Dagur - Tíminn Akureyri - 08.02.1997, Blaðsíða 5
Jlagur-ÍEmttmt
Laugardagur 8. febrúar 1997 -17
MENNING O G LISTIR
Reyklausir Leikheimar
á ísafirði
Unglingar á fsafirði hafa
ástæðu til að gleðjast því
um helgina opnar
splunkunýr staður sem er sér-
staklega ætlaður þeirra aldurs-
hópi. Þar getur unga fólkið
komið saman og spilað uppá-
haldstónlistina sína, keppt í
snóker, kastað pflum eða not-
fært sér nýjustu tölvutæknina.
Leikheimar er nafnið á nýja
staðnum og í forsvari er Mikael
Rodriguez. „Ég á fjóra krakka
sjálfur og alitaf er verið að tala
um að vanti svona stað. Mig
vantaði líka starf og sá þarna
tækifæri," segir hann um
ástæðu þess að hann ákvað að
koma miðstöðinni á fót. Engin
sambærileg aðstaða hefur verið
fyrir krakka á fsafirði ef undan
er skilin félagsmiðstöð í skólan-
um en hún er aðeins opin þrjá
daga vikunnar. Auk félagsað-
stöðu fyrir unglingana verður
sjoppa á staðnum og kaffihorn
fyrir foreldra sem hafa áhuga á
að tylla sér inn og fylgjast með
börnunum. Mikael hefur jafn-
framt hug á að bjóða upp á
námskeið fyrir unglinga í Leik-
heimum t.d. tölvunámskeið og
einnig samkeppnir af ýmsu
tagi.
Ódýrara en í
höfuðborginni
Aðal nýjungin á Leikheimum er
ótvírætt tölvurnar sem hægt
verður að leigja sér tíma í.
Mikael leggur áherslu á að vera
einungis með tölvur af full-
komnustu gerð og eru þær allar
nettengdar innbyrðis auk þess
sem þær eru tengdar internet-
inu. I tölvunum verður hægt að
spila alla nýjustu tölvuleikina,
kíkja inn á veraldarvefinn eða
„irkið“ sem er einskonar spjall-
rás. Klukkutími í tölvunum á að
kosta 400 krónur. „Ódýrara en í
Reykjavík, þar kostar klukku-
tíminn 500 krónur,“ segir Mika-
el og afsannar þar með í snar-
hasti þann orðróm um að allt sé
dýrara á landsbyggðinni.
Út að reykja
Reykingar unglinga hafa verið í
umræðunni undanfarið en
Mikael er staðráðinn í því að
Leikheimar muni ekki gefa
unglingunum athvarf til að
reykja og verða reykingar því
stranglega bannaðar. Sömu
sögu er að segja um meðferð
áfengis. „Þetta verður algjör-
lega reyklaust. Ég er reykinga-
maður sjálfur en ég verð bara
að fara út að reykja,“ segir
„Alltaf verið að tala um að vanti
svona stað,“ segir Mikael Rodrigu-
ez, sem opnar um helgina stað á
ísafirði þar sem krakkar geta kom-
ið saman og gert ýmislegt sér til
skemmtunar. Mikael er Spánverji
en hefur búið á ísafirði í rúm 20 ár,
þar sem hann hefur lengst af verið
á SjÓnUm. Myn&.MH
hann ákveðinn.
Ætlunin er að Leikheimar
verði opnir daglega frá 15-23.
Krakkar yngri en þrettán ára
eru velkomnir fram til klukkan
sjö á kvöldin en eftir sjö verður
þrettán ára aldurstakmark. AI
Sigurborg
Hannesdóttir
skrifar
Hænan
eða eggið -
vellíðan eða
vanlíðan?
s
Eg er ein þeirra sem ræð
ekki alltaf við mig þegar
matur er annars vegar,
eða með öðrum orðum, ég er
haldin matarfíkn. Þetta er ekki
auðveld fíkn við að eiga, og er
áreiðanlega mun algengari en
kann að virðast.
Alkóhólistar geta þó hætt al-
veg að drekka, en við ofætur
þurfum alltaf að borða og erum
því kannski oftar á hættusvæði.
En um það leyti sem nýtt ár
gekk í garð, gerði ég að mér
fannst talsvert merkilega upp-
götvun. Það er nefnilega þannig
farið að ég hef ekki verið neitt
sérstaklega hress upp á síð-
kastið. Mér hefur eiginlega þótt
lífið bara frekar erfitt á köflum,
og verið djúpt á gleðinni minni.
Þess vegna hef ég sagt við sjálfa
mig að það sé nú alveg skiljan-
legt þó mig langi í súkkulaði og
hafi litla stjórn á mataræðinu.
Og svo hef ég bara borðað
meira súkkulaði. Aumingja ég.
En það sem ég uppgötvaði
um daginn var að það er alls
ekki ljóst hvort kemur á undan,
hænan eða eggið. Eða í þessu
tilfelli vellíðan eða vanlíðan.
Það er að segja, líður mér ekki
bara illa vegna þess að ég er í
ofáti og líkaminn er að kikna
undan sykurbyrðinni? Svo við-
held ég ástandinu með því að
hafa ekki meiri trú á sjálfri mér
en svo að halda að ég geti ekki
snúið við blaðinu. Eða að
minnsta kosti ekki strax.
Þannig sé ég mig núna
stadda í vítahring vanlíðunar,
sem ég viðheld með dyggum
hætti. En uppgötvunin fólst í því
að ég gerði mér grein fyrir hvað
þetta er í rauninni einfalt. Það
er að segja með því að segja
skilið við ofátið, eða fara í frá-
hald, sem kallað er, mun mér
óhjákvæmilega fara að líða svo
miklu miklu betur. Fráhald er
það kallað þegar þú borðar að-
eins þrjár máltíðir á dag, ekk-
ert milli mála og hugsar, eins
og aðrir fíklar, aðeins um einn
dag í einu. Einnig er sérstak-
lega gott fyrir ofætur að sleppa
ijórum fæðutegundum, sykri,
hvítu hveiti, fitu og salti. í
mínu tilfelli finn ég mest fýrir
sykurneyslunni. Og sykur hefur
tilhneigingu til að kalla á meiri
sykur. Þess vegna eru það
fyrstu skrefin sem eru erfiðust
út úr vítahring vanlíðunar. En
þegar þau hafa verið tekin,
breytist allt, og smátt og smátt
verður þetta allt léttara á fót-
inn. Þá er líkaminn byrjaður að
hreinsa sig og ef sykurlöngun-
inni er eingöngu fullnægt með
náttúrulegum sykri, t.d. ávöxt-
um, þá minnkar sykurþörfin.
Með allt þetta í huga hlýt ég
að viðurkenna að ég ber sjálf
alla ábyrgð á líðan minni. Ég
vel hvernig ég bregst við. Ef
ekki skín sól í sálarkytrunni,
get ég setið þar í myrkri og ver-
ið aum, eða ég get farið og
dregið frá gluggunum. Við skul-
um velja aukna vellíðan.
Lifið heil.
Kór Leikfélags Akureyrar
Kossar
og kúlissur
Samkomuhúsið
90 ára,
söngur, gleði, gaman
4. sýning
sunnud. 9. febr. kl. 16.00.
5. sýning
laugard. 15. febr. kl. 20.00.
Athugið breyttan sýningartíma.
Afmælistilboð
Mi&averS 1500 krónur.
Börn innan 14 ára 750 krónur
Undir
berum himni
eftir Steve Tesich
Sýningar
á „Renniverkstæðinu"
(Strandgöiu 49)
Laugard. 8. feb. kl. 20.30.
Föstud. 14. feb. kl. 20.30.
Föstud. 21. feb. kl. 20.30. Uppselt.
Síðasta sýning
Sýningin er ekki við hæfi barna.
Ekki er hæat að hleypa gestum inn
í salinn ettir að sýning er hafín.
Miðasalan er opin alla virka daga
nema mánud. kl. 13.00*17.00
og fram að sýningu sýningardaga.
Símsvari allan sólarhringinn.
Sími í miðasölu: 462 1400.
JDagur-'ðlímtmt
- besti tími dagsins!
21Im
ÞJÓÐLEIKHÚSID
Stóra sviðið kl. 20.00
KENNARAR ÓSKAST
eftir Ójaf Hauk Símonarson
I kvöld. Örfé sæti laus.
fimmtud. 13. febr,- sunnud. 16. febr.
föstud. 21. febr. Örfá sæti laus.
VILLIÖNDIN
eftir Henrik Ibsen
Á morgun. Uppselt.
Laugard. 15. febr. Uppselt.
Fimmtud. 20. febr. Laus sæti.
laugard. 22. febr. Uppselt.
ÞREK OG TÁR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
föstud. 14. febr.
sunnud. 23, febr.
Ath. Fáar sýningar eftir.
LITLl KLÁUS OG
STORI KLAUS
eftir H.C. Andersen
Á morgun kl. 14.00. Nokkur sæti laus.
Sunnud. 16. febr. kl. 14.00. Nokkur sæti laus.
Sunnud. 23. febr. kl. 14.00.
Sunnud. 2. mars. kl. 14.00.
Smíðaverkstæðið kl. 20.30
LEITT HÚN SKYLDI
VERA SKÆKJA
eftir John Ford
í kvöld. Uppselt.
Á morgun. Nokkur sæti laus.
Fimmtud. 13. febr. - Laugard. 15. feb.
Föstud. 21. feb. - Laugard. 22. feb.
Fimmtud. 27. febr.
Athygli skal vakin á að sýningin
er ekki við hæfi barna.
Ekki er hægt að hleypa gestum inn
í salinn eftir að sýning hefst.
Litla sviðið kl. 20.30
í HVÍTU MYRKRI
eftir Karl Ágúst Úlfsson
Föstud. 14. febr.
Miðvikud. 19. feb. - Sunnud. 23. feb.
Ekki er hægt að hleypa gestum inn
í salinn eftir að sýning hefst.
Listaklúbbur Leikhúskjallarans mánud. 10. febr.
Einstakur tónlistarviðburður. Jeroen den Herder
(selló) og Folke Nauta (píanó) sem eru meðal
Iremstu tónlistarmanna Hollendinga halda tónleika á
vegum Listaklúbbsins í samvinnu við ræðisskrifstofu
Hollands á íslandi. Husið opnað kl. 20.30 -
dagskráin hefst kl. 21.00 - miðasala við inngang.
Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga
kl. 13-18, frá miðvikudegi til sunnudags kl.
13-20 og til 20.30 þegar sýningar eru á þeim
tíma. Einnig er tekið á móti símapöntunum
frá kl. 10 virka daga.