Dagur - Tíminn Akureyri - 08.02.1997, Blaðsíða 14
26 - Laugardagur 8. febrúar 1997
|Dagur-®ímtmt
Útlitseinkenni sem margar konur líta á
sem lýti eru oft sömu einkennin og aðrar
notfæra sér til að undirstrika persónu-
leikann. í staðinn fyrir að reyna að fela
einkenninn leggja þessar konur áherslu
á þau og nota snyrtivörur til að fegra
þau en ekki fela. Lítum á nokkur dæmi.
Þykkar augnabrýr
Ekki freistast til að
breyta laginu á
augnabrúnunum
eða þynna þær. Ef
þú ert með þykk-
ar augnabrýr
passa þær líkast
til við andlitsfall
þitt. í staðinn
skaltu snyrta
þær vel, plokka
hár sem leynast á
milli brúnanna og
bursta þær upp. Dæmi
um fræga leikkonu með
þykkar augnabrýr: Brooke Shields.
Skarpir andlitsdrættir
Konur með fínlega en
skarpa andlitsdrætti
eiga það til að nota
sterka, afgerandi
liti á kinnar, var-
ir og augnlok.
Sú leið er hins-
vegar ekki æski-
leg. Betra er að
nota milda past-
eltóna. Þá njóta
hinir fínlegu
drættir sín til fulln-
ustu. Dæmi um fræg-
ar konur sem fylla þennan
flokk: Michelle Pfeiffer og Kate Moss,
Breiddin í hártísku
herranna er mikil.
Bæði stutt og sítt
hár er í tísku og lit-
irnir eru fjölbreyttir.
Kringuleitt andlit
Konur með kringluleit
andlit eiga ekki að
reyna að búa til há
kinnbein með því
að maka á sig
kinnalit. Betri
leið er að leggja
áherslu á að
draga augun
eða varirnar
fram. Og kringu-
leitt andlitsfall
hefur þann kost að
konur halda unglegu
úthti lengur en flestar aðr-
ar. Dæmi um fræga fyrirsætu með
kringluleitt andlitsfall: Isabella Rosselini.
Stórt nef
Þó unglingsstúlkur séu
sennilega flestar
ósáttar við risanef
geta þær, sem
fullorðnar konur,
lært að meta
það að verðfeik-
um. Þá er í það
minnsta ekki
hægt að saka
þær um að hafa
ekki bein í nefinu!
Ekki reyna að fefa
nefið með því að
púðra yfír það. Eina sem
hefst upp úr krafsinu er að það lítur út
fyrir að vera skítugt. Frægar konur með
voldug nef: Barbara Streisand og Anjel-
ica Huston.
Hláturiim lengir lífið
Hvað eru hlátrasköll að villast inn
á síðu þar sem fjalla á um tísku
og stíl? Jú, hláturinn gerir fleira
en að lengja fífið. Þegar við hlæjum dátt
hleypum við streitu út og verðum svo
miklu glaðari. Og glatt afslappað fólk lít-
ur alla jafna miklu betur út en hinir sem
eru útúrtaugaðir og í fýlu.
En það er ekki sama með hverjum
við erum þegar við hlæjum. Til að hlát-
urinn fái að streyma frá okkur óþvingað
þurfum við helst að vera í góðra vina
hópi og með þetta í huga má ef til vill
færa rök fyrir því að saumaklúbbarnir
séu í raun fyrirtaks fegrunarmeðöl,
þrátt fyrir allar kökurnar sem þar eru á
borðum.
Þegar fólk hefur þekkst í langan tíma
eru minningarnar margar og oft nægir
að nefna eitt orð og þá fara allir að
hlæja. „Munið þið Stofu 29?“ segir t.d.
ein stelpan í hópnum.
Og þá brjálast alíar úr
hlátri. Því það var í
þeirri stofu fyrir mörg-
um árum sem ein þeirra
leysti vind svo hátt að
allir heyrðu, líka strák-
urinn á næsta borði sem
hún var svo hrifin af.
Síðan hefur nægt að
nefna stofunúmerið og
þá vita þær að sama at-
vikið kemur upp í huga
þeirra allra. Kannski er
það einmitt þetta sem
vinskapur gengur út á?
Að eiga eitthvað sameig-
inlegt til að hlæja að.
Hugrakkir herrar
Hártískan hjá herrunum er íjöl-
breytt og frumleg um þessar
mundir, einkum hjá yngri kyn-
slóðinni. „Ungu strákarnir bjóða upp á
mjög skemmtilega tilbreytingu því þeir
þora. En við fáum ekki menn um fertugt
í bláar strxpur,“ segir Hulda Hafsteins-
dóttir á Medúllu á Akureyri þegar blað-
ið leitaði til hennar og spurði um karla-
hártísku.
„Strákar eru nýir viðskiptavinir á
hárgreiðslustofum. Karlmenn milli þrí-
tugs og fertugs koma sumir til að láta
lita á sér hárið en þó ekki mikið. Ef við
skoðum hinsvegar yngri karlmenn, ung-
lingana alveg niður í fermingaraldur, þá
er þeir farnir að láta hta sig, setja í sig
strípur og gera allt mögulegt. í heildinni
eru miklu fleiri strákar sem gera það en
var fyrir örfáum árum,“ segir Hulda.
Strákarnir hafa
þorað meira en
stelpurnar að fara
út í neonliti eins og
bláu strípurnar eða
sterkrauðar.
„Og þetta er alltaf að aukast," bætir hún
við.
- En hvað með karla yfir fertugt, eru
þeir íhaldssamari?
„Jú, þeir eru það. Eru ekki mikið fyr-
ir að láta lita hárið. Þó alltaf einn og
einn. En almennt myndi ég segja að lit-
unarhópurinn sé frá fermingaraldrinum
og upp í þrítugt."
Bláar og rauðar strípur
Eins og sést á meðfylgjandi mynd er
breiddin í karlmannahártískunni mikil,
bæði stutt og sítt hár og litirnir íjöl-
breyttir. Hvaða línur eru mest áberandi
að mati Huldu? „Annarsvegar er alveg
stutt hár, loðið og endarnir standa að-
eins út í loftið. Stefán Hilmarsson,
söngvari, er t.d. með þessa klippingu og
einnig leikarinn Brad Pitt. Hinsvegar er
bítlaúthtið. Síð bogalína en samt ekki al-
veg sítt hárið. Frekar millisídd. Síðan er
hka alveg sítt eða rosa stutt, jafnvel rak-
að. En það er þó ekki það heitasta í
dag.“
- Hvaða litir eru
helstir?
„Það eru strípur,
litir og skol. Allt
mögulegt. Strákarn-
ir hafa þorað meira
en stelpurnar að
fara út í neonliti
eins og bláu stríp-
urnar eða sterk-
rauðar. Svo hafa
þeir líka látið heill-
ita sig í aflitun en
það er þó að
minnka og eðlilegri
litir að verða al-
gengari. Engu að
síður eru strákarnir
mjög frakkir. Þeir
sem lita sig á annað
borð eru ekkert
hræddir við það.“
AI
Fesrið frekar
en felið