Dagur - 21.11.2000, Page 20

Dagur - 21.11.2000, Page 20
20- ÞRIDJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2000 Akureyr^Jorðurland Sundlaug Akureyrar. Fjárfestingar Akureyrarbæjar Á síðasta bæjarráðsfuncli á Akureyri var lögð fram end- urskoðuð fjárhagsáætlun bæjarins og þar var m.a. að finna yfirlit yfir áætlaðar íjár- festingar bæjarins, bæði gjaldfærða fjárfestingu og eignfærða fjáfestinu, en sam- tals nemur eign- og gjaldfærð fjárfesting rúmum milljarði króna eða 1.005.000 þús- undum króna. Eignfærð fjárfesting 02 Félagsmcíl Leikskóli við Iðavöll 45.000 Nýr leikskóli 5.000 04 Fræðslumál Síðuskóli 10.000 Oddeyrarskóli 150.000 Giljaskóli 175.000 Framhaldsskólar 25.000 05 Menningarmál Amtsbókasafn 60.000 Gilfélag, Ketilhús 20.000 06 Iþrótta- og tónistundamál Sundlaug Akureyrar 40.000 Framlag til VMI 20.000 Fjölnota íþróttahús 80.000 16 Rekstur eigna Ráðhús 25.000 19 Vélasjóður Vélamíðstöð 4.000 Umhverfisdeild, bifreiðar og vinnuvélar 4.000 22 Strætisvagnar 10.000 Samtals 673.000 Gjaldfærð fjárfestlng 01 Yfirstjórn bæjarins Oskipt, tölvu- og hugbúnaður 02 Félagsmál 12.000 Oldrunarmál 15.000 Leikskólar 10.000 Leiguíbúðir 04 Fræðslumál 5.000 Grunnskólar, óskipt 70.000 Heimavistir 15.000 Tónlistarskóli 05 Menningarmál 1.000 Óskipt 06 Iþrótta- og tómstundamál Iþróttamannvirki og 3.000 by'ggingasamningar 07 Brunamál og a hnannava rn i r 10.000 Búnaður 09 Skipulags- og byggingamál Eignakaup vegna 1.000 skipulags 10 Götur, holræsi og umferðarmál 20.000 Óskipt, nettó 11 Lhnhverfismál Græn svæði, 150.000 nýframkvæmdir 13 Atvinnumál 15.000 Tjaldsvæði 5.000 Samtals 332.000 Atviramleysið eykst heldur Atvinnuástand á Norðurlandi versnaði heldur á milli mánað- anna september og október. Á þetta bæði við um Norðurland eystra og vestra. Atvinnuástand- ið er þó enn mjög gott. Á Norðurlandi vestra var með- alfjöldi atvinnulausra í október 44 sem er um 0,9 % af mannafla í kjördæminu en sambærileg tala fyrir september var 0,8% af mannafla. Atvánnuleysið hefur þannig aukist um 6,5% milli mánaða sem lætur nærri að vera jafngildi þess að atvinnulausum hafi íjölgað um 3 á milli mán- aða. Hins vegar hefur atvinnu- leysi minnkað mikið ef miðað er við sama tíma í fyrra eða um 15,%. Á Norðurlandi vestra eru nú 0,5% karla atvinnulausir en 1,5% kvenna. Atvinnulausum konum hefur fjölgað um fimm að meðaltali en atvinnulausum körlum á Norðurlandi vestra hefur hins vegar fækkað um tvo. Norðurland eystra Á Norðurlandi eystra var meðal- fjöldi atvinnulausra 134 eða um 1% af mannafla en sambærileg tala fyrir september var 0,9%. Atvinnuleysi hefur því aukist um 4,6% milli mánaða sem þýðir að atvinnlausum fjölgaði um 5 að meðaltali milli mánaða. 1 sam- anburði við ástandið eins og það var á sama tíma í fyrra er niður- staðan þó vel við unandi en at- vinnuleysi hefur minnkað um 25,3% síðan þá. Atvinnulausum körlum hefur fjölgað um átta að meðaltali frá september og fram í október. At- vinnulausum konum hefur hins vegar fækkað um þrjár að meðal- tali á sama tíma. JólamerM Framtíð- arinnar koiniii út BandaríMn koma á óvart Skoðanir Brynjólfs Segja má að það hafi þeir gert með frétt- um af vandan- um sent þeir hafa lent í með forsetakosningarnar í landi lýðræðisins. Þeir hafa sent af- dankaða forseta sína til þess að líta eftir og tryggja að rétt væri að verki staðið í vanþró- uðum ríkjum en eru svo sjálf- ir í vanda vegna þess að þeir eru með úrelt kerfi til að kjósa eftir og eru svo sjálfir með kosningasvik eins og tíðkast hjá þeim vanþróuðu. Engin veit í dag hvort réttkjörnir menn hafa setið í þessu emb- ætti á undanförnum árum íýrst svona cr um hnútana búið. Kvenfélagið Fram- tíðin á Akureyri hef- ur gefið út hið ár- Iega jólamerki fé- lagsins. Merkið teiknaði myndlistar- maðurinn Sigurveig Sigurðardóttir. Jóla- merkið er tekjuöflun félagsins en tekjum sínum verja Fram- tíðarkonur til Iíknar- mála, sérstaklega til styrktar öldruðum. Merkið er til sölu hjá Islandspósti á Akureyri, í Frí- merkjahúsinu og Frfmerkjamiðstöð- inni í Reykjavík auk þess sem félagskon- ur sjá um sölu merk- isins. — GG Jólamerkið. Þjófavöm í skólana? Skólanefnd Akureyrarbæjar vill að kannað verði hvort ekki sé hægt að setja upp þjófavarnarkerfi í skól- um bæjarins. I sérstakri bókun nefndarinnar sem gerð var fyrr í mánuðinum kemur fram að vegna síendurtekinna innbrota í skóla og Ieikskóla síðastliðið ár, leggi skóla- nefndin til við framkvæmdaráð bæjarins að kannaðir verði mögu- leikarnir á því að koma upp þjófa- varnar - eða viðvörunarkerfum í skólum og leikskólum bæjarins. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvort orðið verður við tillögu skólanefndar. Nýstárlegt námskeið Tölvufræðslmmar Tölvufræðslan á Akureyri mun síðar í mánuðinum standa fyrir námskeiði í XML og ASP forrit- un. Það er að ýmsu leyti nýstár- legt, bæði sjálft námsefnið en ekki síður þær aðferðir sem beitt er. Kennari verður Sigvaldi Osk- ar Jónsson, verkfræðingur hjá Prím ehf. Byggt er á námskeiði sem hann hefur kennt á vegum Háskólans í Reykjavík en sam- bærilegt nám hefur ekki áður staðið til boða norðan heiða. Námskeiðið er kennt í tveimur hlutum, 23. til 25. nóvember og 30. nóvember til 2. desember, samtals 40 klukkustundir. „Ég þykist vita að skammstaf- anirnar XML og ASP einar og sér segi þorra fólks ekki sérlega mikið enda er það svo að nám- skeiðinu er einkum beint til þeirra sem hafa reynslu af vef- lausnum. Margir þekkja til HTML-málsins sem notað hefur verið við að búa til vel flestar vef- síður á Netinu. Hins vegar hefur HTML verulega galla og hentar að ýmsu leyti illa fyrir nútíma upplýsingavinnslu og samskipti á milli tölvukerfa. Það er oflosara- Iegt, ef við getum sagt sem svo. Hér kemur XML til sög- unnar en það er mun fastmótaðra. XML er í raun það sem allir eru að tala um í dag en til- tölulega fáir þekkja. Þessu viljum við bæta úr með námskeiðinu," segir Sigvaldi. ASP-forritun- armálið er að hans sögn betur þekkt en það hent- ar vel til að gera vefsíður sveigjanlegri, tengja þær við gagnagrunna o.fl. Nýjtun aðferðum beitt Sem fyrr segir er nýstár- legum aðferðum beitt við námið og nýjasta tækni notuð til að útbúa námsefnið. Sem dæmi um þetta þá býðst þeim sem hafa áhuga á nám- skeiðinu að fara inn á sérstaka vefslóö. Þar getur fólk tekið þátt í könnun og fær sam- stundis svör þar sem metið er hversu vel nám- skeiðið hentar þvf. „Við erum í raun að byggja á Helgi Kristinsson, skólastjóri Tölvufræðslunnar. verkefna- og próftökukerfinu Salómon, sem er nýr íslenskur hugbúnaður til stjórnunar á öll- um þáttum í gagnvirku náms- ferli,“ segir Sigvaldi. Slóðin er http://wwvv.prim.is/kennsla/tfak_ xml_asp/ Námskeið flutt norður „Tölvufræðslan hefur að undan- förnu verið að auka námsfram- boð sitt, m.a. með því að flytja norður námskeið sem fólk hefur til þessa þurft að sækja til Reykjavíkur. Þetta námskeið er jafnframt liður f þeirri viðleitni okkar að standa iý'rir sérhæfðum námskeiðum sem ekki hafa verið í boði áður fyrir almenning. M.a. gengumst við á dögunum fyrir námskeiði í verkefnastjórnun sem mæltist vel fyrir. Fyrirtæki og einstaklingar hér fyrir norðan hafa tekið þessu vel og einnig eru dæmi um að fólk komi að sunnan til að sitja námskeiðin, enda tilvalið að sameina í eitt, fræðslu og afslappandi heim- sókn til höfuðstaðar Norður- lands," segir Helgi Kristinsson, skólastjóri Tölvufræðslunnar.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.