Dagur - 16.01.2001, Side 19

Dagur - 16.01.2001, Side 19
Hæsta einkuim á doktorsprófi Uugur Akureyringiij ver doktorsritgerd með niikhiiii bravúr í Montpellier í Frakk- landi. Akureyringurinn Sigurður lng- ólfsson, varði nýverið doktorsrit- gerð sína í frönskum nútímabók- menntum \að Paul Valery há- skólann í Montpellier í Frakk- landi. Sigurður skrifaði um ljóð- list Yves Bonnefoy, sem er eitt merkasta núlifandi Ijóðskáld þeirrar þjóðar. Sigurður fékk eftir vörnina, einkunnina „Mcntion trés honorable avec Ies félicitations du jurv á un- animité" sem er hæsta einkunn sem gefin er í Frakklandi við slíka viðburði og útleggst sem ágætiseinkunn, með einróma ham ingjuósku m dómnefndar. Taktu, lestu, taktu TitiIIinn á rit- gerðinni er LIS LE IJVRE : La théologie négali- ve dans la poésie dVves Bonnefoy. Aðaltitillinn er fenginn úr einu af nýjustu Ijóð- um Bonnefoy, en hann fær þessi orð að láni hjá heilögum Agustínusi sem sat eitt sinn ör- væntingarfullur í garði og var að velkjast í vafa um líf sitt og til- veru þegar hann heyrði börn syngja út um glugga „tolle Iege, tolle lege" sem þýðir lauslega : „taktu og lestu, taktu og lestu." Þetta tók hann sem svo að hann ætti að fara heim og lesa í Biblíunni, sem hann og gerði, fletti í henni og lenti á Róm- verjabréfinu, 13:13 „Fram- göngum sóma- samlega eins og á degi, ekki í of- áti né ofdrykkju, ekki í ólifnaði né saurlífi, ekki í þrætu né öf- und, heldur íklæðist drottni Jesú Kristi, og alið ekki önn fyrir holdinu, svo það verði til að æsa girndir." Með þetta ákvað hann að halda sig að orði guðs og hætta allri óráðsíu. Móðir Sigurðar er Steinunn S. Sigurðardóttir, læknafulltrúi á Myndgreiningardeild Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri, dóttir Sigurðar Guðmundssonar, vígslubiskups og Aðalbjargar Halldórsdóttur. Faðir hans er Ingólfur Steinar Ingólfsson, raf- vélavirkjameistari, sonur Ingólfe Benediktssonar, málarameistara frá Dal og Hólmfríðar Björns- dóttur. Kona Sigurðar er Olöf Björk Bragadóttir, myndlistar- kona, en hún Iauk meistara- gráðu í myndlist frá Ecole des beaux-arts í Montpellier vorið 2000 og kennir nú váð Mennta- skólann á Egilsstöðum. Þau eiga tvo svni, Steinar Braga, tíu ára og Sölva Snæ, átta ára. Sigurður starfar nú sem frönsku- og enskukennari við Menntaskól- ann á Egilsstöðum. dr. Sigurður Ingólfsson: Ágætisein- kunn með einróma hamingjuósk- um. íþróttamaður KA valinn Guðjón Valur Sigurðsson, hand- boltamaður í KA og landsliðs- maður, var valinn íþróttamaður KA árið 2000. Guðjón Valur kom til IG\ 1998 Irá Gróttu en hann hefur átt sæti í iillum yngri landsliðunum í handbolta og i landsliði íslands frá 1998. Guð- jón Valur var valinn íþóttamaður Seltjarnarness árið 1999, leik- maður Islandsmótsins 1999 til 2000 og var fyrir skömmu valinn handknattleiksmaður IISI fyrir árið 2000. í 2. sæti varð Vernharð Þor- leifsson, júdómaður, sem er Is- landsmeistari í -100 kg flokki. Vernharð varð m.a. á síðasta ári í 1. sæti á opna sænska mótinu, í 9. sæti á Evrópumótinu og í 9. sæti á opna ungverska mótinu. Vernharð er í 12. sæti á af- rekslista Evrópu. í 3. sæti varð handknattleiks- konan Asdís Sigurðardóttir, leik- maður með unglingaflokki og meistaraflokki KA qg á sæti í yngri landsliðunum Islands sem og A-landsliði Islands. Asdís hefur verið einn besti leikmaður liðs KA/Þórs í 1. deild kvenna í handknattleik. - gg ■■’ r / w % i i ' i|| ps ■*■"**'* k. L: i ;; ■ il M^RtÍ . 1 f t'ÁÍ '»7 -MM k\ \'-'á 0 m 1 !'< Halldór Ingi Kárason, sem tók við viðurkenningu unnustu sinnar, Asdísar Sigurðardóttur, Vernharð Þorleifsson, og At/i Hilmarsson, þjálfari meistaraflokks KA í handknattieik sem tók við verðlaunabikurum Guðjóns Vals sem var sama dag að leika fyrir ísland gegn Norðmönnum á Spáni, og Helga Steinuhn Guðmundsdóttir, formaður KA, sem afhénti iþróttafólkinu sínar viðurkenningar. mynd:gg ». Jón skriíi 4. bindið Bæjarráð Akureyrar samþykkti fyrir helgina að fela bæjarstjóra að ganga frá samningum við Jón Hjaltason söguritara um ritun og útgáfu á 4. bindi af sögu Ak- ureyrar. Jón hefur skrifað og séð um útgáfu af fyrri bindum sög- unnar og kom þriðja bindið út nú fyrir jólin og var tilnefnt til lslensku bókmenntaverðlaun- anna í flokki fræðirita. Ekki „form- bert“ veður Fuglaveðurspá Þorsteins Þor- steinssonar fugla- áhugamanns var gerð sl. laugar- dag, á Hilaríusar- messu. Þar segir m.a. að líkt og í hinni fyrri viku spái fuglar nokkrum umhleypingum og njóði af fleiri en einni átt. „Hrafnar flugu hátt og af at- ferli þeirra mátti sjá að vindinn getur orðið torvelt að temja fyrs- ta kastið, en það gengur yfir og hitatölur rokka til. En þar sem heydoðrur eru horfnar úr bæn- um, má vonandi trevsta því að ekki verði neitt „formbert" veður, en brigðular geta orðið þíðurnar í þorrabyrjun."I fvlgigögnum spárinnar er sagt frá þeim flæk- ingsfuglum sem sáust á fugla- talningardaginn 7. janúar sl. „Hinn hviki fugl, hettusöngvari, er algengur í Evrópu og aðliggj- andi svæðunt í Norðvestur-Afr- íku ogAsíu. Silkitoppan með fal- legadillandi ogklingjandi hljóm- inn kemur frá furuskógum Sí- beríu. Þaðan kemur líka hinn stóri og stéllangi gráþröstur, með gráa gumpinn og hið kæfða ískurhljóð. Vonandi eiga þessir fuglar eftir að þrevja þorrann og góuna, áður en þeir halda heim á leið til varpsstöðvanna." Þorsteinn Þorsteinsson. Tíu nemendur um hverja tölvu Skúlanefnd Akureyrarbæjar hefur samþykkt að ganga að kaup- leigutilboði til þriggja ára frá Ný- herja á 96 tölvum fyrir grunn- og leikskóla af gerðinni IBM NET- VISTA A20. Tilboðið frá Nýherja var taliö það hagstæðasta sem völ var á en það hljóðar upp á 10 milljónir króna. Bæjarráð sam- þykkti kaupin I I. janúar sl. Önnur tilboð voru frá Tækni- vali, Pcnnanum - Bókvali og Mekka. Einnig lá fyrir greinar- gerð og samanburður af þessum tilboðum sem unnin var af Hjör- leifi Hjálmarssyni, fagráögjafa í tölvu- og upplýsingamennt á skóladeild Akureyrarbæjar. 14 af tölvunum 96 fara í leikskólana, og 23 fara í nýtt tölvuver sem ver- ið er að koma upp í Giljaskóla. Að sögn Gunnars Gíslasonar, skóla- fulltrúa, skiptast hinar tölvurnar nokkuð jafnt milli annarra grunnskóla á Akureyri, þó sýnu minnst til Oddeyrarskóla, enda minnsti skólinn. Eftir að þessar tölvur hafa verið teknar í gagnið verða um 10 nemendur um hver- ja tölvu í grunnskólum Akureyr- arbæjar. Næsti tölvukaup verða líklega í lok ágústmánaðar, en 3 I. ágúst nk. rcnnur út fyrsti kaup- leigusámningurinn sem gerður var, en það voru 42 tölvur, og lík- lega verður þeim tölvum skipt tit fyrir sania fjölda í nýjum kaup- leigusamningi þannig að tölvurn- ar í heild sinni svari sem mest nú- tímakröfum á hverjum tíma. I marsmánuði nk. verður lögð fyrir skólanefnd Akureyrarbæjaer 3ja ára áætlun um tölvuvæðingu. - GG Eldur kom upp i gámi í miðbæ Akureyrar i gær. Slökkviliðið réð niðurlögum eldsins án mikilla vandræða.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.