Dagur - 03.03.2001, Page 1

Dagur - 03.03.2001, Page 1
Arekstur Veður- stofu og hersíns Einstætt atvik þegax heræfing Bandaríkja- manna var tekin fram yfir háloftaveðurmæl- ingar á Keflavíkur- flugvelli. Frostrign- ing og ísing þennan dag gera málið enn al- varlegra. Boðskipta- vandamál segir upp- lýsingafulltrúi. Mikilvægar veðurathuganir féllu niður á Keflavíkurflugvelli í fyrradag þegar bandaríski herinn meinaði íslenskum veðurathug- unarmönnum að sinna lög- bundnu öryggishlutverki sínu í háloftamælingum. Yfirmaður á Veðurstofu Islands segir málið alvarlegt og hefur veðurstofu- stjóri sent formlega kvörtun til varnarliðsins. Heræfmgin spiHti Tvisvar á sólarhing eru sendir upp belgir frá Keflavíkurflugvelli og er tilgangur þess að kanna sviptivinda og fleira tengt veður- fræði í háloftunum. Mælingar þessar þykja sérlega mikilvægar - ekki bara fyrir ísland heldur heims- byggðina alla - enda um hlekk alþjóðlegri veðrakeðju að ræða. Þegar ís- Iensku veð- urathugun- armennirnir hugðust sleppa belgjunum í hádeginu í fyrradag, bar hins vegar svo við að bandaríski herinn meinaði þeim um það og urðu þeir frá að hverfa. Astæðan var yfirstand- andi heræfing. Einstætt tilvik Torfi Karl Antonsson sér um samskiptin við Keflavíkurflugvöll fyrir Veðurstofu íslands. Hann segir atvikið einstætt. „Eg get staðfest að mönnunum var meinaður aðgangur að því hús- næði sem við verðum að nota við þessar mælingar og þetta er litið alvarlegum augum. Mælingarnar eru á vegum Alþjóða flugmála- stofnunar- innar og það er slæmt að þær falli niður. Sér- staklega eins og veðrið var þennan dag þ.e.a.s. frostrigning og ísing. Það er baga- legt að þetta skyldi hafa komið fyrir. Við erum að tala um mjög mikilvægt öryggistæki," segir Torfi Karl. Að sögn hans er ekki vitað til að æfingar hersins og veðurat- huganir hafi áður skarast með þessum hætti. Strangt til tekið hafði herinn enga heimild til að grípa frammi' fyrir mælinga- mönnunum og hefur Veðurstof- an ákveðið að bregðast við atvik- inu. „Ég veit ekki annað en að veðurstofustjóri hafi haft sam- band við þá þarna suður frá og komið formlegum athugasemd- um á framfæri," segir Torfi Karl. „Það er raunverulega verið að grípa frammí fyrir okkar lög- bundna eftirlitshlutverki." Boðsklptavandamál Friðþór Eydal upplýsingafulltrúi varnarliðsins hafði ekki heyrt um málið þegar blaðið bar þetta undir hann í gær. Hann sagði það þó rétt að reglubundnar her- æfingar hafi farið fram undan- farna daga og liður í þeim æfing- um væri að loka af það svæði þar sem verðurmælingarnar fara fram. Engum væri hleypt um svæðið nema með sérstöku leyfi og svo virtist sem varðmenn á svæðinu hafi af einhverjum ástæðum ekki fengið boð um að hleypa Veðurstofunni um svæð- ið. Slfk boðskiptavandamál kæmu því miður annað slagið upp. Þetta mál yrði eflaust kann- að og yfir það farið þégar menn gerðu upp þessa æfingu. Dagur náði ekki í veðurstofu- stjóra vegna málsins í gær. — BÞ MiMI and- staða við Bjöm Andstæðingar Björns Bjarnasonar menntamála- ráðherra voru duglegir við að greiöa atkvæði um spurningu Dags á Netinu. Dagur spurði: A Björn Bjarna- son að verða borgarstjórnaefni Sjálfstæðisflokksins? 5.334 grei- ddu atkvæði. Þar af sögðu 69% nei, en 31 % voru fylgjandi því að Bjöm tæki forystuhlutverkið að sér. Nú er hægt að greiða atkvæði um nýja spurningu Dags á Net- inu, svohljóðandi: Sigrar Guðni Agústsson í varaformannskjöri framsóknar? Slóðin er sem lyrr visir.is vísir.is Hreinsunarstarf stáð víða yfir í Kringlunni í gær og þurfti m.a. að fægja þessa foriáta diska sem Reykjavíkurmærin handleikur. Hún tók störfum sínum með jafnaðargeði og bara brosti framan í heiminn þrátt fyrir brunann í fyrra- dag. - mynd: þúk Stuðningur fékkekki byr Stuðningsyfirlýsing við Ingu Jónu Þórðardóttur, sem kynnt var óformlega í borgarstjórnar- flokki sjálfstæðismanna sl. mið- vikudag, fékkst ekki samþykkt þannig að hún yrði birt. Þó mun hópur borgarfulltrúa hafa undir- ritað stuðningsyfirlýsinguna. Aðrir hafa hafnað sh'kri yfirlýs- ingu og borið því við að þetta væri ekki tímabær aðgerð. Eftir því sem næst verður komist mun Guðlaugur Þór Þórðarson hafa talað fyrir þessari yfirlýsingu og hafði ætlað að nota hana til „að bakka sig út úr yfirlýsingum um að hann væri tilbúinn að axla leiðtogahlutverkið ef Inga Jóna væri á útleið“ eins og það var orðað af einum viðmælanda blaðsins - og líka vegna stífs hernaðar sem stuðningsmenn hans héldu uppi honum til handa þegar á einum netmiðl- anna var spurt hvert væri næsta borgarstjóraefni flokksins. Þessi tvö atriði meðal annars kveiktu mikið bál meðal borgarfulltrúa sjálfstæðismanna í Reykjavík sent flestum þóttu aðferðir Guð- laugs óviðeigandi. Áfall? Tillagan var þó aldrei tekin form- lega á dagskrá fundarins og er niðurstaðan túlkuð nokkuð mis- jafnlega af sjálfstæðismönnum og borgarfulltrúum sem Dagur ræddi við í gær. Sumir telja hana mikið áfall fy'rir leiötogann á meðan aðrir telja þetta ekki veik- leikamerki. Þannig henda stuðningsmenn lngu Jónu í borgarstjórnarflokknum á að margir hafi viljað styðja hana og mótbórurnar hafi fýrst og fremst verið á þeim forsendum að þetta væri ekki rétta leiðin til þess að sty'ðja leiðtogann. Þeir sem gagnrýnni eru á störf Ingu Jónu segja það í sjálfu sér áfall fyrir hana að ályktun af þessu tagi hafi ekki flogið í gegn. — SBS Ásmimdar- staðabræður berjast bls. 26 Leiguvél Flugleiða í kröppum dansi bls. 29 Frumkvöðla- setur stofnað bls. 32 33

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.