Dagur - 03.03.2001, Síða 11
D^ur
LAUGARDAGVR 3. MARS 2001 - 35
ERLENDAR FRÉTTIR
Eyðileggmgm
erhafiii
Þetta 1600 ára gamla Búddalíkneski er 53 metra hátt, en Afganir byrjuðu
að skjóta á það í gær með fallbyssum og sprengjuvörpum.
Talibanastjómin í
Afganistan lætur al-
þjóðleg mótmæli sem
vind um eyran þjóta
og er þegar byrjnð að
eyðileggja allar stytt-
ur í landinu.
Þvert ofan í alþjóðleg mótmæli,
meðal annars frá öðrum
múslimaríkjum, sagðist Tali-
banastjórnin í Afganistan í gær
vera byrjuð á því viðamikla verk-
efni að eyðileggja allar mynda-
styttur sem fyrirfinnast í land-
inu. Þar eru ekki undanskildar
ævaforn menningarverðmæti á
borð við Búddalíkneskin tvö í
Bamiyan, sem eru meira en 38
og 53 metra há og höggvin í
gegnheila kletta. Allar styttur í
þjóðminjasafni Afganistans í
Kabúl fara sömu leið, og versl-
unareigendur í landinu fengu
jafnframt þá skipun að eyði-
leggja allar styttur sem þeir væru
með í fórum sínum.
Mullah Mohammad Omar,
æðsti leiðtogi Talibana í
Afganistan, kemur ekki auga á
neitt æðra gildi þessara ævafor-
nu menningarverðmæta.- Hann
og félagar hans sjá ekki að um
neitt annað en „skurðgoð" sé að
ræða, og hika því ekki við að
eyðileggja þessi líkncski til þess
að koma í veg fyrir alla skurð-
goðadýrkun, enda banna íslömsk
lög allt slíkt.
Töluverðu magni sprengiefna
var safnað saman við stóru stytt-
urnar tvær í Bamiyan, og sögð-
ust Talibanarnir þegar vera byrj-
aðir að skjóta á þær með fall-
byssum og sprengivörpum.
Sprengiefni var einnig komið
fyrir undir styttunum til þess að
auðvelda eyðilegginguna.
Reutersfréttastofan skýrði frá
því í gær að almenningur í
Afganistan sé ósáttur við þessar
framkvæmdir, og það cigi líka við
um suma embættismenn Tali-
banastjórnarinnar.
Talibanastjórnin hefur ekki
aðeins bannað styttur, heldur
eru Ijósmyndir einnig bannaðar
og sjónvarp sömuleiðis. Þetta
bann gildir á öllu því svæði sem
Talibanastjórnin ræður yfir, en
það er um það bil 90% af Iand-
inu.
Talibanastjórnin nýtur einung-
is viðurkenningar þriggja ríkja í
heiminum, en það er Pakistan,
Sádi-Arabía og Sameinuðu arab-
ísku furstadæmin.
Ljóst er að styttubannið verð-
ur ekki til þess að bæta álit um-
heimsins á stjórnvöldum í
Afganistan, en nú síðast íjanúar
lögðu Sameinuðu þjóðirnar nýj-
ar refsiaðgerðir á landið f\rrir að
reka þjálfunarbúðir hryðjuverka-
manna og hafa skotið skjólshúsi
vfir hinn eftirlýsta hrvðjuverka-
mann Osama bin Laden.
Fjölmargar ríkisstjórnir bæði
vestrænna landa og íslamskra
landa fordæmdu í vikunni þessar
umdeildu aðgerðir Talibana-
stjórnarinnar og hvöttu þá til
þess að hætta við að eyðileggja
ómetanleg menningarverðmæti,
að ógleymdum þeim löndum þar
sem búa fjölménnir hópar
búddista, svo sem Taíland, Sri
Lanka og Nepal.
Indverska stjórnin bauðst jafn-
vel til þess að taka að sér umsjón
stóru Iíkneskjanna í Bamiyan.
Múslimar cru einnig fjarri því að
vera á einu máli um að aðgerðir
Talibanastjórnarinnar séu rétt-
mætar, og héldu lærðir múslim-
ar því fram að þær séu andstæð-
ar íslamskri trú, þar sem hún feli
í sér virðingu lyrir öðrum menn-
ingarheimum.
9BI
Nýr vamarmálaráðherra
TEL AVIV - Verkamannaflokkurinn í ísr-
ael hefur útnefnt fyrrum hershöfðingja,
Binyamin Ben-Eliezer, sem varnarmála-
ráðherra í nýrri þjóðstjórn. Um leið og út-
nefningin varð ljós kom hann fram og
hvatti Palestínumenn til að halda ró
sinni, hætta ofbeldi og snúa sér að samn-
ingaviðræðum á ný. Ben-Eliezer er fædd-
ur í Irak og er 65 ára gamall. Hann varð
með sannfærandi hætti hlutskarpastur
þeirra sem komu til greina f þetta emb-
ætti en valið var um menn í miðstjórn
flokksins. I samtölum við fréttamenn eft-
ir að útnefndingin lá fyrir sagði hann að
áherslur sínar beindust að því að tryggja
öry'ggi Israels á ný gegn þeirri ógn sem stafar af uppreisn Palestfnu-
manna og besta leiðin í þeim efnum væri að taka upp viðræður og
láta af gagnkvæmum drápum.
Dolly í klóm gin- og klaufaveiM
LONDON - Einhver frægasta kind mannkynssögunnar, Dolly sem
var einræktuð um árið, er ásamt fjölda annarra klaufdýra komin í
sóttkví vegna sívaxandi útbreiðslu gin- og klaufaveikinnar. Veikin er
að verða alger martröð fy'rir evrópskan landbúnað og hún breiðist
stöðug út til nýrra staða. í gær var tilkynnt um enn fleiri tilfelli þar
sem veikin hafði uppgötvast f Bretlandi en á sama tíma reyna þjóðir
Asíu og Bandaríkjanna að herða mjög allar umgengnisreglur við
Bretland, þar sem veikin er útbreiddust. Forsmekkurinn af pólitísk-
um deilum vegna málsins fékkst í gær þegar Tony Blair forsætisráð-
herra Breta hundskammaði verslunarkeðjur fyrir að þröngva bænd-
um til að selja kjöt á svo lágu verði að þeir nevddust til að fórna ýms-
um gæða- og eftirlitsstöðlum til þess eins að geta tekið þátt í sam-
keppninni.
Binyamin Ben-Eliezer.
Bandaríki Afríku
SIRTE, Libyu - Leiðtogar Afríkuríkja sem
hittust á fundi í Líbýu í gær samþykktu
mikla ályktun um nauðsyn þess að stofna
Bandaríki Afríku, en diplómatar þessara
sömu ríkja sögðu að þessi yfirlýsing væri
heldur Iaus f sniðum og fátt þar sem
hönd á festi. Því bæri frekar að líta á
þetta sem framtíðarsýn sem menn hefðu
þó sumir leiðtogar eins og Gaddafý' Lí-
býuforseti legði mikla áherslu á að þetta
mál fengi sem bestan og skjótastan fram- ___________
gang. I lok þessa leiðtogafundar var þó
samþykkt að setja á fót samband ríkjanna sem tæki mið af því sem er
að gerast í Evrópusambandinu. Nýja Afríkusambandið á að hafa ráð-
herraráð, samafrískt þing, Afríkudómstól og sameiginlega mvnt.
Hvort og hvenær þessum áformum verður hrint í framkvæmd er síð-
an-önnur saga. Gaddalý lýsti þessari samþykkt sem tímamótum í
mannkynssögunni, en aðrir voru ekki alveg eins vissir.
Mammar Gaddafy.
Dauðarefsing fyrir skattasvindl
BEIJING (Reuters) - Sjö manns voru í gær dæmdir til dauða í Kína
fyrir skattasvindl f suðurhluta Iandsins þar sem heitir Guangdong.
Þetta eru fýrstu dómarnir í umfangsmiklu spillingarmáli sem er það
stærsta scm upp hefur komið frá því að kommúnistar komust til
valda í landinu árið 1949.
■ FRÁ DEGI
LAUGARDAGUR 3. MARS
62. dagur ársins, 303 dagar eftir.
Sólris kl. 8.28, sólaralag kl. 18.53.
Þau fæddust 3. mars
• 1845 Georg Cantor, þýskur stærðfræð-
ingur.
• 1847 Alexander Graham Bell uppfinn-
ingamaður og kennari heyrnarlausra.
• 1914 Asger Jorn, danskur listmálari.
• 1951 Hjörleifur B. Kvaran borgarlög-
maður.
• 1962 Jackie Joyner-Kersee, bandarísk
fþróttakona.
TIL DflGS
Þetta gerðist 3. mars
•1918 sömdu Rússar um frið við Þjóð-
verja og Austurríkismenn í fýrri heims-
styrjöldinni, rúmu hálfu ári fvrir stríðs-
lok.
•1931 ákváðu Bandaríkjamenn endan-
lega að gera sönginn um „stjörnuprýdda
fánann" að opinberum þjóðsöng sínum.
• 1984 var kvikmynd Þorsteins Jónssonar
Atómstöðin frumsýnd.
Vísa dagsins
Nóg hefir önd mín
undra þegið;
ég em hið ytra
óviti nær.
En hið innra
allir skjdlfa
súlar rninnar
silfurstrengir.
Matthías Jochumsson
Afmælisbam dagsins
Bandaríska kvikmyndastjarnan Jean
Harlow var ein aðalkvnbomban á fjórða
áratug síðustu aldar. Hún fæddist í
Kansas City þann 3. mars árið 1911 og
hefði því orðið níræð í dag. Hún lést
hins vegar í Los Angeles árið 1937, að-
eins 26 ára gömul. Hún lék fy'rst í stutt-
um grínmyndum og lengri grínmynd
með Laurel og Hardy, en sló síðan í
gegn í myndinni Hell’s Angels árið 1930
og var ein vinsælasta leikkonan næstu
árin.
Kosturinn við lélegt minni er að maður get-
ur notið sömu góðu hlutanna oftar en einu
sinni í fýrsta sinn.
Friedrich Nietzsche (1844-1900)
Heilabrot
Hún er eineygð, sjónlaus, fótalaus og
handalaus en með langan hala" og getur
valdið sársauka ef menn gæta sín ekki í
umgengni við hana. Hver er hún?
Sfðasta gáta: Tveir mafíuforingjar, köllum
þá A og B, settust niður á bar og fengu sér
báðir sams konar dry'kk með klaka. Hvor-
ugur vissi að þeir voru í bráðri lífshættu,
því launmorðingi hafði byrlað þeim eitur. A
drakk sinn drykk í rólegheitum, en B skellti
sínum í sig í hvelli og pantaði strax annan.
Að fáeinum mínútum datt A niður dauður,
en B fann ekki fyrir neinu og lifði banátil-
ræðið af. Hvernig stóð á því?
Lausn: Eitrinu var komið fy'rir í ísmolun-
um, sem bráðnuðu í glasinu hjá Aen B var
búinn að drekka úr sínu glasi áður en ísinn
bráðnaði.