Dagur - 16.01.2001, Side 16

Dagur - 16.01.2001, Side 16
16- ÞRIDJUDAGUR 16. JANÚAR 2001 Ljóminnuppi yflrskítnum Leikfélag Reykjavíkur: ÖNDVEGIS- KONUR eftir Werner Schwab. Þýðing: Þor- geir Þorgeir- son. Leikstjórn: Viðar Eggerts- son. Leikmynd og búningar: Snorri Freyr Hilm- arsson. Lýsing: Elfar Bjarnason. Frumsýnt á Litla sviði Borg- arleikhússins 12. janúar. Þetta leikrit er víst ekki fyrir þá sem penpíulegir eru, svo mjög sem orðræða þess snýst um þá líkamsstarfsemi sem menn vilja helst ekki tala um, úrgang manneskjunnar. En komist fólk klakklaust í gegn- um þann skítahaug sem hér segir frá er alveg víst að það muni hafa mikla ánægju af sýningu Öndvegiskvenna. Þetta verk er skarpleg mann- lífskönnun, fullt af gráglettn- um húmor. Úrslitum ræður að sýningin er vönduð, heildarsýn leikstjóra á efniviðinn glögg, markvisst starf hans og ann- arra sem að sýningunni koma gerir hana að minnilegri leik- húsreynslu. Öndvegiskonur eru eftir austurrískan höfund sem skaust eins og eldflaug upp á stjörnuhimininn 1989, skrifaði mörg leikrit á fáum árum en lést hálffertugur á nýársnótt 1994. Um þennan mann, Werner Schwab, er skemmti- leg grein í leikskránni. Ilann átti ótrúlegan feril, frjór og hugkvæmur listamaður sem var haldinn megnri sjálfsfyrir- litningu, brenndi sig upp á besta aldri og lét letra á leg- stein sinn: Hér er gröf ill- mennis. Af greininni verður ráðið að líf þessa höfundar sé fyrirtaks efni í leikrit, sem hann virðist raunar sjálfur hafa samið meir og minna, og má mikið vera ef það verður ekki skrifað von bráðar. Konur á jaðrí samfélagsins Öndvegiskonurnar í leiknum eru þrjár, Erna, Gréta og Mæja, og leikurinn fer fram í eldhúsi Ernu. Þetta eru konur á jaðri samfélagsins, en allar eiga þær vitaskuld sína drauma. Um þá snýst orðræða þeirra. En heimurinn sem þær hrærast í er merktur kald- hæðni, með einhverjum hætti marklaus, líf þeirra blekking. Það er undirfurðulegur for- máli í leiklýsingunni þar sem segir: „í þessu leikriti greinir frá því að jörðin er flöt, að sól- in rennur upp og sólin gengur undir vegna þess að hún snýst um jörðina: þar greinir frá því að ekkert vill koma að gagni, allt er þetta bara til gamans gert.“ Þessi hugsun, tómlát á yfirborði, en angistarfullt stríð við tómið undir niðri, gefur verkinu nærgöngult líf.Erna er á örorkubótum og á fertugan son sem ekki gerir annað en hella í sig brennivíni og fæst ekki til að „maka sig“, Ernu til mikillar raunar. Gréta hefur einhvern tíma verið kynbomba og dreymir enn um íjörugt kyn- líf, og Mæja sem er yngst vinn- ur við að hreinsa skít úr kló- settum fína fólksins - með ber- um höndunum. Bæði Erna og Mæja eru trúaðar, Gréta jarð- bundnari. Leikurinn hefst á sjónvarpsmessu páfans, og það er eftirtektarvert að hinn pólski kaupmaður sem hugur Ernu er mjög bundinn heitir Karl Wottilla, eins og hinn pólski páfl sem nú nefnist Jóhannes Páll annar. Blekkmguniun svipt burt Orðræða leikritsins spinnst áfram á farsakenndum nótum, en snýst áður en lýkur upp í trúarlegan táknleik, eins og það er túlkað hér og virðist rökrétt, því trúarlífið myndar umgjörð um hugsun kvennanna, alþýðu- trúin á Guð sem setur heimin- um skorður. Þetta undirstrikar leikstjórinn með næmlegum hætti, og tónlistarvalið á sýn- ingunni styrkir það mjög. Leik- urinn færir sig áreynslulaust á milli sviða, eftir því sem honum vindur fram, úr stílfærðum nat- úralisma óðar yfir í farsa og loks sýmbólskan helgileik, þeg- ar öllum blekkingum er svift burt og sannleikurinn uppljóm- ast með fyrirsjáanlegum afleið- ingum. Prýðis samleikur Leikkonurnar þrjár skila sínu verki- allar vel í samhengi sýn- ingarinnar og samleikur þeirra er með prýði. Hanna María Karlsdóttir er hin stranga Erna, sniðfastur leikur, nokkuð hrjúf- ur. Margrét Helga Jóhannsdótt- ur leikur kynbombuna Grétu af miklum þrótti, ríkum blæbrigð- um og sterkri líkamstjáningu, en taktarnir raunar kunnugleg- ir hjá leikkonunni. Mest þótti mér til um Sig- rúnu Eddu Björnsdóttur sem Mæju. Hlutverkið er tvímæla- LEIKLIST Dggur Hanna María Karísdóttir er hin stranga Erna, sniðfastur ieikur, nokkuð hrjúfur mynd: ingó laust nýr áfangi á ferli hennar. Hún málaði þessa einföldu sál upp af ótrúlegu öryggi, gerði hana ljóslifandi fyrir augum okkar, í heilagri einfeldni sinni og barnslegum þokka þar sem hún seilist á kaf í skítinn. Loka- atriðið, sem hér verður ekki lýst, varð sterkt í meðförum hennar, upphafið og nær- göngult í senn. Um sviðið eru gefin nokkuð glögg fyrirmæli í texta höfundar, en útfærslur í sýningunni eru smekkvíslegar. Hinn íslenska texta Þorgeirs Þorgeirsonar má lesa í leik- skránni - ásamt „þriðju mynd“ sem ekki er sviðsett hér, og virðist raunar ekki mikils misst við það. Þegar ég hlýddi á og las þýðinguna leiddi ég hugann að því hve miklu skiptir að verulegir íþróttamenn stílsins þýði leiktexta. Þorgeir þýðir orðræður kvennanna á auðugt mál, alþýðlegt og bragðmikið í senn. Annað dæmi af snjallri leikritsþýðingu sem nú er á fjöl- unum er hin gamla þýðing Thors Vilhjálmssonar á Horfðu reiður um öxl í Þjóðleikhúsinu. Leikhúsin verða helst alltaf að geta notið krafta þýðenda af þessari gráðu. Eins og svo mörg á landinu státar Mosfellsbær af fjölmörgum fræknum fþróttamönnum og náðu marg- ir þeirra íslandsmeistaratitli í sinni grein á síðasta ári eins og svo oft áður. Til þess að hvetja ungt fólk til frekari dáða bauð bæjarstjórn Mos- fellsbæjar ungu afreksfólki á sviði íþrótta- og tómstunda- starfs til sérstakrar samkomu í Hlégarði sunnudaginn 14. jan- úar s.l. Þar afhenti Þröstur Karls- son, forseti bæjarstjórnar þessum ungu afreksmönnum og konum bæjarins verðlauna- bikar fyrir frækilegan árangur á síðasta ári. Auk almennra Þröstur Karlsson, forseti bæjarstjórnar afhendir ungum afreksmönnum og konum bæjarins verðlaunabikar fyrir frækilegan árangur. Fjölmenni var við afhendingu viðurkenninganna á sunnudag. flokka s.s. í blaki, handbolta, fótbolta o.s.frv. voru að þessu sinni verðlaunaðir nýir flokk- ar, en það var fyrir smábíl- arallý og skátastarf. Salurinn var þétt skipaður stoltum for- eldrum og systkinum sem og forystumönnum á sviði íþrótta- og tómstundamála bæjarins. Margur verðlauna- hafinn var að fá verðlaun í annað og jafnvel þriðja sinn og er ekki að efa að þetta fram- tak bæjarstjórnar hvetur ungt fólk til frekari dáða og eflir um leið forvarnastarf sem krakk- arnir stuðla fyrst og fremst að sjálf, með því að vera virk í öflugu tómstundastarfi. Nú bíðum við bara spennt eftir að sjá árangur þeirra á þessu ári. - GJONSSON

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.