Alþýðublaðið - 26.02.1967, Page 10
26. febrúar 1967 - Sunnudags ALÞÝÐUBLAÐIO
Íþróttasíðunni barst nýlega
l réf frá körfuknattleiksunnanda,
s em hefur áhyggjur af því, hve
í áir áhorfendur mæta á körfu-
1 nattleikskeppni. Þetta er mikið
i andamál fyrir körfuknattleiks-
í íróttina og hér koma hugrenn-
■ ngar hjns áhyggjufulla körfu-
1 nattleiksunnanda:
„íslenzka liðið hefur mikla
r íöguleika í leiknum á morgun
t g mikið veltur á því, að áhorf-
e ndur hvetji leikmenn óspart. —■
5 korað er á áhorfendur að hvetja
s ina menn til dáða, þar sem það
í etur ráðið miklu um, hvort sig-
ijr vinnst eða ekki.”
_ — Eitthvað þessu líkt má lesá í
dagblöðum borgarinnar fyrir
lándsleiki í knattspymu og hand
knattleik á hverju ári.
! Allir þeir, sem eitthvað fylgj-
ast með íþróttum, vita hverjir
kostir fylgja því, að leika á
heimavelli og hafa áhorfendur á
sínu bandi; í bandarískum körfu-
knattleik er það metið til 10.—
15 stiga að leika á heimavelli.
Við fslendingar álítum okkur
stolta þjóð og allir lesa með á-
nægju í blöðum, ef íslenzkir í-
þróttamenn bera sigur af erlend-
um keppinautum sínum, sem að
vísu er ekki oft. Knattspyrnu-
menn okkar vinna ekki lands-
leik, ef undan eru skildir leikir
við frændur vora, Færeyinga, eða
Bdrmudamenn, soým nýbyrjaðir
eru að iðka knattspyrnu. Hand-
knattleiksmenn okkar heyja hvern
leikinn á fætur öðrum og tapa
yfirleitt með fárra marka mun,
sem að sjálfsögðu er að kenna
úthaldsleysi, mistökum þjálfara
og ekki sízt dómara.
BREMSUVÖKVI
BREMSUHLUTIR
Varahlutir I Kestar gerðir bif-
reiða
KRISTINN
GUÐNASON hf.
'klápparstíg 27 sími 12514
Laugaveg 168 sími 21965.
Hvaða íþróttagrein er það, sem
á síðastliðnu ári lék 8 landsleiki
og sigraði í 4 þeirra? 50% árang-
ur, auk þess að sigra þekkt há-
skólalið og unglingalandslið
Rhode Island fylkis í Bandaríkj-
unum.
Hvaða íþróttagrein er það, sem
sigrar milljónaþjóð í tveimur
landsleikjum í röð í íþróttahöll-
inni í Laugardal fyrir augum
samtals 300 áhorfenda (um 150
manns í hvort sinn)? íþróttagrein
sem hefur á að skipa leikmönn-
um, sem vakið hafa athygli um
alla Evrópu, álitnir beztir á Norð-
urlandamótum og svona mætti
lengi telja.
Svarið vita sjálfsagt flestir,
nefnilega körfuknattleikur. Það
er íþróttagrein, sem stunduð er
út um allt land, hvar • sem leik-
fimisalur finnst og hérna í höf-
uðborginni bætast æ fleiri í lióp-
inn, sem æfa körfuknattleik.
íþróttina skortir sem sé ekki
þátttakendur, það sem stendur
henni fyrir þrifum er eingöngu
skortur á áhorfendum. Um þetta
mál hefur verið mikið rætt og
ritað og sjálfsagt verið að bera
í bakkafullán lækinn að brydda
enn einu sinni á þessu, en þegar
hvert leikkvöld i Laugardalnum
kostar kr. 5000,00 og aðeins láta
fáeinir áhorfendur sjá' sig, hljóta
allir að sjá, að eitthvað verður
að taka til bragðs.
Að dómi flestra, sem ég hef
rætt við, er körfuknattleikur
skemmtileg íþrótt. Eftir leik KR
við ítalska liðið Simmenthal á
dögunum, sem reyndar var mjög
ójafn, luku allir upp einum rómi
um það, að þetta hefði verið
mjög skemmtilgur leikur og á
áhorfendapöllunum, sem í það
skiptið voru sæmilega skipaðir
(1500—2000 manns), mátti heyra
orð eins og „þetta er bara
bráðskemmtileg grein”; ,,ég held
maður horfi oftar á körfubolta.”
— Hvar er þetta fólk? Hvar er
fólkið, sem skemmti sér svona
vel á þessum leik, leik, sem aldr-
drei bauð upp á neina spennu,
því aldrei var neinn vafi á því,
hver sigurvegarinn yrði.
Borið saman við leiki í 2. deild-
inni fyrir skemmstu var þetta
leiðinlegur leikur, 2. deildin
bauð upp á leiki, sem voru hörku
spennandi og skemmtilegir, en
áhorfendur voru 34!
Að vísu má segja, að 1. deildin
sé ójafnari, þar má heita, að ÍR
og KR séu i sérflokki, en hin
fjögur liðin mjög jöfn. Það kom
bezt í Ijós um daginn, þegar ÍKF
sigraði Ármann, sem í síðasta ís-
landsmóti var í öðru sæti ásamt
ÍR og KFR mátti þakka nær yfir
náttúrlegri hittni eins manns sig-
Verður íþrótitahöllin í Laugardal þéttsetin, þegar íslendingar og Danir Ieika landsleik í körfuknatt-
leik við Dani eftir rúman mánuð?
ur sinn yfir ÍS, sem nú er í
neðsta sæti í íslandsmótinu.
Já, fyrsta deildin í ár býður
upp á marga spennandi leiki og
æsandi augnablik, en hvað snert-
ir tafir þær, sem mörgum er svo
tíðrætt um að telja, að fæli á-
horfendur frá leikjunum, má geta
þess, að í yfirstandandi íslands-
móti hafa verið tekin að jafnaði
2 leikhlé í leik, þ. e. eitt á hvert
lið. Það sjá allir, að það ætti
ekki að þurfa að skemma ánægj-
una.
Dómarar hafa skánað mikið,
þótt enn sé langt í land til að
þeir geti talizt góðir margir
hverjir. Framkvæmd leikkvölda er
yfirleitt mjög góð og þannig
mætti lengi telja.
Þetta er að vísu meira mál
orðið, en ég ætlaði í fyrstu, en
að endingu langar mig til að
beina þeirri áskorun til ykkar í-
þróttaunnendur góðir, að skreppa
eina kvöldstund inn í Laugardals-
höll, þegar leikið verður í fyrstu
deild næst og komast að raun
um, að körfuknattleikur er ekki
síðri íþrótt en aðrar, sem við eig
um kost á að fylgjast með hér
á landi.
Einn hinna fáu.
Byggingarvinna:
Byggingarfyrirtæki óskar að ráða strax starfsmenn í eftirtöldum grein
um, til vinnu í Straumsvík.
Jarðýtustjóra á Caterpillar D7, D8, D9.
Veghefilsstjóra.
Vörubifreiðarstjóra á 20-22ja tonna bifreiðar.
Sprengingamenn.
Hjálparmenn við mælingavinnu.
Verkamenn í almenna verkamannavinnu.
Umsækjendur komi sjálfir til viðtáls nk. mánudag eftir hádegi.
Strabag Bau A.G.
c/o Sigurður Hannesson & Co. hf.,
Hagamel 42,
Sími 22310 og 17180.