Dagur - 21.11.2000, Blaðsíða 21

Dagur - 21.11.2000, Blaðsíða 21
~Dagur ÞRIDJUD A G U R 21. NÓVEMBER 2000 - 21 Hræringar hiá fót- boltaliði Darvíkur Miklar hræringar eru íyr irsjáanlegar í knatt- spymuliði Dalvíkinga fyr- ir keppnistímabilid 2001 sem hefst í maímánuði að venju. Pétur Ólafsson, sem þjálfaði lið Nökkva á Akureyri og kom þeim upp í 2. deild, hefur verið ráðinn þjálfari liðsins í stað Jónasar Baldurssonar, sem ekki vildi halda áfram þjálfun liðsins eftir þrjú sumur auk þess sem það var skoðun margra innan og utan knattspvrnu- deildarinnar að það væri tímabært f\ rir liðið að skipta um þjálfara. Jónas var einnig leikmaður og átti sinn stóra þátt í að binda saman vörn liðsins. Dalvíkur- liðið átti afleita vertíð eftir verslunar- mannahelgina og tapaði 6 síðustu leikj- unum en fram að því var liðið f topp- báráttunni í 1. deild. Það kann að hafa haft áhrif á þessa ákvörðun. Vonir stóðu til að Jónas yrði áfram leikmaður með liðinu, en ljóst er að af því verður ekki því hann hefur tekið að sér þjálfun 2. flokks Þórs á Akureyri. Fleiri breytingar eru í farvatninu hjá Dalvíkingum. Marínó Ólason, sem ieik- ið hefur með liðinu allan sinn knatt- spyrnuferil, fer til nágrannanna í Leiftri, Atli Björnsson fer til FH, Atli Már Rúnarsson, markvörður, fer til Þórs, og óvíst er hvort annar tveggja Valsara sem Iéku sem Iánsmenn með Iiðinu, Sigurður Flosason, verði með næsta sumar en frágengið er að Jóhann Hreiðarsson verður áfram með Dalvík- ingum. Vestmannaeyingarnir tveir koma ekki aftur. Þorleifur Arnason, sem lék með liðinu um tíma, en fór síð- an til KA og síðan Nökkva, kernur aftur og Sigurjón Egilsson, sem lék með Þrótti Neskaupstað hefur tilkynnt fé- lagsskipti til Dalvíkur, en hann var einn burðarása Norðfjarðar-Þróttara. Sex lið leika í 1. deildinni næsta sum- ar. Fjögur þeirra mætast í fvrstu um- ferðinni. Dalvtk fær KA í heimsókn, Þór fær Leiftur í heimsókn, en Tinda- stóll tekur á móti Stjörnunni og Sigl- firðingar leika úti gegn IR. Fyrsti heimaleikur KS er í 2. umferð gegn Stjörnunni, heimaleikur Leifurs er gegn Þrótti og KA fær Tindastól í heim- sókn. GG Pétur Úlafsson, nýr þjálfari Dalvíkinga Vignir Þormóðsson. Vignir formaður Vignir Þormóðsson, veitingamað- ur, var kjörinn formaður knatt- spyrnudeildar KA á aðalfundi deildarinnar sl. föstudag. Hann tekur við af Stefáni Gunnlaugs- s\tií, sem gegnt hefur því starl’i sl. tvö ár. Vignir hefur áður átt sæti í stjórn deildarinnar. Aðrir stjórnar- menn hafa verið í stjórn deildar- innar, þeir Gunnar Gunnarsson, Magnús Sigurólason, Bjarni Jóns- son, Guðbjartur Guðjónsson. Þórarinn Egill Sveinsson og Sig- urður Lárusson. Ekki er vitað mikið um breyt- ingar á leikmannahópinum. Pét- ur Björn Jónsson hefur gengið í raðir Fylkismanna en frá Leiftri kemur Hlynur Jóhannsson. Ann- að hefur ekki verið staðfest, en ljóst er að einhverjar fleiri breyt- ingar verða. T.d. er óljóst hvort sá breski Colin Pluck verður áfram með KA sem og Svíinn Patrik. GG Fyrsti úti- sigurKA S/I sýndi góðan leik gegn Birninum. SA vaimuii Bimina9- KA-liðið hefur ekki verið að leika sannfærandi í vetur í útileikjun- um ef frá er talin Ieikur liðsins gegn Gróttu/KR sem hefði getað unnist með smá heppni, en sá leikur fór í framlengingu. Annað var uppi á teningunum gegn FH sl. föstudag. Leikmenn IG\ mættu grimmir til leiks, stað- ráðnir að bæta árangurinn á úti- velli, og það tókst. Halldór Sig- fússon stjórnaði leik liðsins eins og herforingi og var bestur leik- manna KA auk þess að vera markahæstur með 9 mörk, 3 úr vítum. Það munar einnig miklu að Litháarnir í liðinu eru nú sem óðast að falla inn í leik liðsins en Andreas Stelmokas átti góðan leik á línunni, skoraði 6 mörk, og var sóknarmönnum mjög hjálp- legur með því að halda varnar- mönnum uppteknum. Giederius Cerniauskas átti góðan leik í horninu og var virkur í sóknar- leiknum og skoraði 4 mörk en þeir félagar skoruðu þau þrjú rnörk sem liðið gerði í hraðaupp- hlaupum. Hörður Flóki Olafsson varði 13 skot í leiknum og naut að- stoðar mjög hreyfanlegrar varnar sem auk þess lék mjög framar- lega sem sóknarmenn FFl áttu lengst af ekkert svar við. Helst að ógnun væri af gamla brýninu Héðni Gilssyni sem skoraði 8 mörk í leiknum. Staðan í leikhléi var 15-14 fyr- ir KA og lokatölur 29-26. Gamall draugur virðist vera að láta á sér kræla í KA-liðinu, þ.e. meiðsli leikmanna. Jónatan Magnússon er meiddur og er til rannsóknar fyrir sunnan og þeir Heimir Orn Arnarson og Guðjón Valur Sig- urðsson ganga ekki heilir til skógar. Næsti leikur KA er gegn Islandsmeisturum Hauka í KA- heimilinu á fimmtudag. GG Skautafélag Akureyrar lék gegn Birninum á Islandsmótinu í ís- hokkí í Skautahöllinni á Akureyri sl. laugardagskvöld. Akureyringar áttu harrna að hefna en fyrirfram vrar búist við sigri þeirra sunn- lensku sem leiklu hafa við hvern sinn fingur sem al er íslandsmót- inu, unnið bæði lið SA og SR. SA- menn komu grimmir til leiks og raunar völtuðu yl’ir „Bjarnarhún- anna" en meðalaldur liðsmanna Bjarnarins er ekki mjög hár. Jafnt var á með liðunum í upp- hafi leiks og skoruðu Bjarnar- menn fyrsta markið eftir aðeins rúmar tvær mfnútur af Ieiknum og náðu SA-ingar ekki að jafna metin fyrr en hálf mínúta var eftir af fyrstu lotu. Staðan 1-1 þegar lið- in gengu til búningsklefa eftir fvTstu lotu. 1 annarri lotu færðist meiri harka í leikinn en SA seig fram úr og sigraði lotuna 4-1. Staðan var því 5-2 þegar síðasta lotan hófst og nú var að duga eða drepast lyrir leikmenn Bjarnarins. Þcir bv rjuðu af krafti og skoruðu tvö fvrstu mörk lotunnar og nú munaði einungis einu marki á lið- unum. En nú var allur vindur úr ungu og órcyndu liði Bjarnárins og á meðan sýndu lirnasterkir Ak- urevringar mátt sinn og meginn og bættu við fjórum mörkum. Loka- staðan varð því 9-4 fyrir SA. 1 liði Skautafélags Akureyrar var Ingvar Jónsson langbestur en hjá Birninum var Jónas Breki at- kvæðamestur. Mörk og stoðsend- ingar Ingv'ars Jónssonar var 3/2, en hjá öðrum leikmönnum var Guðni Helgason með 2/0, Sveinn Björnsson 1/1, Sigurður Sigurðs- son 1/1. Rúnar Rúnarsson 1/1, Eggert Hannesson 1/0, Stefán Hrafnsson 0/2, Haraldur \’il- hjálmsson 0/1. Hjá Birninum var Jónas Breki með 2/2, Sergei Zak 0/3 og Glenn Hammer 2/0. GG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.