Dagur - 21.11.2000, Síða 5

Dagur - 21.11.2000, Síða 5
ÞRIÐJUD AGll R 21. NÓVEMBER 2000 - 5 Thyptr. FRÉTTASKÝRING L Ofstopum er aUtundykjandi Um nýliðna helgi mátti lögregla hörfa undan æstum múg við Ingólfstorg og voru laganna verðir þó vopnaðir maze-brúsum. Annars staðar gekk óaldalýður um með hafnaboltakylfur. Ilrikaleg alda morða og grófra ofbeldisverka á síðustu mánuðum og örfáu misserum hefur valdið vaxaudi ugg í þjóðfélaginu og endau- lega feikt burt ímynd- inni af íslandi sem samfélagi þar sem fólk getur gengið óhult um. Framundir síðustu ár var hægt að afgreiða flest manndráp sem ölæð- isverk, en það er að breytast; dópistar hafa leyst fýllibyttur af hólmi og í hinum harða heimi fíkniefnadólganna tíðkast gróf of- beldistól. Nú getur venjulegur þegn á suðvesturhorni landsins ekki lengur talist óhultur vegna lausagangs siðblindra manna, sem sökum ofneyslu örvandi eiturlyfja, gjarnan ofan í áfengi, hafa misst alla dómgreind og þurfa með öll- um ráðum að ijármagna neysluna. Morð eru ekki lengur þetta 1 -2 á ári. Samkvæmt opinberum tölum hafa 20 morðmál verið rannsökuð síðustu tíu ár. Skiptingin milli ára er eftirfarandi: ijögur mál 1991, þrjú mál 1992, eitt mál 1993, ekk- ert mál 1994 og 1995, tvö mál bæði 1996 og 1997, ekkert mál 1998, tvö mál 1999 og fimm mál það sem af er þessa árs. I ár hefur þjóðin upplifað dráp sonar á föður sínum að Blá- hvammi nálægt Húsavík, dráp of- stopamanns í Keflavík á vitni í nauðgunarmáli gegn honum, dráp ungs manns sem varpaði ungri stúlku ofan af 10. hæð fjölbýlis- húss við Engihjalia í Kópavogi, dráp drykkjukonu á tæplega fimm- tugum húsráðanda við Leifsgötu og nú síðast dráp lögfræðings á viðskiptafélaga sínum. í desember 1999 myrti síðan dópisti aldraða konu í íjölbýlishúsi við Espigerði í Reykjavík. Lögregla varðist með úðabrúsum En það er ekki bara að fólk er myrt. Tilgangslaust ofbeldi fer ein- nig vaxandi. Urn þessa helgi var ráðist á mann við Ingólfstorg og þegar lögreglumenn komu við- komandi til aðstoðar og handtóku þann óðasta var gerður aðsúgur að lögreglunni, sem varð að beita varnarúða til að forðast líkams- meiðingar. I öðru ofbeldismáli helgarinnar veittu ofstopamenn húsráðanda cinum ávcrka á höfði með kúbeini sem þeir höfðu með- ferðis. Þá voru þrfr menn hand- teknir cftir að hafa ráðist að manni á heimili hans í miðbænum síð- degis á sunnudag. Húsráðandi var fluttur á slysadeild með áverka á hrygg og höfði. Meðal annars var notuð hafnarboltakvlfa við árás- ina. í bíl árásarmanna var síðan óskráð haglabyssa og skotfæri sem var haldlagt. Þegar dagbók lögreglunnar allra síðustu mánuðina er skoðuð sjást mörg dæmi tryllingsins: Dyravörð- ur á veitingastað bitinn í fingur. Tvennt handtekið eftir að það réð- ist að lögreglumönnum sem voru að stöðva handalögmál. Maður lluttur illa skorinn á hálsi á slysa- deild eftir að hafa verið sleginn með bjórflösku á veitingastað í miðborginni. Þrír handteknir eftir að hafa ógnað hússráðendum með Helgi Gunnlaugsson: Á vissan hátt má segja að útlöndin séu komin til íslands og einangrun landsins hafi verið rofin. járnbút. Stúlku hrint utan í ljósa- staur á Laugavegi. Maður skallað- ur í andlitið og laminn með flösku. Maður handtekinn eftir að hafa ógnað fólki með hníf á Lækjar- torgi. Ráðist á ölvaðan og sykur- sjúkan rnann innandyra á Hlemm- torgi. Lögreglumaður við störf í miðborginni bitinn í eyra af manni sem hafði verið færður inn í lög- reglubifreiðina vegna óláta. Ráðist að manni og hann úðaður með gasúða. Þannig mætti áfram telja. Aftur syrtir í álúm „Það er skiljanlegt að það setji ugg að okkur þegar við heyrum af ýms- um óhæfuverkum í kringum okk- ur. íslendingar eru fámenn þjóð og alvarlegir atburðir setja því meira mark á okkur en marga aðra. Og þegar margir slíkir atburðir verða á stuttum tíma er eðlilegt að staldr- að sé \dð og spurt hvað valdi,“ seg- Þórarinn Tyrfingsson: í miðborginni geta um hverja helgi verið nokkrir menn, órólegir af amfetaminneyslu, tortryggnir, síta- landi um ofbeldi og berandi vopn - og al/ur hópurinn verður tortrygg- inn og órólegur. ir Helgi Gunnlaugsson afbrota-fé- lagsfræðingur í samtali við Dag um þessi mál. „Manndrápsmál virðist koma í bylgjum. Við höfum farið í gegnum hrinur af þessu tagi á undanförnum áratugum og feng- ið síðan á milli tímabil með tiltölu- lega fáum málum í jafnvel áravís. Uppúr 1990 gengum við eins og nú í gegnum mörg mál m.a. hið skelfilega ránmorð á bensínstöð hér í Reykjavík. Þá hefði mátt ætla að við væruni að fara inn í um- hverfi þar sem mál af þessu tagi væru að verða árviss. Svo varð þó ekki og í kjölfarið kom tímabil með fáum manndrápsmálum og jafnvel ár þar sem engin mál komu upp, en á síðari hluta áratugarins hefur aftur syrt í álinn." Hclgi segir þrjá síðustu áratugi aldarinnar skera sig þar úr en at- hyglisvert sé að fjöldinn milli þeir- ra þriggja er tiltölulega áþekkur Örn Clausen: Ég hefsagt í mörg ár, að i um 90% tilfella þar sem ég er að verja menn vegna ofbeldisverka hafa þeir framið verknaðinn í dóp- eða áfengisrugli. þcgar tillit hefur verið tekið til manntjöldaþróunar. En hvað veld- ur þessari aukningu á síðari hluta aldarinnar? „Skýringar eru ekki einhlítar en ýmislegt varpar Ijósi á þróunina. Samfélagslegar forsend- ur hafa gerbreyst og umhverfi okk- ar er allt annað og lausbeislaðra en það var fyrr á öldinni. Mikil mann- fjöldaaukning, þéttbýlismyndun, aukin samkeppni og vaxandi óper- sónuleg samskipti m\Tida baksvið þessarar þróunar auk þess sem ljölskyldan hefur átt undir högg að sækja. Samfélagið hefur einnig galopnast gagnvart hinu alþjóðlega umhverfi og erlend áhrif hafa streymt hingað mcð t.d. fíkniefn- um, fjölmiðlum, tísku, klámi og fleiru. A vissan hátt má segja að útlöndin séu komin til Islands og einangrun landsins hafi verið rof- in. Þó megum við ekki gleyma því að tíðni alvarlegra afbrota er enn a.m.k. fátíðari hjá okkur en víðast hvar í Vestur-Evrópu þó einstakir toppar hjá okkur slagi stundum upp í tíðnina í nágrannalöndun- um,“ segir Helgi og bætir við að við megum þó aldrei sætta okkur við mál af þessu tagi og getum gert miklu betur. Örvandi efjiin eru verst Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir á Vogi segir, aðspurður um þátt örvandi fíkniefna í þessari þróun, að rannsóknir og reynsla segi okk- ur að neysla á t.d. kókaíni og am- fetamfni, valdi meira ofbeldi. „Frægt er hvernig blómasumarið í San Francisco breyttist þegar neytendurnir færðu sig yfir í am- fetamín - það reis upp ofbeldisalda og menn sögðu: Speed kills. On'andi efnin eru talin hættuleg- ust hvað þetta varðar, með áfengið skammt undan. Við vitum að am- fetamínfaraldur hefur verið í gangi hér á landi í Iangan tíma. Það kom kippur 1983 og síðan annar veru- lega stór uppúr 1995 þegar tilfell- um á Vogi fjölgaði úr 200 í 400 á fjórum árurn. Um leið er kókaín- vandinn að aukast og í raun þarf engar mannvitsbrekkur til að teng- ja þetta saman við aukið ofbeldi. Þetta er kristaltært." Þórarinn segir að aukið ofbeldi og múgæsingur þurfi ekki að koma á óvart, þótt ekki séu allir á örvan- di lyfjum. „Það er velþekkt í til- raunum með t.d. mýs, að þær eru friðsamar í búrum sínum og eru ekki að áreita hvor aðra. En ef þremur af 10 er gefið amfetamín verður allt vitlaust í búrinu. I mið- borginni geta um hverja helgi ver- ið nokkrir menn, órólegir af am- fetamínneyslu, tortryggnir, sítalan- di um ofbeldi og berandi vopn - og allur hópurinn verður tortrygginn og órólegur. Þetta hefur miklu víð- tækari félagsleg áhrif en menn gera sér grein fyrir,“ segir Þórar- inn. Ofbeldi í dóp- og áfengisrugli Örn Clausen lögfræðingur hefur varið margan ofbeldismanninn í dómssölum. „Eg tel að ástandið fari versnandi og að því sem um að kenna aukinni óreglu, með bæði dóp og áfengi. Ég hef sagt í mörg ár, að í um 90% tilfella þar sem ég er að verja menn vegna ofbeldis- verka hafa þeir framið verknaðinn í dóp- eða áfengisrugli," segir Örn. En hvað er þá að breytast sem eykur ofbeldið? „Þetta er einfald- lega að breytast eftir því sem meira er um „útilíf' á fólki og búllur opna út um hvippinn og hvapp- inn,“ segir Örn.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.