Dagur - Tíminn Akureyri - 08.02.1997, Page 8

Dagur - Tíminn Akureyri - 08.02.1997, Page 8
20 - Laugardagur 8. febrúar 1997 ^Dagur-®mrám Sæunn Axelsdóttir er 55 ára og hefur alla tíð búið á Ólafsfirði. Hún er hér ásamt sonunum fjórum sem eiga fyrirtækið og reka með henni, Ásgeiri Loga, Axel, Frímanni og þeim yngsta, Kristjáni Ragnari sem er 19 ára. Sæirnn býður sægreifunum byrginn Hún vill takast á við hlutina og œtlar að rífa rekstur frystihússins á staðnum upp. Hún for- dœmir kvótahrask óprúttinna aðila og segir mál að linni. Það þurfi hreinlega að skikka menn til að nota það fé innanlands sem þeir fá ef þeir selja kvóta eða hlutabréf út á kvóta. Sæunn Axels ehf. í Ólafsfirði er leigutaki Hraðfrystihúss Ólafsfjarðar næstu fimm árin. Sæunn Axelsdóttir, konan á bak við nafnið, er bjartsýn á að sér og sonum sínum takist að færa út kvíarnar og ná betri rekstrarárangri en núverandi eigendur sem tóku ákvörðun mn að loka frystihúsinu. „Við vitum alveg hvað við ætlum okkur að gera og erum ekki að ana út í neina óvissu. Okkar styrkur er sá að við höf- um markaðina en oftast er veiki hlekkurinn sá að fólk fer af stað og hefur ekki söluna. Hana höf- um við, auk þess sem við höfum verið að gera svipaða hluti áður þótt aðrir hafi unnið vöruna að hluta og við svo selt hana.“ Sæunn Axels ehf. rekur salt- fiskverkanir bæði í Reykjavík og í Ólafsfirði og hefur fyrirtækið verið óhrætt við að sækja á óhefðbundin mið. Segja má að heimurinn allur sé undir, mikið er selt á Brasilíumarkað, til Argentínu og Kanada. Og velgengnin, segir eigand- inn, stendur í beinum tengslum við það að fyrirtækið hefur ekki verið að selja sömu afurðir og allir aðrir og eins rennur varan viðstöðulaust út. „Það þýðir ekkert að berja hausnum við steininn, markaðirnir ráða og maður verður að vera tilbúinn að sveiflast með þeim.“ Og það hefur frystihúsa- reksturinn í landinu ekki gert? „Ekki eins og hann er í dag, en hitt er annað mál að það þarf oft bara.nýtt blóð og ungt fólk til að skynja markaðinn, sveiflurnar eru svo miklar. Menn hafa hugsað dæmið vit- laust, það þarf ekkert að remb- ast við dýrar afurðir í dýrum umbúðum, maður verður bara að vera vakandi. Ég myndi ekki vilja sjá Sæunni Axels í dag ef við hefðum bara haldið áfram að eltast við að salta. Við tókum ákveðna áliættu að fara yfir í allt annað en aðrir voru að gera og höfum aldrei staðnað sem er auðvitað strákunum að þakka. Þeir hafa sýnt og sannað, að það sem þarf er að vera sýknt og heilagt með markaðinn á hreinu, ferðast um og fylgjast með.“- Markaðsaugun Ungu mennirnir sem halda Sæ- unni ehf. vel markaðstengdri eru synir Sæunnar og Ásgeirs Ásgeirssonar, framkvæmda- stjóra fyrirtækisins, þeir Ásgeir Logi, Axel, Frímann og Kristján Ragnar. Þeir hafa allir brenn- andi áhuga á rekstrinum og kemur ljómandi vel saman, Sæ- unn vill meina að í raun vinni þau hjónin nú með þeim en ekki öfugt. Ásgeir Logi sér um rekstur- inn í Ólafsfirði, Frímann er í Reykjavík og sér um þurrfisk- söluna til Brasilíu auk yngsta bróður síns, Kristjáns, sem stundar nám í Verslunarskólan- um og Axel vinnur eins og nokkurs konar móðurtölva frá Barcelona.. „Axel er mikill tungumálamaður og ferðast um allt til að fylgjast með mörkuð- um og passar þar með upp á að við séum ekki að framleiða eitt- hvað til að setja í geymslur eða vinna aðra handarbaka- vinnu. Þegar hann gefur merki verðum við að vera til- búin að breyta vinnslunni. Vandi frysti- húsanna er tengingarleysi við markaðina, það er dýrt að borga vexti og geymslur undir afurð sem ekki selst jafnharð- an. En það er ekki aðalvand- inn, hann er sá að óprúttnir aðilar hafa braskað með kvótann frá byrj- un og eru að leggja byggðarlög- in í landinu í rúst.“ Sölusamtökin spilla fyrir á erlendum mörkuðum Tilhugsunin um það hvernig Ól- afsfjörður liti út eftir fimm ár ef Hraðfrystihúsið hefði ekki verið opnað aftur, þ.e. ef Sæunn ehf. hefði ekki verið til staðar, gerir Sæunni reiða. „Hvernig ég hefði séð Ólafs- fjörð eftir fimm ár? Þar með erum við kom- in að vendi- punkti og við skulum bara taka hugsun- ina lengra, hvernig sjáum við ísland eftir fimm ár? í raun þori ég ekki að hugsa þá hugsun til enda ef þessu linnir ekki, að óprúttnir aðil- ar braski með kvótann og þar með byggðar- lögin. Það voðalegasta í dag er þetta brjálæði út, á markaðnum með kvótann. Þessir menn eru að selja kvótann sem þeir fá „Það voðalegasta í dag er þetta hrjál- œði úti á markaðn- um með kvótann. Þessir menn eru að selja kvótann sem þeirfá upp í hend- urnar og hagnað- inn fara þeir meira og minna með erlendis. “

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.