Dagur - 16.01.2001, Síða 1
Samnmgamir
raimsakaðir
Launalöggan tekin til
starfa. Samningar
framhalds- og gninn-
skólakennara. Fundað
með ráðherra. Sveitar-
félögin reikna.
Endurskoðunarnefnd aðila
vinnumarkaðarins hefur verið
falið það verkefni að fara ofan í
saumana á kjarasamningi ríkisins
við framhaldsskólakennara. Til-
gangurinn með því er að kanna
hvort ríkið hafi með þeim samn-
ingi farið út fyrir þann Iauna-
ramma sem markaður var í
samningum Flóabandalagsins og
Samtaka atvinnulífsins sl. vor.
Sérfræðingar
Þetta var ákveðið eftir að forystu-
menn heildarsamtaka launafólks
á almennum vinnumarkaði fund-
uðu með fjármálaráðherra og
fulltrúum ráðuneytis og samn-
inganefndar ríkisins í gær. I þess-
ari nefnd eiga sæti þau Rannveig
Sigurðardóttir hagfræðingur ASI,
Ari Skúlason framkvæmdastjóri
ASÍ og þeir Ari Ed-
wald framkvæmda-
stjóri Samtaka at-
vinnulífsins og Hann-
es G. Sigurðsson að-
stoðarframkvæmda-
stjóri.
Búist er við að
nefndin geti jafnvel
lokið rannsókn sinni
á framhaldsskóla-
samningnum í þessari
viku. Nefndin mun
einnig rannsaka
kjarasamning sveitarfélaga við
grunnskólakennara. Hins vegar
er óvíst hvenær sú rannsókn get-
ur hafist vegna erfiðleika við að
fá samninginn frá launanefnd
sveitarfélaga.
Sklptar skoðanir
Halldór Björnsson starfandi for-
seti ASI segist enn vera sömu
skoðunar og áður að samningur
ríkisins við framhaldskólakenn-
ara hefði þanið launarammann
út í ystu æsar og jafnvel farið út
fyrir hann. Hann segir að fund-
urinn með fjármála-
ráðherra hefði ekki
breytt þessari skoðun
sinni og jafnvel þótt
ráðherrann hefði ít-
rekað fyrri ummæli
sfn um að samningur-
inn væri innan þeirra
markaða sem samið
var á almenna mark-
aðnum sl. vor. Hall-
dór segir að þessi mál
muni skýrast þegar
sérfræðingarnir hafa
lokið rannsókn sinni á samn-
ingnum.
Ari Edwald framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins tekur
undir þetta með Halldóri um
nefndarstarfið. Hann telur þó að
yfirgnæfandi líkur séu á því að
samningur ríkisins raski ekki for-
sendum gerðra samninga á al-
mennum vinnumarkaði og hafi
því ekki áhrif á uppsagnarákvæði
samninga.
Styttist í úrslit
Kynning á samningi framhalds-
skólakennara er að ljúka og er
búist við því að atkvæðagreiðsla
um samninginn hefjist í dag,
þriðjudag. Aætlað er að kosning-
in standi yfir í þrjá daga. Gangi
það eftir má búast við að niður-
staða framhaldsskólakennara
verði kunngerð nokkrum dögum
eftir að kosningu lýkur. Hins veg-
ar er ekki gert ráð fyrir því að
kynningu á samningi grunn-
skólakennara verði lokið fyrr en
26. janúar n.k.
Reiknað og reUknað
Grunnskólasamningurinn verður
einnig til umræðu á launamála-
ráðstefnu sveitarfélaga n.k.
föstudag, en hann var lagður
fram á fundi launanefndar sveit-
arfélaga fyrir sl. helgi. Halldór
Halldórsson bæjarstjóri Isafjarð-
arbæjar segir að menn séu þegar
farnir að reikna út hvað samn-
ingurinn felur í sér mikinn
kostnaðarauka fyrir bæjarfélagið.
- GRH
Halldór Björnsson:
Stendur við fyrri orð.
Vatniðí
rénim
Síðdegis í gær rénaði vatn held-
ur í Hraungerðishreppi á Suður-
landi en þar urðu miklir vatna-
vextir í kjölfar þess að klakastífla
myndaðist í Hvítá. Stíflan brast í
gærmorgun og urðu nokkrir
bæir umflotnir vatni í kjölfarið.
Ljóst er að fcöluvert tjón hefur
orðið á jafnt húseignum sem
girðingum.
Skepnur söfnuðust saman og
leituðu á örugg svæði en ekki er
vitað til að þau hafi drepist eða
slys orðið á fólki. Þá varð eitt-
hvað um bilanir á rafmagnslín-
um vegna flóðanna en íbúar í
Hraungerðishreppi eru sam-
mála um að betur hafi farið en á
horfðist. I gær hófst hreinsun á
stórum klakastykkjum af túnum
og vegum enda var víða illfært.
m m >
Eins og sjá má afþessari ioftmynd er gríðariegt vatn að finna á svæðinu þótt það fari heldur rénandi. mynd: gva
Jóhannes Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Neytendasamtak-
anna: Brýnt að grípa til aðgerða.
Kjötmjölið
burt?
Neytendasamtökin hafa sett
fram ýmsar kröfur vegna um-
ræðu um innflutt kjöt frá Irlandi
og kúariðu. Helstu atriði eru að
stjórnvöld tryggi að ekki sé flutt
inn kjöt frá kúariðulöndum. Að
tryggt sé að alltaf komi fram
framleiðsluland vörunnar, á um-
búðum vörunnar eða á áberandi
skilti í verslun og að fylgt verði
fast eftir að fullnægjandi vottorð
fylgi með innfluttum kjötvörum.
Samtökin vilja einnig að tafar-
laust verði bannað hérlendis að
nota kjöt- og beinamjöl í fóður
allra dýra sem ætluð eru til
manneldis og eigi það jafnt við
um jórturdýr sem önnur dýr eins
og svín og fiðurfénað. Minnt er
á að nú liggur fyrir að kúariða
getur borist í svín og þaðan til
manna.
Áhætta lágmörkuð
Þá vilja samtökin að stjórnvöld
sjái um að verksmiðjunni Kjöt-
mjöli ehf. verði lokað. Verk-
smiðjan framleiðir kjöt- og
beinamjöl og vilja Neytenda-
samtökin að þetta verði að
minnsta kosti gert til bráða-
birgða á meðan stjórvöld bæði
hér á landi og í nágrannalönd-
unum kanni betur smitleiðir
kúariðu milli nautgripa og smit-
leiðir frá nautum til annarra
dýra og þaðan til manna. „Eðli-
legt er að stjórnvöld aðstoði fjár-
hagslega við að stöðva þessa
framleiðslu ef með þarf. Ef áð-
urnefnd verksmiðja starfar
áfram, er lágmark að fjarlægðir
verði svo kallaðir há-áhættu-
hlutar (heili, mæna og hluti
meltingarfæra), en þar er
langoftast hægt að finna smit-
vald kúariðunnar, en þetta er
ekki fjarlægt við framleiðslu á
kjöt- og beinamjöli sem fram-
leitt er í dag,“ segja Neytenda-
samtökin. - BÞ