Dagur - Tíminn Akureyri - 15.02.1997, Side 3
©agur-Œtmhm Laugardagur 15. febrúar 1997 -15
Viðar á
ferð og flugi
Viðar Eggertsson hefur verið á ferð og flugi
síðustu mánuði og í kvöld kl 20.33 „stundvíslega"
frumsýnir Leikfélag Selfoss þrírétta leikhúsveislu
undir hans stjórn. Á morgun flýgur hann svo
rakleiðis til Fœreyjar þar sem hann œtlar að leik-
stýra Krabbasvölunum.
„í forrétt verður einþáttung-
urinn Leikhúsferðin eftir Carl
Valentine, sem var þekktur
skopleikari í Þýskalandi í byrj-
un aldarinnar. Bertolt Brecht
hreifst mjög af leikverkum Val-
entines, ekki síst þessu, og þótti
okkur þess vegna vel við hæfi
að sýna Leikhúsferðina
sem forleik að Smá-
borgarabrúðkaupi
Brechts sem er aðalrétt-
ur kvöldins en í eftirrétt
verður ýmis konar
„uppistand“.“
Leikhúsferðin segir
frá hjónum sem verða
fyrir þeim ósköpum að
Guðrún Haila Jónsdóttir,
Sölvi Hilmarsson og Guð-
björg Arnardóttir í
híutverkum sínum.
fá gefins miða í leikhús og basli
þeirra við að undirbúa þá leik-
hsúferð. Það liggur í loftinu að
þau gætu verið að fara að sjá
Smáborgarabrúðkaupið og geta
þannig leikhúsgestir séð sjálfa
sig í endurspeglast í verkinu.
„Smáborgarabrúðkaupið er
svo aftur ærslafullur gaman-
leikur sem gerist í brúðkaupi
ungra hjóna þar sem allt virðist
slétt og fellt á yfirborðinu - þar
til grímurnar falla og ekkert
reynist eins og upphaflega
sýndist.
Viðar leikstýrði kassastykk-
inu Þið munið hann Jörund á
Selfossi fyrir 13 árum og sló sú
sýning öll aðsóknarmet. „Það er
leyndur draumur minn að þessi
sýning slái met Jörundar."
Panell og
marmari óþarfur
Aðstaða LS er í einu elsta húsi
bæjarins þar sem komið verður
upp kaffihúsi svo gest-
ir geta notið veitinga
meðan á sýningu
stendur en salurinn
tekur um 80 manns í
sæti. Nokkuð aðrar
aðstæður en í Borgar-
leikhúsinu, skyldu
menn ætla. „Þetta hús
hefur mikinn sjarma.
Aldur hússins harm-
onerar við þann tíðar-
anda sem við erum að
reyna að skapa, tíma
Viðar Eggertsson leikstýrir þrírétta leikhúsveislu á Selfossi.
þöglu myndanna, þegar píanó-
leikarar léku undir á kvik-
myndasýningum og sköpuðu
stemmninguna."
Eitt best varðveitta leyndar-
mál leikhúsheimsins er salur í
hálfkaraðri byggingu Hótels
Selfoss, sem hýsir annað
stærsta leiksvið á landinu.
„Þetta hafa verið stórhuga
menn sem reistu þessa bygg-
ingu en það þarf ekki svo mikið
til að koma salnum í gagnið. Ef
það væri hiti í salnum þá er
komið rými sem er hægt að
vinna í. Það þarf ekki að vera
panill og marmari til að vera
leikhús," sagði Viðar Eggerts-
son.
Hólmfríður Þórisdóttir/lóa
Allt svmaríið í Evrópunni
Hópurinn sem tekur þátt í uppfærslunni á Vefaranum mikla frá Kasmír, sem frumsýndur verð-
ur21.mars. uynö-. gs
Hver er Steinn Elliði? Er hann
brjálað gáfumenni sem leitast eft-
ir tortímingunni einni eða ofur-
menni sem ekkert bítur á? Þessi hættu-
legi nútímamaður sem spratt fram fyrir
70 árum með skáldsögu Halldórs Laxnes
Vefaranum mikla frá Kasmír? Leikfélag
Akureyrar hefur hafist handa við að
móta útgáfu af Steini Elliða og öðrum
persónum versksins en æfingar á leik-
gerð þeirra Halldórs E. Laxness og
Trausta Ólafssonar hófust í vikunni.
Það er Halldór E. Laxnes sem leik-
stýrir Vefaranum mikla frá Kasmír, sem
er afmælisverkið í tilefni af 80 ára af-
mæli Leikfélags Akureyrar. Sérstök há-
tíðarsýning verður á verkinu á afmælis-
deginum sjálfum þann 19. apríl en
frumsýningin er fyrirhuguð 21. mars.
„Það hefur löngum þótt vonlaust verk
að gera leikgerð eftir Vefaranum en svo
er ekki, maður verður bara að velja og
hafna,“ segir Halldór.
Skoðanir og sokkar
„Aðalpersónurnar í Vefaranum eru
Steinn Elliði og Diljá og braut bókin blað
í sögu íslendinga þar sem þeir yfirgáfu
að hluta til rómantíkina. Margar deilur
hafa átt sér stað um söguhetju bókar-
innar. Steinn er stórskorni karakterinn
og menn muna mest eftir honum en hin
þögla kvenvera sem stendur á bak við
mannfélagið er eins og oft stærri í lokin.
Það má segja að verkið sé um þrjár stór-
ar konur, öminuna, mömmuna og dótt-
urina. Steinn Elliði er hinn hættulegi nú-
tímamaður sem skiptir um skoðun eins
oft og um sokka og hleypur á eftir
straumum og stefnum. Á endanum týnir
hann svo sjálfum sér og það eina sem
hann getur gert er að skella sér á eina
elstu stofnun veraldar, rómversk-kaþ-
ólsku kirkjuna. Þar með er hann settur
inn í bankahólf."
Hvernig séröu Stein Elliða?
„Þetta er yndislegur maður með
mikla krafta, en margir kraftmiklir
menn enda í geysilegri eyðileggingu.
Meginlínan í leikgerðinni eru samskipti
Diljá og Steins, sem eru þarna auðvitað
maður og kona en einnig Iífið og blekk-
ingin.“
Halldór kvíðir því ekki að menn gagn-
rýni verkið sökum þess að þeir hafi ver-
ið búnir að sjá persónurnar allt öðruvísi
fyrir sér. „Nei, ég er ekki hræddur við
það, menn verða bara að horfa á verkið
sem leikgerð Halldórs E. Laxness,
Trausta Ólafssonar og Leikfélags Akur-
eyrar 1997 en ekki sem biblíu, eitthvað
endanlegt. Þetta er ein leið af milljón
sem við förum. Verkið hefur geysilega
breidd, þarna er glaumur, gleði, sukk og
svínarí." Það eru þau Þorsteinn Back-
mann og Marta Nordal sem leika Stein
Elliða og Diljá. -mar
Jónas Friðrik, sá sami og semur marga texta
Ríó Tríós, blæs hér í lúður. Persónan sem
hann leikur heldur að hann sé Teddy Roose-
velt.
Blúndur m
blásýra a
Raufarhöfn
Tvær eldri konur eru svo góðhjartaðar
að þær ákveða að veita einmana, lífs-
leiðum og þreyttum mönnum frið og
sælu með því að taka þá af lífi.
Þetta mun vera inntakið í amersíka
farsanum Blúndur og blásýra sem Leik-
félag Raufarhafnar frumsýnir í kvöld. Og
eins og'SÖnnum farsa sæmir eru um
endalausan misskilning að ræða. Verkið
er eftir John Kesselring en Ævar R.
Kvaran á þýðinguna. Um 20 manns
koma fram í sýningunni en leikstjóri er
Bergljót Arnalds.
Sýningarstaður er félagsheimilið á
staðnum og hefst frumsýningin klukkan
20:30. Næsta sýning verður síðan strax
annað kvöld og einnig er fyrirhugað að
vera með sýningar á mánudags- og
þriðjudagskvöld. AI