Dagur - 03.03.2001, Blaðsíða 10
34 - LAUGARDAGVR 3. MARS 200 1
ÞJÓÐMÁL
Giit- og klaufaveiM
SKilJKÐlJK
SIGURÐAR-
SON
DÝRALÆKNIR KELDUM
SKRIFAR
Gin- og klaufaveiki hefur vaidið
gífurlegu tjóni víða um heim öld-
um saman og nú geisar hún um
Bretlandseyjar. I sumum Iöndum
er veikin staðbundin. Þaðan getur
hún borist öðru hverju og hleypt af
stað nýjum faraldri en takist að
hefta útbreiðslu. geta iiðið nokkur
ár þar til veikinnar verður vart á
ný. Þannig hefur hún hagað sér í
Evrópu oftast nær. Veikin er þekkt
í mörgum Asíulöndum, víða um
Afríku og Suður-Ameríku en hefur
aldrei horist til Islands svo vitað sé.
Menn óttast nú aö hún geti borist
til landsins með fólki eða varningi,
sem hefur mengast, með dýraaf-
urðum eða dýrum. Það væri gífur-
legt áfall. Heitið er á alla að vera á
varðbergi og láta vita um það sem
máli skiptir.
Áskorun
Islendingar sem ferðast á næst-
unni til Stóra-Bretlands eru beðn-
ir um að viðhafa sérstaka varúð,
foröast að fara um landbúnaðar-
svæði og alls ekki heim á bónda-
bæi, hafa með sér hrein föt í plast-
poka til heimferðar en setja í plast-
poka fýrir heimferð fötin sem not-
uð voru. Við komu til íslands aftur
er öruggast að taka alls engin mat-
væli með sér og setja í þvott og
sótthreinsun fyrir notkun á Islandi
ferðafatnað og skófatnað. Strangt
bann er við því að hafa með sér til
landsins hvers konar hrá matvæli.
Þeir, sem hafa nú þegar farið um
Iandbúnaðarsvæði á Stóra-Bret-
landi eftir að veikin koni upp,
þurfa að leita upplýsinga hjá emb-
ættisdýralækni og koma ekki ná-
lægt dýrum (klaufdýrum) hér á
landi í a.m.k. fimm daga eftir kom-
una.
Um veikina
Gin- og klaufaveiki er bráðsmit-
andi veirusjúkdómur. Orsökin er
apthoveira af picornaflokki. Hún
er skæð en ekki bráðdrepandi. Al-
gengt er 5% drep-
ist, aðallega ung-
viði. Stundum er
dánartalan mun
hærri og nær
jafnvel 50% þeg-
ar verst gegnir. Að
jafnaði valda
(ýigikvillar mestu
tjóni og gera gin-
og klaufaveiki að
einum versta og
skaðlegasta sjúk-
dómí, sem þeldí-
ist. Af veirunni
eru margir stofn-
ar. Gripur sem
veildst af einum
stofni verður
ónairtiur fyrir
honum en ekki
öðrum og getur
því veikst síðar af öðrum stofni.
Svipað er með bólusetningu, sem
er dýr og gefur vörn í aðeins hálft
til eitt ár. Því er aðeins bólusett þar
sem veikin er landlæg. Allt kapp er
lagt á að uppræta veikina þar sem
þess er nokkur kostur og verjast
því að hún bérist til landa þar sem
hún er óþekkt. Dýr sem sýkjast eru
fyrst og fremst klaufdýr svo sem:
nautgripir, kindur, svín og geitur,
villt klaufdýr (hreindýr) en einnig
rottur. Tekist hefur að sýkja vmis
tilraunadýr. Þau munu þó ekki
veikjast af sjálfsdáðum en geta
e.t.v. borið með sér smitefnið.
Ekki má blanda þessari vciki sam-
an við mannasjúkdóm með sama
enska nafni.
Smitleiðir
Smitefnið dreifist auðveldlega
með lifandi dýrum og afurðum
þeirra, mjólk, jafnvel gerilsneyddri
og með ósoðnu kjöti bæði fersku
og frosnu og með unnum vörum,
sem ekki hafa fengið næga hita-
meðferð. Smit getur borist með
fólki og fatnaði - einkum skófatn-
aði, fóðri og fóðurumbúðum,
gripaflutningstækjum, með dekkj-
um bíla og hverju því sem mengast
hefur. Smithætta er því veruleg
samfara heimsóknum í héruð þar
sem sjúkdómurinn hefur komið
upp, en einnig getur verið hætta á
smiti í þeim héruðum þar 'sem
sjúkdómurinn hefur ekki enn ver-
ið greindur, því að smituð dýr skil-
ja út veiruna seni veldur sjúk-
dómnum áður en þau veikjast.
Veiran hefur fundist í mjólk og
sæði 4 dögum áður en einkenna
varð vart. Þegar sjúkdómurinn er í
hápunkti er veiran í blóði og öllum
vefjum líkamans. Gripir, sem lifað
hafa af veikina geta stöku sinnum
verið smitberar mánuðum saman
eftir að þeir eru orðnir heilbrigðir.
Hiti sólarljós og sótthreinsiefni
eyða veirunni en kuldi og myrkur
halda í henni lífi. Við hagstæð skil-
vrði getur hún lifað Iengi utan lík-
ama dýra, frá fáum dögum og allt
að hálfu ári. Smit veröur með úða
eða rykkornum um öndunarveg
eða þá um meltingarveg. Einstök
dýr, sem lifað hafa af veikina geta
hýst smitefnið þar til þau devja
eðlilegum dauða. I stöku tilfellum
geta spörfuglar og jafnvel vindur
borið smit milli
bæja. Varla þarf
að óttast, að far-
fuglarnir beri
með sér smitefn-
ið til Islands.
Einkeiuii
Venjulega véikj-
ast öll klaufdýr á
bænum. Ein-
stöku skepnur
geta þó fengið
veikina án þess
að sýna sjúkleg
einkenni, Mikil-
vægt er að stað-
festa sjúkdóminn
sem allra fyrst,
svo verjast megi
frékari út-
breiðslu. Bvrjun-
areinkenni í nautgripum eftir 2ja
til 14 daga meðgöngutíma eru hár-
hiti (40.5-41°C), lystarlevsi, devfð
stirðleiki í hrevfingum. Blöðrur
myndast í munni og á fótum milli
klaufna og við klaufhvarf og oft á
spenum, froðukenndir slefutaum-
ar fara frá munni. Mjólkurkýr
geldast og horast niður. Blöðrurn-
ar springa, þá myndast sár, sem vf-
irleitt hafast illa við með ígerðum
og blóðeitrun. Ymsir aðrir fylgi-
kvillar sjást og geta einnig valdið
miklu tjóni svo sem fósturlát,
hjartasjúkdómar, bólgur í legi og
meltingarvegi. Hjá svínum ber
mest á deyfð og lystarleysi, krömp-
um, skyndilegri helti, legum og
tregðu til hreyfinga. Blöðrur sjást
oft á trýni. Hjá sauðfé ber mest á
Ivstarleysi og helti. Kindurnar
standa í kryppu og tregðast við að
hreyfa sig, blöðrur eru milli klaufa
og á klaufhvarfi og síðar ígerðir
eftir að blöðrurnar hafa sprungið,
blöðrur sjást ekki alltaf í munni en
finnast þá á bitgómi og stundum á
tungu. Veikin leggst vægar á sauð-
te en nautgripi og svín. Hjá hrein-
dýrum eru einkennin yfirleitt væg.
Dýrin slefa. Vökvablöðrur finnast í
munni en ekki eða sjaldan um
klaufir. Villt klaufdýr eru þýðingar-
miklir smitberar í sumumlöndum.
Aðgerðir
Menn eru hvattir til að lýlgjast
með gripum sínum reglulega með
áðurnefnd einkenni í huga, Til-
kynna skal embættisdýralækni eða
yfirdýralækni strax um grunsamleg
einkenni. Metið þá, hvort ástæða
sé til að dýralæknir komi þegar í
stað til að rannsaka málið án
kostnaðar fyrir eiganda. Ef grunur
um gin- og klaufaveiki er eindreg-
inn skal eigandi stöðva alla umferð
og flutning að og frá bænum uns
dýralæknir kemur og leggur mat á
stöðuna. Ef grunur er staðfestur er
öllum skepnum á sýktum býlum
og þeim skepnum, sem sennilegt
er að orðið hafi fyrir smiti lógað og
þær eru settar í gröf með húð og
hári og brenndar í gröfinni. Sam-
göngur viö sýkta bæi eru stöðvaðar
og hömlur lagðar á ferðir fólks og
llutning dýra á svæði umhverfis
hinn sýkta stað. Síðan er sótt-
hreinsað rækilega, hús, hlöður,
haugkjallarar og umhverfi auk-
tækja og annars búnaðar. Oftast
hefur verið notuð 1% upplausn af
vítissóda í vatni. Mildari efni en
jafnvirk eru nú fáanleg t.d. Virkon
S. sem hefur verið til sölu hér.
Veiran drepst fljótt en nokkrir
mánuðir eru Iátnir líða áður en
gripir eru fluttir inn í húsin á ný,
fáir í fyrstu til að láta reyna á
hvort smitinu hafi verið útrýmt.
Breytingar í rflásstjóm
Margt hefur verið skeggrætt
undanfarið um hugsanlega
breytingu á ríkisstjórninni. Rit-
stjóri Pressunnar hefur gengið
svo langt að lofa að éta hattinn
sinn ef kenningar hans ganga
ekki eftir. Ekki ætla ég að draga
hann að landi, þó ég taki undir
kenninguna um brotthvarf Dav-
íðs Oddssonar úr ríkisstjórn.
Kenning Hrafns Jökulssonar er
nefnilega ekki eins fjarstæðu-
kennd og ætla mætti við fyrstu
sýn. Fari svo að Davíð hætti, þá
mun margt fara á flot í íslenskri
pólitík og ætla ég í þessari grein
að leiða líkum að því hver verði
næsti forsætisráðherra.
Áður útgefnar yfirlýsmgar
Við myndun ríkisstjórnarinnar
1999 var m.a. bryddað upp á
þeirri nýjung að varaformenn
flokkanna mynduðu stjórnina.
Einnig var það gefið út að breyt-
ingar vrðu gerðar á ríkisstjórn-
inni um mitt kjörtímabil. Þótti
mörgum „Kremlarfræðingum"
það ótvírætt bera merki þess að
formenn stjórnarflokkanna væru
báðir á útleið úr stjórnmálum og
að varaformennirnir ættu að
taka við. Sú kenning á nú ekki
lengur við um Framsóknarflokk-
inn, en er hins vegar í fullu gildi
hvað varðar Sjálfstæðisflokkinn
og í fullu samræmi við yfirlýsing-
ar forsætisráðherra þess efnis að
hann ætli ekki að verða ellidauð-
ur í pólitík. Fyrir formann Sjálf-
stæðisflokksins sem einu sinni
hefur yfirgefið skip sitt með
mjög afdrifaríkum afleiðingum
skiptir miklu máli að hverfa á
braut með yfirveguðum hætti og
lágmarka þannig það tómarúm
sem getur myndast þegar öflug-
ur leiðtogi hverfur á braut. Rétt
tímasetning fyrir slíka ákvörðun
er því mjög mikilvæg til þess að
nýr foringi fái ráðrúm og tfma til
þess að styrkja stöðu sfna og
undirbúa flokkinn fyrir næstu
kosningar. Slík tímasetning er
því annaðhvort núna eða ekki
fvrr en eftir næstu kosningar
2003.
Goggunaröðin
En ekki er sopið kálið þó í aus-
una sé komið. Nýr formaður á
erfitt með að styrkja stöðu sína
ef hann kemur að því borði sem
nú er fullskipað. Davíð og Hall-
dór hafa setið við ríkisstjórnar-
borðið síðan 1995 og ráðið því
sem þeir vilja og því er það úti-
lokað fyrir nýjan formann að
koma að því óbreyttu nema hafa
til þess öflugan stuðning sam-
ráðherra sinna. Hinn útvaldi
En hvað segir Fram-
s okiiarílokk u ri iiii við
])ví? Er hann tilhúinn
að láta Sjálfstæðis-
flnkkimi fá sjö ráð-
herrastóla á móti
fimm hjá þeim?
Svarið er já!
erfðaprins Davíðs er alveg örugg-
lega ekki óskakandidat þeirra
sem kannski sáu sjálfan sig í
sömu sporum. Til þess að styrkja
hinn nýja formann í sessi þurfa
fleiri en forætisráðherra að víkja.
Forsætisráðherrann þarf því að
taka sterkasta eða sterkustu for-
mannsefnin á eftir arftakanum
með sér útúr ríkisstjórninni til
þess að skapa svigrúm fyrir nýjan
foringja. Hinn stóri þingflokkur
Sjálfstæðisflokksins er líka með
marga innanborðs sem sækjast
eftir því að verða ráðherrar og
því myndi það verulega stvrkja
nýjan formann í sessi ef hann
fengi strax svigrúm til þess að
koma með „sína menn" með sér
inn. Ekki væri nú verra að ná
svona eins og einum ráðherra-
stól af framsókn til þess leggja
enn betur í púkkið með foringj-
anum nýja.
Fækka ráðhemun
hjá framsnknl?
En hvað segir Framsóknarflokk-
urinn við því? Er hann tilbúinn
að láta Sjálfstæðisflokkinn fá sjö
ráðherrastóla á móti fimm hjá
þeim? Svarið er já! I ljósi reynsl-
unnar kemur í Ijós að for-
mennska í stjórnmálaflokki og
embætti utanríkisráðherra fer
ekki vel saman. Alþýðuflokkur-
inn lenti í þessu með Jón Bald-
vin og Framsóknarflokkurinn nú
með Halldór. Vandinn er ekki sá
að erfitt sé að ná í menn í síma
eða þeir séu svo lengi í förum
milli landa, heldur það að utan-
ríkisráðherrann er að fjalla um
mál sem snerta almenning með
óbeinni hætti en ráðherrar ann-
arra málaflokka. Það er megin-
skýringin auk þess sem utanrík-
isráðherrann er meira í öðrum
kreðsum en þeim sem ræður at-
burðarásinni á Islandi. Annar
vandi Framsóknarflokksins er sá
að helmingurinn af þingflokkn-
um er í ríkisstjórn þannig að
vinnuálag í nefndum á aðra
þingmenn er of mikið. Staðan
verður sú að þingmennirnir eru
svo uppteknir í vinnunni að þeir
hafa ekki tíma til að vera í póli-
tík. Það er því ekki slæmur kost-
ur fyrir Framsóknarflokkinn að
gefa eftir eitt ráðherrasæti til
Sjálfstæðisflokksins á móti því
að Halldór Ásgrímsson verði for-
sætisráðherra. Með þessu leys-
ast vandamál beggja flokkanna.
Stóri flokkurinn fær fleiri ráðu-
neyti og léttir þannig á þrýstingi
frá forystumönnum kjördæma
sem telja sig eiga rétt á ráðherra-
stólum og minni flokkurinn létt-
ir á vinnuálagi þingmanna auk
þess sem hann tekur forystu í
ríkisstjórn. Það væri hægt að
halda áfram og raða nöfnum í og
úr ráðherrastólum, en ég læt það
ógert. Einnig má Ieiða hugann
að því hvort þessi atburðarás
tengist borgarstjórnarkosningum
eftir rúmt ár, en það er frekar
efni í aðra grein. Meginmálið er
að báðir stjórnarflokkarnir ná
með þessu að styrkja stöðu sína
til framtíðar. Sjálfstæðisflokkur-
inn með nýjan formann og
Framsóknarflokkurinn tekur aft-
ur forystu f ríkisstjórn eftir alltof
langt hlé.