“
-w