Dagur - 16.01.2001, Side 11

Dagur - 16.01.2001, Side 11
Ðjifpu- ÞRIÐJUDAGV R 16. JANÚAR 2001 - 11 ERLENDAR FRÉTTIR Svangt barn með brúðu í rústunum í þorpinu Comasagua. Tíðir cftirskj álftar torvelda björgim Hörmimgarástand ríkir nú í £1 Salvador eftir stóra jarðskjálftaim sem þar var á laugar- dag. Franscisco Flores, forseti Mið-Am- eríkuríkisins E1 Salvador reyndi í gær að róa þjóð sína og útskýra fyr- ir henni að hinn öflugi jarðskjálfti sem reið ylir landið á laugardag olli vfir 400 dauðsföllum myndi ekki valda keðjuverkandi náttúruham- förum þannig að eldfjöll færu að gjósa eða aðrar hörmungar að dynja yfir. Tíðir eftirskjálftar hafa hins veg- ar valdið því að fólk á erfitt með að halda ró sinni auk þess sem skjálft- amir valda björgunarsveitum tals- verðum vandræðum. Þá þýðir þessi skjálftavirkni að menn treysta sér ekki til að snúa aftír inn í bygging- ar sem gætu verið í hættu hvort sem það eru íbúðarhús eða skrif- stofubyggingar. Það hafa orðið meira en 500 eftirskjálftar frá því að stóri skjálftinn reið yfir á laugar- dag, en sem kunnugt er var hann 7,6 stig á Richterkvarða. Ekki likur á öðruin skjálfta I ávarpi til þjóðarinnar í gær sagði forsetinn að nánast engar líkur væru á því að annar stór skjálfti myndi ríða yfir og var hann þar með að reyna að eyða orðrómi um að eftirskjálftarnir gætu hrundið af stað röð hvers kyns náttúruham- fara sem síðan enduðu í öðrum stórum skjálfta. „Annar skjálfti af þessari stærðargráðu mun ekki verða,“ sagði forsetinn í gær. „Við hvetjum því fólk til að halda ró sinni en hafa hurðir og annað opið á þeint hýbýlum sem þeir eru í ef vera kynni að burðarþol þeirra hafi laskast og húsin byrjuðu að hryn- ja.“ Flest fórnarlömb skjálftans á laugardag bjuggu í úthverfi höfuð- borgarinnar San Salvador, hverfi sem heitir Santa Tecla, en þar gróust um 500 mann undir gríðar- miklu aurflóði sem skall yfir hverf- ið, sem er millistéttarhverfi. Þarna hafa hunduð sjálfboðaliða og björgunarstarfsmanna barist við að moka leðju frá föllnum húsum og reyna að greina hvað er hvað í ótrú- legu samblandi af drullu, tijám, húsarústum og öðru álíka. Ekki hefur þó tekist að bjarga mörgum mönnum úr þessum rústum, þan- nig tókst einungis að bjarga einurn manni á lífi allan sunnudaginn. Það var Sergio Moreno, 22 ára, sem var grafinn upp úr leðjugum rústum eftir að hafa verið grafinn þar í meira en 30 ldukkustundir. Og vonir um að finna fleira fólk á lífi dofna með hverjum klukku- tímanum sem líður og i gær var staðfest að rúmlega 400 manns væru Iátnir, tæplega 800 eru slas- aðir og enn er um 1200 manns saknað. Einangruð þorp Enn eru nokkur þorp einangruð vegna þess að sfmalínur og vegir hafa farið í sundur og ckki hefur tekist að gera við þá enn. Þegar björgunarmenn komasl á þessa staði til að kanna ástandið er búist við að tala látinna muni hækka verulega. Það segir meira cn margt annað að Flores fórseti landsins hefur beðið nágrannaríkið um að- stoð, þar á meðal 3.000 líkkistur. Eitt þessara einangruðu þorpa er þorpið Comasagua, sem er einung- is 28 ldlómetra frá San Salvador, höfuðborginni. Þetta er lítið sam- félag um 80 manna þar sem kaffi- rækt er aðalatvinnuvegurinn. Fréttamaður Reuters flaug þangað í gær með þyrlu frá hernurn og sá þá þorp í algerri rúst. Meira að segja var lítil þvottastöð í miðjum bænum þar sem menn þvo kaffi- baunimar í algerri rúst. Var það þó ekki háreist eða mikil bygging. Nokkrir þeirra sem komust lífs af grátbáðu aðkomumenn um eitt- hvað að borða. Fólkið þarna hefur hvorki vatn né mat. Börnin skortir mjólk, og enginn hefur borðað neitt frá því á laugardaginn. Astandið þarna er talið dæmigert fyrir ástandið í þeim litlu þorpum sem einangrast hafa eftir skjálft- ann. Ætla að hraða samitingiun Leiðtogar tveggja fjölmennustu þjóða Tieims, Kínverja og Indverja, samþykktu f gær að hraða samningaviðræðum um landamæradeilur ríkj- anna. Að fundi sínum loknum sögðu þeir Li Peng, forseti kínverska þingsins, og Atal Behari Vajpayee, forsætisráðherra Indlands, að þeim hefði þegar tekist að gera hluta af deilumálun- um skýrari, en Kínverjar ráða yfir töluverðu landsvæði á Himalajasvæðinu sem Indverjar gera tilkall til og sömuleiðis eru Indverjar með svæði á sínu valdi sem Kínverjar gera tilkall til. Stutt landamærastríð braust út á milli ríkjanna árið 1962. Njósnasveit S.Þ. í Kosovo Sameinuðu þjóðirnar hafa komið sér upp 30 manna njósnasveit sem hefur það hlutverk að herjast gegn skipulagðri glæpastarfsemi í Kosovo. Tilkynning um þetta kom sama dag og Hans Hækkerup, fym'erandi utanríkisráðherra Danmerkur, tók við embætti yfirmanns Sameinuðu þjóðanna í Kosovo af Bernard Kouchner, sem gegnt hef- ur embættinu frá byrjun. Hann segist ætla að leggja meiri áherslu á að halda uppi lögum og reglu í héraðinu. Leita Tommys 1 byrgi Lögreglan í Indónesíu reyndi í gær að brjótast inn í neðanjarðarbyrgi á fyrrverandi landareign Suhartos Indónesíuforseta þar sem grunur lék á að sonur einræðisherrans, Tommy Suharto, léti þar fyrir berast. Tommy hefur verið á flótta frá því í nóvember, en þá hlaut hann 18 mánaða fangelsisdóm fyrir fjársvik. Lögreglan taldi að úr byrginu lægju neðanjarðargöng yfir í a.m.k. átta önnur byrgi í nágrenninu, en lengi hafa verið á kreiki sögusagnir uni að neðanjarðartengingar séu á milli íbúðarhúsá barna Suhartos sem öll búa þar í nágrenninu. Dómstóll fyrir Rauða khmera Þjóðþing Kambódíu samþykkti í gær lög um stofnun sérstaks dóm- stóls sem á að dæma í málum Rauðu khmeranna, sem héldu landinu í ógnargreipum sínum á seinni hluta áttunda áratugarins. Talið er að 1,7 milljónir manna hafi látist í Kambódfu á valdatíma Rauðu kh- meranna, ýmist úr hungri eða sjúkdómum eða verið líflátnir. Lögin voru samþykkt einróma í efri deild þingsins, og sagði ráðherra í rík- isstjórn landsins að einskis yrði Iátið ófreistað til þess að koma leið- togum ógnarstjórnarinnar fyrir dóm. ísraelsmenu fresta enn Eftir að lík ísraelsks landnema fannst fyrir utan gróðurhús hans á Gazasvæðinu í gær frestuðu ísraelsk stjórnvöld frekari samningaviðræðum við Palestínumenn, enda var talið að Palestínu- maður hefði myrt Israelsmanninn. Blóðug átök hafa nú staðið milli Israelsmanna og Palestínu- manna undanfarnar 15 vikur, og á þeim tíma hafa 367 manns látist, þar af 315 Palestínu- menn, 13 ísraelskir arabar, 38 aðrir Israelsmenn og einn þýskur læknir. Ehud Barak, forsætisráð- herra Israels, sagðist í gær engu að síður telja að nú væri besta tækifærið sem gefist hefði í 52 ár, og hugsanlega í 100 ár, til þess að ná friðarsam- komulagi. Viðræður milli leiðtoga Palestínumanna og Israels áttu að hefjast í gær, en var frestað þangað til í dag. FRÁ DEGI TIL DAGS ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 16. dagur ársins, 349 dagar eftir. Sólris kl. 10.52, sólarlag kl. 16.24. Þau fæddust 16. iau. • 1728 Niccolo Paganini, ítalskur fiðlu- snillingur og tónskáld. • 1838 Franz Brentano, þýskur heimspek- ingur. • 1853 Vladimir Sergejevitsj Solovjov, rússneskur heimspekingur. •1911 Eduardo Frei, sem var forseti Chile 1964-70. • 1932 Arni Björnsson þjóðháttafræðing- ur. • 1933 Susan Sontag, bandarískur rithöf- undur. • 1934 Marilyn Horne, bandarísk óperu- söngkona. • 1944 Gunnar Kvaran sellóleikari. Þetta gerðist 16. jau- m •1919 tók áfengisbann gildi í Banda- ríkjunum. • 1947 var opnað talsímasamband milli Islands og Bandaríkjanna. • 1973 kom skuttogarinn Bjarni Benediktsson til Reykjavíkur. • 1979 flýði Mohammed Reza Phlevi Iranskeisari úr landi af ótta við Aya- tollah Khomeini og fylgismenn hans. •1991 hófst Persaflóastríðið. Vísa dagsins Núfymast óðum fundir, vina góð, ífjarlægð skynjast það, sem áður var, á meðan flughratt fennir í þá slóð, sem feginshtigur okkur saman bar. Sigurður Einarsson Ekki skaltu álasa guði fyrir að hafa skapað tígrisdýrið, heldur skaltu þaklca honum fyr- ir að hafa ekki gefið þvf vængi. Indverskt spakmæli Heilahrot Árið 1991 áttaði grískur auðmaður sig á því að hann væri tekinn að eldast. Þá var hann sextugur. Hann ákvað því að láta gamlan draum sinn rætast að fara til Egiptalands að skoða hina ævafornu píramída. Fimm árum síðar stóð þessi gríski auðmaður á egipskri grund og virti fyrir sér hinar fornu byggingar. Þá var árið 1886. Hvernig má það vera? Lausn á síðustu gátu: Kerti. Vefur dagsius Glæpir eru þjóðrélagsmein sem flestir hafa áhyggjur af. A þessum síðum er að finna nolckuð óvenjuleg sjónarhorn á glæpi, sem gætu vakið einhverja til umhugsunar: www.vaguepolitix.com V 4 4 ji .M.'U* 4 4 # A ♦ # 4 f '# 4 é '♦’tím’AÍwfcwÍl 4 Afmælisham dagsins Fyrir réttum hundrað árum fæddist Fulgencio Batista y Zaldivar, sem var tvisvar einræðisherra á Kúbu, fyrst 1933-44 og síðan aftur 1952-59. Sjálf- sagt eru þeir ekki margir sem hugsa hlý- lega til hans á aldarafmælinu, en með öfugsnúnum hætti gæti Fidel Castro þó þakkað honum að hafa verið nægilega mikið fúlmenni til þess að tryggja bvlt- ingunni gegn honum nægilegan stuðn- ing fyrir rúmum fjórum áratugum.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.