Dagur - 21.11.2000, Blaðsíða 2

Dagur - 21.11.2000, Blaðsíða 2
2 - PRIDJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2 000 FRÉTTIR Boðar nýia byggða áætlirn árið 2002 Hún sagði að eflaust mætti rekja flutninga af landsbyggð- inni til höfuð- borgarsvæðisins vegna breytinga í hefðbundnum atvinnugreinum, sjávarútvegi og landbúnaði og mikilli þenslu í allri atvinnu- starfsemi á höf- uðborgarsvæð- inu. A árunum 1996 til 2000 hafi skapast Valgerður Sverris- dóttir ætlar að setja af stað vinnu til að móta nýjar tillögur um byggðaáætlun. Vill að hátæknistörf verði flutt út á land. Kristján L. Möller segir kreppa að í at- vinnumálum á lands- byggðinni „Byggðastofnun er um þessar mundir að leggja lokahönd á skýrslu um framkvæmd byggða- áætlunar sem Alþingi samþykkti í mars I 999 í formi þingsálykt- unar. Eg mun leggja skýrsluna fyrir Alþingi þegar vinnu við hana er lokið en þá gefst jafn- framt tækifæri til að fjalla um það hvernig til hefur tekist. I framhaldi af umræðum um skýrsluna mun ég setja af stað vinnu til að móta tillögur um nýja byggðaáætlun, sem þá ætti að koma til framkvæmda 1. jan- úar 2002." 1900 ný störf í hinu svo kallaða nýja hagkerfi en það eru hátæknifyrirtæki í hugbúnaðargerð, líftækni og fjarskiptum. Þetta er um 100 störfum fleiri en þau sem töpuðust í landbún- aði og sjávarútvegi samanlagt á sama tíma. Valgerður sagði að atvinnuþróunarstarf stjórnvalda þurfi í meira mæli en hingað til að beinast að því að ný störf sem skapast í þessum tækni- greinum verði hornsteinn at- vinnuþróunar á landsbyggðinni næstu árin. Þetta kom meðal annars fram í ræðu Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðarráðherra í umræðum utan dagskrár um atvinnumál á landsbyggðinni og byggðastefnu stjórnvalda sem Kristján L. Möller hóf í gær. Vilja fækkun mu 400 inaniis Hann vitnaði til könnunar sem birt var nýlega um atvinnumál á landsbyggðinni. Þar kom fram að atvinnurekendur á lands- byggðinni vilja helst fækka starfsmönnum um tæplega 400 manns með nokkrum undan- tekningum þó. Þessi fækkun, sagði Kristján, að samsvaraði 1% af vinnuafli á landsbyggðinni og er nú eftir- spurn eftir vinnuafli þar í sögu- legu lágmarki og fer minnkandi í flestum atvinnugreinum. Sam- kvæmt upplýsingum Þjóðhags- stofnunnar hefur eftirspurn eft- ir vinnuafli á landsbyggðinni ekki mælst minni í september frá því að mælingar hófust fyrir 1 5 árum. A höfuðborgarsvæðinu er eft- irspurn eftir vinnuafli hins veg- ar í sögulegu hámarki. Þar vant- ar um eitt þúsund manns til starfa, sem er um 1,6% af vinnuafli. Gert er ráð fyrir að þar vaxi eftirspurn eftir vinnu- afli um 3% næstu 12 mánuði. Þetta sagði Kristján ástæðu þess að hann ræðir málið utan dag- skrár. ð-largir þingmenn tóku til máls í umræðunni og sýndist sitt hverjum um ástand og horf- ur á landsbyggðinni og hvað bæri að gera til að koma í veg fyrir byggðaröskunina. - S.DÓR Ússur Skarphéðinsson „Koldinun arbUkur44 Samfylkingin boðar milda funda- ferð þeirra Ossurar Skarphéðins- sonar formanns og Margrétar Frí- mannsdóttur, varaformanns Sam- fylkingarinnar í þessari viku. Þau munu í vikunni halda 6 fundi víðs- vegar um landið. „Það hefur verið á dagskrá hjá okkur að fara fundaferð á þessu hausti og síðan aftur í mars. Eg tel tímabært að fara þessa fundaferð einmitt nú til að skýra stefnu Sam- íylkingarinnar til samanburðar við þá röngu braut sem ríkisstjómin er komin inn á. Við sjáum þær kol- dimmu blikur sem eru á hitnni efnahagsmálanna. Verðbólgan er komin úr skorðum. Það virðist ligg- ja lýrir að á vinnumarkaðnum verði mikill órói eftir áramótin. Fram- haldsskólinn hefur stöðvast. Ríkis- stjómin er að hækka skatta með því að knýja sveitarfélögin til að hækka útsvar og það er ekkert að gerast í sjávarútvegsmálunum," sagði Öss- ur Skarphéðinsson. Fvrsti fundur- inn var í gærlweldi á ísafirði en í k\öld verður fundur í Sal Sveinafé- lagsins í Reykjanesbæ. A morgun verður svo fundur í Deiglunni á Ak- ureyri. Skelfilegt umhverfi í flugrekstrmiun Erfið afkoma er nú í innanlandsfluginu og verðhækkanir dynjayfir. Afkoma FÍ verður verri í ár en í fyrra og varð bún þó ekki góð þá. Stóraukning far- þega kemur ekki í veg fyrir stanslausar verð- hækkanir. Þáttur stjómvalda harðlega gagnrýndur. Landsbyggðarmenn eru að slig- ast vegna ferðakostnaðar til höf- uðborgarsvæðisins. Kostnaður Flugfélags Islands vegna elds- neytishækkana hefur aukist um 130 milljónir króna undanfarið að sögn framkvæmdastjóra F1 og er óhjákvæmilegt að hans mati að bregðast við með fargjalda- hækkun. A morgun munu innan- landsfargjöld hækka um 7-8% og er það þriðja fargjaldahækkunin á skömmum tíma. Jón Karl Ólafsson, fram- kvæmdastjóri FI, hlýtur að óttast að síendurteknar verðhækkanir bitni á nýtingu? „Já, það gerum við alltaf. Við höfum þurft að hækka fargjöld okkar um 23% á árinu en FÍB gefur upp 25-26%. Flutningskostnaður hefur allur hækkað stórlega vegna þessa eldsneytisverðs, þetta cr skelfi- legt ástand. Við erum að borga 34 dollara fyrir tunnuna núna en á sama tíma í fyrra voru þetta 1 5- 16 krónur. Ofan á þetta bætist svo gengishækkunin," segir fra m kvæ m d as tj ó r i n n. Talsmenn neytenda hafa gagn- rýnt verðhækkanir Ff óspart og velt upp spurningum um mis- notkun á markaði eftir að sam- keppnin hvarf. Hverju svarar Jón Karl þessu? „Ef við værum að græða peninga þá gæti ég sæst á þetta en það er nú eitthvað ann- að. Afkoma félagsins í ár verður verri en í fyrra ef eitthvað er þrátt fyrir allar fargjaldahækkanir og fjölgun farþega um 25% milli ára.“. Skortir biðlund Jón Bjarnason, alþingismaður vinstri grænna, segir fargjalda- hækkunina afleita fyrir lands- byggðarfólk. „Mér hefði fundist að Flugfélag íslands hefði átt að sýna biðlund þangað til þessi sjúkraflugsmál væru oröin skýr og menn sæju fyrir hvaða breyt- ingar það hefur í för með sér." Þingmaðurinn telur að farþegum muni fækka við þetta enda um verulega íþyngingu að ræða og hann undanskilur ekki ábyrgð stjórrívalda í þessari þróun. „DjöfuUegt“ Undir þetta tekur annar lands- byggðarmaður, Kristján Blöndal, Samfylkingunni. Kristján segir að honum lítist „hreint djöful- lega“ á hækkun- ina og nú sé svo komið að almenn- ingur geti vart séð sér fært að nota þessa þjónustu. Hins vegar véfeng- ir Kristján ekki að nauðsyn beri til fyrir félagið en þar megi ekki síst kenna um 50 millj- óna króna farmiðaskatti sem stjórnarþingmenn hafi samþykkt án þess að hlusta á mótbárur. Hér sé um enn einn skattinn að ræða sem auki bilið milli lands- byggðar og höfuðborgarsvæðis. Netsala tilbóta Framkvæmdastjóri FI, segir að við gjaldskrárbreytinguna nú verði tekið stórt skref í því að gera farmiðasölu „netvænni". Frá og með næstu viku getur al- menningur bókað sig á Internet- inu og verður þá gjörbylting á starfsemi félagsins að sögn fram- kvæmdastjórans. Þegar er búið að prufukeyra kerfið á llöl’n í Hornafirði en næstir netvæddra áfangastaða eru Egilsstaðir og Isafjörður. Eftír áramót er reikn- að með að bókunarvélin verði oröin virk um allt land og á þetta ferli að skila sér í minni kostnaði. - BÞ Rísasamniiigiirhjá Össuri Össur hf. hefur undirritað samning um kaup á öllum hlutabréfum í banda- ríska stoðtækjafyTÍrtækinu CenturyXXII Innovations, Inc. Kaupin eru háð skilyrðum um að samningurinn standist lög og reglugerðír í Bandaríkjunum og samþvkki hluthafafundar hjá Össuri. Fyrirtækið greiðir fyrir öll hlutabréf Centun1 XXII með 41,785,000 hlut- um í Össuri hf. Össur hf. mun einnig greiða seljendum Centuiy XXII eina milljón bandaríkjadollara á þriggja ára tímabili með svokölluðu „earn out" fyrirkomulagi, ef viss markmið í rekstri fyrirtækisins nást. Kaupverð Cent- ury XXII er rúmlega 2,8 milljarðar króna el' miðað er við meðalgengi bréfa Össurar hf. síðustu 30 dagana fyrír dagsetningu kaupsamnings. Ef tekið er tillit til kostnaðar, tengdum kaupunum, má ætla að heildarkaupverð verði tæpir 3 milljarðar króna. - BÞ Skref afturábak Kennarar Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri sendu í gær frá sér ályktun þar sem tillögum ríldsins er hafríað. Þeir telja að tillögurnar þýði að starfskjör kennara verði skert frá því sem nú er. „Kennarar kreljast þess að ríkisstjórnin horfist í augu við ábyrgð sína og hækki framlög til framhaldsskóla landsins. Það er ekld nóg að setja ný lög um starf framhaldsskóla og semja nýjar námskrár ef ekki fylgir þeim breyt- ingum aukið fé til greiðslu launa og annars kostnaðar. Við beinum því til alþingismanna að taka til skoðunar það umboð sem ráðherrum hefur verið veitt til þess að fara með málefni þjóðarinnar. Getur Alþingi sætt sig við að starf framhaldsskóla skuli aflagt og að óvíst sé um framhald þess?“ segja kennaramir. Þeir lýsa fullum stuðningi við samninganefnd Félags framhaldsskóla- kennara og skora á hana að sýna festu í samningaviðræðum. - BÞ Brýr styrktar Viðgerð stendur yfir á brúnni vfir Djúpá og síðan er á áætlun Vegagerðar- innar að styrkja brýrnar yfir Hólmsá á Mýrum og Jökulá í Lóni. Einar Þorvarðarson, umdæmisstjóri Vegagerðarinnar á Austurlandi, segir að þegar Iokið verði við styrkingar á áðumefrídum brúm verði svokallaður Evrópuþungi leyfður á suðurleiðinni, frá Reykjavík austur á Hérað, sem sé nauðsynlegur atvinnulífinu á viðkomandi svæði. - C,G Intemetsamband Landssímans í lagi Sírríinn sá í gær sérstaka ástæðu til að senda frá sér tilkvnningu þar sem bent var á að netsamband við útlönd væri í góðu lagi á veguin Símans. Éin- hvers misskilnings virðisl hafa gætt végna bilunar sem verið hefur hjá ís- landssíma frá því um helgina. Misskilningur hefur komið fram um að bil- unina megi rekja til Canlat strengsins en til þess að taka al allan vafa vill Síminn árétta að Intemetsamband Símans er í fullkomnu lagi.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.