Dagur - 21.11.2000, Side 8
8- ÞRIÐJUDAGUR 21. XÓVEMBER 2000
rD^tr
SMÁTT OG STÓRT
UMSJÓN:
SIGURDÓR
SIGURDÓRSSON
sigurdor@ff.is
Þá sefuxhjá Jóni
Það hendir alþingismenn æði oft að blunda í sætum
sínum undir löngum og leiðinlegum ræðum. Fræg voru
ummæli Guðrúnar Helgadóttur, þegar hún var forseti
Alþingis, um að Friðjón Þórðarson hefði sofið við hlið-
ina á sér í heilan vetur. Þannig var að Friðjón átti það
til að solna í sæti sínu sem ráðherra en hann sat í stól
næstum forsetastólnum. Og það hendir enn að þing-
menn dotti. A dögunum gerðist það að Drífu Hjartar-
dóttur rann í brjóst í sæti sínu en hún situr við hlið
Jóns Bjarnasonar frá Hólum. Guðni Agústsson hnippti
í Drífu og sagði: „Drífa vaknaöu, þú sefur hjá Jóni á
Hólum." Drífa hrökk upp með andfælum og sagði: „Ha,
hvað?“
Guðni Ágústsson.
BUIUORN
„Við höfum þekkst
frá því við genguni
saman í Austur-
bæjarskólann fyrir
allmörgum árum
og hafa þau bönd,
sem þá sköpuðust,
aldrei rofnað þótt
við höfum valið
okkur ólíkar leiðir
í Iífinu."
Björn Bjarnason
menntamálaráð-
herra um Megas í
Mogga.
K u ii ii i hvorugt
Út er komin bókin Kæri kjósandi, gamansögur af íslenskum alþingismönn-
um. Þetta er þriðja bókin með sögum af alþingismönnum en hinar voru
Hæstvirtur forseti og Já, ráðherra. Höfundar eru Guðjón Ingi Eiríksson og
Jón Hjaltason. I bókinni Kæri kjósandi er meðal annars þessi saga af Stefáni
Jónssyni. Sem kunnugt er gekk Stefán við staurfót. Einu sinni sem oftar
þurfti að skipta um gervifót á Stefáni. Hann var svæfður meðan aðgerðin fór
fram enda var hún ekki sársaukalaus með öllu. Þegar svo Stefán vaknaði úr
svæfingunni spurði hann lækninn hvernig til hefði tekist. Læknirinn sagði að
vel hefði til tekist: „Nú getur þú bæði rennt þér á skautum og dansað.“ „Það
er svei mér gott,“ sagði Stefán, „því ég hef hvorugt kunnað til þessa.“
Sterk og veik hein
Hjálmar Freysteinsson, hagyrðingur og læknir sagðist hafa lesið það í Degi á
dögunum að rannsókn hefði Ieitt í ljós að heilbrigðisráðherra, Ingibjörg
Pálmadóttir hefði sterk bein. Þá sagðist hann hafa munað eftir því að Sig-
hvatur Björgvdnsson var alltaf að handleggsbrotna þegar hann gegndi þessu
sama embætti. I tilefni þessa orti Hjálmar.
Við erum öll á grænni grein,
gott er að flestra mati
að lngibjörg er með hetri bein
og brotnar stður en Hvati.
FÍNA OG FRÆGA FOLKIB
Bjart-
sýnn
Travolta
John Travolta ber sig vel þessa dag-
ana þótt gagnrýnendur hafi hakkað
í sig mynd hans Battlefield Earth og
áhorfendur láti ekki sjá sig. Travolta
lætur móttökur ekki draga úr sér
kjark, segir myndina eiga eftir að
verða klassíska og hefur boðað
framhald hennar. Handrit myndar-
innar var skrifað af forstöðumanni
Vísindakirkjunnar sem Travolta til-
heyrir. Einn af örfáum sem borið
hafa Iof á myndina er George Lucas
sem sagði Travolta að myndin væri
frábær. „Dæmigerður kunningja-
dómur'1, segja þeir sem vit hafa á.
Gagnrýnendur vönduðu Travolta ekki
kveðjurnar fyrir Battlefield Earth en
leikarinn vill gera framhaldsmynd.
ÍÞRÓTTIR
k. >
Ársþing FRÍ samþykkir
nýja afrekssteínu
Ársþing Frjálsíþróttasambands
Islands, sem haldið var í Smár-
anum í Kópavogi um helgina,
samþykkti nýja afreksstefnu fyr-
ir sambandið til næstu Ijögurra
ára. Þykir þessi nýja stefna
nokkuð umfangsmildil og metn-
aðarfull og er markmiðið með
henni að vinna til gullverðlauna
á ólympíuleikunum í Aþenu
árið 2004. Að sögn Jónasar Eg-
ilssonar, sem á þinginu var end-
urkjörinn formaður sambands-
ins, er mikill hugur í frjálsí-
þróttafólki og góð samstaða um
þau verkefni og markmið sem
sett voru á þinginu. „Við feng-
um góðan byr í seglin í haust,
sem sýnir að við erum á réttri
braut og nú vilja menn gera enn betur. Ný afreksstefna sem sam-
þykkt var á þinginu, stefnir að þ\'í að vinna til gullverðlauna á næstu
ólympíuleikum og það sýnir að mikill metnaður er í fólki. Við horf-
um til unga fólksins sem hefur verið að ná mjög góðum árangri að
undanförnu og horfum þá helst til þess árangurs sem náðst hefur á
Norðurlandamótum unglinga, en þaðan fáum við raunhæfan saman-
hurð á okkar stöðu. Þar erum við árlega orðin örugg með verðlauna-
sæti, sem er annað en áður var. Við munum í grunninn byggja á þeim
afrekshópum sem við höfum verið með í gangi að undanförnu, eins
og til dæmis Aþenuhópnum, en þó skipta hópunum frekar up]) getu-
lega og færa stjórnunina meira í hendur sambandsins frá aðildarfé-
lögunum. A þinginu var einnig samþykkt að koma á röð stórmóta,
sem fram fari á þeim völlunum þar sem komnar eru hlaupabrautir úr
gerviefni, en þær er að finna á sjö stöðum á landinu, eða f Reykjavík,
Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Laugarvatni, Kópavogi, Borgarnesi og Eg-
ilsstöðum og er þau hluti af þessari nýju afreksstefnu," sagði Jónas.
Á þinginu var samþykkt tillaga um breytingar á félagaskiptareglum
yngri iðkcnda, 14 ára og yngri og getur unga fólkið nú skipt um fé-
lag með viku fyrirvara, í stað þess að vera áður bundið sama félaginu
út almanaksárið.
Meðal lagabreytinga sem samþykktar voru á þingunu, var tillaga
um fækkun stjórnarmanna úr tólf í fimm manna aðalstjórn og voru
þeir Guðmundur Sigurðsson (Reykjavík), Gunnlaugur Karlsson (Sel-
tjarnarnesi), Þorsteinn Þorsteinsson (Reykjavík) og Þórarinn Sveins-
son (Hafnarfirði), allir endurkjörnir ásamt Jónasi formanni. I vara-
stjórn voru kosin þau Dóra Gunnarsdóttir (Fáskrúðsfirði), Birgir
Guðjónsson (Reykjavík), Sigurður Haraldsson (Hafnarfirði), Pétur
Pétursson (Mosfellsbæ)og Jón Þorvaldur Hreiðarsson (Húnavatns-
sýslu).
Fræðslufimdur gegn misnotkun lyfja
Heilbrigðisráð ÍSÍ boðar næstkomandi mánudag, 27. nóvember, til
fræðslufundar um lyfjaeftirlitsmál og er hann ætlaður forystufólki og
stjórnendum íþróttamála hér á landi. Tilefni fundarins er átak sem
ÍSÍ stendur fyrir í nóvembermánuði gegn misnotkun lyfja í íþróttum,
en á vefsíðu ÍSÍ segir að markmið átaksins sé að vekja upp umræðu
um lyfjamisnotkun, sérstaklega meðal íþrótta- og líkamsræktarfólks,
bæði utan sem innan íþróttahreyfingarinnar.
Þar segir einnig. „Á undanförnum misserum hefur átt sér stað
töluverð umræða um misnotkun lyfja £ íþróttum, ekki síst eftir
Ólympíuleikana í Sydney. Því miður virðist notkun ólöglegra lyfja til
að bæta árangur í íþróttum vera staðreynd hér á landi sem annars
staðar.“
Á fundinum verður eftirfarandi spurningum m.a. velt upp: „Hvern-
ig er Iyljaeftirlitsmálum á íslandi háttað? Hvaða lyf eru íslenskir
fþróttamenn helst að misnota? Hver eru helstu vandamálin sem við
er að glíma? Hver er framtíðarsýnin varðandi lyfjamisnotkun í íþrótt-
um?
Allir forystumenn íþróttahreyfingarinnar, sem og annað áhugafólk
um málefnið er hvatt til að mæta á fundinn sem hefst kl. 20:30 í
íþróttamiðstöðinni Laugardal.
Aðstæður góðar fyrir norðan
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli var opnað um helgina og nýttu fjölmargir
sér kærkomið tækifærið og fóru á skíði bæði þar og í Böggviðstaða-
fjalli á Dalvík, en þar var opnað í byrjun síðustu viku. I Hlíðarfjalli
var stólalyftan opin auk þess sem göngubrautir voru troðnar, en næg-
ur snjór er í fjallinu til að hafa stólalyftuna opna og einnig eru góðar
aðstæður í göngubrautinni sem er upplýst.
Dalvíkingar eru búnir að opna neðri lyftuna í Böggviðstaðafjalli, en
stefnt er að því að opna efri lyftuna fljótlega. Á vefsíðu Skíðasam-
bandsins segir að skíðalið Reykjavíkinga hafi verið við æfingar á Dal-
vík um helgina, en alls munu fjórtán skíðamenn að sunnan hafa
stundað þar æfingar um helgina.
Af öðrum skíðasvæðum er það að frétta að Sauðkrækingar munu
ætla að opna sitt svæði fljótlega og hjá Víkingum á Hengilssvæðinu
er stefnt að því að opna um mánaðamótin, en þar er unnið að því að
framleiða snjó í snjóleysinu fyrir sunnan.