Dagur - Tíminn Akureyri - 15.02.1997, Page 4

Dagur - Tíminn Akureyri - 15.02.1997, Page 4
16- Laugardagur 15. febrúar 1997 IDagur-'ŒKttrám MENNING O G LISTIR Af sjónum í tréskurðinn Hvað gera menn, sem alla sína œvi hafa unn- ið erfiðisvinnu, þegar aldurinn fœrist yfir og þrekið minnkar? Svör- in eru sjálfsagt jafn- mörg og mennirnir sem um rœðir. Einn er sá maður sem Dagur- Tíminn hitti á dögun- um sem ekki hefur far- ið troðnar slóðir. Hann heitir Ragnar Her- mannsson frá Flatey á Skjálfanda. Ragnar býr á heimili sonar síns og tengdadóttur á Húsavík og hefur lítið herbergi á neðri hæðinni fyrir tréskurðinn. „Ég var sjötugur þegar ég byrjaði í útskurðinum," segir Ragnar, sem hefur aldeilis ekki setið auðum höndum síðan. Eitt námskeið í tréskurði sótti hann á Húsavík undir leiðsögn Þór- halls Jónatanssonar. Hann fann þá strax að þarna var eitthvað við hans hæfi, gef- andi og skapandi í senn. Því næst lá leið- in suður á land Ragnar Hermannsson frá Flatey á Skjálfanda. til frekara náms í tréskurði hjá Skurð- listarskóla Hannesar Flosasonar í Kópa- vogi. Áhuginn fyrir skurðlistinni bara jókst og í dag eru „pappírarnir" orðnir fjórir sem Ragnar á og sýna fram á að fjórum námskeiðum er lokið frá skóla Hannesar Flosasonar. Einu sinni á þess- um árum hefur hann tekið þátt í sölu- sýningu ásamt fleira handverksfólki á Húsavík. En eins og hann sjálfur segir þá gerir hann þetta ánægjunnar vegna fyrst og fremst. Gamall trillukarl í Flatey Þegar Flatey á Skjálfanda var í byggð stundaði Ragnar sjóinn og fiskverkun eins og aðrir vinnufærir menn í Flatey á þeim tíma. Trilluna á hann enn en sjaldnar er farið á sjóinn en áður var. Trillan heitir Ör ÞH 313 og hefur reynst eigandanum vel. Ragnar og fjölskylda hans var í hópi síðustu Ffateyinganna sem fluttu í land árið 1967. Húsinu þeirra sem þá var yfirgefið er haldið við og notað sem sumarhús. Fleiri próf Veðrið má vera ansi vont til að Ragnar fái sér ekki göngutúr „niður fyrir bakk- ann“ til að hitta og spjalla við karlana í skúrunum og hina Myndir: GKJ gömlu sjóarana sem líka þurfa að fylgjast með sjósókninni og aflabrögð- um. Og eina og eina ferð má þá fara á bflnum, en bflinn keypti hann sér eftir að hafa drifið sig í bflprófið tæpfega sjö- tugur. „Maður þarf að endurnýja öku- leyfið örar en ungu mennirnir þegar svona seint er farið af stað. Ég fékk leyf- ið til fimm ára í upphafi en verð núna að endurnýja á tveggja ára fresti." Spurningunni sem sett var fram í upphafi hefur verið svarað hvað varðar Ragnar Hermannsson. Sá sem finnur sér tómstundir við hæfi þegar aldurinn fær- ist yfir og lætur heldur ekki smámuni eins og nám og próf aftra sér, þarf engu að kvíða meðan heilsa og áhugi helst. „Maður getur alltaf á sig blómum bætt.“ GKJ Torfbærinn leikur í höndunum á Ragnari eins og annað myndefni. „Lífið er saltfiskur." Ragnar er hættur að salta fisk en hefur engu gleymt um útlit þess útflatta. Hvalaskoðun á Skjálfandaflóa verður æ vinsælli meðal erlendra ferðamanna sérstaklega. Ragnar er kannski hættur að heimsækja hvalina á flóanum en að móta þá í tré það kann hann. Fyrsta myndin sem Ragnar skar út var þessi glæsilega seglskúta.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.